Fréttablaðið - 30.12.2007, Side 6
6 30. desember 2007 SUNNUDAGUR
A
R
G
U
S
0
7
-0
9
3
7
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
20%
afsláttur
af miðaverði
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
Opið til 18 laugardag og sunnudag Lokað gamlársdag
FANBY
kampavínsglas 20 cl
70,-
ÁRAMÓT Flutt hafa verið inn 1.275
tonn af flugeldum á þessu ári að
sögn Friðriks G. Gunnarssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
en það er nær helmingi meira en
flutt var inn fyrir þremur árum. Í
fyrra voru flutt inn um þúsund
tonn.
Jón Ingi Sigvaldason, hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, segir
að þeir hafi flutt inn svipað magn
og í fyrra en hann hefur nokkrar
áhyggjur af því hversu mikið
einkaaðilum færist í fang í þess-
um efnum. „Maður heyrir suma
þeirra segja að þeir hafi bara flutt
inn einn eða tvo gáma en það er
svipað og meðal stór björgunar-
sveit er að selja,“ segir hann og
bætir við að sumar björgunar-
sveitir fái um 90 prósent af sínu
rekstrarfé með flugeldasölu. „Ég
veit ekki hvort þeim hefur fjölgað
en þeir eru á fleiri stöðum, hafa
stækkað við sig og auglýsa meira
en áður. Við höfum svo sem ekki
fundið fyrir minni eftirspurn en
við finnum heldur ekki fyrir neinni
aukningu þótt við vitum að fólk sé
almennt að kaupa meira en áður.“
Hann segir einnig nokkuð bera á
því að einkaaðilar reyni að líkja
eftir flugeldasölum björgunar-
sveitanna svo fólki verði ekki ljóst
af hverjum það er að kaupa flug-
eldana. „Oft og tíðum eru þeir með
skuggalega lík skilti svo eru nokkr-
ir farnir að kalla þetta flugelda-
markað eins og við höfum alltaf
gert.“
En hvernig mæta þeir þessari
samkeppni? „Við ætlum ekkert að
gráta. Við höfum verið að breyta
auglýsingunum aðeins og minna á
málstaðinn sem vinnur með okkur,
ég held að flestir sjái hversu
mikilvægt það er að hafa öflugar
björgunarsveitir.“
Guðný Guðmundsdóttir, versl-
unarmaður hjá Gullborg Flugeld-
um, er ekki sammála Jóni Inga um
hver sé að herma eftir hverjum.
„Það má alveg benda á að slysa-
varnarfélögin hafa hermt eftir
okkur en við létum merkja flug-
elda hjá okkur eftir íslenskum
fjöllum og fuglum og upp frá því
komu á markað frá þeim flugeldar
með nöfnum fornkappanna,“ segir
hún.
Aðspurður hvort það sé siðferði-
lega réttlætanlegt að taka spón úr
aski björgunarsveitanna með því
að selja flugelda í einkasölu segir
Einar Ólafsson, annar eigenda
Alvöru – gæðaflugelda, að sam-
keppniseftirlitið hafi úrskurðað í
þessu máli og komist að þeirri nið-
urstöðu að allir ættu að sitja við
sama borð. „Svo er það siðferði-
lega rétt að kúnninn fái góða vöru
á góðu verði eins og gerist þegar
samkeppni fær að þrífast.“
jse@frettabladid.is
Nær 1.300 tonn af
flugeldum flutt inn
Flugeldainnflutningur hefur nær tvöfaldast á þremur árum. Alls hafa 1.275
tonn verið flutt inn á árinu. Samkeppnin hefur heldur aldrei verið meiri. Um 90
prósent rekstrarfjár nokkurra björgunarsveita eru fengin með flugeldasölu.
JÓN INGI SIGVALDASON Samkeppnin eykst sífellt í flugeldasölunni. Landsbjörg leggur
áherslu á málstaðinn í auglýsingum sínum sem Jón Ingi segir vinna með þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMFERÐARMÁL Sex nýir krossar
voru reistir í gær við Kögunarhól,
er stendur við Suðurlandsveg, til
að minnast þeirra sem látist hafa í
umferðarslysum á veginum síðan
í nóvember 2006.
