Fréttablaðið - 30.12.2007, Síða 13

Fréttablaðið - 30.12.2007, Síða 13
SUNNUDAGUR 30. desember 2007 Sölustaður KR-heimilið við Frostaskjól Afgreiðslutími 28.12.kl. 10–22 29.12.kl. 10–22 30.12. kl. 10–22 31.12. kl. 9–16 4.000,- 3.000,- 5.500,- 5.500,- 7.000,- 6.000,- Goðheimar og Jötunheimar Risakökur og ísskápar Yfir tuttugu tegundir af risakökum og ísskápum. Hlaupvídd 1–2”, 49–150 skot. Það allra nýjasta eru blævængir, marghleypur og tjaldsveipir. Ekki missa af þeim. Takmarkað magn. 5.000,- Royal flugeldar Kökur, rakettur og skotrör frá Royal eru alvörugræjur sem klikka ekki. sem jarðefnaeldsneyti er orku- gjafinn,“ segir Þorkell. Þorkell bendir á að hin miklu umsvif áliðnaðar hérlendis skekki á vissan hátt samanburð á orku- og kolefnisbúskap okkar við umheim- inn, meðal annars sýnist hlutur inn- flutts eldsneytis hlutfallslega lægri en ella. „Sannleikurinn er sá að við erum býsna háð innfluttri olíu og um leið losun frá henni. Því eigum við að beina athyglinni að sam- göngum á landi, að fiskveiðunum og flugsamgöngunum jafnvel.“ Það síðastnefnda sé reyndar annað dæmi um alþjóðlegt viðfangsefni frekar en verkefni sem stjórnvöld í hverju landi fyrir sig geta annazt. Innlend orka í samgöngum Orkumál samgangna segir Þorkell að hafi verið sér mjög hugleikin allan sinn feril og þau hafi reyndar skipað sess á Orkustofnun um ára- tuga skeið. „Stofnunin hefur fylgzt með og reynt að átta sig á því hvort það séu einhverjar leiðir til að nýta innlend- ar orkulindir í samgöngum og fisk- veiðum,“ segir hann. Segja megi að þrjár aðalleiðir séu færar að þessu marki. „Í fyrsta lagi að nýta raforkuna nokkurn veginn beint, til dæmis með raflestum, og með því að geyma orkuna á rafhlöðum í samgöngu- tækjunum sjálfum, bílunum.“ Þarna eigi mikil þróun sér stað. Lengi vel var lítið að gerast í þróun rafhlöðutækni, en núna virðist þar vera veruleg hreyfing. Mjög áhuga- vert fyrir íslenzkar aðstæður sé millistig eins og tvinnbílar sem tengir saman hefðbundinn bruna- hreyfil og rafmótor til að knýja bíl, sérstaklega það sem við köllum tengil-tvinnbíla. Það eru tvinnbílar sem hægt er að setja í samband á nóttunni til að hlaða rafhlöðurnar og eiga fyrir lunganum af keyrslu dagsins. „Með þeirri lausn væri hægt að minnka eldsneytisþörf íslenzka bílaflotans um tvo þriðju eða jafnvel þrjá fjórðu,“ segir Þorkell. Önnur möguleg leið sé að búa til eldsneyti með hjálp rafmagns, það er vetni eða metanól. Þar virðast menn að sögn Þorkels eiga lengra í land en öflugir hvatamenn þessarar leiðar töldu. „Ég treysti mér ekki til að spá um það hvernig það mun þróast – ef rafhlöðutæknin kemst á flug munu vetnisbílar ekki verða samkeppnishæfir við hreinræktaða rafbíla vegna mikils orkutaps eftir vetnisleiðinni og dýrra breytinga á innviðum. Það verður að koma í ljós hvaða tækni sigrar. Þess vegna held ég að stjórnvöld eigi að vera sem hlutlausust og opnust fyrir misjöfn- um tæknilausnum, og fyrst og fremst skapa hvata með skatta- og gjaldarömmum þannig að menn geti prófað sig áfram og að lokum muni einhver tæknin hafa vinning- inn,“ segir Þorkell. Þriðji kosturinn sé framleiðsla lífræns eldsneytis, þar sem raf- magnið leikur lítið eða ekkert hlut- verk. Á því séu þó ýmis vand- kvæði. Þorkell segir æskilegt að til væru myndarlegir þróunarsjóðir til að leyfa mönnum hérlendis að prófa sig áfram með þessar ýmsu lausnir. Menntunarmál lykilmál Svo sé það útrásin. „Við erum vart að fara út í hana í einhverju góð- gerðaskyni, þó við segjum það kannski í hátíðarræðum. Auðvitað er það bezt þegar báðir græða, að við getum komið okkar þekkingu í verð og um leið bætt lífsskilyrði annarra.“ Hér á Íslandi eru hlut- irnir í þessu samhengi ýmist í ökkla eða eyra að sögn Þorkels. Orkustofnun stofnaði fyrir tæpum aldarfjórðungi dótturfyrirtækið Orkustofnun erlendis. „Þetta gekk framan af ekkert ógurlega vel. Úr þessu urðu engin stórviðskipti. En nú allt í einu spretta orkuútrásar- fyrirtækin upp. Við skulum vona að þeim vegni öllum sem bezt,“ segir Þorkell. Lykilmál í þessu samhengi er menntun fagmanna í orkugeiran- um. „Þetta gengur mjög í bylgjum eins og annað í okkar litla samfé- lagi. Það var í tízku um árið 1980 að læra jarðvísindi,“ rifjar Þorkell upp; „þá var mikið umleikis, við vorum að leita að jarðhita um allt land, að leggja hitaveitur. Orku- stofnun réð alla jarðfræðinga sem útskrifuðust. Síðan hefur tízkan breytzt, unga fólkið sýnir nú fjár- sýslu mestan áhuga. Það er orðinn mikill skortur á jarðvísindamönn- um, og mönnum á nánast öllum sviðum orkumála. Það þarf að vekja athygli ungs fólks á að þarna eru tækifæri og ekkert síður að laða að erlenda stúdenta líka. Því ef við ætlum í útrásina getum við ekkert síður nýtt okkur útlendinga sem hafa kannski hlotið sína fag- menntun hér á landi. Lengi var áhugi háskólanna takmarkaður en núna sprettur þetta upp eins og gorkúlur leyfi ég mér að segja. Ég held reyndar að það væri rétt að spyrða þar eitthvað saman, sem menn vonandi eru að gera til að bakgrunnurinn að hinu nýja náms- framboði sé nægilega traustur.“ Horft fram á við „Svo ef ég horfi fram á við, þá held ég að það séu að verða skýrari skil í orkugeiranum á milli hlutverks hins opinbera og einkageirans,“ segir Þorkell. Einkarekstur muni hasla sér völl á orkusviðinu í sam- keppnisþættinum, sem sagt öðru en sérleyfisþættinum þar sem vilji virðist fyrir því að festa hlutverk hins opinbera í sessi. Hliðstæð þróun sé líka fyrirsjáanleg í hita- veitumálum, meðal annars með boðuðum lögum um hitaveitur. Þegar litið sé lengra sé spennandi að vita hvort olía og jarðgas kunni að finnast á okkar umráðasvæði. Það sjáist ekki fyrr en eftir einhver ár eða áratugi. „Ég tel öruggt að það komi að því að við notum innlendu raforkuna í samgöngum,“ bætir hann við. „En það er tiltölulega lítið af raforku sem við þurfum í það. Í gegn um vetnisleiðina þarf um það bil hálfa Kárahnjúkavirkjun, en með rafbíl- um þyrfti um helmingi minna; það samsvarar einni Blönduvirkjun eða svo.“ „Síðan er þetta stóra spurningin: erum við komin að einhverjum endamörkum í orkunýtingunni? Við erum búin að virkja 15 tera- wattstundir á ári. Við höfum lengst af talið að það væru um 50 tera- wattstundir á ári sem væri hægt að virkja á boðlegan hátt. Kannski hefur mat okkar á vatnsorkukost- unum eitthvað minnkað og á jarð- hitakostunum aukizt á móti. Þang- að til annað kemur í ljós þá höldum við okkur við þessi 50. Þar með erum við búin að virkja svona þriðj- unginn. En auðvitað, sérstaklega í vatnsorkunni, er það sem eftir er kannski ekki eins kræsilegt eða ábatasamt eins og það sem búið er. En það kemur náttúrulega að því að við segjum hingað og ekki lengra, til dæmis í álframleiðslunni. Hvort það bætist eitt eða kannski tvö álver við og svo segjum við stopp?“ veltir Þorkell fyrir sér. Loks segist Þorkell viss um að það muni líka koma að því að lagð- ur verði sæstrengur – eða -streng- ir – sem tengja muni raforkukerfi Íslands kerfi grannlandanna. Það verði ekki sízt gert til að tryggja öryggi í raforkukerfinu, en það verði jafnvel einnig til að auka samkeppni í raforkukerfinu hérlendis. Verðmætaaukning íslenzkrar orku Með hækkandi verði á jarðefna- eldsneyti og kröfum um takmörkun á losun koltvísýrings eykst hlut- fallslegt verðmæti hinna endurnýj- anlegu orkulinda Íslands. „Raforku- fyrirtækin íslenzku vita þetta og orkusölusamningarnir við álverin eru með tengingu við álverð og álverð mun ábyggilega hækka í takt við hækkað verð á orku, svo það er viss trygging fyrir því að þetta sitji ekki mjög eftir,“ segir Þorkell. „En hver á orkulindirnar og á þá að njóta arðsins af verðmætaaukn- ingu þeirra?“ spyr hann. „Megnið af þeim er í opinberri eigu, en með aukinni markaðsvæðingu þarf að taka á því með óyggjandi hætti hvernig orkufyrirtækin eiga að fá að nýta auðlindirnar, hvort sem þau sjálf eru í opinberri eigu eða einka- eigu. Leikreglur þurfa að vera skýr- ar og sanngjarnar, forðumst deilur eins og um fiskimiðin. Á þetta hef ég bent í ræðu og riti alla mína emb- ættistíð. Um leið þarf að marka heildarnýtingarstefnu, í tengslum við ramma-áætlunina fyrrnefndu. Þannig fæst líka svar við spurning- unni um hver séu endamörkin,“ segir Þorkell að endingu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.