Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 41
ATVINNA
SUNNUDAGUR 30. desember 2007 9
Í mörgum þjónustugrein-
um er eini Íslendingurinn
yfirmaðurinn sjálfur. Við-
kvæði hans er oft á sömu
leið; ekki hægt að stóla
á íslenskt vinnuafl á
meðan útlendingar sýna
stundvísi, vinnusemi og
skila sínu með bros á vör.
„Við lifum í breyttu þjóð-
félagi og annars konar
tíðaranda en kynslóðirnar á
undan,“ segir Agla Sigríður
Björnsdóttir, ráðningar-
stjóri hjá atvinnumiðlun-
inni Vinna.is.
„Þeir sem nú eru á milli
þrítugs og fertugs fóru á
vinnumarkað um leið og
skóla lauk í sínu ungdæmi,
unnu allt sumarið og í
öllum fríum án þess að taka
veikindadaga eða sumar-
frí, og héldu tryggð við
sína vinnuveitendur, jafn-
vel árum saman. Þeir höfðu
fengið þannig uppeldi að
standa vörð um sína æru
og eiga góð meðmæli vís í
framtíðinni,“ segir Agla,
sem tekur fram að hún vilji
alls ekki gera lítið úr yngri
kyn slóðum á vinnumarkaði
nú.
„Þessi þróun á sér margar
skýringar. Skólaárið hefur
lengst og ungt fólk hefur
meiri aðgang að fjármagni
en kynslóðirnar á undan,
hvort sem foreldrar þeirra
eru betur stæðir eða bank-
inn slæst í lið með þeim með
kortum og útlánum. Þannig
nær það að velta á undan
sér heilmiklum fjárhæðum
og er ekki eins háð því að
vinna og áður,“ segir Agla,
sem telur tölvuleiki einnig
stóran orsakavald.
„Tölvukynslóðin er alin
upp við leiki þar sem fljótt
er farið milli borða og
umbun fæst fyrir stutt verk.
Útkoman er starfsfólk sem
sér ekki fyrir sér að stoppa
lengi á hverjum vinnustað,
heldur kýs sér verkefna-
tengda vinnu og hættir án
þess að hika ef einhver
borgar betur,“ segir Agla,
og skrifar ístöðuleysi ungra
Íslendinga á vinnumark-
aði einnig á góðærið undan-
farin ár.
„Ungt fólk í dag hefur
aldrei upplifað atvinnu-
leysi. Íslendingar urðu ný-
ríkir svo fljótt og nú býðst
krökkum niður í þrettán ára
fjármagn í bönkum. Þegar
skuldahalinn verður svo
orðinn til vandræða taka
foreldrarnir við og ung-
mennin læra ekki að taka
ábyrgð sjálf, sem á sama
tíma er ekki gott vega-
nesti út í lífið. Við þurfum
því að staldra við og horfa
á það uppeldi sem fram fer
heima. Með tilkomu meira
fjármagns höfum við veitt
börnum okkar það sem
okkur var ekki falt, en stór
spurning er hvort það sé
þeim til góðs þegar upp er
staðið,“ spyr Agla, og bend-
ir á að ungir Íslending-
ar hafi ekki áhuga á vakta-
vinnu.
„Nú er svo mikil afþrey-
ing í boði að fólk vill eiga frí
á kvöldin og um helgar. Þá
koma útlendingar í störfin
sem við kærum okkur ekki
um, en þessi þróun hefur
gerst mjög hratt og Íslend-
ingar varla stoltir af sjálf-
um sér né tilbúnir að taka
við þessari breyttu þjóð-
félagsmynd. Hins vegar
gæti þetta landslag breyst
í einni svipan ef sam dráttur
yrði,“ segir Agla sem heldur
námskeið í skólum lands-
ins þar sem hún hvetur ís-
lensk ungmenni til að vanda
sinn starfsferil og hugsa út
í meðmæli framtíðarinnar.
„Foreldrar þurfa að gera
unga fólkið sitt ábyrgðar-
fyllra og bankar að slaka
á í útlánum til ungs fólks.
Íslendingar eru enn sama
harðduglega og ósérhlífna
vinnuþjóðin, en ungt fólk
þarf hvatningu og vandaðra
siðferðisuppeldi gagnvart
því að standa sig á vinnu-
markaði svo eftir því sé
tekið fyrir vel unnin störf
af trúmennsku og áhuga.“
thordis@frettabladid.is
Ístöðulausir
Íslendingar
Agla Sigríður Björnsdóttir ráðningarstjóri hjá Vinna.is segir ístöðuleysi
íslenskra ungmenna á vinnumarkaði skrifast á tölvuleiki, góðæri,
auðvelt aðgengi fjármagns og skort á uppeldi.
Fjölbreytt skrifstofustarf
Ört vaxandi fyrirtæki á sviði innfl utnings og verktakastarfsemi
óskar eftir að ráða starfsmann í fjölbreytt skrifstofustarf á hö-
fuðborgarsvæðinu.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf sem gefur viðkomandi
tækifæri á að móta það og skipuleggja. Viðkomandi þarf að geta
hafi ð störf sem fyrst.
Starfslýsing:
- Umsjón með viðskiptamanna- og lánadrottnabókhaldi
- Afstemmingar og uppgjör
- Launavinnsla
- Önnur tilfallandi skrifstofustörf
- 75-100% starfshlutfall
- Möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma
Hæfniskröfur:
- Góð starfsreynsla af ofangreindu mikill kostur, reynsla af
bókhaldi skilyrði
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, skilyrði
- Kunnátta í þýsku eða pólsku kostur
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Skipulagshæfi leikar, nákvæmni og samviskusemi í
vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfi leikar
Umsóknir berist á netfangið box@frett.is merktar: “skrifstofustarf”
Umsóknafrestur er til og með 4. janúar.
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar, Orkuveitu
Reykjavíkur, Gagnaveitu
Reykjavíkur og Mílu hf:
Reynisvatnsás og Reynisvatns-vegur.
Gatnagerð og lagnir – Eftirlit.
Áætluð lok verkframkvæmda eru 1. október 2008.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, frá og með
28. desember 2007, í síma- og upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur.
Um er að ræða tveggja umslaga kerfi.
Móttaka tæknilegra upplýsinga og verðtilboða er:
10. janúar 2008 kl. 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Opnun verðtilboða og tilkynning hæfniseinkunnar er:
17. janúar 2008 kl. 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur. 12068
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Skrifstofuhúsnæði til leigu - 150m² (búttó)
Til leigu er u.þ.b. 150m² skrifstofuhúsnæði við Hlíðasmára í Kópavogi.
Um er að ræða u.þ.b. 50% af 300m² skrifstofueiningu á 3. hæð.
Gott aðgengi og næg bílastæði.
Húsnæðið er tilvalið fyrir rekstur á arkitekta- eða verkfræðistofu.
Húsnæðið er laust frá 1. feb. 2008.
Upplýsingar í s: 824-3092 (Júlíus).
YFIRVÉLSTJÓRI
M/T KEILIR
Berg Shipping spf. leitar að yfirvélstjóra á olíuskipið
M/T Keili. Helstu verkefni Keilis eru strandflutningar
á Íslandi og í Noregi. Keilir er með 3060 kw aðalvél.
Viðkomandi þarf að hafa VF-1 réttindi.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson í síma
550-9900. Umsóknum með upplýsingum um menntun
og starfsreynslu skal skilað á póstfang
fyrir 13. janúar.
BERG Shipping spf. er færeyskt dótturfélag Olíudreifingar ehf.
gjons@odr.is
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmdasviðs Reykjavíkur,
Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveitu
Reykjavíkur og Mílu hf er óskað
eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sléttuvegur - Nýtt íbúðahverfi.
Gatnagerð og lagnir - Eftirlit.
Áætluð lok verkframkvæmda eru 1. september 2008.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, frá og með
28. desember 2007 í síma- og upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur.
Um er að ræða tveggja umslaga kerfi.
Móttaka tæknilegra upplýsinga og verðtilboða er:
10. janúar 2008 kl. 10:30, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Opnun verðtilboða og tilkynning hæfniseinkunnar er:
17. janúar 2008 kl. 10:30, í Ráðhúsi Reykjavíkur. 12069
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod