Fréttablaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 61
Fyrsta plata hljómsveitarinnar
Bloodgroup, Sticky Situation,
kemur út 7. nóvember á vegum
Síldar ehf. sem er útgáfufélag
sveitarinnar. Á plötunni eru ellefu
lög sem voru að mestu leyti tekin
upp í félagsheimilum úti á landi.
Bloodgroup samanstendur af
Halli, Ragga, Lilju, Janusi og
Benna, en sá síðastnefndi gekk til
liðs við hljómsveitina þegar platan
var tilbúin. Eftir góða frammi-
stöðu á Iceland Airwaves skrifaði
sveitin undir samning um staf-
ræna dreifingu við útgáfufyrir-
tækið Awal. Kemur platan einmitt
út á iTunes á þeirra vegum. Næstu
tónleikar Bloodgroup verða á
Organ 15. nóvember.
Fyrsta plata
Bloodgroup
Bandaríski söngvarinn og
leikarinn Robert Goulet er látinn,
73 ára að aldri. Goulet lá á
sjúkrahúsi þar sem hann beið eftir
lungnaígræðslu þegar hann dó.
Goulet sló í gegn í söngleiknum
Camelot árið 1960 og eftir það
kom hann fram í hinum ýmsu
söngleikjum og sjónvarpsþáttum.
Var hann meðal annars tíður
gestur í The Ed Sullivan Show, auk
þess sem hann kom oft fram í Las
Vegas. Goulet lék einnig í fjölda
kvikmynda, þar á meðal Atlantic
City og gamanmyndinni The
Naked Gun 2 1/2.
Goulet lést
á sjúkrahúsi
Hljómsveitirnar Hjálmar og
Klassart halda tónleika í Andrew’s
Theatre á Vallarheiði í gömlu
herstöðinni næstkomandi laugar-
dag. Hjálmar gefa út sína þriðju
plötu, Ferðasót, innan tíðar eftir
mannabreytingar og er fyrsta
lagið, Leiðin okkar allra, þegar
farið að hljóma á öldum ljósvakans.
Klassart hefur fengið góða dóma
fyrir sína fyrstu plötu, Bottle of
Blues, sem kom út fyrr á árinu.
Tónleikarnir eru á vegum
útskriftarhóps Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, í samstarfi við
Landsbankann og Nemendafélag
FS. Tónleikarnir hefjast klukkan 20
og eru miðar seldir við inngang á
2.000 krónur.
Hjálmar í
herstöðinni
Félagarnir Baddi og Diddi Fel úr
rappsveitinni Forgotten Lores
hafa stofnað útgáfufyrirtækið
Cox Butter sem ætlar að gefa út
alla sína framleiðslu á netinu án
endurgjalds.
„Ég og Diddi Fel vorum í sumar
tilbúnir hvor með sína plötuna og
vorum að velta fyrir okkur mögu-
leikum varðandi útgáfu sem
maður hefur á Íslandi sem rapp-
tónlistarmaður. Miðað við pening-
inn og tímann sem fer í að gefa út
plötur þá borgar það sig sjaldn-
ast, sérstaklega ef þú ert með
minni verkefni,“ segir Baddi.
„Við duttum á þessa hugmynd
sem grundvöll fyrir listamenn að
koma frá sér efni sem þeir ættu
erfitt með að koma frá sér ann-
ars. Þetta eru lítil hliðarverkefni
og „sólóproject“ sem menn vilja
koma frá sér án þess að tapa pen-
ingum. Svo veit maður aldrei í
framtíðinni. Kannski verður þetta
að alvöru útgáfu.“
Stutt er síðan Radiohead gaf út
sína nýjustu plötu á netinu þar
sem fólk réð því hvort það borg-
aði fyrir hana og vakti það mikla
athygli fjölmiðla. „Radiohead er
náttúrulega ekki fyrst til að gera
þetta. Við töluðum um þetta þegar
við vorum nýbyrjaðir í Forgotten
Lores 2000 eða 2001 og það hafa
margir gert þetta síðan en Radio-
head er stærsta nafnið til að gera
þetta hingað til,“ segir Baddi.
Fyrsta platan sem verður gefin
út undir merkjum Cox Butter
verður samstarfsplata Didda Fel
og Gunna Maris, Hvernig rúllar
þú? Heimasíða útgáfunnar, cox-
butter.com, er í smíðum um þess-
ar mundir auk þess sem síðan
myspace.com/coxbutter er þegar
komin í loftið.
Gefa plöturnar á netinu
Menntaskólinn í Kópavogi hlaut viðurkenningu
Jafnréttisráðs í ár fyrir skýra og virka jafnréttis-
stefnu gagnvart nemendum og starfsfólki.
Skólinn hefur lagt áherslu á jafnrétti í skólanámskrá, launajafnrétti og
jafnan hlut karla og kvenna við stjórnun skólans.
Við erum stolt af Menntaskólanum í Kópavogi og vonum að sem flestir
taki sér hann til fyrirmyndar.
KópavogsbærMenntaskólinn í Kópavogi hlaut
einnig jafnréttisviðurkenningu
Kópavogsbæjar árið 2006.
Til hamingju
Menntaskólinn
í Kópavogi