Fréttablaðið - 30.12.2007, Qupperneq 36
FERÐALÖG 10
S
ú var tíðin fyrir óþægi-
lega stuttu síðan að
verslunarferðir Íslend-
inga einkenndust af
þeirri hugmyndafræði að þar sem
allt væri svo ódýrt í útlöndum þá
gilti það að kaupa sem allra mest
og athuga það svo í fyrsta lagi
eftir að heim var komið hvort að
fötin væru klæðileg eða ekki og
hvort þau væru í réttri stærð.
Síðan hefur ýmislegt gerst, Íslend-
ingar eru orðnir mun ferðavanari
en áður og þramma áreiðanlega
margir oftar upp og niður Strikið,
Oxford Street og Römbluna en
þeirra eigin Laugaveg.
Þegar jafnvel þessar útlendu
verslunargötur eru orðnar að
hversdagslegum kaupmangara-
strætum í hugum Íslendinga er ef
til vill kominn tími til þess að
kanna ótroðnar slóðir. Sjálfsagt
dytti ekki mörgum þeirra í hug að
halda alla leið til Búenos Aíres,
höfuðborgar Argentínu, í verslun-
arferð en það er samt sem áður
margt vitlausara. Búenos Aíres er
nefnilega stórborg sem er alveg
að springa af sköpunarkrafti þessi
misserin. Það kemur meðal ann-
ars fram í gríðarlegum uppgangi
fatahönnuða sem lagt hafa undir
sig heilt hverfi með búðir sínar
þar sem lágt gengi argentínska
pesóans veldur því að ferðamönn-
um gefst kostur á að kaupa glæsi-
lega hönnun á Hagkaupsprís.
Fyrir einungis örfáum árum var
það fyrst og fremst tangóinn,
nautakjötið og kannski Maradona
og Eva Peron sem voru
aðalsmerki Búenos
Aíres. Enginn með
fullu viti lét sér detta í
hug að koma til argentínsku stór-
borgarinnar til þess að gera góð
kaup í fatabúðunum. Upp úr alda-
mótunum síðustu umturnaðist
hins vegar allt á nokkrum mánuð-
um, kreppa reið yfir Argentínu
sem rúði þetta vel stæða stórveldi
inn að skinni. Bylgja gjaldþrota
reið yfir landið og ofurverðbólga
brenndi upp sparifé fjölda ágæt-
lega stæðs fólks á augabragði.
Argentína var ekki lengur rík,
eftirspurn eftir munaðarvarningi
minnkaði og verðið hríðlækkaði
þar af leiðandi. Allt í einu var
komin upp sú tvíbenta staða fyrir
ferðaiðnaðinn að innan um öll
áföllin var Búenos Aíres allt í einu
orðin ódýr kostur fyrir ferðamenn
í kauphugleiðingum. Þetta gerðist
á sama tíma og ungt og frjótt fólk
sem fá tækifæri fékk í kreppu-
ástandinu ákvað að taka hlutina í
sínar hendur og byrja að skapa
sjálft.
Spennandi fatahönnun og litagleði
Útkomuna má nú sjá í Palermo-
hverfinu í Búenos Aíres sem á ein-
ungis örfáum árum hefur breyst í
skemmtilegt og líflegt tískuhverfi
þar sem tískulið Búenos Aíres-
borgar og túristar frá Evrópu og
Norður-Ameríku galla sig upp af
frumlegum og flottum fatnaði sem
nú þegar hefur komið Argentínu á
kortið sem einum af mest spenn-
andi stöðum í fatahönnun dagsins
í dag.
Sá hluti Palermo-hverfisins sem
helst er undirlagður tískuvarningi
hefur orðið æ betur þekktur undir
viðurnefninu Palermo Soho.
Umhverfið einkennist af lágreist-
um, vel við höldnum og stöndug-
um steinhúsum sem flestöll eru
svo innréttuð af mikilli smekkvísi
og metnaði. Verslanirnar standa
svo hlið við hlið, þéttast á Hondur-
as- og El Salvador-götunum en
fækkar eftir því sem fjær dregur.
