Tíminn - 10.12.1980, Síða 15

Tíminn - 10.12.1980, Síða 15
ÍÞRÓTTIR Miövikudagur 10. desember 1980. „Við eigum möguleika” 9 sagði Torfi Magnússon fyrirliði Vals ,/Eftir þennan sigur okkar i kvöld vonum við Valsmenn bara að KR vinni Njarðvíkinga á föstu- daginn. Ef þeir gera það er okkar möguleiki vissulega orðinn þó nokkur," sagði Torfi Magnússon fyrirliði Vals eftir að Valur hafði sigrað KR í úrvalsdeildinni i körfuknattleik er liðin léku í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Lokatölur urðu 76:71 Val í víI. Leikurinn sem slikur var ekkert sérstakur en jafn var hann yfirleitt og spennandi. Vals- menn höfðu yfirhöndina til að byrja með en munurinn var þó aldrei mikill með liðunum. t leik- hléi var munurinn aðeins eitt stig 40:39 Val i vil. Valsmenn byrjuðu siðari hálf- leikinn vel og skoruðu fyrstu sex stigin og höfðu yfirleitt sex til sjö stiga forskot þar til að rúmar tvær minútur voru til leiksloka að KR-ingum tókst að minnka mun- inn i þrjú stig 68:65. En Valsmenn voru sterkari aðilinn og þeir áttu ekki i erfiðleikum með að tryggja sér sigurinn, sigur sem ef til vill eftir að reynast þeim mikilvægur i baráttunni um Islandsmeistara- titilinn i ár. Valsliðið lék oft á tiðum vel i gærkvöldi þó það geti leikið betur. Það sem gerði útslagið i leiknum var að hittni Valsmanna var mun betri en KR-inga. Þá vóg frammi- staða Brads Miley, Bandarikja- mannsins i liði Vals, þungt á metunum. Hann átti stórleik, sér- staklega i vörninni þrátt fyrir að hann skoraði 24 stig i sókninni. 1 vörninni gætti hann Keiths Yow mjög vel og hirti Miley 26 fráköst sem ekki er neitt smáræði. Krist- jón Agústsson var einnig drjúgur i liði Vals og skoraði 18 stig. Þá áttu þeir Jón Steingrimsson og Rikharður Hrafnkelsson mjög góðan leik, sérstaklega þó Jón sem er ört vaxandi leikmaður. I liði KR var Garðar Jóhanns- sonbestur og er greinilega i góðri æfingu um þessar mundir. Hann skoraði 18 stig i leiknum. „Mótið er alls ekki búið. Njarðvikingar eiga eftir að tapa stigum, sagði Garðar eftir leikinn og bætti við. „Við eigum að leika gegn UMFN á föstudaginn og þann leik vinn- um við.” Tveir aðrir leikmenn skoruðu jafn mikið og Garðar i leiknum fyrir KR, þeir Jón Sigurðsson og Keith Yowsem var þó slakur og hittni hans var afleit. Dómarar voru þeir Erlendur Eysteinsson og Sigurður Valur Halldórsson og voru þeim mjög mislagðar hendur en hafa ber það i huga að þeir geta átt slæman dag jafnt og leikmenn. — SK Viggó ekkí með á móti Belgum ,/Við eigum að leika þýðingarmikinn leik gegn Huttenberg 21. desember og það eru alveg hreinar linur að ég fæ mig ekki lausan til þess að leika landsleikina gegn Belgum, ef til mín yrði leitað" sagði Viggó Sigurðsson hand- knattleiksmaður sem leik- ur með Leverkusen í Þýskalandi. Islendingar mun leika tvo leiki gegn Belgum i Laugardalshöll- inni 20. og 21. desember og eru þeir liður i undirbúningi islenska landsliðsins fyrir HM keppnina i Frakklandi i febrúar. Hilmar Björnsson landsliðs- þjálfari sagði i samtali við Tim- ann að hann myndi velja lands- liðshópinn um næstu helgi og sið- an yrðu hafnar æfingar af fullum krafti 15. desember og æft tvisvar á dag fram að leikjunum við Belga. röp—. Þjóðverji til Akraness • Tveir v-þýskir knattspyrnuþjálfarar reiðubúnir að koma „Ég hafði samband við forráðamenn F.C. Köln í gærkvöldi og þeir tjáðu mér það að þeir væru komnir með tvo þýska þjálfara sem báðir væru tilbúnir að koma hingað til Akraness að þjálfa knatt- spyrnulið IA". Sagði Jón Runólfsson formaður knattspyrnuráðs Akraness er Tíminn hafði samband við hann i gærkvöldi. „Það er þó nokkuð siðan viö settum okkur i samband við Köln og báðum þá um að aðstoða okkur við að fá hingað knattspyrnu- þjálfara. Við höfum leyft þeim að hafa dálitið frjálsar hendur með þessi • mál, þeir þekkja vel aðstæðurnar hjá okkur og mér skilst að það eina sem standi á hjá þeim núna er hvor þeirra, þeir telji henta okkur betur. Þau mál ættu aö skýrast i næstu viku, en það liggur alveg ljóst fyr- ir að hingað mun koma þýskur þjálfari”, sagöi Jón að lokum. röp—. ÍÞRÓTTIR Bandarik jamaðurinn i liði Vals, Brad Miley, sest her blaka knettinum i körfu KR- inga i leik liðanna i gærkvöldi á mjög svo snyrtilegan hátt. Miley atti storleik, skoraði 24 stig og hirti hvorki fleiri né færri en 26 fraköst og var langbesti maður vallarins. Timamynd Robert. „Fréttín í Vísi helber uppspuni” • segir Trausti Haraldsson um að hann hafi hafnað 45 milljón kr. samningi hjá Stuttgart Kickers — 9 Forráðamenn félagsins sáu ekki einu sinni ástæðu til þess að heilsa mér „Þessi frétt í Vísi í gær sem byggð er á fréttum úr þýskum blöðum um að ég hafi hafnað 45 milljóna kr. samningi er helber upp- spuni", sagði Trausti Haraldsson knattspyrnu- maður úr Fram er Tíminn spurði hann i gær hvað hæft væri í frétt Vísis. „Forráðamenn Stuttgart Kickers gerðu sér einu sinni ekki svo litið fyrir að heilsa mér og ég sá þá aldrei þann tima sem ég staldraði við hjá félaginu. Og það að ég hafi ekki mætt á nema eina æfingu er algjör fjarstæða, ég æfði á hverjum degi með liðinu. Það var ekki fyrr en ég var farinn af hótelinu sem ég bjó á að þeir buðu mér leigusamning sem átti að gilda í sex mánuði, en ég hef engan áhuga á því að rifa mig upp með alla f jöl- skylduna fyrir svo stuttan tima" sagði Trausti. röp- Trausti nafnaði 45 milljóna kr. samningi Þaö helur vaklö mlkla athygll ( V-Þýskalandi Hlöðum i Stultgart og vlða I Þýska- laniti hefur orftift tlftrætt Lsfftustu | Srgja þau. aft forráðamenn Stutl- | a garl Kirkrrs eigi bágU^MMto^Uja Frétt Visis um að Trausti hafi hafnað samningi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.