Tíminn - 26.06.1981, Qupperneq 3

Tíminn - 26.06.1981, Qupperneq 3
Föstudagur 26. júnl 1981 Friðrik Ólafsson: Svara Rússum eftir helgi” ^„Ég býst við að senda Rússum svar við aðfinnslum þeirra nú eftir næstu helgi,” sagði Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, þegar blaðið ræddi við hann i gær, Hann kvaðst nú hafa fengið fullkomið afrit af skeyti Rússa til skrifstofu FIDE i Amsterdam, en i þvi reyndist þó ekkert það að finna, sem þegar hefur ekki kom- ið fram. Friðrik hyggst taka sér stutt fri nú fram yfir helgina og skreppa norður til Grimseyjar. —AM Veiðihornið Hofsá vatns- mikil en tær ■ Þann 2. júli ætla þeir að opna Hofsá i Vopnafiríi og við slógum á þráðinn austur tilBraga Vagns- sonar og spurðum um veiðihorf- ur. „Ain hefur veriö vatnsmikil aö undanförnu og ef hlýindi verða áfram býst ég við að hún verði enn nokkuð vatnsmikil þegar veiðihefst,” sagði Bragi. „Ainer hins vegar tær og við vonum aö veiöin muni veröa betri i ár en i fyrra eða hittifyrra, en þá fengum við aðeins helming þess laxa- fjölda sem við höfðum vanist að fá árin á undan. Nei, við höfum enn ekki skoðað hvort lax er far- inn að ganga í ána Sjórinn er all kaidur hér enn, en laxinn hefur oft byrjað að ganga I ána um mánaðamótin.” Það voru aöeins 600 laxar sem veiddust f Hofsá i fyrra i stað 12- 1300 eins og menn hafa átt að venjast, rétt helmingur, eins og áöur segir. Siðustu sumur hefur sumaröldum seiöum verið sleppt i ána en gönguseiðum hefur díki veriö sleppt i hana. Sagði Bragi að seiðunum hefði veriö sleppt i ána á ólaxgengum hluta árinnar og væri ætlunin að reyna að nýta hana I þeim tilgangi framvegis. Það er Veiöifélag Hofsár, sem nú sér um allan rekstur árinnar, en nokkur undanfarin ár hefur enskur maður átt með veiöirétt- indin að gera og veiöihUsiö að Teigi. —AM Hlutafjársöfnun Stálfélagsins hf hefur gengið mjög illa: AÐEINS 10-20% HLIim- fjArins HAFA SAFHAST! B Við verðum að játa að undir- tektir einstaklinga eru ekki svo góðar sem við höfðum gert okkur vonir um og hlutafjársöfnunin hefur gengið þunglegar fyrir sig en við vonuðum,” sagði Jóhann Jakobsson, efnaverkfræðingur, þegar við ræddum við hann i gær um hlutafjársöfnun vegna væntanlegrar verksmiðju til framleiðslu á steypustyrktar- stáli, sem undirbúningsnefnd Stálfélagsins hf. hefur forgöngu um. Svo sem kunnugt er hefur rikið heimild til þess að gerast hluthafi að 40% i fyrirtækinu, ef hlutafjár- útboðið heppnast, en Jóhann sagði að af þeim 18 milljónum, sem nást þurfa inn fyrir 15. növ- ember næstkomandi hefðu menn aðeins skrifað sig fyrir hlutum sem nema 10-20% af þeirri fjár- hæð. Alls er hlutaféð 30 milljónir nýkr. að væntanlegum hlut rikis- ins meðreiknuðum. Fari svo að stofnfundur hafi ekki verið hald- inn 15. nóvember, hefur undir- búningsnefndin skuldbundið sig til að endurgreiða þegar það hlutafé sem safnast hefur. „Ef svo illa fer mun málið verða lagt i salt i bili,” sagði Jó- hann, en kvaðst þó enn fullur bjartsýni, þar sem vitað væri um fjölda manns sem tjáð hefur sig hafa áhuga á málefninu, en hefur þó ekki til þessa stigið skrefið til fulls og skráð sig fyrir hlutum. Þetta mun vera eitt stærsta hlutafjárútbob sem gert hefur verið hér á landi. —AM Guðmundur Ólafsson, for- maður Fáks um afgirta veginn í Hveragerði: ■ Strandamenn kveðja Vigdisi á Holtavörðuheiði, Timamynd: GTK „Aað vera opinn” ■ „Ég hef heyrt um þetta utanað mér. Menn eru aö giröa fyrir gamla vegi sem eiga að vera opn- irog maður hefur fullan réttá að fara um ”, sagði Guömundur ólafsson, formaður Hestamanna- félagsins Fáks, er borin voru undir hann ummæli oddvitans i Hveragerði hér á Timanum fyrir skömmu, um að hestamenn af höfuöborgarsvæðinu rffi niður girðinguna umhverfis þorpið I Hverageröi og fari gegn um þaö með sitt stóð. Guömundur sagði þetta alfara- ledð frá fyrri árum og slika vegi eigi ekki aö leggja niður. A árum áöur hafi veriö talaö um gamlar kirkjuleiðir og raun- verulega sé komin hefð á þá sem reiðvegi. Menn eigi aö geta farið um þá án þess aö þeim sé lokaö. Vilji menn giröa sin lönd, þá eigi þeir aö hafa hlið þannig að hægt sé aö fara i gegn með góðu móti. Lágmark væri a.m.k. að setja upp skilti við girðinguna þar sem mönnum væri þá bent á aörar leiðir, en ekki taka sig til og loka allti' einu leiðum sem farnar hafi veriö árum saman. Hann sagðimikinn fjölda Reyk- vikinga hafa leigulönd til beitar allt austur i Landeyjar. Það væri mjög bagalegt að þurfa að riöa hraöbrautir með hrossarekstr- ana. Aðspuröur sagöi hann aö brýnt væri fyrir öllum Fáks- mönnum aö loka hliðum á eftir sérþarsem þeirættuleiö um lönd manna. —HEI „Hreykin af þessari þjóð” — segir forseti Islands, Vigdfs Finnbogadóttir, að endaðri heimsókn sinni um Dala- og Strandasýslur ■ „Ég á svo rikar og djúpar minningar um þessa ferð að ég mun seint gleyma henni. Þegar ég hef hitt landa mina á þennan hátt og kynnst hvarvetna svo miklu menningarlifi og menningarbrag verð ég hreykin af þessari þjóð," sagði forseti tslands, Vigdfs Finnbogadóttir, I samtali við Tfmann f gær, en hún er nú komin úr glæsilegri för um Dala og Strandasýslur, sem fjöl- miðlar og þjóðin öll hefur fylgst náið með að undanförnu. „Þaö var sama hvar ég kom,” sagði forseti, „hvarvetna hitti ég fyrir einlægt fólk, og fólk sem kom svo frábærlega fyrir sig orði að það var aðdáunarvert. Höfðingslundin var mikil, hvort sem var á meðal Dalamanna eða Strandamanna og enn fann ég sem embættismaður, sem gegnir embætti forseta Islands, hvernig endalaust var verið að tengja saman fortið og nútið, rifja upp mannlif fyrri tima og gera úttekt um leið á þvi mannlifi sem við lif- um i dag. Þegar fjallað er um hvernig hagir eru i héraði er það stöðugt fléttað inn i hvernig hagir voru áður fyrr.” Við spurðum Vigdisi um mót- tökurnar. „Ég var ekki aðeins kvödd á sýslumörkum heldur á hreppa- mörkum einnig og fólk fylgdi mér staöa i milli. Ég verð lika vör við það þegar ég kem aftur til Reykjavikur að þetta hefur vakið athygliá sýslunum báðum sem ég fór um, og að um þær hefur verið meira fjallað en ella og við i þétt- býlinu förum að velta þvi meira fyrir okkur hvernig lifi þetta fólk lifir og það getur ekki orbið til annars en góðs.” Nú eru áformaðar heimsóknir til fleiri sýslna ilandinu i sumar? „Já, en frá þeirri dagskrá hefur ekki alveg veriö gengið enn. En mér ér i mun að fara á þa' staöi sem við köllum afskekktari á Islandi, en ég komst að þvi i þess- ari ferð að á slikum stöðum blómstrar mannlifið ekki sist, og þá á ég bæði við andlega menningu og verkmenningu.” „Við getum spurt hvaöa fugl sé fegurstur og þá vil ég svara þvi þannig að það sé minn fugl og þaö er min þjóð,” svaraði Vigdis spurningu okkar um það hvar henni hefði þótt fegurst að koma. „Mér er efst i huga þakklæti fyrir þann einstaka hlýhug sem mér var sýndur hvar sem ég kom og jafnframt virðing fyrir þessu fólki.” —AM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.