Fréttablaðið - 01.11.2007, Síða 66
N1-deild karla í handbolta:
N1-deild kvenna í handbolta
Kvennadeild Iceland Express
Enski deildarbikarinn:
Spænska úrvalsdeildin:
Ítalska úrvalsdeildin:
Valur vann Hauka 26-25
í N1-deild kvenna í Vodafone höll-
inni í gærkvöld.
Mikið jafnræði var með liðun-
um í fyrri hálfleik, þar sem liðin
skiptust á að taka forystu í leikn-
um. Staðan var 10-10 þegar tut-
tugu mínútur voru liðnar af leikn-
um og eftir það hélst staðan jöfn
og var orðin 13-13 þegar flautað
var til hálfleiks.
Í seinni hálfleik sigu Valsstúlk-
ur fram úr og var það ekki síst
fyrir góða markvörslu Berglindar
Írisar Hansdóttur í marki Vals, en
hún átti stórleik og varði alls 24
skot í leiknum. Haukastúlkur
sýndu ágætis baráttu á lokakafl-
anum og skoruðu þrjú síðustu
mörk leiksins náðu að minnka
muninn í lokin í eitt mark, 26-25,
en sigur Valsstúlkna var í raun
aldrei í mikilli hættu.
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari
Vals, var sáttur með stigin en
fannst ekki mikið koma til spila-
mennskunnar. „Gæðin í leiknum
fannst mér ekki vera mikil. Sókn-
arlega vorum við að gera mikið af
tæknifeilum, en vörnin var skárri
og Berglind varði vel í markinu.
Við leiddum leikinn meira og
minna allan tímann en það vantaði
hjá okkur að drepa leikinn
almennilega og við sýndum
ákveðna værukærð,“ sagði Ágúst.
Harpa Melsted, fyrirliði Hauka,
fannst ákveðið batamerki vera á
Haukaliðinu. „Síðustu leikir hjá
okkur hafa verið mjög hægir en
mér fannst okkur takast ágætlega
upp gegn Val og það vantaði bara
herslumuninn hjá okkur í leikn-
um,“ sagði Harpa.
Berglind átti stórleik
Leikur Gróttu og
Stjörnunnar í gær á Seltjarnar-
nesi var leikur markvarðanna.
Leikmenn beggja liða þurftu að
sjá urmul skota sinna varin í
miklum baráttuleik sem
Stjarnan vann, 20-22.
Það skildi lítið milli liðanna
lengi vel í fyrri hálfleiknum
sem var eign markvarðanna.
Liðin héldust nánast í hendur
lengi vel en gestirnir úr
Garðabæ náðu góðum kafla
undir lok fyrri hálfleiks.
Gróttustúlkur komu mjög
ákveðnar til seinni hálfleiks og
voru búnar að jafna í 15-15 um
miðjan hálfleikinn.
Það geta þær þakkað varnar-
leiknum sem hrökk þá heldur
betur í gang með turnana, Önnu
Úrsúlu og Evu Margréti
fremstar í flokki. Það var líka
eins gott fyrir þær að standa
vörnina almennilega því hinum
megin var Grecu engan veginn
hætt að verja með frábæra
Stjörnuvörn fyrir framan sig.
Á lokamínútunum átti
Stjarnan einfaldlega meira inni
og sigldi góðum útisigri í land í
ágætum handboltaleik.
,,Ég er mjög stoltur af
stelpunum að klára þetta,“ sagði
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
Stjörnunnar.
,,Þetta eru bæði mikil varnar-
lið eins og sást hér í dag og
uppistaðan í landsliðinu var hér
úti á gólfinu. Varnarleikurinn
sem við spiluðum var í alþjóða-
klassa og Grecu var hreint
stórkostleg í markinu.“
Anna Úrsúla Guðmundssdótt-
ir, leikmaður Gróttu, sagði
skandal hvernig sitt lið fór með
færin.
,,Svona á ekki að sjást í
meistaraflokki kvenna. Það var
skandall hvernig við fórum með
færin.“
Markverðirnir í
aðalhlutverki
Kvöldið eftir að Kiera
Hardy skoraði 50 stig fyrir
Haukana þá gerði Kesha Watson
hjá Keflavík einu stigi betur og
skoraði 51 stig í yfirburðarsigri
Keflavíkur á Grindavík, 103-71, í
leik liðanna í Iceland Express
deild kvenna í Keflavík í gær.
Bæði lið voru ósigruð fyrir leik-
inn en eftir hann hafa bara Kefla-
vík og Haukar unnið alla leiki sína.
Liðin mætast einmitt á sunnudag-
inn og þar mætast fimmtíustiga-
konurnar Hardy og Watson auglit-
is til auglitis. Þó hún vildi ekki
viðurkenna það eftir leikinn þá fór
það ekki fram hjá neinum að Wat-
son ætlaði sér að komast í fimmtíu
stigin, slík var áræðnin og einbeit-
ing hennar allan leikinn. Hún hitti
úr 19 af 26 skotum þar af 8 af 11
þriggja stiga skotum sínum.
