Tíminn - 26.06.1981, Qupperneq 11
Föstudagur 26. júní 1981
dagskrá hljóðvarps og sjónvarps
„VERIÐ AD SMAVENJA MANN AF
ÞVf AD SIUA VIÐ SJÓNVARP”
■ Lööur, tveggja systra saga: „Annaö hvort fellur fólk alveg fyrir honum og vill alls ekki missa af
nokkrum þætti, eöa þaö getur ekki horft á hann og leggur á flótta.”
Fúll veiðivörður
■ Mikið lifandis ósköp gat
þessi nýja breska sjónvarps-
mynd um — ár i ævi veiðivarðar
á ensku óðali — verið leiðinleg!
Ekkert gerðist — enginn sögu-
þráður, nema eltingaleikur
veiðivarðarins við smákrakka
sem höfðu stolist inn i skóginn.
Reyndar náði hann i alvöru
veiðiþjóf einu sinni, en gat ekki
sannað neitt á hann. Enda var
veiðivörðurinn sjálfur að farast
úr leiðindum og skapvonsku,
hvort heldur hann var i skógin-
um eða heima hjá sér.
Þeir sem ætluðu að slappa af
við sjónvarpið eftir vinnuvikuna
á föstudagskvöldi urðu sannar-
lega fyrir vonbrigðum. Kannski
er verið að smávenja mann af
þessum óvana að sitja við sjón-
varpið á kvöldin, svo okkur
verði ekki eins mikið um það
þegar lokunin skellur yfir.
Fræðslumyndin um gigtveiki,
sem var á föstudagskvöldið á
dagskrá á undan Veiðiverðinum
skapvonda, var fróðleg og vel
tekin. Aðdáun vakti dugnaður
veiku barnanna og þolinmæði
þeirra. Þá reynir ekki siður á
þolinmæði og úthald hjúkrunar-
fólksins og aðstandenda. Slik
fræðslumynd sem þessi vekur
bæði vörn og fullorðna til um-
hugsunar.
Bruggarastelpa platar
lögreglustjóra
Laugardagskvöldið 20. júni
var með besta móti i sjónvarp-
inu, alveg frá klukkan 17.00 og
tilmiðnættis. Löður var á sinum
stað i dagskránni. Það er dálitið
kostulegt með gamanmynda-
flokkinn „Löður”. Annaðhvort
fellur fólk alveg fyrir honum og
vill alls ekki missa af nokkrum
þætti, eða þaö getur helst ekki
horft á hann og leggur á flótta.
A eftir Löðri kom mynd um
kjötkveðjuhátiðir, siðan var
tónlistarþáttur með Alice Coop-
er og fleiri hljómsveitum og var
sá klukkutimi vinsæll hjá viss-
um aldursflokki, sem ekki fær of
mikið við sitt hæfi i sjónvarpinu.
1 dagskrárlok var nokkuð
spennandi mynd A hættubraut
(I Walk the Line), bandarisk frá
árinu 1970. Gregory Peck var i
aðalhlutverkinu, en heldur er
hann nú farinn að fella af sem
stórsjarmör. Hann lék þarna
lögreglustjóra i Suðurrikjunum,
sem bruggarastelpa teymir á
asnaeyrunum. Hún gerir hann
svo hugstola af ást til sin að
hann hættir öllu fyrir hana,
heimili sinu og æru, og hættir að
koma heim til þessarar
myndarlegu Konu sinnar, sem
sifellt biður eftir honum i bólinu,
en án árangurs, — hann aðeins
eltist við stelpuna enda fór illa
fyrir honum.
Danska sjónvarpsleikritið
Saxófónninn, sem sýnt var á
mánudagskvöld var hálfóraun-
verulegt. A.m.k. ungi maður-
inn, sem vissi varla hvort hann
var að koma eða fara til sins
eigin brúðkaups. Liklega hefur
ástkonan bara verið fegin að
losna við hann, þvi að minnsta
kosti pantaði hún bil til að koma
honum til brúðkaupsins — en lét
hann auðvitað borga bilinn!
Óvænt endalok sl. þriðjudag
var um lánleysingja, sem drap
„vitlausan mann”, — og þegar
hann loksins var kominn i hús
„Æðsta mannsins” til þess að
hafa gott af honum, og þá sat
þar syrgjandi ekkjan þvi
maðurinn hennar hafði verið
myrtur hið sama kvöld, (af
þessum sama lánleysingja sem
þarfnaðist hjálpar vegna
morðsins, — og þá er sagan
komin i hring.
Liklega hafa margir fengið
hroll i sig við að horfa á kana-
disku myndina um sársauka-
skyn. Ég gafst upp, þegar ég sá
meðferðina á tilraunadýrunum,
— en hresstist svo öll til að horfa
áDALLAS Þar var allt við það
sama, sami grautur i sömu
skál: Kvikindishátturinn i J.R.,
drykkjuskapurinn i Digger (föð-
ur Pamelu) o.s.frv.
Náttúra íslands
— i útvarpi
Siöastl. laugardag hófust
þættir i útvarpi, sem nefnast
Náttúra Islands. Þetta var 1.
þáttur af 10 um þetta efni. „Eld-
virkni i landinu” hét þátturinn á
laugardag og var þar talað við
Sigurð Þórarinsson. Það veröa
áreiðanlega margir sem fylgj-
ast með þessum þáttum, og
verða fróðari eftir.
Séðog lifað sem Sveinn Skorri
Höskuldsson hefur nú lesið i 40
kvöld, hlýtur að vera að taka
enda. Þetta er mikil frásögn
Indriða Einarssonar, sem
bregður ljósi yfir hans samtið
atburði og fólk.
A sunnudagsmorgna er gam-
an að heyra ferðasögur frá fjar-
lægum löndum i þættinum „Út
og suður” sem Friðrik Páll
Jónsson hefur séð um. Nú siðast
sagði Jón Armann Héðinsson
frá þvi, er hann og Valgarð J.
Ólafsson stöldruðu við i Súri-
nam. Frásögnin var hin fróöleg-
asta, en hefði mátt vera léttari.
Þægilegri morgnar
Ósköp þykir mér þægilegri
morgnarnir, þegar vaknað er
við létta músik, og smávegis
rabb i þul um tónlistina eða
veðrið, en að þurfa að meðtaka
einhvern fróðleik eða rökræður
— og jafnvel mataruppskriftir
— eldsnemma morguns, eins og
i blessuðum „Morgunpóstin-
um”, sem vissulega var þó góð-
ur þáttur fyrir þá sem voru til-
búnir svo snemma að meðtaka
hann.
Bjarghildur
Stefánsdóttir
bladamaður, skrifar um
dagskrá rlkisfjöl-
miðlanna íliðinni viku
Dagskrá sjónvarpsins dagana 27. til 30. júní
sjonvarp
Laugardagur
27. júni
17.00 íþróttir U msjónarm aður
Biarni Felixson.
19.00 Einu sinni var Tiundi
þáttur. Þýðandi Ólöf Pét-
ursdóttir. Lesarar Einar
Gunnar Einarsson og Guðni
Kolbeinsson.
19.30 H lé
1945 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Löður Gamanmynda-
flokkur. Þýöandi Ellert Sig-
urbjörnsson.
21.00 AHir leika þeir ragtime
Kanadiskur sjónvarpsþátt-
ur um sögu ragtime-tónlist-
ar frá þvi fyrir aldamót.
Meðal tónli starmanna i
myndinni eru Joe „Fing-
ers” Carr, Max Morath, Ian
Whitcomb, og Eubie Blake,
94ra ára, sem segir frá
kynnum sinum af Scott
Joplin. Þýðandi Bogi Amar
Finnbogason.
21.50 Mannraunir Mudds
læknis (The Ordeal of Dr.
Mudd) Ný, bandarisk sjón-
varpsmynd. Leikstjóri Paul
Wendkos. Aðalhlutverk
Dennis Weaver, Arthur Hill,
Susan Sullivan og Nigel
Davenport. Samuel Mudd
sveitalæknir er vakinn árla
morguns. Til hans eru
komnir tveir menn, og er
annar þeirra fótbrotinn.
