Tíminn - 01.04.1981, Síða 1

Tíminn - 01.04.1981, Síða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 80300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392 Starfsemi Háskólans lömuð Stundakennarar í verkfalli AB — „Samtök stundakennara viðH.t. lýsa yfir verkfalli frá og með 1. april 1981,” hljóðaði til- laga sú sem lá fyrir fundi sam- takanna i gærkveldi og var hún samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Fjölmenni var á fundinum, eða um 80 manns. Helgi Þor- láksson byrjaði á þvi að rekja gang mála og skýrði kröfur stundakennara. Það kom fram i máli Helga að stjórn samtak- anna liti svo á að ráðuneytið hefði með þvi að hafna frekari samningaviðræðum við stunda- kennara einhliða rofið samn- inga, og þvi væru stundakenn- arar lausir alla mála. Sagði Helgi jafnframt að ráðuneytin hefðu i viöræðum þeim sem fariðhafa fram, reynt að draga athyglina frá aðal- Stjórn Samtaka stundakennara viðH.í.áður en fundurinn i gær- kveldi hófst. Frá vinstri: Dóra Bjarnason, Sigriður Krist- mundsdóttir, Knud Erik H. Pedersen formaður, Peter Ridgewell og Helgi Þorláksson. Timamynd — Róbert atriðunum og beina henni aö hreinum formsatriöum. Lauk Helgi máli sinu meö þvi aö leggja til verkíallsboðun frá og með deginum i dag. Dóra Bjarnason las þvi næst upp fjölda ályktana frá ýmsum félagasamtökum innan H.I., svo og frá stúdentaráöi og væru þær allar á einn veg, þ.e. aö stúd- entar lýstu yfir eindregnum stuðningi sinum viö mjög svo hóflegar og sanngjarnar kröfur stundakennara. i þessum álykt- unum kom jafnlramt fram að stúdentar hafa i hyggju að sýna stuðning sinn i verki með þvi að boða til allsherjarverkfalls stúdenta 7. april, og munu þá jafnvel ekki mæta i timum hjá föstum kennurunt H.i. Þvi næst las Dóra upp áður- nefnda tillögu og spunnust um hana miklar umræður. Að umræðunum loknum var til- lagan um verkfalliö borin undir atkvæði og lyktaði atkvæða- greiðslunni þannig að verkfalls- boðun frá og með deginum i dag var samþykkt með 62 at- kvæðum, 2 voru á mó'ti og 9 sátu hjá. Framhald á bls. 12 Meirihlutinn i borgarráði ihugar breytingar á aðal- skipulagstillögum: Meira tillit tekið til golf- og hesta- rnanna Kás — Samkvæmt heimildum Timans, munu borgarráðsfulltrú- ar meirihlutans i Reykjavík hafa náð samkomulagi um vissar breytingar á þeirri skipulagstil- lögu, scm nú er þar til afgreiðslu, hvað varðar ný byggingarsvæði. Munu þessar breytingar koma til móts við hugmyndir golf- og hestamanna, sem hafa verið nokkuð óánægðir með sinn hlut samkvæmt skipulagstillögunum. 1 fyrsta lagi mun afráðið að golfvöllurinn i Grafarholti verði á engan hátt skertur i komandi framtið. 1 annan stað mun ætlun- in að veita hestamönnum meira land i Viðidal, þannig að þeir fái um fimmtung þess svæðis sem ætlaður var til bygginga i Selásn- um. Að auki mun ætlunin að breyta legu vegar sem liggja á úr Breiöholti yfir á Ofanbyggðar- veg, til hagræðis fyrir hesta- menn. briðja aðalbreytingin mun lúta að þvi, að stækka iðnaðarsvæðið i Borgarmýri, þannig að það nái alveg austur að Gufunesvegi og þáá kostnað stofnanasvæðis, sem minnkar að sama skapi. Tillögur i þessa átt munu væntanlega verða lagðar fyrir fund borgarráðs nk. föstudag. Banatilræðið vekur hneykslun og reiði HV — ,,Ég held að hneykslun og reiði séu þau orð sem best geta lýst viðbrögðum almennings hér i Bandarikjunum við tilræðinu við Reagan i gær”, sagði Tryggvi Þormóðsson, sem búsettur er i Kaliforniu, i viðtali við Timann i gær, „enda er fólk orðið ákaflega þreytt á atburðum af þessu tagi. Fólk spyr sjálft sig að því núna, hvort ekki verði tekið fram fyrir hendurnar á forsetanum og reynta að koma á einhvers konar byssueftirliti, þrátt fyrir þá frægu skoðun hans að það sé fólk sem drepur en ekki byssur.” 