Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 54
30 30. desember 2007 SUNNUDAGUR sport@ 1.–3. febrúar Innifalið: Flug með sköttum, hótelgisting með morgunverði og miði á Kátu ekkjuna. Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 69.900 kr. Óperuferð til Køben Káta ekkjan – Frumsýning! Verð á mann í tvíbýli 8.–11. febrúar Innifalið: Flug með sköttum, hótelgisting með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk leiðsögn. Fararstjóri: Halldór Már Stefánsson 59.900 kr. Vetrarfrí í Barcelona Verð á mann í tvíbýli 8. TIL 14. UMFERÐ Flest mörk skoruð - Mörk/víti: Sergiv Trotsenko, ÍBV 40/6 Jóhann Gunnar Einarss. , Fram 40/15 Heimir Örn Árnason, Stjörnunni 39/11 Fannar Þór Friðgeirsson, Val 37/4 Ragnar Hjaltested, HK 36/7 Ernir Hrafn Arnarson, Val 36/0 Hilmar Stefánsson , Aftureldingu 35/17 Einar Logi Friðjónsson , Akureyri 34/0 Ólafur Víðir Ólafss., Stjörnunni 33/10 Baldvin Þorsteinsson, Val 32/4 Goran Gusic, Akureyri 31/9 Tomas Eitutis, HK 30/0 Zilvinas Grieze, ÍBV 29/4 Björgvin Þór Hólmgeirsson ,Stj. 28/0 Andri Stefan, Haukum 28/0 Arnar Jón Agnarsson, Haukum 28/0 Jón Karl Björnsson, Haukum 27/19 Rúnar Kárason, Fram 27/0 Magnús Einarsson , Aftureldingu 24/0 Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK 24/0 Magnús Stefánsson, Akureyri 23/2 Augustas Strazdas, HK 23/0 Daníel Jónsson, Aftureldingu 23/0 Gunnar Ingi Jóhannsson, Stjörn. 23/1 Gunnar Steinn Jónsson, HK 23/9 Sindri Haraldsson, ÍBV 21/0 Filip Klitszyczk, Fram 21/0 Freyr Brynjarsson, Haukum 20/0 Andri Snær Stefánsson , Akureyri 20/0 Einar Ingi Hrafnsson, Fram 20/0 Elvar Friðriksson, Val 20/0 Jónatan Þór Magnúss., Akureyri 20/8 Halldór Jóhann Sigfúss. , Fram 20/9 Flest skot varin - Skot/víti: Davíð Svansson, Aftureldingu 139/6 Egidijus Petkevicius, HK 101/6 Björgvin Páll Gústavsson, Fram 92/5 Roland Eradze, Stjörnunni 92/5 Friðrik Sigmarsson, ÍBV 68/1 Ólafur Haukur Gíslason, Val 67/3 Sveinbjörn Pétursson , Akureyri 66/6 Magnús Sigmundsson, Haukum 65/2 Gísli Guðmundsson, Haukum 64/7 Hlynur Morthens, Stjörnunni 58/7 Flest varin víti: Hlynur Morthens, Stjörnunni 7 Gísli Guðmundsson, Haukum 7 Egidijus Petkevicius, HK 6 Davíð Svansson, Afturelding 6 Sveinbjörn Pétursson, Akureyri 6 Roland Eradze, Stjörnunni 5 Björgvin Páll Gústavsson, Fram 5 Flest mörk utan af velli: Ernir Hrafn Arnarson, Val 36 Einar Logi Friðjónsson, Akureyri 34 Sergiv Trotsenko, ÍBV 34 Fannar Þór Friðgeirsson, Val 33 Tomas Eitutis, HK 30 Ragnar Hjaltested, HK 29 Björgvin Þór Hólmgeirsson, Stjörn. 28 Andri Stefan, Haukum 28 Heimir Örn Árnason, Stjörnunni 28 Baldvin Þorsteinsson, Val 28 Arnar Jón Agnarsson, Haukum 28 Rúnar Kárason, Fram 27 Jóhann Gunnar Einarsson , Fram 25 Zilvinas Grieze, ÍBV 25 Magnús Einarsson, Afturelding 24 Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK 24 Augustas Strazdas, HK 23 Ólafur Víðir Ólafsson, Stjörnunni 23 Daníel Jónsson, Afturelding 23 Goran Gusic, Akureyri 22 Gunnar Ingi Jóhannsson, Stjörn. 