Jafnframt voru heiðruð fyrir
framlag á erfiðum tímum lögregl-
an á Selfossi, sjúkraflutninga-
menn í Árnessýslu, lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu, slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins, þyrlu-
sveit Landhelgisgæslunnar,
starfsfólk bráðamóttöku Land-
spítalans í Fossvogi og slökkvilið
Hveragerðis.
Að þessu stóðu Vinir Hellisheið-
ar, áhugamannahópur um öruggan
Suðurlandsveg og Samstaða um
slysalaust Ísland.
Í nóvember 2006 voru 52 kross-
ar reistir við Kögunarhól til að
minnast þeirra sem þá höfðu látist
í umferðarslysum á Suðurlands-
vegi. Athöfnin í gær var táknrænt
merki um að baráttunni fyrir
bættum og slysalausum Suður-
landsvegi verði haldið áfram af
fullum krafti. - jss
NÝIR KROSSAR Sex nýir krossar voru
reistir til minningar um þá sem látist
hafa í umferðarslysum.
Barist fyrir bættum og slysalausum Suðurlandsvegi:
Sex krossar reistir
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum handtók um klukkan þrjú í
fyrrinótt sautján ára pilt sem hafði
barið á glugga í Reykjanesbæ með
merktum krossi sem hann hafði
stolið af leiði í kirkjugarðinum.
Við nánari eftirgrennslan lög-
reglu kom í ljós að pilturinn hafði
skemmt ljósaskreytingar á þrett-
án leiðum auk þess sem hann hafði
stolið krossi af einu þeirra. Þá
hafði hann brotið stóra rúðu í
kirkjugarðshúsinu í garðinum.
Lögreglan handtók drenginn,
sem var mjög ölvaður, og var hann
látinn sofa úr sér í fangaklefa. Að
sögn lögreglu hefur hann engar
skýringar gefið á hegðun sinni.
Þá handtók lögreglan ökumann
í Grindavík sem grunaður var um
ölvun og stöðvaði þar annan sem
ekki hafði ökuskírteini. Einnig
var bíll í Reykjanesbæ stór-
skemmdur þar sem hoppað hafði
verið á honum og rúður í honum
brotnar.
Á skemmtistaðnum Yello í
Reykjanesbæ réðist ölóður maður
á dyravörð með flösku og sló hann
tvívegis í höfðið og þurfti lög-
regla að hafa afskipti af því. Þar
fyrir utan segir lögreglan á
Suðurnesjum að mikið hafi verið
um útköll um nóttina vegna flug-
eldasprenginga og skarkala.
- kdk
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í miklu að snúast:
Piltur skemmdi leiði og stal krossi
SKEMMTI SÉR VIÐ AÐ SKEMMA LEIÐI
Lögreglan á Suðurnesjum fékk í fyrrinótt
tilkynningu um sautján ára pilt sem
barði á glugga með merktum krossi sem
hann hafði stolið af leiði í kirkjugarðin-
um. Myndin tengist fréttinni ekki með
beinum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN
SUÐURPÓLLINN Bandarískur
vísindamaður kjálkabraut annan í
afskekktri rannsóknarstöð á
Suðurpólnum á jóladag. Ekki er
ljóst hvað olli ósætti mannanna,
en þeir voru báðir ölvaðir. Farið
var með þá á brott með þyrlu.
Samkvæmt breska dagblaðinu
Guardian þurfti að flytja
kjálkabrotna manninn til Nýja-
Sjálands vegna meiðsla hans.
Hann var útskrifaður daginn
eftir. Hinn fór aftur heim til
Bandaríkjanna.
Talsmaður Raytheon Polar
Services, fyrirtækisins sem
mennirnir vinna fyrir, segir málið
munu verða rannsakað. - sþs
Ósætti ölvaðra vísindamanna:
Jólaslagsmál á
Suðurpólnum
Ætlar þú að strengja áramóta-
heit?
Já 29,6%
Nei 70,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú prófað ólögleg fíkni-
efni?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN