Tíminn - 08.11.1980, Qupperneq 4
4
Laugardagur 8. nóvember 1980
í spegli tímans
Loni Anderson með hárkolluna/ sem notuð
er síðast í myndinni um Jayne Mansfield.
„Hvíthærða
Arnold Schwarzenegger og Loni sem hjónin Jayne og
Mickey Hargitay.
kynbomban
5 1
Jayne Mansfield var fyrst og fremst þekkt sem
„hvíthærða kynbomban", en hún hafði alltaf
mikinn hug á því að sanna áhorfendum að hún
væri fyrst og fremst leikkona. Henni entist ekki
aldur til þess, því að f lest þau hlutverk sem hún
f ékk byggðust f yrst og f remst á útliti hennar. Nú
hefur verið gerð kvikmynd um ævi hennar.
Jayne fæddist 1933 og dó í bílslysi 1967, 34 ára. Þá
hafði hún ekki enn sannað gildi sitt sem leikkona
en blöðin töluðu um „bleika heimilið" hennar.
Allt var bleikt,bleik rúmföt og rúmið sömuleiðis
og rúmið var eins og stórt hjarta i laginu. Bleika
baðkarið hennar var líka hjartalaga.
Eiginmaður Jayne var vöðvafjallið Mickey
Hargitay, sem varð heimsmeistari í „kroppa-
keppni" vöðvakarla. Núverandi vöðvakappi,
Arnold Schwarzenegger, leikur eiginmann Jayne
í myndinni. Hann hef ur komið á óvart með ágæt-
um leik og hversu hann var fljótur að taka til-
sögn því að það er yf irleitt ekki búist við neinum
andlegum afrekum af þessum vöðvafjöllum.
Arnold er alveg fyrsta flokks leikari, segir mót-
leikkona hans Loni Anderson en hún sagðist hafa
verið kvíðin að leika á móti honum.
Loni átti að láta lita á sér hárið platínuhvitt til
þess að líkjast enn meir fyrirmyndinni Jayne^en
hárgreiðslumeistarinn sagði henni að hár hennar
myndi skemmast af svo sterkum lit, sem yrði
marga mánuði að vaxa úr hárinu aftur. Þá fór
Loni fram á það við f ramleiðendur myndarinnar
að þeir létu gera hárkollur sem hún gæti notað i
myndinni. Það voru gerðar margar hárkollur
eftir hinum ýmsu greiðslum, sem Jayne var með
á gömlum myndum, en þegar farið var að taka
saman hárkollukostnaðinn í myndinni þá brá
framleiðendum í brún, þvi að hann var orðinn
um fjórar milljónir króna!
tSVO'
— Hæ elskan, þú hefur
unniö I golfkeppninni . .
-'O'; '
— Súsanna mfn, helduröu
ekki aö þessi þakkarkort
megi blöa til morguns?
— Og ég lofa aö hreinsa
snjóinn hjá þér í vetur,
væri hægt aö fá svolítið
kaup fyrirfram?
krossgáta
H5
t
3439.
1. Vegir. 6. Lukka. 8. Fugl. 9. Trant. 10.
Hár. 11. Ætt. 12. Straumkast 13. Vin. 15.
Skakka.
Lóörétt.
2. Gamalmenna. 3. Nes. 4. Táning. 5.
ötulu. 7. Naglar. 14. Greinir.
Ráöning á gátu No. 3438.
Lárétt.
1. Fálki. 6. Slæ. 8. Söl. 9. Róm. 10. Áma. 11.
Ask. 12. Sel. 13. Unt. 15. Fráir.
Lóðrétt.
2. Áslákur. 3. LL. 4. Kærasti. 5. öslar. 7.
Smali. 14. Ná.
bridge
Nýlega voru spiiuð undanúrslit i bikar-
keppni B.S.l. Sveit Óðals vann sveit
Þórarins Sigþórssonar og sveit Hjalta
Eliassonar vann sveit Sigfúsar Arna-
sonar. Sveitirnar sem unnu mætast svo i
úrslitaleik sem fer fram á Hótel
Loftleiðum 6. desember. Spilið i dag er frá
leik Hjalta og Sigfúsar.
Norður. S. K96
H. AD1075 T. 7 L.10653 N/Enginn
Vestur. Austur.
S. 5 S. D8
H. 96 H.K
T. K108532 T. ADG964
L. A94 Suður. S. AG107432 H.G8432 T. - - L.D L. KG82
1 opna salnum sátu Helgi Jónssonog
Helgi Sigurðsson i NS og örn Arnþórsson
og Guðlaugur Jóhánnsson i AV.
Vestur Norður. Austur. Suður
pass 2 tiglar 4spaðar
5tiglar 5spaðar allir
pass.
Það er kannski umdeilanleg ákvörðun
hjá Guðlaugi i vestur að passa 5 spaða en
eins og hann sagði með réttu þá vissi hann
ekkert hvað hann átti að gera ef Helgarnir
héldu áfram i 6 spaða. En Guðlaugur
íryggöi sér allavega toppskor i 5 spöðum
þegar hann spilaði út litlu laufi. Þegar
örn átti slaginn á kónginn var suður viss
um að austur ætti ás og kóng i laufi. Og
þar sem 2 tiglar lofuðu venjulegri opnun
meðgóðum tigullit var ekki rúm fyrir
hjartakónginn þar. Þegar austur spilaði
spaða til baka tók Helgi spaðann og
svinaði siðan hjartanu. 450 til Sigfúsar. 1
lokaða salnum sátu Þórir Sigurðssn og
Asmundur Pálsson i NS og Gestur
Jónsson og Sverrir Kristinsson i AV.
Vestur. Norður. Austur. Suður.
pass ltigull 3spaðar
5tiglar 5hjörtu pass pass
6tiglar pass pass 6hjörtu
pass 6spaðar dobl.
Þegar vestur spilaði út laufaás var
e.t.v. ekki alveg úti hött aö stinga upp
hjartaás. En Asmundur spilaöieftir likun-
um og svinaði hjartanu. 11 impar til Sig-
fúsar.
— Nei, eruö þiö þá komin blessuö hjón-
in ég átti ekki von á ykkur svona
snemma...