Fréttablaðið - 30.12.2007, Qupperneq 58
34 30. desember 2007 SUNNUDAGUR
Iceland Express-deild karla:
Skallagrímur-KR 82-95 (42-51)
Stig Skallagríms: Milojica Zekovic 30 (11 frák.),
arrell Flake 30 (11 frák.), Pétur Már Sigurðsson 9,
Allan Fall 4 (6 stoðs.), Pálmi Þór Sævarsson 4,
Áskell Jónsson 3, Hafþór Ingi Gunnarsson 2 (8
stoðs.), Sigurður Þórarinsson 2.
Stig KR: Avi Fogel 26 (9 frák., 5 stoðs.), Helgi Már
Magnússon 24 (hitti úr 4 af 6 3ja stiga), Joshua
Helm 22 (14 frák.), Pálmi Freyr Sigurgeirsson 7,
Jovan Zdravevski 5 (9 stoðs.), Darri Hilmarsson
4, Brynjar Þór Björnsson 3 (4 stoðs.), Fannar
Ólafsson 2, Skarphéðinn Freyr Ingason 2.
Enska úrvalsdeildin:
West Ham - Manchester United 2-1
0-1 Cristiano Ronaldo (14.), 1-1 Anton Ferdinand
(77.), 2-1 Matthew Upson (82.).
Chelsea - Newcastle 2-1
1-0 Michael Essien (29,) 1-1 Nicky Butt (56.), 2-1
Salomon Kalou (87.).
Tottenham - Reading 6-4
1-0 Dimitar Berbatov (7.), 1-1 Kalifa Cissé (16.),
1-2 Ívar Ingimarsson (53., 2-2 Dimitar Berbatov
(63.), 2-3 Dave Kitson (69.), 3-3 Dimitar
Berbatov (73.), 3-4 Dave Kitson (74.), 4-4 Steed
Malbranque (76.), 5-4 Jermaine Defoe (79.), 6-4
Dimitar Berbatov (83.).
Wigan - Aston Villa 1-2
1-0 Titus Bramble (28.), 1-1 Curtis Davies (55.),
1-2 Gabriel Agbonlahor (70.).
Birmingham - Fulham 1-1
0-1 Carlos Bocanegra (8.), 1-1 Sebastian Larson
(55.).
Portsmouth-Middlesbrough 0-1
0-1 Tuncay Sanli (20.).
Sunderland-Bolton 3-1
1-0 Kieran Richardson (13.), 2-0 Kenwayne Jones
(32.), 2-1 El Hadji Diouf (41.), 3-1 Daryl Murphy
(90.).
Everton - Arsenal 1-4
1-0 Tim Cahill (19.), 1-1 Eduardo Da Silva (47.), 1-
2 Eduardo Da Silva (58.), 1-3 Emanuel Adebayor
(78.), 1-4 Thomas Rosicky (90.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
Arsenal 20 14 5 1 40-16 47
Man. United 20 14 3 3 37-11 45
Chelsea 20 12 5 3 31-15 41
Liverpool 18 10 6 2 33-12 36
Man. City 19 10 5 4 27-22 35
Everton 20 10 3 7 35-22 33
Aston Villa 20 9 6 5 35-26 33
Portsmouth 20 8 7 5 29-20 31
West Ham 19 8 5 6 25-17 29
Blackburn 19 7 6 6 25-27 27
Newcastle 20 7 5 8 27-31 26
Tottenham 20 6 6 8 41-36 24
Reading 20 6 4 10 29-42 22
Middlesbrough 20 5 5 10 18-33 20
Birmingham 20 5 4 11 22-31 19
Bolton 20 4 5 11 22-32 17
Sunderland 20 4 5 11 20-39 17
Wigan 20 4 4 12 20-36 16
Fulham 20 2 9 9 21-35 15
Derby County 19 1 4 14 9-43 7
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Derby tekur á móti
Blackburn og Liverpool heimsæk-
ir síðan Man. City í ensku
úrvalsdeildinni í dag. Sven Göran
Eriksson, stjóri þeirra bláklæddu,
er hræddur við fyrirliða Liver-
pool, Steven Gerrard.