Læknirinn býr um brotið og
býður mönnunum gistingu,
en þeir virðast á hraðferð.
Nokkru siðar kemur i ljós aö
hinn slasaöi er leikarinn
John Wilkes Booth, maöur-
inn sem skaut Abraham
Lincoln. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
00.05 Dagskrárlok
Sunnudagur
28. júni
18.00 Sunnudagshugvekja
18.10 Barbapabbi Tveir þætt-
ir, annar frumsýndur og
hinn endursýndur. Þýðandi
Ragna Ragnars. Sögumað-
ur Guðni Kolbeinsson.
18.20 Emil i Kattholti Fjórði
þáttur endursýndur. Þýö-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. Sögumaöur Ragnheiður
Steindórsdóttir.
18.45 Vatnagaman Fimmti og
sfðasti þáttur. Froskköfun
Þýðandi Björn Baldursson.
19.10 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 íslenskar jurtir Eyþór
Einarsson, grasafræðingur,
sýnir nokkrar islenskar
jurtir i Grasagarði Reykja-
vikur i Laugardal. Siðari
þáttur. Umsjónarmaður
Karl Keppesen.
20.50 Tónlistarmenn Jórunn
Viðar, tónskáld og pfanó-
leikariEgill Friðleifsson
kynnir Jórunni og ræðir við
hana, og flutt verður tónlist
eftir hana. Flytjendur:
Garöar Cortes, Gisli
Magnússon, Gunnar Kvar-
an, Laufey Sigurðardóttir,
Þuriður Pálsdóttir og höf-
undur. Sýnt verður atriði úr
kvikmynd Óskars Gislason-
ar, „Siðasti bærinn i daln-
um”, en tónlist i myndinni
er eftir Jórunni Viöar.
Stjórn upptöku Viðar Vik-
ingsson.
21.40 A bláþræði Norskur
myndaflokkur. Fjórði og
siðasti þáttur. Efni þriðja
þáttar: Rakel er ófrisk, en
ekkert spyrst til Edvins.
HUn lætur eyða fóstrinu.
Fóstureyðingin hefur djúp
áhrif á hana og hún fær
áhuga á trUmálum. Móðir
Körnu fær peningasendingu
frá Bandarikjunum ásamt
tilkynningu um að bróðir
hennar þar sé látinn. HUn
vill að Karna fari vestur um
haf til að vera við Utförina.
Karna er treg til þess, en
lætur loks undan fortölum
móður sinnar. Þýðandi Jón
Gunnarsson. (Nordvision —
Norska 'sjónvarpið)
22.50 Dagskrárlok
Mánudagur
29. júni
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Muminálfarnir Attundi
þáttur endursýndur. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir.
20.45 IþróttirUmsjónarmaður
Sverrir Friðþjófsson.
21.20 Svefnherbergisgaman
Leikrit eftir Alan Ayck-
bourn. Aðalhlutverk Joan
Hickson, Polly Adams, Der-
ek Newark og Stephen
Moore. Eins og nafn leik-
ritsins gefur til kynna, er
þetta gamanleikur og fjall-
ar um sambUð hjóna. Þýö-
andi Guðni Kolbeinsson.
23.00 Dagskrárlok
Þriðjudagur
30. júni
1945 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Storm P Sænsk heim-
ildamynd um Storm P, en
fáir listamenn hafa tUlkaö
danska kimni betur en
hann. Þýöandi Jón O. Ed-
wald (Nordvision — Sænska
sjónvarpið)
21.00 Lengir hláturinn lifið?
Þáttur í umsjá Ólafs Ragn-
arssonar. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
22.00 Eigi má við öllu sjá
(Don’t Look now) Bresk
bíómynd frá árinu 1973,
byggð á sögu eftir Daphne
du Maurier. Leikstjóri
Nicholas Roeg. Aðalhlut-
verk Donald Sutherland og
Julie Christie. Litil stúlka
drukknar á Englandi. For-
eldrar hennar, John og
Laura,eru miöur sin af sorg
og fara til Feneyja, þar sem
John starfar að þvi að gera
við kirkju. Myndin er ekki
við hæfi barna. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
23.45 Dagskrárlok