22 Magnús Stefánsson, Akureyri 21 Sindri Haraldsson, ÍBV 21 Filip Klitszyczk, Fram 21 Freyr Brynjarsson, Haukum 20 Andri Snær Stefánsson , Akureyri 20 Einar Ingi Hrafnsson, Fram 20 Elvar Friðriksson, Val 20 Kári Kristjánsson, Haukum 19 Nikolav Kulikov, ÍBV 18 Hilmar Stefánsson, Aftureldingu 18 Sigfús Páll Sigfússon, Val 18 Öll tölfræðin er úr leikjum sem spilaðir voru í umferðum 8 til 14. KÖRFUBOLTI Roman Moniak nýtti tækifærið vel og sýndi ÍR-ingum af hverju misstu þegar þeir létu hann fara fyrr í vetur. Moniak var með í þremur leikjum ÍR-inga en fékk aðeins að koma inn á í 17 mínútur saman- lagt í þessum leikjum. Hann var bara með tvö stig í búningi ÍR og þau komu bæði af vítalínunni en hann klikkaði á öllum fimm skotum sínum með liðinu. ÍR- ingar létu hann fara eftir 110-79 tap fyrir Keflavík. Moniak ákvað að gefa íslensku deildinni annað tækifæri og kom til Hamars eftir jólafríið og fyrsti leikurinn var einmitt á móti hans gömlu félögum í ÍR á föstudags- kvöldið. Þar fór kappinn á kostum og skoraði 19 stig á þeim 19 mínútum sem hann spilaði og Hamar vann öruggan 10 stiga sigur, 83-73. - óój Roman Moniak lék vel með Hamri: Sýndi ÍR hvað hann getur LÉT HANN FARA Roman Moniak hentaði ekki ÍR-ingum en lærisveinar Jóns Arnars Ingvarssonar lentu hins vegar í miklum vandræðum með hann. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL BESTIR Í UMFERÐUM 8-14 Besti leikmaðurinn: Andri Stefan Guðrúnarson Haukum Besti þjálfarinn: Aron Kristjánsson Haukum Bestu dómararnir: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson Besta umgjörð: Haukar Lið umferða 1-7: Mark: Davíð H. Svansson, Afturelding v. horn: Baldvin Þorsteinsson, Val h. horn.: Ragnar Hjaltested, HK lína: Kári K. Kristjánsson, Haukum v. skytta: Fannar Friðgeirsson, Val h. skytta: Ernir Hrafn Arnarson, Val miðja: Andri Stefan, Haukum HANDBOLTI Haukar fengu ríflega uppskeru þegar verðlaunum fyrir umferðir 8-14 í N1-deild karla í handbolta var útdeilt í gær. Sér- stök valnefnd á vegum HSÍ sér um valið. Tveir Haukamenn eru í úrvalsliðinu, línumaðurinn sterki Kári Kristján Kristjánsson og Andri Stefan Guðrúnarson sem einnig var valinn besti leikmaður umferðanna. Miðjumaðurinn Andri hefur leikið mjög vel í síðustu leikj- um með Haukum en þjálfari liðs- ins, Aron Kristjánsson, var valinn besti þjálfarinn. Þá fengu Haukar sérstaka viðurkenningu fyrir bestu umgjörðina í umferðunum. Valur á þrjá leikmenn í úrvals- liðinu, vinstri hornamanninn Bald- vin Þorsteinsson og skytturnar Fannar Þór Friðgeirsson og Erni Hrafn Arnarson. Liðið er einnig skipað hornamanninum knáa Ragnari Hjaltested úr HK og markmanninum Davíð Hlíðdal Svansson úr Aftureldingu. Hlynur Leifsson og Anton Gylfi Pálsson voru svo valdir bestu dómarar umferðanna. Andri Stefan er að vonum ánægður með gengi Hauka undan- farið en Hafnarfjarðarliðið hefur fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Í umferðum 8-14 töp- uðu Haukar ekki leik. Jafntefli gegn Val og Akureyri litu dagsins ljós en síðan vann liðið fimm leiki, gegn ÍBV, Fram, Stjörnunni, Aftureldingu og HK. Næsti leikur í deildinni er ekki fyrr en 1. febrúar, þegar Haukar mæta Val, vegna Evrópumóts landsliða í janúar. Andri horfir björtum augum fram á veginn. „Ég er bjartsýnn á framhaldið. Ég er með mjög góða tilfinningu fyrir þessu, sömu tilfinningu og maður fékk á árum áður þegar við vorum að vinna allt. Það er gott að finna þá tilfinngu aftur eftir að hún var í felum,“ sagði Andri. Hann viðurkennir að nú sé verið að rífa handboltann aftur upp á Ásvöllum eftir tvö mögur ár. „Við erum búnir að vera mjög ósáttir með síðustu tvö ár. Við erum Haukar og við eigum að vera á toppnum. Það er stefnan og svona á þetta að vera. Það er allt búið að ganga upp hjá okkur og það er hugur í okkur að halda því áfram,“ sagði Andri. Hann hrósar jafnframt þjálfara sínum, Aroni Kristjánssyni, í hástert og umgjörðinni hjá félag- inu. „Við erum að uppskera eftir því hérna,“ sagði Andri sem var valinn í landsliðshóp tvö af Alfreð Gíslasyni. „Ég stefni á að sanna mig þar núna í janúar og maður veit aldrei hvað gerist. Ef það tekst ekki hjá mér núna verð ég bara að gera það síðar. Ég er enn ungur,“ sagði Andri og tók fram að honum liði mjög vel í Haukum og hugur hans lægi ekki endilega í atvinnu- mennsku eins og staðan væri í dag. Sigurtilfinningin komin aftur á Ásvelli Andri Stefan var valinn besti leikmaður umferða 8 til 14 í N1-deild karla í handbolta í gær. Topplið Hauka var fyrirferðarmikið þegar verðlaunum fyrir umferðirnar var útdeilt en Valur á þó fleiri leikmenn í liðinu. > Snorri og Ásgeir misstu af titli Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hallgríms- son léku báðir með GOG Svendborg sem tapaði fyrir Kolding í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í gær. Kolding vann leikinn með 28 mörkum gegn 23 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik 12-11. Snorri og Ásgeir lögðu sitt af mörkum og skoruðu báðir fjögur mörk fyrir GOG en það dugði ekki til. Þetta er annað árið í röð sem Kolding vinnur bikarkeppnina í Danmörku. Alfreð Örn Finnsson gekk á fund með stjórn Gróttu á föstudagskvöldið og ræddi stöðu sína hjá félaginu. Alfreð sagðist í samtali við Fréttablaðið eftir tapleik gegn Fram í undanúrslitum N1-deildarbikarsins á fimmtudaginn vera að íhuga að segja af sér. Hann sagðist jafnframt gera ráð fyrir því að svo færi. Nú er öldin önnur og Alfreð ætlar ekki að hætta en hann hefur fengið mikinn stuðning úr ýmsum áttum. „Ég er mjög ánægður með þann mikla stuðning sem mér er sýndur. Það var einhugur um að hafa mig áfram og það er ekki talið að þessi deyfð væri mér að kenna. Við ætlum að skoða þetta nú um jólin og það er aldrei að vita nema eitthvað gerist á næstu misserum. Er ekki félagaskiptaglugginn að opna?“ spurði Alfreð kíminn og dulur. Leikmenn Gróttu ræddu sín á milli og sýndu þjálfara sínum mikinn stuðning en liðið er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar. „Það er alltaf gott að hafa leikmennina á bak við sig. Nú stefnum við bara á að koma sterk til baka á nýju ári,“ sagði Alfreð sem fékk einnig stuðning frá heimasíð- unni www.handbolti.is. Þar birti forkólfur síðunnar, Hlynur Sigmars- son, yfirlýsingu um að Alfreð mætti einfaldlega ekki hætta og í lok pistils síns lagði Hlynur jafnframt fram áskorun til Gróttu. Áskorunin gengur út á að Hlynur ætlar að reyna að létta sig um fleiri kíló en þau stig sem Grótta hlýtur eftir áramót, að því gefnu að Alfreð yrði áfram þjálfari. Sú varð raunin og því hefst áskorunin með vigtun Hlyns þann 1. janúar 2008 og lýkur á lokahófi HSÍ eftir tíma- bilið. Sá sem tapar þarf að borga undir mat og sal til veislu handa hinum. „Það er ekki spurning að við tökum þessari áskorun,“ sagði Alfreð kíminn. ALFREÐ ÖRN FINNSSON: ÆTLAR EKKI AÐ HÆTTA MEÐ KVENNALIÐ GRÓTTU Í HANDBOLTA Allir studdu Alfreð til að halda áfram BESTUR Andrei tekur við verðlaunum sínum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VERÐLAUNAHÓPURINN Guðmundur Ingvarsson, formaður KSÍ, Anton Gylfi Pálsson dómari, Davíð Svansson, Kári Kristján Kristjánsson, Fannar Friðgeirsson, Baldvin Þorsteinsson, Ernir Hrafn Arnarson, Gunnar Magnússon ,þjálfari HK, sem tók við verðlaunum fyrir Ragnar Hjaltestedt, Aron Kristjánsson þjálfari, Hlynur Leifsson dóm- ari og Páll Ólafsson frá Haukum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.