Tíminn - 26.06.1981, Síða 8

Tíminn - 26.06.1981, Síða 8
8 Föstudagur 26. júnl 1981 Utgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sig- urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson. Elias Snæland Jóns- son. Jón Helgason. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. úlafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: lllugi Jökulsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir. Atli Magnússon. Bjarghildur Stefánsdóttir. Egill Helga- son, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Halldór Valdi- marsson, Jónas Guðmundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrímsson, Kristín Leifsdóttir, Ragnar Örn Pétursson (iþróttir). utlitsteíknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir. Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausasölu 4.00. Askriftargjald á mánuði: kr.80.00.—Prentun: Blaðaprenth.f. Risaveldin setjist að samningaborði ■ Timinn birti itarlegt viðtal við Ólaf Jóhannes- son utanrikisráðherra siðastl. laugardag. Fyrsta spurningin, sem blaðamaðurinn lagði fyrir ráðherrann var um horfur i alþjóðamálum. Svar hans var á þessa leið: „Það eru ákaflega margar blikur á lofti i al- þjóðamálum núna og siðustu mánuði hefur slök- unarstefnan verið á undanhaldi vegna þeirra. Ég hef áður lagt áherzlu á, að nauðsyniegt sé að koma henni á aftur, þar sem ég álit áframhald- andi vigbúnaðarkapphlaup ekki geta endað öðru- visi en með ósköpum. Það er þvi aðalverkefni þeirra, sem starfa að utanrikis- og alþjóðamál- um, að reyna að koma slökunarstefnu af stað aftur og þá koma á samningaviðræðum um tak- mörkun vigbúnaðar. Þegar við litum nálægt okkur, þá eru það auð- vitað viðræðurnar milli austurs og vesturs, sem blasa við. Það er mikilvægt að þessi tvö risaveldi, Bandarikin og Sovétrikin, setjist að samninga- borði að nýju. í sama dúr er svo eðlilega Madrid-ráðstefnan. Hún er framhald af Belgrad-ráðstefnunni og Helsinki-viðræðunum, þar sem samkomulag var gert um mannréttindi og önnur atriði, svo sem kunnugt er. Þvi miður hefur árangur orðið litill i Madrid þann tima, sem ráðstefnan hefur staðið. Nú sið- ustu dagana hafa hlutlaus riki, sem eru þátttak- endur á ráðstefnunni, komið fram með nýjar til- lögur þar. Það er málamiðlun, sem á að miða að þvi að jafna sjónarmiðin. Það er vonandi að það takist, þvi það væri mik- ill ósigur, ef Madrid-ráðstefnan reyndist gagns- laus. Ég held að það sé enda einlægur vilji þeirra, sem þarna deila, að ná árangri.” Vissulega væri það mikill ósigur, ef Madrid- ráðstefnan færi út um þúfur. Þvi verður að vona i lengstu lög að milliganga hlutlausu rikjanna beri árangur, m.a. á þann hátt að samkomulag verði um að kalla saman afvopnunarráðstefnu þeirra rikja, sem stóðu að Helsinki-sáttmálanum á sin- um tima. Horfur i alþjóðamálum hafa sjaldan verið ugg- vænlegri en nú eftir siðari heimsstyjöldina. Vopnuð átök geta hafizt viða um heim, þegar minnst varir, og risaveldin dregizt inn i þau. Alvarlegast af öllu er þó vigbúnaðarkapphlaup risaveldanna. Rússar auka stöðugt vigbúnað sinn og Bandarikjamenn búa sig undir að fara fram úr þeim. Hlutlausu rikin geta átt þátt i milligöngu, en það getur ekki siður átt við rikin, sem eru i varnarbandalögum með risaveldunum. A.m.k. rikin i Atlantshafsbandalaginu hafa rétt og að- stöðu til að láta rödd sina heyrast. Þau þurfa að minna á við öll tækifæri að markmið Atlantshafs- bandalagsins er ekki aðeins varnir, heldur engu siður spennuslökun. Þá rödd þurfa íslendingar, sem eru staðsettir á hervæddasta svæði heims, að láta heyra til sin, eins og utanrikisráðherrann lika gerir i áður- greindu viðtali. á véttvangi dagsins w ~ —■ „Að láta tilfinn ingarnar ekki hlaupa með sig í gönur”1 Eftir Theódór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi ■ I þessum fáu orðum felst óvenjumikil llfsspeki. Slik áminning ætti þvi vissulega skilið að standa griðarstórum stöfum, er sindraöi af í myrkri, viö inngang allra samkomu- staöa, hvort sem þeir eru innan veggja eða undir berum himni, og hvortsem þar á að dansa eða takast á um trúmál og pólitik. Sllkt heilræöi, sem blasti þar við augum samkomugesta, yröi án efa til þess, að einhverjir, bæði ungir og aldnir, mundu fremur hugleiða það, áður en þeir gæfu tilfinningunum alveg lausan tauminn. 