„Mitt markmið var ekki að skora
fimmtíu stig heldur að ná að vinna
leikinn. Ég horfi ekki á tölurnar
mínar heldur einblíni á það að
spila eins vel og ég get og leggja
mig hundrað prósent fram,“ sagði
Kesha Watson eftir leikinn en hún
er ánægð með byrjun Keflavíkur-
liðsins.
„Við erum mjög ánægðar með
byrjunina en við vitum manna
best að við getum enn betur. Okkar
markmið er að vinna alla fimm
titlana í boði og við eigum enn
eftir að vinna þrjá,” sagði Watson
sem segist vera í betra formi en í
fyrra.
„Ég er með meira sjálfstraust
en í fyrra. Ég er laus við meiðslin
og fé góða hjálp frá liðsfélögunum
sem eru duglegar að hvetja mig
áfram,“ sagði Watson sem auk
þess að vera með 51stig var með 8
fráköst og 6 stoðsendingar.
Bryndís Guðmundsdóttir og Ingi-
björg Elva Vilbergsdóttir voru
einnig mjög góðar í jöfnu liði
Keflavíkur en hjá Grindavíkurlið-
ið átti aldrei svar við góðum leik
heimastúlkna í gær.
Kesha með 51 stig í yfirburðasigri
Haukar og HK buðu
áhorfendum að Ásvöllum upp á
skammarlega lélegan toppslag.
Haukar náðu efsta sæti N1 deild-
arinnar með, 26-23, sigri og geta
þakkað HK toppsætið fyrir að
mæta áhugalaust til leiks.
Haukar hófu leikinn af miklum
krafti og náðu fljótt fimm marka
forystu, 11-6. Áhugaleysi ein-
kenndi leik HK og benti allt til
þess að Haukar myndu kafsigla
andstæðinga sína þar til HK
breytti vörninni úr 6-0 í 3-2-1.
Sóknarleikur Hauka var ráð-
leysislegur gegn framliggjandi
vörn HK og náðu gestirnir að
minnka muninn án þess að leika
vel. Munurinn í hálfleik var aðeins
tvö mörk, 16-14.
Þessi sprettur HK var til einskis
því Haukar skoruðu fimm fyrstu
mörk síðari hálfleiksins og breyttu
stöðunni í 21-14. Líkt og í fyrri
hálfleik hrundi leikur Hauka um
miðbik hálfleiksins og HK náði
hægt að rólega að komast aftur
inn í leikinn. Þegar þrjár mínútur
voru eftir munaði aðeins tveimur
mörkum á liðunum, 24-22, en
Haukar héldu haus síðustu mínút-
urnar og uppskáru sigur og efsta
sætið.
Það var ekki að sjá á liðunum að
efsta sæti deildarinnar væri í boði
því leikurinn var vægast sagt
lélegur. „Þetta var skelfilegur
leikur,“ sagði Andri Stefan í leik-
stjórnandi Hauka í leikslok. „Bæði
lið voru geispandi allan tímann.
Þetta ömurlegur leikur. Við getum
þakkað þeim fyrir að mæta eins
og trúðar til leiks því ef þeir hefðu
mætt með smá skap hefði þetta
verið allt annar leikur.“
Haukar réðu illa við framliggj-
andi vörn HK og sagði Andri að
liði hafi skort þolinmæði til að
vinna á henni. „Þeir koma mjög
framarlega og við verðum æstir.
Menn fara að reyna eitthvað sjálf-
ir. Það vantaði þolinmæði. Þegar
boltinn gekk þrjár, fjórar sending-
ar var allt galopið,“ sagði hrein-
skilinn Andri í leikslok.
Ragnar Hjaltested hægri horna-
maður HK var vægast sagt ósátt-
ur í leikslok. „Fyrsta korterið í
bæði fyrri og seinni hálfeik erum
við ekki með og höldum að við
getum gert þetta með hangandi
haus. Við erum ekki tilbúnir og
það er greinilega eitthvað að. Það
er eitthvað sem við erum að gera
vitlaust í undirbúningnum sem við
verðum að laga ætlum við að
hanga í efstu liðunum. Leikirnir
okkar hafa verið frekar daprir
fyrir utan leikinn á móti Fram sem
var góður. Ég sem aðrir verðum
að taka á þessu. Menn eru ekki að
hugsa um verkefnið og mæta til
leiks haldandi að þetta komi að
sjálfu sér. Undirbúningurinn þarf
að byrjar daginn fyrir leik.“
Þrátt fyrir að HK gæfi Haukum
góða forgjöf í fyrri og seinni hálf-
leik komst liðið inn í leikinn og
hefði með smá heppni og aga getað
strítt Haukum enn frekar. „Við
erum ekki lakari en Haukar þó við
höfum verið lakari í dag. Það er
dagsformið sem ræður úrslitum
þegar þessi fimm efstu lið deildar-
innar eigast við. Það er ekki flókn-
ara en það.“
Haukar fóru á toppinn eftir 26-23 sigur gegn HK í toppslag í N1- deild karla í
handbolta í gærkvöldi. Leikur liðanna var mjög lélegur.