1 gærkvöld voru allir þeir sem urðu fyrir skotum í árásinni á Reagan, Bandarikjaforseta á batavegi og allir taldir úr lifs- hættu, nema Brady, blaðafulltrúi forsetans, sem særðist alvarleg- ast. Ottast var að byssukúlan sem hann fékk i höfuðið hefði valdið heilaskemmdum, sem jafnvel yllu fötlun ef hann lifði af. ,,bað segir sig sjálft að blöðin eru full af fréttum af þessum at- burði”, sagði Tryggvi ennfremur i gær, „meðal annars segir Los Angeles Times i leiðara i dag: „Reagan hafði rétt skýrt verka- lýðsleiðtogum frá þvi að sin mesta martröð væri að þingið færi að fikta i skatta-áætlunum hans, en mesta martröð þjóðar- innar beið fyrir utan. Læknar segja að heilsa forsetans sé góð, en heilsa þjóðarinnar ekki.” Framhald á bls. 19. Verður áframhald á olíuviðskiptum við BNOC? „Ef lægra og raunhæfara verö yrði í boði” JSG — „Ég mun eiga fund með forsvarsmönnum BNOC á næst- unni, þar sem áframhaldandi við- skiptamöguleikar verða ræddir. Byggist það að verulegu leyti á niðurstöðu þeirra viöræðna, svo og framhaldsviðræðna i byrjun maí n.k. hvort um áframhaldandi viðskipti verður að ræða. Æski- legt væri að svo yrði, en þó á þann veg, að okkur íslendingum stæði til boða lægri og raunhæfari verð, en núgildandi samningur við BNOC kveður á um.” Þannig svaraði Tómas Arna- son, viðskiptaráðherra, fyrir- spurn Ólafs Þ. Þórðarsonar á Al- þingi i gær, um hvort ætlunin væri að haida áfram viðskiptum, sem hafin voru á siðasta ári við breska oliufélagið BNOC. Ólafur spurði ennfremur hvort hágnaður hefði orðið af oliuvið- skiptunum við Breta og svaraði Tómas þvi til að svo hefði þvi miður ekki orðið i peningalegum skilningi, „heldur hallast töluvert á i þeim efnum”, eins og hann sagði orðrétt. Astæðan er sú að verð á Rotterdammaðrkaði hefur reynst stöðugt á siðasta hálfa ári, og fallið nokkuð niður fyrir verð á oliunni frá BNOC. Alls voru keypt 60 þúsund tonn af gasoliu frá félaginu árið 1980, en i ár verða keypt 80 þúsund tonn. Einnig verða keypt 20 þúsund tonn af svartoliu á þessu ári. Ef litið er til þess öryggis sem af bresku samningunum leiddi, sagði Tómas Arnason hins vegar i svari sinu, hvað varðar styrkari samningsstöðu, öruggari að- drætti, og tryggingu fyrir jöfnun á verðsveiflum, þá mætti tvimæla- laust telja hag af samningunum. APEX fargjöld i gildi 1. mai n.k. Kaup- manna- höfn, báðar leiðir kr. 2539.- FRI — Svokölluð APEX far- gjöld taka gildi hjá Flugleið- um þann 1. mai n.k. en þau voru áöur i gildi hjá félaginu i des. s.l. og reyndust þá vinsæl og voru þá kýnnt sem jólafar- gjöid. Farþegar sem ferðast á APEX gjöldum greiða lægri fargjöld, en eru hinsvegar háðir mjög ströngum reglum um kaup á farmiðum og um brottfarar- og komudaga. Sem dæmi um verð, miðað við gengi nú, til mismunandi staöa má nefna eftirfarandi: Til Kaupmannahafnar kr. 2.539,- Til'osló kr. 2.316,- TilStokkhólms kr. 2.896.- TilGlasgow kr. 1.892,- TilLondon kr. 2.189.- TilNewYork , kr. 3.830.- TilChicago kr. 4.096.- Þetta verð er miðaö við báð- ar leiöir, en flugvallarskattur er ekki innifalinn. Farþegar sem ferðast á APEX fargjöldum feröast ein- göngu með dagflugi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.