1 þvi sambandi kemur mér þó fyrst i hug hinn siungi og ærslafulli Amor, sem hvislar I hvert eyra: „Hér á allt aö vera frjálst. Hér á allt aö vera frjálst, bæöi I orðum og athöfnum. Þaö er mitt fyrsta boðorð, sem flest- um er ljúft að fylgja”. A afvikn- um staö, ef aö er gáö, stendur þar lika oftast Bakkus gamli meö bros á vörum og blik i aug- um. Hann lyftir flösku i annarri hendi en réttir hina fram með glasi sem fyllt er geislandi vökva, sem unnendur hans hafa gefiö þaö virðulegasta heiti sem völ er á i Islensku máli, en það er nafnið guðaveig. Þessi spaklegu orð, sem ég valdi fyrir yfirskrift á þessum hugleiðingum, voru sögð af ein- um visindamanni okkar, lif- fræðingnum Karli Skirnissyni, þegar spjallað var við hann af útvarpsmönnum I morgunpóst- inum 16. mars s.l. um lifnaöar- hætti minksins og áhrif hans i isienskt lifriki. Hin siöustu ár hef ég reynt að leggja eyru við þegar Islenskir vlsindamenn hafa flutt erindi i útvarpiö mér til mikillar ánægju, enda orðið margs vísari um himinljósin, fuglana og ótal margt fleira, sem heillar og vekur ljúfar minningar við sólarlag. A hina hliö hefur það stundum hent aö ég hef hrist hausinn og undrast stórum yfir sumu er þeir hafa sagt. Og ástæðan er sú að eigin reynsla hefur þá rokið á fætur með handapati og orðiö svo háróma, að mér hefur hreint blöskrað og engin leið að lækka I henni rost- ann. Hún hefur þá venjulega þrástagast á þessum oröum: „Sjáðu, sjáöu bara. Þarna þeysa þær, systurnar, tilfinning, Imyndun og trú, á ofsahraöa og með þeim ærslum að róleg yfir- vegun og þaö sem við köllum raunsæi fá ekki við neitt ráöið þótt ég hrópi fullum hálsi: „Farið varlega! Farið varlega! Annars getið þiö hreint og beint hálsbrotið ykkur”. I fyrrnefndu spjalli segir lif- fræöingurinn frá rannsóknum sinum á fæðuvali minkanna við sjóinn á Suöurnesjum þar sem athugunarsvæöi hans var skammt vestan við Grindavik. Ekki þarf aö efa að þar er byggt á staðreyndum. A hina hliö má enginn ætla, að svipaöri fæöu hafi minkarnir völ á uppi á landi, langt frá sjó, og valda með þvi óbætanlegu tjóni, bæði á fuglum og silungi I ám og vötnum. Hver einstaklingur veröur ávallt aö haga sér eftir þvi umhverfi sem hann dvelst I og njóta þeirrar fæöu sem þar er fáanleg. Þeir sem best Jækkja lifnaðarhætti og fæðuöflun skúmsins á Suðurlandi þar sem sjórinn er honum hið ótæmandi foröabúr, eru að vonum undr- andi yfir þvi, hve grimmur og stórvirkur vikingur hann getur oröiö I anda- og æðarvörpum hér I Þingeyjarsýslum, þar sem hann á llka varpstöðvar. Nokkrir ágætir og framsýnir náttúrufræðingar, eins og t.d. Guömundur Báröarson, vöruöu alvarlega við þeim ásetningi að ætla að flytja minka til landsins. Það mundi hafa i för meö sér hinar alvarlegustu afleiöingar I það lifrlki, sem hér hafði sam- hæfst og þroskast I árþúsundir. Þvi miður varð róleg ihugun og rök þessara ágætu manna að láta i minni pokann fyrir fumi tilfinninga og gróðalöngun þeirra sem létu önnur sjónar- miö ráða geröum sinum og verða mun islensku llfriki óbætanlegt. Nú er þaö stað- reynd, að á tslandi er oröinn alls ráðandi sá ógnvaldur, sem aldrei verður yfirbugaöur og sennilegast er að sagan muni telja það alvarlegustu mistök sem hent hefur lslendinga gagnvart náttúru landsins þegar minkum var leyfð hér landganga. Hér á undan lét ég orö falla um sumt af þvi sem einn af okkar ágætu visindamönnum hefur sagt og er þá skemmst að minna á fyrrnefnt samtal sem hann endaði meö þvi ágæta heil- ræði sem er yfirskrift á þessum hugleiðingum. Þaö geri ég — fyrst og fremst — til þess að beina huga þeirra, er kunna aö lesa þessar linur að eigin reynslu og ihuga þá jafnframt hvort þeir hafi látið tilfinning- arnar leiöa sig I gönur þegar þeir hafa bölsótast yfir þeim verkum sem minkarnir hafa framiö og þeir hafa séð með eigin augum og þreifað á. Aður en ég vik að eigin reynslu sem öllum reynist þó ólýgnust, leyfi ég mér að vitna i nokkur ummæli fyrrnefnds lif- fræðings þvi sjónmyndum at þeim gefa menn nánari gætur og muna lengur en þaö sem eyrun greina. Hann upplýsti að á Suðvesturlandi, I nágrenni Grindavíkur, þar sem hann at- hugaði fæðuval minka væri marhnúturinn meginfæöa [ 1 > \ S Pmi ■ W * m f f 'Jj.fl W % fjr «Ll ¥ Þ.Þ. ■ Minkar og smáfiskar, sem þeir hafa dregið i búiö.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.