„Ég veit ekki hvernig við eigum
að stöðva Steven. Hann er einn af
bestu leikmönnum heims, það býr
allt í honum. Við þurfum að finna
leið til þess,“ sagði Eriksson en
kollegi hans hjá Liverpool, Rafael
Benítez, á í vandræðum með vörn
sína. Hugsanlegt er að Jack
Hobbs spili með Jamie Carragher
í miðvarðarstöðunni þar sem
óvíst er hvort Sami Hyypia eða
Daniel Agger geta leikið. - hþh
City tekur á móti Liverpool:
Þurfum að
stöðva Gerrard
FÓTBOLTI Bjarni Þór Viðarsson verð-
ur samningslaus við Everton í
sumar. Hann hefur ekki fengið
mörg tækifæri með aðalliðinu á
tímabilinu þrátt fyrir vaska fram-
göngu með varaliði félagsins og
hefur David Moyes, knattspyrnu-
stjóri Everton, sagt Bjarna að vera
þolinmóður. Bjarni viðurkennir að
það sé mjög erfitt enda þrá allir
knattspyrnumenn að spila 90 mín-
útur í hverri viku á meðal þeirra
bestu.
„Ég veit ekki alveg hvað ég geri,
það er ekkert komið á hreint. Það
kemur alveg til greina að fara að
láni nú í janúar,“ sagði Bjarni við
Fréttablaðið í gær en hann rennir
þá hýrum augum til næstefstu
deildarinnar ensku.
Nokkur félög þar hafa spurst
fyrir um Bjarna og einnig klúbbar
í Hollandi. Bjarni er ekki spenntur
fyrir því að fara í neðri deildir á
Englandi en hann þekkir vel til í
Hollandi þar sem hann var mikið
þegar hann var yngri. Arnar bróð-
ir hans spilar auk þess í Hollandi.
Moyes knattspyrnustjóri hefur
ekki gefið Bjarna mörg tækifæri
og virðist tala undir rós um fram-
tíð miðjumannsins. „Hann segir
mér að vera rólegur og þolinmóð-
ur en það er mjög erfitt þegar
maður er ungur og vill fá að spila.
Maður veit svo sem varla hvað
það þýðir sem hann
segir, hvort það sé að
klára samninginn
eða bíða eftir tæki-
færi með liðinu,“
sagði Bjarni.
Hann hefur ekki
talað mikið við
forráðamenn
Everton um
nýjan samn-
ing en ætlar
að skoða sín
mál fljótlega.
„Ég er í mjög
góðri samningsstöðu eftir
tímabilið. Ég mun leggj-
ast yfir þetta og sjá hvað
er best fyrir mig. Það er þó alveg
ljóst að það þýðir ekki bara að
hanga og gera ekkert,“ sagði
Bjarni og tók fram að honum liði
vel hjá félaginu. Hann segir jafn-
framt að það komi til greina að
framlengja við Everton, þá
með ákvæði um að hann
geti farið strax að láni
til annars félags. - hþh
Bjarni Þór Viðarsson bíður enn eftir fleiri tækifærum hjá Everton og íhugar að gerast lánsmaður:
Það er mjög erfitt að vera þolinmóður
BJARNI Hefur ekki
hlotið náð fyrir
augum knatt-
spyrnustjóra síns.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Phil O´Donnell, fyrirliði
skoska úrvalsdeildarliðsins
Motherwell, lést í gær í miðjum
leik gegn Dundee United. Hinn 35
ára gamli miðjumaður hné niður
undir lok leiksins og var hlúð að
honum í fimm mínútur áður en
honum var flýtt á spítala. Orsök
andlátsins er ekki kunn.
