Fréttablaðið - 30.12.2007, Síða 28
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með sunnudagsblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Dominic Pons
Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir, Yvan Rodic
Ljósmyndir Fréttablaðið, Dominic Pons, Yvan Rodic
Auglýsingar Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is + SKEMMTILEG HVERFI Í BERLÍN, HÖNNUNARHÓTEL Í LONDON, FERÐALÖG FYRIR FÁTÆKLINGA OG MALLORCA AÐ VETRARLAGI
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
JANÚAR 2008
HÆÐIR HIMALAYA-FJALLA
MYNDLISTARMAÐURINN TOLLI
FERÐAST UM NEPAL
HIPP OG KÚL ARGENTÍNA
TÍSKUHVERFIÐ PALERMO
Í BÚENOS AÍRES
MIÐAUSTURLENSKUR DRAUMUR Í MARRAKESH
ÞÚSUND
& EIN NÓTT
FERÐALÖG 2
Við þurfum öll að fara í frí, næra huga og
hlaða batterí, líka við sem teljum okkur
ekki eiga krónu. En ferðalög geta, með
bara örlítið meiri fyrirhöfn og smá þekk-
ingu, kostað jafnvel helmingi minna en við
reiknuðum út í upphafi.
Til að mynda má alltaf hafa í huga...
...að allra ódýrast er að plana ferðalögin
langt fram í tímann. Það er ekkert til lengur
eins og „hopp“ eins og það var og hét í
gamla daga.
... að frá borgum eins og London og
Kaupmannahöfn liggja allar leiðir opnar.
Ætlir þú eitthvert aðeins lengra en þangað
er hægt að finna mjög ódýr flugfargjöld frá
þeim stöðum og þá bara heima í stofu á
internetinu. Til að komast til London eða
Kaupmannahafnar frá Íslandi er svo hægt að
velja á milli flugfélaganna Icelandair, Iceland
Express, British Airwaves og SAS.
. .. að ætlir þú til dæmis að fljúga í gegnum
Kaupmannahöfn mælum við sérstaklega
með vefsíðu flugfélagsins Sterling: www.
sterling.dk Frábær síða með mjög góðum
tilboðum. www.kronerejser.dk er ekki síðri.
...að ætlir þú frekar að fljúga í gegnum
London er síðan www.lastminute.com hel-
ber snilld. Ekki síðri er síðan www.cheap-
flights.co.uk. Og sólardýrkendur athugið! Á
www.clickair.com eru mjög ódýr flugfargjöld
til Spánar.
...að sértu blankur en finnist þú engu að
síður hreinlega verða að komast í skíðaferð
eða siglingu á Karíbahafinu er alltaf hægt að
redda sér! Við fátæklingarnir elskum síðuna
www.iglu.com Þar smellirðu einfaldlega
á þær tegundir af pakkaferðum sem þig
langar í en ferðirnar eru flestar frá Bret-
landi þannig að auðvelt er að koma sér til
London. Við höfum til dæmis fundið okkur
æðislega vikuskíðaferð fyrir ekki nema
30.000 krónur!
... að farir þú á www.google.com og skrifir
„cheap cruises“ í leitargluggann færðu upp
fullt af snilldartilboðum á ódýrum siglingum
frá Bandaríkjunum. Annar góður og sniðugur
leitarmöguleiki er að ef maður skrifar „cheap
flight to ... og nafnið á borginni“ (Muna,
innan gæsalappa!) kemur upp fullt af síðum
og möguleikum.
...að íslenska síðan www.ferdalangur.net
er ansi góð. Sér í lagi sértu að leita þér að
ódýru hóteli en hótelbókunarvefurinn er
mjög góður þar. Þar inni má líka finna fullt
af alls kyns upplýsingum um ferðalög og
tengla inn á alls kyns skemmtilega hluti. Að
góðum tilboðum ógleymdum. - jma
FERÐALÖG FYRIR FÁTÆKLINGANA
Upplífgandi ferðaráð á krepputímum!
