Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 22
ATVINNA 30. desember 2007 SUNNUDAGUR2 Markaðsstjóri Óskum að ráða markaðsstjóra til starfa hjá Íslenskri getspá Umsóknir óskast sendar Íslenskri getspá merktar – Kraftur og frumkvæði – fyrir 8. janúar 2008. Upplýsingar veitir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, í síma 580 2500. Starfssvið: - Gerð markaðsáætlana. - Skipulag sölu- og markaðsmála. - Markaðssetning leikja. - Stefnumótun og þátttaka í vöruþróun. - Samskipti við auglýsingastofur og hönnuði. - Samskipti við umboðsmenn. - Þátttaka í norrænu og alþjóðlegu samstarfi. Menntun og hæfniskröfur: - Leitað er að aðila með menntun á háskólastigi. Áhersla á góða markaðsþekkingu. - Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæði í starfi. - Góð enskukunnátta er nauðsynleg. - Viðkomandi þarf að vera lipur í mannlegum samskiptum og eiga auðvelt með að stýra hópvinnu og virkja samstarfsmenn sína til dáða. Íslensk getspá var stofnuð árið 1986 og er í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Öryrkjabandalags Íslands og Ungmennafélags Íslands. Ágóði af rekstri félagsins rennur til þeirra góðu málefna sem eignaraðilar standa fyrir. Starfsmenn í dag eru 25 talsins. Fyrirtækið er mjög öflugt á íslenskum happdrættismarkaði. Helstu söluvörur eru Lottó 5/38, Víkingalottó og Jóker, 1x2, Lengjan og Tippað í beinni. Fyrirtækið byggir á öflugu sölukerfi með beinlínutengda sölukassa um land allt auk þess að vera í fremstu röð í sölu á internetinu í heiminum. w w w .lo tt o .is F í t o n / S Í A Iceland Travel úthýsir hluta af bókhaldi félagsins og launabókhaldi til Fjárvakurs, sem er systurfélag. Allt bókhald félagsins er fært í bókhaldskerfinu CODA sem er bókhaldskerfi allra félaga innan Icelandair Group. Jafnframt er allri tölvu- og kerfisvinnslu úthýst til Skýrr. Í boði fyrir réttan aðila er starf hjá traustu fyrirtæki sem starfar í alþjóð- legum rekstri þar sem ríkir góður starfsandi og metnaður til að ná árangri. Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Kristjánsson framkvæmdastjóri. Starfsumsóknir með ferilskrá sendist fyrir 11. janúar nk. á rafrænu formi til Ragnheiðar Valdimarsdóttur, starfsþróunarstjóra á netfangið ragnheidurv@icelandtravel.is Öllum umsóknum verður svarað Iceland Travel | Skútuvogi 13A | 104 Reykjavík | Iceland | Sími 585 4300 | Fax 585 4391 | www.icelandtravel.is | sales@icelandtravel.is Fjármálastjóri – Iceland Travel Iceland Travel leitar að kraftmiklum fjármálastjóra til að stýra bókhaldi, uppgjörum og miðlægum verkefnum félagsins. Undir fjármálasvið heyrir auk umsjón bókhalds, gæðamál, tekjustýring, innkaup, kerfismál, mötuneyti og afgreiðsla. Leitað er að skipulögðum og talnaglöggum einstaklingi sem hefur haldbæra reynslu af sambærilegu starfi. Helstu verkefni: · Yfirumsjón með bókhaldi, afstemmingum og reikningshaldi félagsins · Mánaðarleg uppgjör og afstemmd árshluta- og ársuppgjör · Áætlanagerð · Fjárreiðustýring · Afstemming launabókhalds · Starfsmannamál · Fjármálalegar greiningar einstakra verkefna Hæfniskröfur: · Háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt reynslu af sambærilegum störfum · Haldbær bókhaldsreynsla er nauðsynleg og þekking á bókhaldskerfum kostur · Stjórnunarreynsla · Rík skipulagshæfni, nákvæmni og færni í mannlegum samskiptum · Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður í starfi · Góð tölvukunnátta · Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg Iceland Travel er leiðandi fyrirtæki á sviði móttöku og þjónustu við erlenda ferðamenn og á sviði ráðstefnu- þjónustu, hvataferða- og atburðastjórnunar. Fyrirtækið heyrir undir Icelandair Group og hjá félaginu starfa 55 starfsmenn. Nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.icelandtravel.is Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.