Tíminn - 23.12.1980, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 23. desember 1980
13
Minning
Ólafur Jónsson
Þegar ólafur Jónsson fyrrv.
ráðunautur, ólafur i Gróðrar-
stöðinni, er til moldar borinn, er
lokið ævidegi manns, sem orðið
hefur islenskum landbúnaði nyt-
samari en flestir aðrir á þessari
öld.
Stundum er sagt, að afburða-
menn séu helst ekki metnir að
verðleikum fyrr en eftir dauða
sinn. Sem betur fer er þetta ekki
föst regla og a.m.k. á þaö ekki við
um Ólaf Jónsson. Að vera gerður
að heiðursfélaga i þeim félags-
skap, sem menn starfa í, er e.t.v.
ekkert dyggjandi merki um verð-
leika, en samt eiga menn varla
völá öðru betra til að tjá virðingu
og þakkir fyrir vel unnin störf i
almannaþágu. Þess heiðurs varð
Ólafur aðnjótandi i öllum þeim
félagsskap landbúnaðarins, sem
hann hafði afskipti af: Búnaðar-
sambandi Eyjafjaröar, Rækt-
unarfélagi Norðurlands og
Búnaðarfélagi tslands.
Ennþá fyrr hafði islenska rikið
sýnt honum þann sóma, sem það
getur æðstan veitt, að sæma hann
fálkaorðunni fyrir störf sin.
Starfsvettvangur ólafs var
fyrir norðan. Hjá Ræktunarfélag-
inu vann hann i tilraunastöð þess
á Akureyri, Gróðrarstöðinni, i 25
ár og sem framkvæmdastjóri
þess miklu lengur eöa 40 ár. Hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
var hann 5 ár sem ráðunautur og
siðan hjá Sambandi nautgripa-
raáctarfélaganna þar, S. N.E. i 8
ár.
Hinn langi starfsferill ólafs er
aö þvl leyti óvenjuíegur, að’á efri
árum „verteraði” hann, eins og
það er kallaö I skóla, þegar menn
hætta viö nám i einni grein i miöj-
um kliöum og snúa sér að
annarri. Hann, sem verið hafði
um langan aldur frumkvöðull og
leiðbeinandi i öllu, sem að jarð-
rækt lýtur, meðferð grdðurmold-
ar og ræktun nytjajurta,
„verteraði” yfir i búfjárræktina,
þegar hann var kominn á sjötugs
aldurinn og tók aö skipuleggja
ræktun mjólkurkúnna við Eyja-
fjörð I afkvæmarannsóknarstöö-
inni á Lundi við Akureyri.
Að þvi starfi gekk óíafur meö
alveg sama brennandi áhuganum
ogsömu verkkunnáttu, sem hann
reyndarbjósig sérstaklega undir
með kynnisferð til Norðurlanda,
eins og hann gerði ungur maður,
erhann hóf jarðræktartilraunirn-
ar I Gróðrarstöðinni meira en 30
árum áður. Og i báöum tilvikum
varð árangur starfa hans mikill
og óumdeilanlegur.
Það er vandaverk að gera út-
tekt á störfum manns eins og
Ólafs Jónssonar, og til þess geri
égengatilraun hér. Þóheldég, að
margir muni verða sammála um,
að það sem einkenndi hann öðru
fremur sem tilraunamann og
ráðunaut, hafi verið það, hve
praktiskur hann var i viöhorfum
til vandamálanna og i túlkun á
niðurstöðum. Teorian var eflaust
I lagi, en hún er ekki nóg út af
fyrir sig. En hann þekkti
vandamálin, eins og þau birtast
bændunum I hversdagsleika bú -
skaparins.og miðaði leiðbeining-
arnar við það. Ef til vill má segja
sem svo, að hannhafi jafnan gætt
þess að halda traustu sambandi
við „grasrótina” bæði i' eiginleg-
um og óeiginlegum skilningi.
Og ólafur hélt góðu sambandi
við grasrótina einnig i félagslegu
merkingunni,i félagsskap bænda.
Þar var hann virkur i besta skiln-
ingi og naut trúnaðar bænda i
fyllsta máta, sem best sannast á
þvi, að Eyfirðingar sendu hann
sem fulltrúa sinn á Búnaöarþing i
26 ár samfleytt. Þar var hann
mikils metinn alla tið og talinn
meðal þeirra, (jafnan tiltölulega
fáu) sem móta stefnu og stýra
þróun mála.
Fyrir þátt hans á þeim vett-
vangi meðal margs annars kaus
Búnaðarfélag Islands hann
heiðursfélaga sinn árið 1967.
Nú að leiðarlokum vill félagið
votta honum virðingu og þakkir
fyrir hans ágæta hlut I sókn og
sigrum islenskrar bændastéttar á
þeimlanga og viðburðarika tima,
sem hann stóð i fremstu röð sam-
taka þeirra.
Undirritaður kynntist Ólafi
Jónssyni töluvert mikið sem
ráðunaut og félagsmálamanni, og
var hann þá kominn yfir miðjan
aldur. Samt er það ekki sú hlið
mannsins, sem ég kynntist best
eöa minnist mest, þegar ég nú lit
til baka. Það er alkunnugt, að
áhugamál hans og störf voru
margvisleg og rúmuðust ekki öll
á landbúnaðarsviðinu. Þannig er
það miklu fremur útilifsmaður-
inn, náttúruskoðarinn, bók-
menntamaðurinn og söngmaður-
inn ólafur Jónsson, sem mér er
efst I huga nú.
Við fórum saman nokkrar
ógleymanlegar öræfaferðir. Ég
tel mig eiga honum mikiö að
þakka, hann kenndi mér að láta
heiliast af fjöllunum. Ég minnist
gönguferða á Sprengisandi og
glúntasöngs 1 tjaldi við Köldu-
kvisl. Ég minnist ferðar af Kili
vestur yfir Langjökul til Borgar-
fjarðar. Og ég minnist skiðaferða
á Glérárdal og á Vaðlaheiði alltaf
með ólafi. Hann var afskaplega
skemmtilegur og fræðandi feröa-
félagi, einn þeirra manna, sem
gott er að hafa kynnst.
Ég vil að lokum tjá þakklæti
mitt fyrir kynninguna við Ólaf
Jónsson i Gróðrarstöðinni og
votta ekkju hans og dætrum
samúð við fráfall hans.
HjörturE. Þórarinsson.
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á MB Frey SF 20,
Upplýsingar i sima 97-8192 eða 97- 8222.
þjónusta
vinnsla u
landbúnaðarafurða
vinnsla
sjávarafurða
allt
í einu
númeri
sna aa
gefur samband við allar deildir kl. 9-18
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI
BQapartasalan Höfðatúni 10,
simi 11397. Höfum notaöa
varahluti I 'flestar gerðir
bfla, t.d. vökvastýri, vatns-
kassa, fjaðrir, rafgeyma,
vélar, felgur o.fl. i
Ch. Chevette ’68
Dodge Coronette ’68
Volga ’73
Austin Mini ’75
Morris Marina ’74
Sunbeam ’72
Peugeot 504, 404, 204, ’70, ’74
Volvo Amazon ’66
Willys jeppi ’55
Cortina ’68, ’74
Toyota Mark II ’72
Toyota Corona ’68
VW 1300 ’71
Fiat 127 ’73
Dodge Dart ’72
Austin Gipsy ’66
Citroen Pallaz ’73
Citroen Ami ’72
Hilman Hunter ’71
Trabant ’70
Hornet ’71
Vauxhall Viva ’72
Höfum mikið úrval af kerru-
efnum. Bilapartasalan,
Höfðatúni 10. Simar 11397 og
26763. Opið kl. 9-7, laugar-
daga kl. 10-3. Höfum opiö i
hádeginu.
Bflapartasalan, Höfðatúni
10.
VARIST STEIN-
SKEMMDIR
OG LEKA
KLÆÐIÐ MEÐ BLIKKI. FRAMLEIÐUM
ALLAR GERÐIR BLIKKHLÍFA.
BLIKKVER
BIIKKVER
SELFOSS1H
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040
FRÁ RAFMAGNSVEITU REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er þaS kappsmál, að sem fæstir verði
fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um jólin sem
endranær. Til þess að tryggja oruggt rafmagn um hátiðirn
ar, vill Rafmagnsveitan benda notendum á eftirfarandi
IReynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna
henni yf ir daginn eins og kostur er, eink-
um á aðfangadag og gamlársdag. Forð-
ist, ef unnt er, að nota mörg straumfrek
tæki samtímis, t.d. raf magnsof na, hrað-
suðukatla og brauðristar — einkanlega
meðan á eldun stendur.
2Farið varlega með öll raftæki til að forð-
ast bruna og snertihættu. Illa meðfarnar
iausataugar og jólaljósasamstæður eru
hættulegar.
Otiljósasamstæður þurfa að vera vatns-
þéttar og af viðurkenndri gerð.
3Eigið ávailt til nægar birgðir af vartöpp-
um (,,öryggjum''). Helstu stærðir eru:
10 amper — Ijós
20-25 amper = eldavél
35 amper = aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður, skuluð þér gera
eftirtaldar ráðstafanir:
Takið straumfrek tæki úr sambandi. Ef
straumleysið tekur aðeins til hluta úr
ibúð, (t.d. eldavél eða Ijós), getið þér
sjálf skipt um vör í töflu íbúðarinnar.
5Ef öll íbúðin er straumlaus, getið þér
einnig sjálf skipt um vör fyrir íþúina í
aðaltöflu hússins.
6Ef um víðtækara straumleysi er að ræða
skuluð þér hringja í gæslumann Raf-
magnsveitu Reykjavikur.
Bilanatilkynningar í síma 18230 allan
sólarhringinn.
Á aðfangadag og gamlársdag til kl. 19
einnig í símum 86230 og 86222.
Vér flytjum yður beztu óskir um
Gleðileg jól og farsæld á komandi ári, með
þökk fyrir samstarfið á hinu liðna.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Geymið auglýsinguna.
t Möðir okkar og tengdamóðir
Bergný Magnúsdóttir
sem lézt 20. des. sl., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 30. desember kl.10.30 f.h.
Ásgrimur Sveinsson Hólmfriður Jóhannsdóttir
Guömundur Björnsson Viktoria Kristjánsdóttir
Kristin Björnsdóttir Jóhannes Pétursson
Hrefna Björnsdóttir K jartan Guðjónsson
Svavar Björnsson Asa Kristinsdóttir