Tíminn - 03.05.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.05.1981, Blaðsíða 6
6 (Jtgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhanns- dóttir. Afgreiöslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulitrúi: Oddur V. ólafsson. Blaöa- menn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friörik Indriöason, Friöa Björnsdóttir (Heimilis-TIminn) Heiöur Helgadóttir, Jónas Guömundsson (þingfréttir), Jónas Guömundsson, Kjartan Jónasson, Kristinn Hailgrimsson (borgarmál), Kristin Leifsdóttir, Ragn- ar örn Pétursson (iþróttir). Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygió Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Augiýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verö I lausasölu 4.00. Askriftar- gjaldá mánuöi: kr. 70.00. — Prentun: Blaöaprent hf. Olíusvæðin fyrir sunnan land norðan og í samkomulagi þvi, sem náðist um Jan Mayen- málið milli rikisstjórna íslands og Noregs 10. mai i fyrra, sagði m.a. á þessa leið: „Fjallað verður um afmörkun landgrunnsins á svæðinu milliíslands og Jan Mayen i framhaldsvið- ræðum. í þessu skyni eru aðilar ásáttir um að skipa svo fljótt, sem verða má, sáttanefnd þriggja manna og skal hvor aðili tilnefna mann, sem er rikisborgari þess lands. Formaður nefndarinnar er tilnefndur með samkomulagi aðilanna. Hlutverk nefndarinnar skal vera að gera tillögur um skiptingu landgrunnssvæðisins milli íslands og Jan Mayen. Við gerð slikra tillagna skal nefndin hafa hliðsjón af hinum miklu efnahagslegu hags- munum íslands á þessum hafsvæðum, svo og land- fræðilegum og öðrum sérstökum aðstæðum. Nefndin setur sér sjálf starfsreglur. Samhljóða tillögur nefndarinnar skulu lagðar fyrir rikisstjórn- imar svo fljótt, sem verða má. Aðilar miða við að tillögurnar verði lagðar fram innan fimm mánuða frá skipun nefndarinnar. Tillögur þessar eru án skuldbindingar fyrir aðil- ana, en þeir munu taka sanngjarnt tillit til þeirra i frekari málsmeðferð.” Samkvæmt framangreindu samkomulagi tilnefndi ísland Hans Andersen sendiherra i nefndina, Nor- egur tilnefndi Jens Evensen hafréttarráðunaut norsku rikisstjórnarinnar og samkomulag varð um að Elliot Richardsson, þáv. formaður bandarisku sendinefndarinnar á hafréttarráðstefnunni, yrði formaður nefndarinnar. Störfum nefndarinnar er nú svo langt komið, að hún hefur lagt bráðabirgðatillögur fyrir rikisstjórn- imar og þær verið ræddar i viðkomandi þingnefnd- um. Nefndin hefur nú fengið umsögn þessara aðila og mun fljótlega ganga frá endanlegum tillögum i samræmi við það. Allar horfur virðastá, að rikisstjórnirnar fallist á að tillögur nefndarinnar verði grundvöllur að frek- ari viðræðum og samkomulagi um þetta mál. Það mun aðalefni tillagnanna, að rikin hafi sam- vinnu um nýtingu þess svæðisins á landgrunninu milli Islands og Jan Mayen, þar sem helzt þykir oliu von. Þetta svæði er um 45 þús. ferkm. og eru 12 þús. ferkm. innan efnahagslögsögu íslands, en 33 þús. ferkm. utan hennar. Lagt er til, að norskir aðilar sjái alveg um oliuleit á svæðinu á sinn kostnað. Hefjist oliuvinnsla á svæðinu, skal tekjum skipt þannig, að oliufyrirtækið, sem annast hana fái 50% hagnaðarins, en hvort rikið um sig 25%. Þvi ber að fagna, ef deilan um landgrunnið milli Islands og Noregs leysist á þann hátt, að íslending- ar megi vei við una. Þess ber jafnframt að gæta, að leysist deilan á þennan hátt getur það mjög styrkt stöðu íslands til að ná svipuðu samkomulagi fyrir sunnan land, þar sem er að finna liklegt oliusvæði, sem fjórar þjóðir gera kröfutil, þ.e. íslendingar, Færeyingar, Irar og Bretar. Af hálfu Islands mun verða unnið að þvi, að fá það mál leyst á hliðstæðum grundvelli. Þ.