Fréttablaðið - 01.11.2007, Side 24
nám, fróðleikur og vísindi
Foreldrar segja gjarnan að
ekkert sé þeim mikilvæg-
ara en börn þeirra. Með
breyttum lifnaðarháttum
verja foreldrar þó minni
tíma með börnum sínum
en áður tíðkaðist. Það þýðir
samt ekki að þeir vilji ekki
fá mestu um ráðið um upp-
eldið og því skiptir flesta
miklu máli að vera upplýst-
ir um þá stefnu sem leik-
skólar barna þeirra starfa
eftir.
Verkefnið Bugða, sem stofnað
var í mánuðinum, byggir á sam-
starfi fjögurra leikskóla í Reykja-
vík sem hafa sameiginleg mark-
mið í uppeldisstarfi og
starfsmannastefnu. Skólanir eru
Brákarborg, Garðaborg, Klambr-
ar og Rauðhóll.
„Það sem við eigum sameigin-
legt er meðal annars trú okkar á
kosti þess að nota opin leikefni,
það er að segja leikföng sem örva
sköpunargáfu barnanna og eru
ekki með fyrirframgefnar lausn-
ir,“ segir Ingibjörg Kristleifs-
dóttir, leikskólastjóri á
Klömbrum. Hún segir að á leik-
skólunum sem tilheyra Bugðu sé
mikil áhersla lögð á tengsl við
náttúruna og mest leikið með ein-
ingakubbana sem Caroline Pratt
uppeldisfrömuður hannaði fyrir
um það bil öld. Stefna leikskól-
anna byggir einnig á starfshátt-
um Pratt og segir Ingibjörg að til
standi að nokkrir af starfsmönn-
unum heimsæki skóla sem hún
stofnaði í New York rétt eftir
aldamótin 1900. „Það verður
mjög forvitnilegt að skoða þann
leikskóla. Fá svæði eru jafn ólík
og Manhattan og Reykjavík eru
en samt sem áður eru sömu
grundvallarhugmyndir í uppeldi
við hafðar á þessum stöðum,“
segir Ingibjörg. Hún segir að
annar kenningasmiður sem litið
er til við stefnuna sé bandaríski
heimspekingurinn John Dewey
en hann lagði ríka áherslu á að
börn væru gerendur í eigin lífi og
fengju að læra af reynslunni.
„Það ríkir samt engin hreintrúar-
stefna hjá okkur þó við lítum
mjög til hugmynda þessa ágæta
fólks,“ segir hún.
Faglegt samstarf skólanna mun
byggja á því að leikskólinn sé
lærdómssamfélag þar sem börn
og fullorðnir geti lært og þrosk-
ast saman. Þá bendir Ingibjörg á
að mannauður leikskólanna sé
mikill, þar starfi um hundrað
manns, og sé ætlunin að starf-
menn heimsæki aðra skóla innan
verkefnisins, verði með leshóp
og myndi öflugan umræðuvett-
vang um uppeldismál.
Það ríkir samt engin
hreintrúarstefna hjá
okkur þó við lítum mjög til hug-
mynda þessa ágæta fólks.
„Við höfum hingað til verið með innfluttar
áhugakannanir en þær hafa ekki endurspeglað
íslenskan veruleika til fulls, þar var til dæmis
spurt um áhuga á hermennsku. Þegar við gerðum
þessa könnun nýttum við því þá þekkingu sem
hefur orðið til erlendis og staðfærðum hana yfir á
íslenskar aðstæður,“ segir Sif Einarsdóttir, dósent
við náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands.
Sif hefur unnið að þróun Bendils, rafrænnar
áhugakönnunar fyrir íslensk ungmenni.
Í könnunum sem þessum eru unglingar beðnir að
benda á þau störf, athafnir eða námsgreinar sem
þeim líkar við og reynt að finna áhugasvið út frá
svörunum.
„Við höfum notast við þá kenningu að starfs-
áhuga megi flokka í sex meginsvið og það virðist
falla vel að íslenskum nemum,“ segir Sif. Hún
bendir á að áhugi fólks geti vitanlega verið á fleiri
en einu sviði. Arkitektúrhæfileikar gætu þannig
leynst á lista-, vísinda- og handverkssviði.
Hátt í 4.000 nemendur hafa gengist undir prófið
síðan 2004 og Sif segir að í ljós hafi komið að
starfsáhugi drengja og stúlkna sé mjög ólíkur.
Þetta megi rekja til kynbundinnar félagsmótunar,
sem sé stórt vandamál í skólakerfinu.
Rannsakar félagsleg áhrif Skaftárelda
www.peugeot.is
Vatnagörðum 24 - 26 Sími 520 1100
www.bernhard.is
Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 Bílver, Akranesi, sími 431 1985 Höldur, Akureyri, sími 461 6020 Bragginn,Vestmannaeyjum, sími 481 1535
Lágt verð, lítil eldsneytiseyðsla, mikill búnaður, fjölstjörnuöryggi svo ekki sé minnst á frí
stæði í miðborginni, tryggir að þú sparar við undirskrift og löngu eftir að þú keyrir úr
umboðinu. Sparaðu stórt – veldu Peugeot 107.
Peugeot 107 Trendy, 5 dyra á verði frá kr. 1.399.000
*
1.399.000
Trendy
5 DOOR
PEUGEOT
107
*
Vi
st
hæ
fir
bí
la
r f
á
fr
ís
tæ
ði
í
Re
yk
ja
ví
k
í 9
0
m
ín
Opin leikefni og
tengsl við náttúru