Líkt og gengur og gerist í tísku-
og fatahönnunarbransanum, eru
kvenfataverslanir í talsverðum
meirihluta en karlmenn geta samt
unað ágætlega við sitt. Þá má ekki
gleyma leðurvörunum, hinu
sígilda vörumerki Argentínu-
manna, og því tengist auðvitað
líka skóhönnun en birtingarmynd
hennar má víða finna í hverfinu.
Allir vilja auðvitað Lilju kveðið
hafa þegar svona vel gengur og nú
eru stærri verslanakeðjur farnar
að stinga upp hausnum í hverfinu
en þær eru yfirleitt mjög auð-
þekkjanlegar frá þessum minni og
frumlegri. Þá hefur borið á því að
ýmsir hagsmunaaðilar eru farnir
að nýta sér gott orðspor Palermo-
hverfisins með því að kenna sinn
rekstur við hverfið jafnvel þó að
hann liggi nokkuð fyrir utan það.
Slíkt undirstrikar hins vegar auð-
vitað bara hversu vel heppnað
frumkvöðlastarf hönnuðanna í
Palermo hefur verið.
Ef reyna á að skilgreina þann
fatastíl sem einkennir hverfið þá
má kannski segja að hann sé frum-
legur, litaglaður og áræðinn og
einkennist af ríkum sköpunar-
krafti og lífsorku. Þeir sem meira
eru fyrir klassískan klæðaburð
ættu því ef til vill frekar að labba
á milli hefðbundnu fataverslan-
anna sem helst má finna í
miðbænum á og við Florida-göngu-
götuna.
Svöl kaffihús og góðar steikur
Palermo-hverfið er hins vegar
ekki einungis aðlaðandi vegna
allra flottu fatabúðanna. Hverfið
hefur nefnilega einnig að geyma
urmul skemmtilegra kaffihúsa
þar sem hægt er að fá sér bolla af
cortado-kaffi, nýkreistan ávaxta-
og grænmetissafa eða léttan
bistro-málsverð milli tarna í
búðarrápinu öllu saman. Sam-
tengdur Soho-hluta Palermo hverf-
isins er síðan Hollywood-hlutinn
svokallaði. Aðalsmerki Palermo
Hollywood eru veitingastaðirnir,
flestir reknir eftir nýjustu straum-
um í alþjóðlegri eldamennsku í
bland við argentínska matarhefð.
Þar er ágætt að enda vel heppnað-
an dag og þá á auðvitað með réttu
ekkert annað að koma til greina en
argentínska nautakjötið, það besta
í heiminum.
Þó að enska sé óvíða töluð í
Suður-Ameríku þurfa íslenskir
ferðamenn ekki að hafa áhyggjur
þó að spænskukunnátta þeirra
takmarkist við það að geta pantað
sér skammlaust bjór eða kaffi-
bolla. Búenos Aíres er nefnilega
alþjóðleg stórborg og sérstaklega
á það við um hverfi eins og Paler-
mo, sem ferðamenn sækja mikið í,
að þar er enskukunnátta starfs-
fólks nokkuð almenn. En svo má
líka bara benda og þreifa sig
áfram ef ekkert gengur að tala.
Yfirleitt kemst allt til skila á end-
anum.
Til þess að koma enn frekar til
móts við ferðamenn og aðra við-
skiptavini hverfisins hefur verið
gefið út kort af svæðinu þar sem
búið er að merkja skilmerkilega
og flokka niður allar markverðar
fataverslanir svæðisins, á annað
hundrað talsins allt í allt. Kortið
liggur frammi í öllum búðum
hverfisins, kostar ekki neitt og
fæst bæði á ensku og spænsku.
Það er því svo sannarlega þess
virði fyrir þá sem á annað borð
eru á ferðalagi um framandi slóðir
Suður-Ameríku að fylla ferða-
töskurnar af hræódýrum argent-
ínskum tískuvarningi úr Palermo-
hverfinu.
Hér í lokin fylgja svo heima-
síður nokkurra þeirra hönnuða og
verslana sem eru í Palermo-
hverfinu:
www.damboutique.com.ar
www.ilreve.com.ar
www.juanadearco.net
www.bokura.com.ar
www.fioriniwichmacki.com.ar
www.josefinaferroni.com.ar
www.hermanosestebecorena.com
HIPP OG KÚL ARGENTÍNA
Sigurður Ólafsson kynnir sér tískuhverfi ð Palermo í Búenos Aíres
Pelermo Soho Tískuverslanir hlið við hlið
BÓKAÐU
NÚNA
Hana hafði alltaf langað til að gera
þetta. Skyldurækni við aldraða
fjölskyldumeðlimi og guðsótti
hafði þó dregið úr henni til þessa.
En jólin 2006 gerðu útslagið. Eftir
að helvíti á jörðu birtist henni í
uppstúfspotti vissi hún að jólin
2007 yrði hún að flýja. Spurningin
var bara hvert.
Ekki gat hún látið sjá sig með
bjúgóttum drykkjurútum á
Kanarí. Og þrátt fyrir ódýran
kristal í Prag var of fyrirsjáanlegt
að eyða jólunum í kastalaborg í
Austur-Evrópu. Næstum eins
týpískt og að fara til Búdapest.
New York kom ekki til greina því
ekki vildi hún láta snúa sig niður
af landamæravörðunum á JFK
(blessuð sé minning hans) fyrir
framan alla Saga Class farþegana,
láta draga sig hlekkjaða í gegnum
flugvöllinn, valda semí-milliríkja-
deilu og koma í öllum fjölmiðlum
á Íslandi á milli jóla og nýárs. Slíkt
gengur ekki upp. Það veit guð og
Ísland í dag.
Ingveldi langaði til að eyða jóla-
nótt í turni. Þó ekki fangelsisturni
heldur hótelturni. Og hvar eru
þeir? Nú, auðvitað í London.
Hún pantaði sér hótelgistingu á
hóteli rétt hjá Buckinghamhöll. Á
aðfangadag sat hún spennt í flug-
vélinni og einbeitti sér að því að
komast í hlutverkið. Jólin 2007
ætlaði hún að leika óhamingju-
sama aðalskonu, dæmda til að ráfa
um kastalann sinn í þunnum silki-
slopp, því utan virkisveggjanna er
hún svo dýrkuð og dáð að hún fær
ekki stundarfrið. Með þetta að
leiðarljósi sveif hún inn á hótelið
og tékkaði sig inn í turninn. Næstu
tvo daga vaskaði hún hvorki upp
disk né glas. Hún þurfti ekki að
mæta í fjögurra klukkustunda
maraþonjólaboð og sitja undir
hressilegum athugasemdum frá
fimmtugum frændum (ekki blóð-
skyldum) um hvað hún sé glæsileg
(perra-blikkbroskarl) eða
hlusta á upptalningar
ömmusystra um hve
margar kjöttegundir þær
borðuðu yfir jólin um leið
og þær stinga öðrum
hangikjötsbita upp í
munninn. Í ár ætlaði hún
að njóta jólanna í turnin-
um sínum fjarri skyld-
fólki, reyktu kjöti og piparkökum.
Einu samskiptin sem Ingveldur
átti við aðra manneskju í ferðinni
voru þegar hún þakkaði þjóninum
fyrir þegar hann kom inn með
jólamáltíðina á gullvagni, þöktum
diskum með silfurhjálmum á
aðfangadagskvöld. Hún andvarp-
aði, stóð upp, gekk að kringlótta
turnglugganum, starði
út í tómið og sagði í
mjúkri en þó einmana
röddu: „Thank you“.
Ingveldi finnst
nefnilega svo gaman
að láta eins og henni
leiðist þegar hún er að
springa úr gleði að
innan. Henni finnst
það skárra en að leiðast í alvöru og
leika trúð. Trúðinn sem brosir
framan í sveitta frændur og bólgn-
ar ömmusystur á fjórða í jólum og
fimmta í gúffi.
Nú þarf hún bara að finna
áfangastað fyrir gamlárskvöld svo
hún endi ekki í VIP-herberginu á
b5 með Tarantino og félögum.
UNGFRÚ
INGVELDUR
...eyðir jólanótt í turni.
SKEMMTILEG STEMNING Í Palermo er einnig að finna frábær veitingahús og kaffihús.