Fréttablaðið - 30.12.2007, Qupperneq 40
ATVINNA
30. desember 2007 SUNNUDAGUR8
Hallfríður Benediktsdótt-
ir er upplýsingafulltrúi
Impru sem er deild innan
Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands.
„Markmið Impru er að vera
miðstöð upplýsinga og leið-
sagnar fyrir frumkvöðla,
lítil og meðalstór fyrir-
tæki, sama hvaða atvinnu-
grein fólk er í. Einnig leggj-
um við sérstaka áherslu á
að þjónusta landsbyggðina
og konur,“ segir Hallfríður
Benediktsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi hjá Impru, sem er
deild innan Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands, og nefnir
sérstaklega nýaflokið Braut-
argengisnámskeið sem er
frumkvöðlanámskeið fyrir
konur.
„Við útskrifuðum tuttugu
konur fyrir helgi, sem bætast
í hóp tæplega sex hundruð
kvenna sem hafa lokið nám-
skeiðinu. Í vor eru tíu ár
síðan við útskrifuðum fyrstu
konurnar og í dag eru tæp-
lega 60 prósent kvennanna
í einhvers konar rekstri,“
segir Hallfríður, sem er
einnig starfsmaður Félags
kvenna í atvinnurekstri hjá
Nýsköpunarmiðstöð en um
sex hundruð konur úr öllum
áttum eru félagar.
Námskeiðin fara einnig
fram á landsbyggðinni og
nýlega útskrifuðust einnig
konur á Grundarfirði,
Patreksfirði og á Akureyri.
Hallfríður er sjálf grunn-
skólakennari og segir þá
menntun reynast mjög
vel í starfi. „Starfið krefst
mikillar þjónustulundar og
þar nýtist reynsla mín sem
grunnskólakennari mjög vel.
Ég er í samskiptum við mjög
marga aðila daglega, bæði
við samstarfsfólk á Nýsköp-
unarmiðstöðinni og fólkið
sem við erum að þjónusta,
svo færni í mannlegum sam-
skiptum vegur einnig þungt,“
segi Hallfríður og bætir við
að góð tölvukunnátta skipti
einnig miklu máli. „Tækn-
in breytist gríðarlega hratt
í dag og það er nauðsynlegt
að fylgjast vel með. Ákveð-
inn grunnur í tölvuþekkingu
er algjört skilyrði í mínu
starfi, en síðan hef ég verið
dugleg við að tileinka mér
nýja þekkingu og þróa mína
færni,“ segir Hallfríður og
heldur áfram: „Símenntun
er gríðarlega mikilvæg, sér-
staklega á Íslandi þar sem at-
vinnulífið krefst þess að fólk
hafi fjölbreytta hæfileika
og tileinki sér hlutina hratt.
Auk þess sem það er gaman
að læra nýja hluti, kynnast
nýju fólki og þróa félagslega
hæfni,“ útskýrir Hallfríður.
Aðspurð segir hún starfið
mjög skemmtilegt og á erfitt
með að svara hvað sé leiðin-
legast. „Mér finnst kannski
svona einhæf handavinna
eins og skráningar ekki mjög
skemmtileg, en það sem er
skemmtilegast núna er að
vasast í heimasíðunni sem
er alveg ný. Hún fór í loftið í
lok október og við erum enn
að þróa hana, auk þess sem
ég er þegar byrjuð að skipu-
leggja næsta Brautargeng-
isnámskeið og næstu verk-
efni Impru á nýju ári,“ segir
Hallfríður. rh@frettabladid.is
Atvinnulífið
krefst fjölbreyti-
legra hæfileika
Hallfríði Benediktsdóttur finnst það skemmtilegasta við starfið um
þessar mundir vera þróun á nýrri netsíðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Á heimasíðu Impru á www.nmi.is/impra má fá nánari upplýsingar um
starfsemina.
HEILSUVERNDARSTÖÐIN
Heimaþjónusta Heilsuverndarstöðvarinnar veitir einstaklingum persónulega þjónustu í heimahúsum sem ávallt er
sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins og fjölskyldu hans. Þjónustunni sinnir starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn sem
á það sameiginlegt að hafa metnað til að veita gæðaþjónustu með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði
fólks.
Sjúkraliðar - félagsliðar
Heilsuverndarstöðin er þjónustufyrirtæki á sviði heilsuverndar, vinnuverndar og heilbrigðisþjónustu.
Stefna fyrirtækisins er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks. Hjá fyrirtækinu starfa um 90 starfsmenn
með fjölbreytta menntun og reynslu. Sjá nánari upplýsingar á www.heilsuverndarstodin.is.
Óskað er eftir starfsfólki í 40-80% dagvinnu með möguleika á kvöld- og helgarvitjunum fyrir þá sem vilja.Umsókn
merkt „Heimaþjónusta“ ásamt starfsferilsskrá skal senda fyrir 2. janúar 2008 til Elísu Ránar Ingvarsdóttur,
verkefnastjóra heimaþjónustu Heilsuverndarstöðvarinnar, á netfangið: elisa@heilsuverndarstodin.is, eða á
Heilsuverndarstöðina, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Elísa í síma 555-7600.
Hæfniskröfur: Hæfni í mannlegum samskiptum
Samviskusemi
Rík þjónustulund
Þolinmæði
Sveigjanleiki
Heiðarleiki
Sölustjóri
og svo miklu miklu meira!
Apple IMC
Apple IMC
Apple IMC leitar að skipulögðum og árangursdrifnum einstaklingi sem á auðvelt með mannleg
samskipti, er góður sölumaður og stjórnandi í senn. Sá sem kemur til starfa í Apple IMC þarf
einnig að hafa skilning á því að Apple vörumerkið er miklu meira en vörur eins og iPod, iPhone
eða Leopard. Apple er tákn um eftirsóknarverðan lífsstíl, ánægjulega upplifun.
Humac ehf. rekur Apple IMC á Íslandi í umboði Apple Computer, Inc í Bandaríkjunum. Hlutverk Apple IMC á
Íslandi er að sjá um innflutning, dreifingu, markaðssetningu, sölu og þjónustu á íslenska markaðssvæðinu.
Undir sölustjóra heyra verslanir, innkaupadeild og heildsala. Auk tveggja Apple verslana á Íslandi rekur
Humac ehf. 17 verslanir á Norðurlöndum. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi á Laugavegi 182.
Umsjón með starfsumsóknum hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is) og Tómas Oddur
Hrafnsson (tomas.hrafnsson@capacent.is) hjá Capacent ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar
2008. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á vef Capacent Ráðninga; capacent.is
Starfssvið
Yfirumsjón með sölumálum
Stefnumótun og áætlanagerð
Þjónusta við viðskiptavini
Samningar við viðskiptamenn og eftirfylgni samninga
Starfsmannamál og starfsþjálfun
Skipulag söluherferða
Samskipti við birgja
Menntun og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sölustjórnun
Reynsla af stjórnun og rekstri
Þekking á verslunarstjórnun kostur
Geta til að vinna sjálfstætt og undir álagi
Borgartúni 27 | 105 Reykjavík | Sími 540 1000
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík