Tíminn - 26.06.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 26., ji^ni.1981
■ Ólafur R. Einarsson
■ Hákon Sigurgrímsson
■ Bolli Héöinsson
■ Hörður Vilhjálmsson
■ Arnþrúöur Karlsdóttir
„1APAÐISEINNI HALFLEIK”
■ t gær tók Höröur Vilhjálms-
son, settur útvarpsstjóri, þá
ákvöröun aö ráöa Bolla Héöins-
son i starf afleysingarfrétta-
manns viö sjónvarpið. En eins og
kunnugt er fengu tveir umsækj-
endur flest atkvæöi i útvarpsráöi,
þ.e. Arnþrúöur Karlsdóttir sem
fékk atkvæöi fjögurra ráös-
manna, og Bolli Héöinsson, sem
fékk atkvæöi þriggja ráösmanna.
Timinn ræddi i gær viö fimm
aðila sem tengjast þessu máli,
eftir aö ákvöröun útvarpsstjóra lá
fyrir, þ.e. Hörð Vilhjálmsson,
settan útvarpsstjóra, og útvarps-
ráðsmennina Hákon Sigurgrims-
son og Ólaf R. Einarsson. Einnig
er rætt við þá tvo umsækjendur
sem flest atkvæði fengu i útvarps-
ráði, þau Arnþrúði Karlsdóttur og
Bolla liéðinsson.
„ Ekkert athugavert viö af-
stöðu útvarpsstjóra"
„Ég tel ekkert athugavert viö
afstöðu eða ákvörðun setts út-
varpsstjóra”, sagði Ólafur R.
Einarsson, útvarpsráðsmaður, i
samtali við Timann, þegar hann
var spurður álits á ákvörðun
Harðar Vilhjálmssonar um ráðn-
ingu Bolla Héöinssonar i starf af-
leysingarfréttamanns við sjón-
varpið.
„Þaö var mjótt á mununum i
útvarpsráði og starfandi blaða-
maður, Bolli Héðinsson, sem er
með viðskiptafræðimenntun og
nám að baki i fjölmiðlafræðum,
fær þarna stöðuna. Það hefur
greinilega vegið þungt þegar til
kastanna kom. Ég hef alltaf i
svona tilfellum fyrst og fremst til
viðmiðunar menntun og starfs-
reynslu, og mér sýnist aö út-
varpsstjóri hafi metið þetta á
þeim grundvelli.”
„En ég vil segja svona almennt
um frétta- og dagskrárgerðar-
mannaráðningar á liðnum vetri,
að þá hef ég alltaf gert þá athuga-
semd að ekki eru neinar ákveðnar
kröfur gerðar i auglýsingu.
Þess vegna flutti ég tillögu á
siðasta útvarpsráðsfundi, ekki út
af þessu máli, heldur fenginni
reynslu, um að settar yrðu
ákveðnar viðmiðunarreglur i
þessu sambandi. Ég tel að þegar
fréttamennska er orðin að ákveð-
inni atvinnugrein, þá þurfi um-
sagnaraðili eins og útvarpsráð að
taka upp ný og betri vinnubrögð,
sérstaklega þegar þeim er alltaf
að fjölga sem sækja um þessar
stöður sem eru með próf, nám eða
reynslu i fjölmiðlun að baki sér”,
sagöi Ólafur R. Einarsson.
//Óraði ekki fyrir því sem
ég hef þurft að ganga í
gegnum"
„Ég er að vonum leið yfir þess-
ari niðurstöðu málsins. En mér er
jafnframt ljóst að Höröur Vil-
hjálmsson og Pétur Guðfinnsson
áttu úr mjög vöndu að ráöa i
þessu efni, og það er ekki við þá
að sakast”, sagði Arnþrúður
Karlsdóttir, i samtali við Timann,
þegar borin var undir hana
ákvörðun útvarpsstjóra, um að
ráða Bolla Héðinsson, i starf af-
leysingarfréttamanns við sjón-
varpið.
„Mig hafði hins vegar aldrei ór-
að fyrir þvi, að ég þyrfti að ganga
i gegnum sumt af þvi sem ég hef
mátt þola undanfarna daga, og á
ég þá fyrst og fremst við blaöa-
skrif. Ég hélt þó að sumir þeirra
sem hafa lagt sig fram, eftir þvi
sem virðist, um að skemma fyrir
mér starfsmöguleikana hefðu
eitthvað þarfara að gera, en ég
hef ekki lagt i vana minn að gera
misjafnt innræti manna að um-
ræðuefni og fer ekki að gera það
nú.
Ég vil óska Bolla Héðinssyni
velfarnaðar í starfi, og er viss um
að hann mun standa sig vel. Hitt
er annaö mál, að enginn kemur til
með að sjá hvernig ég hefði
reynst i þessu starfi. Eins og oft
er sagt á iþróttamáli: Ég vann
fyrri hálfleikinn, en tapaði þeim
seinni. úrslit leiksins urðu hins
vegar ekki kunn fyrr en dómarinn
flautaði hann af”, sagði Arnþrúð-
ur Karlsdóttir.
//Sannfæring mín sagði
mér að gera þetta svona"
„I stuttu máli er það sannfær-
ing min sem sagði mér að gera
þetta svona”, sagði Hörður Vil-
hjálmsson, settur útvarpsstjóri, i
samtali við Timann, i gær, þegar
hann var spurður aö þvi hvaö
hefði ráöið úrslitum þegar hann
ákvað að ganga á svig við ákvörö-
un meirihluta útvarpsráðs og
ráða Bolla Héðinsson i starfa af-
leysingarfréttamanns viö sjón-
varpið. En meirihluti ráösins
mælti meö Arnþrúöi Karlsdóttur i
starfið.
— Það hefur þá ekki verið af-
staða fréttastofunnar sem ráðiö
hefur úrslitum?
„Hún hafði sinn rétt til að láta
■ Hvað skyldu þeir greiða i
skatta og hafa i tekjur sem
fremst standa i verkalýðs-
hreyfingunni? Eins og fyrri
daginn eru sex verkalýðsleið-
togar valdir af handahófi. Þeir
eru: Asmundur Stefánsson, for-
seti ASl, Benedikt Daviðsson,
formaður Sambands bygg-
ingarmanna, Björn Þórhalls-
son, varaforseti ASl, Guðmund-
ur J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambandsins,
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, og Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir, formaður Sóknar.
Ásmundur Stefánsson greiðir
mest i skatta, en þess er rétt að
geta að þegar hann vann fyrir
þeim tekjum sem hann greiddi
■ Ástnundur Stefánsson
■ Guðmundur J. Guðmundsson
■ Kristján Thorlacius
Engin jafnlaunastefna
medal verkalýdsforingjanna
gjöld af árið 1980, var hann enn
ekki orðinn forseti ASI. Næstur
honum kemur Guðmundur jaki.
Þessir tveir eru þeir einu sem
komast upp fyrir meðaltekjur
kvæntra karla árið 1979. Hinir
eru alveg á mörkunum, sbr.
Kristján Thorlacius, formann
BSRB, og Björn Þórhallsson,
varaforseta ASI.
Benedikt Daviðsson og Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir reka
lestina.
Athygli vekur að aðeins
helmingur þessara aðila á eign-
ir og greiðir eignaskatt. Segja
má að tekjur verkalýðsleiðtog-
anna séu svona rétt lófafylli i
aðra hönd, miðað við tekjur
flugmanna o.fl. sem teknir hafa
verið fyrir i dálkjnum undan-
AUt i gömlum krónum:
Nafn.
Ásmundur Stefánsson
Guðmundur J. Guðm.
Kristján Thorlacius
Björn Þórhallsson
Benedikt Daviðsson
Aðalheiður Bjarnfreðsd.
farna daga.
En látum töluna tala sinu
máli. Rétt er að vekja athygli á
að hér er um að ræða skatta árs-
ins 1980, vegna tekna ársins
1979. Frá árslokum 1979 hafa
launatekjur hækkað að meðal-
tali um 60-70%. — Kás
tekjusk. eignask. útsvar samtals áætl. tekj.
2.839.219 0 1.274.000 4.356.721 10.723.905
1.156.404 42.141 955.000 2.327.710 8.038.720
1.053.500 71.411 814.000 2.091.933 6.851.851
513.444 69.387 725.000 1.647.692 6.102.693
68.725 0 568.000 741.819 4.781.144
664.629 0 516.000 1.270.797 4.343.434
ATH: Skattar ársins 1980, vegna tekna ársins 1979. Frá árslokum 1979 hafa launatekjur hækkað að
meðaltali um 60-70%.
sitt álit i ljós, en það var ekki þaö
sem úrslitum réð i þessu tilfelli,
heldur samviska min”, sagði
Hörður Vilhjálmsson.
//Ánægður með niðurstöð-
una"
„Ég er vitanlega ánægður meö
niðurstöðu útvarpsstjóra, ég get
ekki neitað þvi”, sagði Bolli
Héöinsson, nýráðinn afleysingar-
fréttamaður viö sjónvarpið, i
samtali við Timann i gær.
Bolli sagðist vera ánægður með
þá ákvörðun sem útvarpsráð
hefði nú tekiö, um að settar yrðu
ákveðnar viömiðunarreglur til að
meta hæfni umsækjenda i starf
frétta- og dagskrárgerðarmanna
við útvarp og sjónvarp. Taldi
hann rétt að áður en útvarpsráð
gæfi sina umsögn um umsækj-
endur yrði að liggja fyrir hverjir
væru hæfir. „Siðan myndi út-
varpsráði sem umsagnaraðila
gefinn kostur á að raða þessum
hæfu mönnum upp i forgangs-
röð. Með þessu móti er komið i
veg fyrir að útvarpsráð fari að
velja óhæft fólk til þessara starfa.
Þannig fyndist mér lang eðlileg-
ast að standa að þessu”, sagði
Bolli.
-En var þetta pólitiskt mál að
þinu mati i útvarpsráði, Bolli?
„Já, þaðsýnir sig aö Arnþrúður
fær atkvæði beggja flokksbræðra
sinna, sem skýtur náttúrlega
skökku við vegna þess aö nú er ég
framsóknarmaður lika”, sagöi
Bolli Héðinsson.
,/Harma að ekki skyldi
farið að vilja meirihluta
útvarpsráðs"
„Ég hlýt að harma að ekki
skyldi farið að vilja meirihluta
útvarpsráös”, sagði Hákon Sigur-
grimsson, útvarpsráðsmaður, i
samtali við Timann i gær, þegar
hann var spurður hvaða augum
hann liti ákvöröun útvarpsstjóra
um ráðningu Bolla Héðinssonar i
starf afleysingarfréttamanns við
sjónvarpið. „En niðurstaöan er
fengin og um þaö tjóar ekki aö
fást.”
„Mér er ljóst að útvarpsstjóri
átti úr vöndu að ráða, vegna
þrýstings frá mönnum sem alls
ekki eru umsagnaraöilar i þessu
máli. Ég efast ekki um að Bolli
Héöinsson mun standa sig vel i
starfinu og óska honum velfarn-
aðar.
Ég er hins vegar enn þá jafn
viss um aö Arnþrúöur Karlsdóttir
hefði reynst sjónvarpinu mjög
góður starfsmaður. Prófgráða er
að minu mati enginn algildur
mælikvarði á hæfni manna til aö
gegna störfum sem þessum. Þar
hlýtur almenn þekking og reynsla
að vega þungt.
Ég vek athygli á þvi að þegar
starfið var auglýst, voru ekki sett
skilyrði um tiltekin próf heldur
„góða almenna menntun”. Ef t.d.
stúdentspróf væri sett að skilyröi
i þessu sambandi væri verið að
útiloka stóran hluta blaöamanna-
stéttarinnar frá störfum við
Rikisútvarpiö, þ.á m. marga af
hæfustu blaðamönnum landsins”,
sagði Hákon Sigurgrimsson.
— Kás