Tíminn - 10.12.1980, Side 13
Miðvikudagur 10, desember 1980.
13
Krá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Kór og hljómsveit Tónskól-
ans halda tónleika
BSt — í dag, miðvikudaginn 10.
des., efnir Tónskóli Sigursveins
D. Kristinssonar til tónleika i
kirkju Óháða safnaðarins við Há-
teigsveg klukkan 20.30.
Bæði kór og hljómsveit skólans
munu taka þátt i hljómleikunum.
Hljómsveit Tónskólans mun sjá
um fyrri hluta efnisskrár og flytja
verk eftir J. S. Bach, Haydn og
Grieg, einleikari með hljómsveit-
inni verður Kristján Matthiasson.
Eftir hlé mun svo Kórinn og
hljómsveitin ásamt einsöngvur-
unum Sigrúnu V. Gestsdóttir og
John A. Speight, flytja kantötu nr.
140 „Vakna, Sions verðir kalla”
eftir J.S.Bach.
Tónleikarnir hefjast eins og áð-
ur sagði kl.20.30 og eru nemend-
ur, foreldrar, styrktarfélagar og
aðrir velunnarar skólans vel-
komnir. Stjórnandi tónleikanna
er Sigursveinn Magnússon.
FTestunarfrumvarp krata:
íslenska þjóðin getur komist
yfir peningaskortinn
JSG — Agúst Einarsson mælti i
gær fyrir frumvarpi nokkurra
þingmanna Alþýðuflokksins um
frestun gjaldmiðilsbreytingar-
innar um eitt ár. Agúst hóf ræðu
sina með þvi að tilkynna að rikis-
stjórnin myndi ekki gripa til efna-
hagsráðstafana fyrir næstu ára-
mót: þvi væri sjálfsagt að fresta
fyrirhugaðri breytingu, en einu
rökin sem hægt væri að færa gegn
þvi að svo yrði gert, væri að slikt
myndi reynast ógerlegt af tækni-
legum ástæðum.
Yrðu þessar tæknilegu ástæður
látnar aftra frestun, sagði Agúst,
„væri þetta fyrsta málið sem ég
vissi um að ekki værihægt að taka
skynsamlega afstöðu til”. Hann
sagði að islenska þjóðin hefði áð-
ur lagt aðra eins erfiðleika að
baki eins og myndu skapast
vegna skorts á peningum um
tima. Hægt væri að auka notkun á
ávisunum og skuldaviðurkenn-
ingum.
bá vitnaði Agúst m.a. i viðtal
við Jóhannes Nordal i Morgun-
pósti, þar sem hann hefði ekki
viljað fullyrða að frestun væri
tæknilega ómöguleg, en að
minnsta kosti yrði hún dýr, þar
sem prenta þyrfti nýja seðla sem
aðeins yrðu notaðir i fáa mánuði.
Vilmundur vill breyta lögunum
um stéttarfélög:
Vinnustaöafélög semji
um kaup og kjör
JSG —Vilmundur Gylfason mælti
i gær fyrir frumvarpi sinu um
breytingar á lögum um stéttarfé-
lög og vinnudeilur. Vilmundur
lýsti kjarnanum i frumvarpi sinu
á þá leiöað „vinnustaðurinn verði
grundvallareining þegar samið er
um kaup og kjör, en kerfið verði
ekki lárétt.”
Gert er ráð fyrir að i fyrirtækj-
um meö fleiri en 25 starfsmenn
verði stofnuð svonefnd „starfs-
greinafélög” til að semja um kjör
allra starfsmanna fyrirtækisins,
án tillits til hvaða vinnu þeir
stunduðu, viö vinnuveitandann.
Hin eldri félög ættu að starfa
áfram en að öörum verkefnum.
Svavar Gestsson sagði að með
þessu frumvarpi væri Vilmundur
að leggja til aö Alþingi tæki
ákvörðun um innra skipulag
verkalýðshreyfingarinnar, en það
teldi hann fráleitt.
Til sölu
Landrover diesel árg, ’75 m/ökumæli.
Góður bill i topplagi.
Upplýsingar i sima 99-4071
^
Fósturheimili óskast
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
óskar eftir fósturheimili fyrir 12 ára gaml-
an þroskaheftan dreng.
Mögulega er um að ræða langtima fóstur.
Drengurinn gengur i öskjuhliðarskóla og
þvi nauðsynlegt að heimilið sé á Reykja-
vikursvæðinu.
Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast
beðnir um að hafa samband við
WH Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
JJ^AsparfellM2^sím^454^^^^^^
Bækur — Bækur
Blindur er bóklaus maður —
Vissulega eru nú á boöstólum, að manni er tjáð, margár alveg óviðjafnan-
legarbækur. Við hérna hjá Ægisútgáfunni eigum vafalaust litla möguleika
. i samkeppni við svo frábærar bókmenntir, en við ætlum samt að kynna
ykkur nokkrar af okkar bókum, sem hafa nokkra sérstöðu og við teljum á-
stæðu til að lita á, áður en þiö ákveðið jólabækurnar.
Skipstjóra- og stýrimannatal IV bindi
bar eru birtar meö myndum 701) æviskrár, til viðbótar þeim 1900 sem voru
i fyrri bindunum. betta er eina æviskrárritið, sem eingöngu er helgað sjó-
mönnum, en i öðrum æviskrám er þeirra yfirleitt að litlu getið. Einnig eru
i fyrri bindunum fróðlegar greinar um sjómannafræðslu, fiskveiöar og
siglingar.
betta verk er samantekið, ef verða mætti til nokkurs vegsauka fyrir sjó-
menn, og ætti að vera til á hverjusjómannsheimili.
Bóndi er bústólpi
bessa útgáfu hefur Guðmundur Jónsson.fyrrverandi skólastjóri á Hvann-
eyri annast. Ýmsir ágætir höfundar skrifa greinar um 12 merkisbændur,
sem flestir eru landsþekktir. beir eru: Dagur Brynjólfsson, Davíö á Arn-
bjargarlæk, Gestur á Hæli, Guöjón á Ljúfustöðum, Jónatan á Holtastöö-
um. Kristinn á Skarði, Ólafur i Hvallátrum, ólafur f Brautarholti, Páll I
búfum, Sandafeðgar, Siginundur á Hamraendum og borsteinn á Húsa-
l'elli. barna er mikinn fróðleik að finna um búskaparhætti, fyrir og um
aldamótin siðustu og framlaraviöleitni þessara manna. Vonandi er hverj-
um bónda fengur að þessari bók.
íslenskir athafnamenn
borsteinn Matthiasson, ræðir við nokkra menn sem staðið hafa i ýmsum
stórræðum. beir eru: Bragi Kinarsson i Eden.sem komið hefur upp fá-
gætu blómafyrirtæki, sem vakið helur aðdáun innan lands og utan. Krist-
mund Sörlason.sem ásamtbróöur sinum, hefur komið á fót myndarlegu
stáliðjufyrirtæki Stálver h/f, sem hel'ur beitt sér fyrir ýmsum nýjungum
og er þar liklega merkust isgerðarvél, sem vinnur úrsjó. Helgi Eyjólfsson,
byggingameistari, sem lengi var forstjóri Sölunefndar setuliðseigna,
hefur byggt fjölda húsa og m.a. verksmiðjurnar á Djúpuvfk og Hjalteyri
við aðstæður, sem flestum hefðu reynst erfiðar, en Helgi kunni ráð við öllu.
Pál Friðbertsson.sem hefur staöið i fararbroddi um baráttuna i atvinnu-
málum Súgfirðinga. Oft hefur verið þæfingslegt fyrir fæti en Páll hefur
alltaf lagt á brattann og meö samstöðu héraðsbúa, sigrast á erfiðleikunum
og rekur nú að talið er eitt best búna frystihús á landinu. Soffanias Cesils-
son á Grundarfirði. Hann var lengi hörkuskipstjóri og aflakló. Rekur nú
t'iskvinnslufyrirtæki, og hefur átt i ströngu striði við „kerfið” eins og al-
þjóð er kunnugt. Hann er einn þessara óbugandi bjartsýnis- og dugnaðar-
manna, sem ekki hopar fyrir neinum andbyr.
Við getum endalaust deilt um hvert rekstrarformið eigi að vera, en vist er
að dugandi athafnamenn eru hverju þjóðfélagi vitaminssprauta, sem ekki
má án vera. Kramgjörnum ungum mönnum er þessi bók hollur lestur.
Gullkistan
Endurminningar Arna Gislasonar, Arngrimur Fr. Bjarnason bjó til prent-
unar og skrifaði itarlegan formála. Bókin kom út 1944oghefur lengi verið
ófáanleg. betta er fiskveiðasaga við tsafjarðardjúp, 1880 til 1905. bykir af-
burðagott heimildarit frá þessu timabili og skemmtilega skrifuð. Arni var
fvrstur manna til aö láta vél i fiskibát en það olli sem kunnugt er byltingu i
sjávarútvegi. bað ætti aö vera óþarlt að hvetja þá sem nálægt sjávarút-
vegsmálum koma til að eignast þessa bók.
í dagsins önn
Spjallað við samferðamenn, sem eru aö þessu sinni: Aöalbjörg Alberts-
dóttir.þingeysk sómakona, sem m.a. rak hér i Reykjavik matsölu i ára-
tug, mörgum að góðu kunn. Att i stundum á brattann að sækja en lét aldrei
bugast. Listaskyttan Hrefnu-Gesturstundaði hrefnuveiöar um langt skeið
, og þekktur viða um land. Liklega ein mesta afburðaskytta, sem sögur fara
af og missti vart marks hvort sem miðað var á fugl á flugi eða tófu i
fjallshlið. Margt íleira lrásagnarvert hefur mætt Gesti á lifsleiðinni. Gisli
'Vagnsson varpbóndinn frægi á Mýrum i Dýrafirði, frægur og fréttaeíni
utanlands og innan fyrir árangur sinn og framtak i' þessari búgrein. Hróð-
ur æðarvarpsins á Mýrum hefur borist viða um lönd. Auk þess hafði Gisli
margt forvitnilegt i pokahorninu, en sá heiðursmaður er nú nýlega látinn.
brúður Sigurðardóttir og Guömundur Bergsson hjónin i Hvammi —borg-
firski bóndinn og Reykjavikurmærin, brutust áfram frá litlum efnum til
bjargálna og sönnuöu áþreifanlega hverju samheldni, kjarkur og dugnað-
ur fær áorkað. Holl hugvekja nú, þegar bölsýnin riður húsum og flestir
mála skrattann á vegginn. Magnús Guöjónsson sem sumir hafa kallað
landsbflstjóra. Hálfgerður undrakall. Fyrsti rútubilstjóri á Islandi, Sjó-
maður, útgerðarmaður, en fyrst og fremst bilstjóri og enn ekur Mangi.
Hélt uppi áætlunaríeröum milli Hal'narfjarðar og Reykjavikur um árabil.
Lenti i ótöldum svaöilförum, kynntist fjölmörgum furðufuglum og hefur
frá mörgu að segja, skritnu og skemmtilegu.
Á hættusvæðinu og Um sollinn sæ
tvær bækur Jóh. J.E. Kúldendurprentaðar i einni bók. bessi bók fjallar að
meginhluta um stört hans á sjó og landi á striðsárunum, auk þess sem
margt fleira ber á góma.
bá er að nefna siðasta bindi þessarar stórfróðlegu æ isögu, sem við höfum
nefnt „Kúlds ævintýri '. Sú bók heitir Stillist úfinn sær.bar segir frá seinni
hluta starfsævi Jóhanns. Sem og löngum fyrr, reyndust störf hans æði fjöl-
breytt og ógerlegt að tina allt til sem við sögu kom á þessu timabili. betta
safn er alls fimm bindi og má ýkjulaust segja, að það sé eigulegt öllu fróð-
leiksfúsu fólki.
Ægisútgáfan
Sólvallagötu 74 —
Símar 14219 & 28312
POfiSWNN MArrMlAW
/ D/IGSINS
ÖNN