M
ér hefur alltaf fundist
það dálítil synd og
skömm að fara frá
Íslandi í júní og júlí
þegar veðurblíðan og birtan leik-
ur við landsmenn. Hins vegar er
kjörið að taka sér gott vetrarfrí
enda eru verstu mánuðir Íslend-
inga framundan – janúar, febrúar og mars. Drunga-
legur tími þegar hátíðir eru afstaðnar og manni
finnst eins og slabbið og rokið muni engan enda
taka. Janúar og febrúar eru hásumarmánuðir hinum
megin á hnettinum og allir sem vilja leggja í lang-
ferðalög ættu að íhuga kosti eins og Ástralíu, Nýja-
Sjáland, Suður-Ameríku og Suðaustur-Asíu. Þeir
sem eru hræddir um að pyngjan léttist allverulega
geta skoðað ráð okkar hér á síðunni um „Ferðalög
fyrir fátæklinga“.
Núna er aldeilis tíminn til að fljúga á suðrænar
slóðir og kafa á kóralrifum, þramma í gegnum
frumskóga og halda á vit ævintýranna. Janúar er
líka frábær mánuður til að taka það rólega á Flór-
ídaskaganum og keyra til dæmis til hins sjarme-
randi Key West eða þá njóta næturlífsins á Miami.
Evrópa, þrátt fyrir raka og kulda, að minnsta kosti í
norðurhluta álfunnar, getur líka verið afskaplega
sjarmerandi og skemmtileg á þessum árstíma. Að
sjálfsögðu er þetta árstíð skíðaferða og því ekki úr
vegi að bregða sér í Alpanna. Janúarútsölurnar eru
um það bil að bresta á, gnægð af menningarvið-
burðum í gangi og því upplagt að skella sér í líflega
helgarferð. Þó er líklegt að maður eyði dögunum að
mestu leyti innandyra: á veitingahúsum, söfnum
eða í verslunum. Annar góður kostur er að borgir
Evrópu eru nokkuð ferðamannasnauðar á þessum
árstíma. Suður-Evrópa er svo frekar hlý í janúar, og
það er sniðugt að skreppa til Barcelona, Cordoba
eða Granada á Spáni eða til Rómar, Sikileyjar eða
Pompei á Ítalíu. Norður-Afríka er líka mjög spenn-
andi og framandi kostur, hvort sem það er í
litaglöðum borgum eins og Marrakesh, eyðimörk-
um Túnis eða á ströndum Rauða hafsins þar sem er
hægt að kafa við kóralrif. Látum hugann reika og
verum óhrædd við að stökkva á næsta farmiða –
nýja árið bíður, uppfullt af ævintýrum.
HVERT SKAL HALDA
Í JANÚAR?
Anna Margrét Björnsson skrifar
B reski hönnuður-inn John Nash, sem hannaði Reg-
ency-hótelið í Lundúnum
ásamt hluta af Buckingham-höll hefur
nú skapað stórfenglegt hótel í Haym-
arket-hverfinu. Það er staðsett rétt
hjá the National Gallery, breska lista-
safninu, og leikhúsunum fjölmörgu á
Haymarket og Shaftesbury Avenue,
Búðarfíklar gætu ekki verið í betri
málum heldur þar sem hótelið er rétt
hjá Bond Street og Regents Street
þar sem er að finna bæði hátísku- og
verslunarkeðjur. Innandyra er hótel-
ið gert upp í afar frumlegum stíl –
skærum litum eins og bleiku og
grænu og blómum og röndum er
snilldarlega blandað saman. Á hótel-
inu er einnig að finna frábæran veit-
ingastað sem heitir Brumus bar and
restaurant og býður upp á heilsusam-
legan ítalskan mat. Í kjallaranum er
svo glæsileg líkamsræktaraðstaða,
heilsulind og sundlaug sem er flóð-
lýst með bleikum og gulum ljósum.
Herbergi frá 245 pundum á nóttu.
www.haymarkethotel.com
Í HJARTA LEIKHÚSLÍFSINS
EKKI
MISSA AF
ÞESSU