Fréttablaðið - 30.12.2007, Side 33

Fréttablaðið - 30.12.2007, Side 33
7 FERÐALÖG POKALDE Í baksýn má sjá tindinn sem Tolli kleif fyrst, Pokalde, en hann er um 5.800 metra hár. Hæðaraðlögun gekk vel hjá Tolla en hún getur reynst mörgum fjallagarpnum erfið. Það eina sem hægt er að gera er að fara nógu hægt yfir og svo eru menn misvel gerðir til að þola hæðarmismuninn. Á TOPPNUM Island Peak er þriðji tindurinn og sá hæsti sem Tolli kleif en hann er um 6.200 metra hár. Með honum á myndinni er leiðsögumaðurinn hans, Nima. Tolli segir að þarna hafi hann strax verið farinn að hugsa um niðurleiðina, enda sú leið jafnvel hættulegri en sú upp, þar sem menn séu þá orðnir lúnir og kærulausari. GYÐJUFÓRN Myndin er tekin á hátíðardegi hindúa í fornu borginni Bhaktapur og eru gyðju véla, amboða og verkfæra færðar fórnir. Menn slátruðu annaðhvort geitum eða fuglum og settu blóð þeirra á tæki sín. Loks voru síðan dýrin étin. MARKAÐSDAGUR Í BHAKTAPUR Borgin er eldgömul og upprunaleg frá árinu 900. Hún er á minjaskrá Sameinuðu þjóðanna en er þó ekki safn heldur búa borgarbúar í gömlu húsunum og gömlu hofin eru notuð. NÝ BRÚ Á aðeins fjórum dögum var þessi trébrú smíðuð en sú sem hafði verið fyrir féll í miklum rigninum nokkru áður. Uxarnir ganga yfir með vistir félaganna. SÍÐUSTU METRARNIR Tolli tók enga áhættu og var í línu á leiðinni upp Island Peak og hina tindana enda þverhnípt niður beggja vegna hans. ÍSLAND? Landslagið í Eyjatindadal minnti oftar en ekki í litum og öðru á eldgömlu Ísafold en dalurinn var mjög erfiður yfirferðar fyrir Tolla og félaga. Margar vörður má finna í dalnum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.