O´Donnell var á leið út af
vellinum eftir að honum var skipt
útaf en hann hafði ekki kvartað
undan neinu og ekki beðið um
skiptingu. Leikurinn var spilaður
til enda og Motherwell fór með 5-
3 sigur af hólmi. - hþh
Fyrirliði Motherwell:
Lést í miðjum
leik í gær
FÓTBOLTI West Ham lagði Manchest-
er United í báðum deildarleikjun-
um á síðasta tímabili og engin
breyting varð á því á Upton Park í
gær. Cristiano Ronaldo hélt upp-
teknum hætti þegar hann kom
United yfir í fyrri hálfleik en
Hamrarnir áttu mörg góð færi
sem þeir náðu ekki að nýta.
Vendipunktur leiksins var þegar
Ronaldo skaut langt framhjá úr
vítaspyrnu í síðari hálfleik. Anton
Ferdinand sá við bróður sínum Rio
hjá Manchester og jafnaði fyrir
West Ham áður en Matthew Upson
skallaði boltann inn og tryggði
stigin þrjú fyrir Hamrana.
„Ég hef ekki yfir neinu að
kvarta, betra liðið vann í
dag. Við lékum undir
getu en hefðum við
skorað úr vítinu
hefði það afgreitt
leikinn. Ég er mjög
svekktur með þessi
úrslit en það er ekki
hægt að ætlast til
þess að
mínir
menn
vinni
alla leiki, þeir eru bara mennskir,“
sagði Sir Alex Ferguson eftir leik-
inn. Kollegi hans, Alan Curbishley,
var mun brosmildari.
„Við lékum mjög vel í fyrri hálf-
leik og vorum vonsviknir að vera
marki undir. Þetta eru stórkostleg
úrslit fyrir okkur, sérstaklega
þegar haft er í huga að ég er aðeins
með sextán leikmenn heila og tveir
til viðbótar meiddust í dag,“ sagði
stjórinn.
Ívar Ingimarsson skoraði með
skalla af stuttu færi fyrir Reading
sem tapaði 6-4 fyrir Tottenham í
einum skemmtilegasta leik tíma-
bilsins,. Átta markanna tíu komu í
síðari hálfleik en Dimitar Berbat-
ov fór á kostum og skoraði fjögur
mörk fyrir heimamenn. Robbie
Keane brenndi af vítaspyrnu en
Jermaine Defoe skoraði upp úr
frákastinu og kom Tottenham í
5-4, en hann var greinilega
kominn inn í vítateiginn
þegar Keane tók
spyrnuna. Steve
Coppell, stjóri
Reading, var
sendur upp í
stúku fyrir mót-
mælin yfir
markinu.
Hermann Hreiðarsson
spilaði fyrri hálfleikinn
fyrir Portsmouth sem tap-
aði heima gegn Middles-
brough á meðan pressan
eykst enn á Sam Allardyce,
stjóra Newcastle. Liðið
tapaði enn einum leiknum,
nú gegn Chelsea, en hann
má reyndar vera svekkt-
ur þar sem sigurmarkið á
lokamínútunni var mjög
umdeilt.
Arsenal skoraði fjögur
mörk í síðari hálfleik eftir
að hafa verið undir í hálf-
leik gegn Arsenal og tyllti
sér þar með á topp deildarinnar á
nýjan leik. „Við lékum ekki vel í
fyrri hálfleik en við sýndum okkar
rétta andlit í þeim síðari,“ sagði
Arsene Wenger en leikurinn var
mjög skrautlegur og meðal annars
litu tvö rauð spjöld dagsins ljós.
- hþh
West Ham skellti Manchester United
West Ham vann frábæran sigur á Englandsmeisturum Manchester United í gær og með sigri á Everton komst
Arsenal aftur á toppinn. Ívar Ingimarsson skoraði annan leikinn í röð fyrir Reading sem tapaði þó 6-4.
BRÆÐRABYLTA
Anton skák-
aði bróður
sínum Rio
og skoraði
í 2-1 sigri
West Ham á
Manchester
United.