Þ. Sunnudagur 3. mai 1981 Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Arabar óttast Israel meira en Sovétríkin Utanríkisráðherra Kuwaits heimsækir Moskvu Thatcher og Fahd krónprins I Riyadh HVORT sem þaö er rétt eöa rangt, er þaö eigi aö siöur staö- reynd, aö leiötogar Arabarikj- anna viö Persaflóa óttast tsrael meira en Sovétrikin. Þetta fengu þau Alexander Haig utanrikisráöherra og Margaret Thatcher forsætisráö- herra staöfest, þegar þau heim- sóttu Saudi-Arabiu og fleiri lönd viö Persafóa i siöastl. mánuöi. Til aö árétta þetta enn betur og til þess aö gera öllum Banda- ríkjamönnum þetta ljóst, lýsti Yamani oliumálaráöherra Saudi-Arabiu nýlega yfir þvi i viötali viö eina stærstu sjón- varpsstöö Bandarikjanna, aö Saudi-Arabia telji meiri hættu á árás frá Israel en Sovétrikjun- um. 1 viötalinu varaöi hann bandariska þingiö mjög viö þvi aö fella þann vopnasölusamn- ing, sem Reagan-stjórnin hefur nýlega gert viö Saudi-Arabíu. Þetta gæti hæglega leitt til þess, aö Arabarikin viö Persaflóa teldu sig beinlinis knúin til aö hefja samvinnu viö Sovétrikin. Yamani lagöi megináherzlu á, aö bezta trygging fyrir friöi I þessum heimshluta væri aö full- nægja þeirri ályktun allsherjar- þings Sameinuöu þjóöanna, aö tsraelsmenn yfirgæfu her- numdu svæöin, m.a. Jerúsalem, og viöurkenndu rétt Palestinu- araba til aö ráöa sjálfir málum sinum. Hann lýsti sig andvigan þvi, aö Bandarikin heföu herafla i þessum heimshluta, þvi aö þaö myndi leiöa til þess, aö Sovét- rikin geröu sllkt hiö sama. Slikt kapphlaup myndi auka striös- hættuna. 1 viötalinu lét Yamani I þaö sklna, aö Saudi-Arabia réöi yfir vopni, sem kynni aö veröa beitt gegn Bandarikjunum, ef óhjá- kvæmilegt þætti. Aö sinni myndi Saudi-Arabia þó ekki draga úr oliuframleiöslu sinni og reyna aö halda oliuveröi Opec-land- anna hóflegu. ÞAÐ, sem Saudi-Arabia og önnur Arabariki viö Persaflóa leggja áherzlu á, aö trak frá- töldu, er aö þau efli bæöi eigin varnir og sameiginlegar varnir, en visir aö varnarbandalagi þeirra er i undirbúningi. I þeim tilgangi leggja þau nú kapp á stóraukin vopnakaup. t heimsókn Alexanders Haig til Saudi-Arabiu mun hafa náöst endanlegt samkomulag milli rikisstjórna Bandarikjanna og Saudi-Arabiu um sölu á banda- riskum flugvélum til Saudi-Ara- biu. Mikilvægastur þáttur þessa vopnasölusamnings þykir sá aö Saudi-Arabla á aö fá fimm Awacs-njósnarflugvélar frá Bandarikjunum á árinu 1985, en þangaö til munu Bandarikin lána þeim slikar flugvélar. Þetta eru taldar fullkomnustu njósnaflugvélar i heimi. 'tsraelsstjórn hefur mótmælt þessu ákaft, þvi aö hún telur, aö þetta muni gera Saudi-Aröbum kleift aö fylgjast meö öllum heyfingum á flugvöllum tsraels. Hún hefur þvl hafiö skipulegan áróöur I Bandarikjunum gegn þessum samningi. Samningur þessi tekur þvi aö- eins gildi, aö meirihluti öld- ungadeildarinnar samþykki hann. Þaö þykir nú mjög tvlsýnt aö deildin geri þaö. Margir þingmenn úr báöum flokkum hafa lýst andstööu viö hann. Þaö þykir nú líklegast. aö rikisstjórnin muni draga þaö þangaö til aö áliönu sumri aö leggja samninginn fyrir deild- ina I von um, aö hún veröi þá bú- in aö tryggja sér meirihluta. Ýmsir fréttaskýrendur telja vafasamt, aö slikur dráttur reynist til bóta. Þaö viröist ekkert draga úr mótspyrnu tsraelsmanna, þótt Haig og Reagan lýstu yfir full- um stuöningi viö tsrael. AF HALFU Arabarlkjanna viö Persaflóa er látiö ótvirætt i þaö skina, aö þeir muni ekki taka þvi þegjandi, ef þessi samningur veröur felldur I öld- ungadeildinni. Þaö þykir nokkurt merki um þetta, að utanrikisráöherra Kuwaits fór nýlega til Moskvu og átti þar langar viðræöur viö Gromiko. Kuwait er eina rikiö I hinu væntanlega bandalagi Arabarikja viö Persaflóa, sem hefur stjórnmálasamband viö Sovétrikin. t sameiginlegri yfirlýsingu utanrlkisráöherra Kuvaits og Sovétrlkjanna, sem var gefin út eftir viöræðurnar, var lýst fylgi viö þá tillögu, sem Brésnjef flutti I indverska þinginu i vet- ur, aö kvödd yröi saman sérstök ráðstefna til aö ræöa um öryggismál I þessum heims- hluta. Þá var lýst andstöðu við áframhaldandi viöræöur Egypta og lsraelsmanna um Palestinumáliö. Fréttaskýrendur telja för utanrikisráöherra Kuwaits til Moskvu merki um, hvert fleiri■ Arabariki muni snúa sér, ef ekki tekst aö leysa deilu Arabarikj- anna viö tsrael. ' Jafnframt sýni þetta þaö mat þeirra, aö þau telji ekki slöur mikilvægt aö eiga vingott viö Rússa en Bandarlkjamenn. Haig og Saud prins utanrikisráöherra Saudi-Arabiu i Riyadh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.