Tíminn - 03.05.1981, Síða 24
VAKAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niöurrifs
Sími (91) 7-75-51, (91) 7- 80-30.
HEDD HF. Skemmuvegi 20 HEDD HF
--------------Kópavogi —________
Mikið úrval
Opið virka daga
9-19 • Laugar-
daga 10-16
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
Nútíma búskapur þarfnast
BAUER
haugsugu
Guöbjörn Guöjónsson
heildverslun, Kornagarði 5
Simi 85677
WíSIRfflRl Sunnudagur 3. maí 1981
Valgeir Sigurðsson:
Nokkur
kvæði
Manntal
Valgeir Sigurösson.
Um ranglæti teljaranna og
almúgans kvöl
Út barst tilskipan utan stanz
öndverðan þenna vetur:
Teljum nú fólk vors föðurlandS/
færa skal margt í letur:
Hver hefur bónað bílinn þinn/
burstað og þvegið ísskápinn?
Svari hver svarað getur.
Æddi að bragði óvígt lið
inn um híbýli manna.
Hjúskaparmál og heimasið
höfðu þeir millum tanna:
Hver hefur sof ið hverri hjá?
Hvar varstu í nótt? Og hvernig þá...?
Allt bar þeim eins að kanna.
Nú er með vissu váleg tíð/
varnarlaus þjóðarsálin.
AAyrk og ströng var sú manntalshríð/
margur sá dökkt í álinn.
Svarthöfði karlinn segir oss:
„sjá hér telgdan þinn mannorðskross"
Oll veit hann undirmálin.
Enn lít ég, forsjón, upp til þín
augum fullum af trega.
Nú hafa einkamálin mín
margklúðrast hrapallega.
Allt, sem ég heyrði, hélt og var
hafnaði í vörslu Klemensar.
Svo berst það víða vega.
Aldrei skal fremja önnur slík
ofst jórnarráð með valdi.
Enginn má glápa á annars flík
undan þeim rifna faldi.
Forðist oss manntals fárið grimmt,
flæði þar Ijós, sem nú er dimmt,
— Svarthöfðar sönsum haldi.
Setustríð
Stóð hann f ræðustóli,
stálhörðu beitti máli.
AAjök vas maður þá glaður,
mat ek slíkt þarfan starfa.
Nú er á flestu flaustur,
flý ek stafsetning nýja.
Sitjumk til varnar setu,
sýníst oss þat ný brýnast.
Borðdama
Hún er allt að því einmuna fljóð,
samt er athyglin hreint ekki góð.
Henni datt ekki í hug,
að mér dytti í hug....
og þó datt mér í hug — þetta I jóð.
Hattur fýkur
*
(Ur sjálfsævisögu)
Hann er seigur við sjálfhælni og raupið,
mörg er sagan um flöskuna og staupið.
En það var ekkert raup,
þetta höf uðfatshlaup,
þvf að „nú gat þó helvítið hlaupið".
Volgi lækurinn I Naughólsvikinni er enn i góöu gildi, og þar hefur oft veriö margt um manninn þessa siö-
ustu sólskinsdaga. Fjöidi fólks fer þangaö aö staöaidri og liggur i voigu vatninu iangan tima eöa
skamman eftir atvikum. —Tímamynd:Tryggvi.
Sérstakt tímabundið tilboð frá Bókaútgáfunni Ljóðhúsum
Endurminningar séra Magnúsar B/. Jónssonar
i tveimur myndarlegum bindum
og þrjár bækur Málfriðar Einarsdóttur:
Samastaður i tilverunni,
Úr sá/arkirnunni,
Auðnuleysingi og
tötrughypja
Allar fimm bækurnar
á kr. 650
Sent burðargjaldsfritt hvert á land sem
er ef greiðsla fylgir pöntun.
Bækur Málfríðar Einarsdóttur, sem komið hafa út á siö-
ustu árum, hafa hlotið einróma lof.
Endurminningar séra Magnúsar Bl. Jónssonar komu út
fyrir síðustu jól og þykja miklum tiöindum sæta:
„Þessar minningar standa vissulega framarlega I þeim
flokki... Og hér er sannarlega komin persónusaga sem
stendur jafnfætis góðum skáldskap. Lesendur verða ekki
sviknir i þeim efnum.”
Halidór Kristjánsson i Timanum.
„Þannig menn skrifa um eftirtektarveröa hluti af þeirri
nákvæmni að alveg er eins og fortiöin risi upp i fang
manns. Minningar séra Magnúsar Bl. Jónssonar eru af
stórum viöum samhengis og sögu.
Indriöi G. Þorsteinsson i Visi.
Bókaútgáfan Ljóðhús
Pósthólf 629, Reykjavik.
Simar 17095 og 35724