NORDICPHOTOS/
GETTY
MARKASKORARINN MIKLI
Ívar Ingimarsson fagnar
marki sínu gegn Totten-
ham í gær. Markið kom
Reading yfir en það dugði
ekki til þar sem Totten-
ham vann leikinn 6-4.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar KR-
inga fóru í góða ferð í Borgarnes í
gær og unnu öruggan þrettán stiga
sigur, 82-95, á Skallagrími sem
höfðu fyrir leikinn unnið alla fjóra
heimaleiki sína í Iceland Express-
deildinni í vetur. KR-ingar eru
komnir á gott skrið en þetta var
fimmti deildarsigur liðsins í röð
og sá sjöundi í röð með bikar.
KR-ingar gáfu tóninn í upphafi,
komust í 13-2 og Skallagrímsmenn
komu muninum aldrei niður fyrir
sex stigin það sem eftir var leiks.
Mestu munaði sextán stigum í
upphafi seinni hálfleiks en KR var
51-42 yfir í hálfleik.
Benedikt Guðmundsson hefur
breytt leikstíl KR-liðsins sem spil-
ar mun hraðari leik en fyrstu
mánuðina á tímabilinu. KR-ingar
keyrðu á Skallagrímsliðið frá
fyrstu mínútu og 14 af 20 fyrstu
stigum liðsins komu úr hraðaupp-
hlaupum. Helgi Már Magnússon
naut sín sérstaklega vel í hröðum
upphlaupum Vesturbæinga og
skoraði 17 stig í fyrsta leikhlutan-
um sem KR vann 28-20. Þegar upp
var staðið höfðu KR-ingar unnið
Skallagrímsmenn 35-8 í hraðaupp-
hlaupsstigum og sú tölfræði taldi
mikið í lokin.
Jovan Zdravevski mætti þarna í
fyrsta sinn aftur í Borgarnesi eftir
að hafa skipt úr Skallagrími í KR.
Honum gekk illa að finna körfuna
(klikkaði á 6 af 8 skotum) en fann
hins vegar félaga sína og átti alls 9
stoðsendingar
KR-ingar réðu lítið við þá Mil-
ojica Zekovic (30 stig og 11
fráköst) og Darrell Flake (28 stig
og 11 fráköst) en vandamál heima-
manna var að restin af liðinu nýtti
aðeins 7 af 32 skotum, þar af 1 af
17 skotum sínum fyrir utan þriggja
stiga línuna og það er ekki væn-
legt til árangurs. Þeir Flake og
Zekovic sáu samt til þess að Skalla-
grímsmenn héngu inni í leiknum
en þeir hefðu þurft meiri hjálp ef
þeir ætluðu að ógna Íslandsmeist-
urunum eitthvað meira.
Avi Fogel skoraði 11 af 26 stig-
um sínum í fjórða leikhlutanum og
landaði sigrinum fyrir KR en hann
tók meðal annars fimm sóknar-
fráköst í lokaleikhlutanum. Fram
að því hafði hann gert mjög vel í
að keyra upp hraðann í leiknum.
Helgi Már byrjaði frábærlega en
svo dró nokkuð af honum en hann
var einn af þremur mönnum Vest-
urbæjarliðsins sem skoruðu 22
stig eða meira. Joshua Helm var
sá þriðji en hann var með 26 stig,
14 fráköst og 63 prósent skotnýt-
ingu.
Darri Hilmarsson átti einnig
fínan dag í vörninni en hann fisk-
aði meðal annars þrjá ruðninga í
leiknum þar af tvo þeirra á Dar-
rell Flake sem komst lítið áfram
gegnum honum í lokin. - óój
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistaranna í KR, hefur keyrt upp hraðann hjá Vesturbæjarliðinu:
Fyrstir til að vinna í Borgarnesi í vetur
17 STIG Í 1. LEIKHLUTA Helgi Már Magn-
ússon var í miklu stuði í upphafi leiks.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM