Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2007, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 30.12.2007, Qupperneq 48
24 30. desember 2007 SUNNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég var kosinn „Ólíklegastur til að ná árangri“ – þú, félagi, hefur tækifæri til að sýna heilum árgangi að þau höfðu rangt fyrir sér. Ég var að pæla... Hverjir verða glæpamenn? Af hverju urðum við tveir ekki harðsvíraðir krimmar? Tja... Það er spennandi atvinna, þar sem maður kemur og fer eins og maður vill! En það hefur aldrei freistað mín! Nei... Því maður þarf víst að ganga í gegnum „vandræði“ áður en maður er útlærður, ekki satt? Vandræði eru skylda! Maður kemur illa út úr þeim! Og komi maður illa út úr þeim... þá verður maður glæpamaður! Eða lukkudýr fótboltaliðs! Já, almátt- ugur! Það er mjög sorglegt! Það þarf margt að fara úrskeiðis til að þú standir inni í kanarífugli á Laugardalsvelli! Ég sagði bara „Eftir bara þrjú ár bruna ég inn á hraðbrautina, á meðan þú situr í farþegasætinu.“ Svona, elskan... Slepptu nú stýrinu. Einn fingur í einu... Áramótaheiti 1. Reyna að hætta að hata mánudaga Áramótaheiti 1. -------- hata mánudaga krot krot Búinn. Þarna fer ruslabíllinn með allar ömurlegu spólurnar sem við hentum. Hér er barn sem mun ekki horfa á spólu með hinum flautandi apa-kúrekum upp á dag. Það er rétt... Mamma! Pósturinn var að koma með flautandi apa- kúreka dvd-diskana sem þú pantaðir! ...tæknilega séð. Starfsmannastjóri Hin ýmsu blöð hafa undanfarna daga verið dugleg við að skrifa og segja mér og öðrum frá því hvaða áramótaheit ég ætti eða ætti ekki að strengja, svona á milli þess sem ég fæ upplýsingar um ómót- stæðileg áramótadress sem ég verð að eignast, hvernig ég þarf að mála mig til þess að vera boð- leg nýju ári og hvaða hluti ég þarf nauðsynlega að eiga til þess að geta fagnað áramótunum. Svo læð- ast inn í þessi blöð völvuspárnar, sem alltaf spá eldgosi, og flugelda- auglýsingar, því enginn er maður með mönnum nema hann sprengi fyrir dágóða upphæð. Svo ekki sé minnst á stjörnuspána, sem leggur manni línurnar fyrir næsta ár. Samkvæmt þessum blöðum strengja víst flestir áramótaheit þess efnis að fara í megrun, spara peninga og eyða meiri tíma með fjölskyldu og vinum. Svo er líka vinsælt að ætla að hætta að reykja eða drekka, koma almennu skipu- lagi á lífið og verða nánast eins fullkominn og hugsast getur. Ég veit ekki með aðra, en mér þykja flest þessara algengu áramóta- heita vera örlítið óraunhæf. Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann strengt áramóta- heit. Ég stend nefnilega í þeirri meiningu að fyrsti dagur ársins sé ekki vel til þess fallinn að byrja á nokkrum sköpuðum hlut. Að minnsta kosti veit ég um fáa sem eru í góðu skapi og stuði til góðra verka á nýársdag. Það er þess vegna sennilegt að á nýársdag verði enginn að heilbrigðari eða betri manneskju. Ef mörg ára- mótaheit hafa verið strengd í þá áttina eru því allar líkur á að árið sé hafið með vonbrigðum. Og þá getur nú ekki verið von á góðu fyrir hina 364 dagana. Ég ætla því ekki að nota gaml- ársdag til þess að finna upp og strengja áramótaheit. Í staðinn ætla ég bara að hugleiða árið sem er að líða, gleyma því slæma og taka það góða með í næsta ár. Svo ætla ég að láta öðru fólki það eftir að sprengja upp flugelda og strengja misgáfuleg heit. STUÐ MILLI STRÍÐA Grennri, betri og ríkari á nýju ári ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR STRENGIR EKKI ÁRAMÓTAHEIT Villa Bergshyddan Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyd- dan, sem staðsettur er í miðborg Stokkhólms. Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni, án endurgjalds, í eina eða tvær vikur á tímabilinu 31. mars til 28. september 2008. Umsóknareyðublöð fást á www.reykjavik.is, www.kultur.stockholm.se og í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur. Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar 2008 til: Stockholms Kulturförvaltning, Nordiskt kultursamarbete, Yvonne Boulogner, Box 16113 SE 103 22 Stockholm Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, s. 590-1520, netf. kristjana.nanna.jonsdottir@reykjavik.is og yvonne.boulogner@kultur.stockholm.se 7. og 8. des uppselt 30. des © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 7 Opið til 18 laugardag og sunnudag Lokað gamlársdag FANBY kampavínsglas 20 cl 70,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.