Tíminn - 26.07.1981, Page 6
fVi ■ i:i• .f’i’ í:i*iL,h‘ir*iUu'3
Sunnudagur 26. júli 1981
Norðurlandamótíð í skák:
Geysihörð keppni framundan
■ Noröurlandamótiö I skák er nú
hafið og er það fjöimennasta
skákmót sem haldiö hefur veriö
hér á landi — keppendur aiis um
200 I mörgum flokkum. Svo sem
vænta má er þaö aðallcga úrvals-
flokkurinn sem vekur athygli,
enda eigast þar viö flestir af
sterkustu skákmönnum Norður-
landanna. Verður hér á eftir ör-
stutt kynning á skákmeisturunum
sem tefla i úrvalsflokknum og
hvetjum viö alla sem vettlingi
geta valdiö til að leggja leiö sina í
Hamrahliöarskólann og fyigjast
þar meö meisturunum tefla.
Tvennt vekur mesta athygli
þegar farið er yfir þátttakenda-
listann. Hiö fyrra er að flestir
skákmennirnir eru mjög ungir aö
árum og allir vel innan viö miöjan
aldur. Sýnir þetta glöggt i hversu
mikilli framför skáklistin yfirleitt
er á Norðurlöndunum, það eru
ungir menn sem fara fremstir i
flokki. Hitt sem vekur athygli er
hversu jafnir þátttakendurnir
virðast vera. Ef Jens Hansen frá
Færeyjum er undanskilinn mun-
ar aöeins lOOstigum á stigahæsta
og stigalægsta keppandanum og
flestir eru i hnapp kringum Elo-
stigatöluna 2450 eða svo. Er held-
ur engin leið að spá fyrir um hver
muni sigra á mótinu, allir virðast
ciga góða möguleika á að berjast
um sigurinn. Fer hér á eftir listi
yfir skákmennina; og Elo-stiga-
tala þeirra.
Harry Schussler, Sviþjóð, 2495
Axel Ornstein, Sviþjóð, 2480
Yrjö Rantanen, Finnlandi, 2465
Margeir Pétursson, fslandi, 2460
Guðm. Sigurjónsson, islandi, 2440
Sverre Heim, Noregi, 2430
Jens Kristiansen, Danmörku,
2415
Helgi Ólafsson, íslandi, 2425
Knut Jöran Helmers, Noregi, 2420
Carsten Höi, Danmörku, 2415
Eero Itaaste, Finnlandi, 2390
Jens Hansen, Færeyjum, 2150
Svo sem sjá má eru Sviarnir
sterkastir á pappirnum en þeim
verður vist áreiðanlega veitt hörð
keppni. Guðmundur og Rantanen
eru stórmeistarar, allir hinir að
Hansen og Raaste undanteknum,
eru alþjóðlegir meistarar.
■ Guðmundur
Guðmundur
Sigurjónsson
■ Guðmundur Sigurjónsson er
annar stórmeistarinn sem teflir á
þessu móti, hinn er Rantanen, og
þó svo að hann hafi verið i nokkr-
um öldudal undanfarin ár ætti hin
mikla keppnisreynsla hans altént
að koma honum að gagni. Svo er
það lika opinbert leyndarmál að
Guðmundur getur miklu meira en
hann hefur sýnt upp á siökastið en
hann var á sinum tima meðal
efnilegustu skákmanna i veröld-
inni, hvorki meira né minna.
Hvað veldur þvi að hann hefur
enn ekki staðið við þær vonir sem
hann vakti þá vitum við ekki en
hins vegar þykjumst við vissir
um að Eyjólfur fari brátt að
hressast. Þær miklu kröfur sem
gerðar voru til Guðmundar — að
hann fetaði skilyrðislaust i fót-
spor Friðriks Ólafssonar — hafa
vafalitið verið honum fjötur um
fót alltof lengi. Áfram Guðmund-
ur!
■ Hanscn
Jens Hansen
■ Færeyjar hafa hingað til ekki
verið meðal hinna þekktari þjóða
i skákheiminum enda mannfjöld-
inn með minnsta móti og þvi
varla von að þeir Færeyingar geti
státað af mjög sterkum skák-
köppum. Aftur á móti stendur
skáklistin á nokkuð föstum merg
á eyjunum og Færeyingar hafa
reglulega tekiö þátt i ólympiu-
mótum og öðrum alþjóölegum
skákviöburðum. Þeir senda nú
hingaö einn af sinum sterkustu
mönnum, Jens Ifansen en hann
verður vart til stórræðanna á
mótinu enda er hann langstiga-
lægstur. Hitter vist að þaö er ætið
þroskandi fyrir skákmenn að
tefla við sér sterkari menn og ef
til vill verður þátttaka Hansens á
Norðurlandamótinu til að stæla
hann og styrkja, og þar með
skáklif i Færeyjum. Er þá ekki til
einskis teflt.
■ Heim
Sverre Heim
I Sverre Heim er ekki mjög
þekktur hér á Islandi, ekki að
minnsta kosti á við kollega sinn
Leif ögaard sem teflt hefur tvisv-
ar sinnum hér á Reykjavikur-
skákmótum. Skáklif i Noregi hef-
ur sjaldan þótt með miklum
blóma en Norðmenn hafa þó
ávallt átt nokkra allsterka skák-
menn og nú er Sverre Heim með-
al hinna sterkustu þeirra. Siðustu
ár hafa Norðmenn tekið mjög við
sér, þeir hafa haldið mikinn
fjölda af skákmótum og fjöldi al-
þjóðlegra meistara fer vaxandi
og ekki er vafi á að Heim nýtur
góðs af þvi. Ekki treystum við
okkur til aö spá nokkru um ár-
angur hans hér en hann er sjötti
hæstur að Elo-stigum og ætti
varla að láta hlut sinn.
■ Helgi
Helgi Olafsson
■ Helgi Ólafsson byrjaöi mótið
vel og ef hann heldur svona áfram
er ekki vafi á að hann verður
meðal efstu manna og á jafnvel
góöa möguleika á sigri. Helgi er
ekki sérlega stigahár um þessar
mundir enda er hann ákaflega
mistækur skákmaður: stundum
gengur allt upp hjá honum og
hann hristir hverja persluna af
annarri fram úr erminni en siðan
getur hann litiö á næsta móti og
verður meðal hinna neðstu. Ef
Helga auðnast að stabilisera
sjálfan sig dálitið á hann glæsta
braut framundan — það sýna
bestu skákir hans en þar hefur
hann unnið marga mjög sterka
stórmeistara á fallegan máta,
Timman tvisvar. Látum okkur
vona að hann verði i banastuði á
Norðurlandamótinu, sýni loks
fyrir alvöru hvað i honum býr. Þá
stendur fátt i vegi fyrir honum...
■ Helmers
Knut Jöran
Helmers
Knut Jöran Helmers er bráö-
ungur maður, rétt rúmlega tvi-
tugur, en þegar kominn i fremstu
röð i heimalandi sinu. Hann hefur
oftsinnis náð ágætum árangri en
sjaldan skarað verulega framm-
úr enda gefur skákstill hans varla
tilefni til þess, enn sem komið er.
Hins vegar eru flestir sammála
um að i Helmers búi miklir hæfi-
leikar og hann gæti þvi hæglega
komist á toppinn á þessu móti nú.
Islenskir skákáhugamenn muna
eftir Helmers frá þvi hann tók
þátt i Reykjavikurmótinu árið
1980 en sú þátttaka var heldur
endaslepp. Helmers gekk ekki
heill til skógar, hann tapaði flest-
um skákum sinum i upphafi
mótsins og er veikindi hans á-
gerðust neyddist hann til að
hætta taflmennsku og fara heim.
Er vonandi að hann sé nú við
hestaheilsu og i banastuði.
Kristiansen
og Höi
Bent Larsen hefur borið höfuð
og herðar yfir aðra skákmenn i
Danmörku i bráðum þrjá áratugi
og allan þann tima hefur hann
ekki átt sér neina keppinauta i
heimalandi sinu. Danir hafa
raunar mestallan þennan tima
verið menn litilla sanda litilla
sæva i skákmálum — ef Larsen er
undanskilinn, auðvitað — en nú
hin siðustu ár hefur orðið þar
nokkur breyting á. Það er að visu
langt i frá að Danir hafi enn eign-
ast nokkurn skákmeistara sem
gæti ógnað Larsen en ungu menn-
irnir hafa margoft sýnt það svo
ekki verður um villst að þeir eru
til ýmislegs liklegir i framtiðinni.
Svend Hamann, sem hefur verið
þeirra lengst á ferðinni, er stiga-
hæstur þeirra með 2445 stig en
þeir tveir keppendur sem taka nú
þátt i Noröurlandaskákþinginu,
Jens Kristiansen og Carstein Höi,
koma á hæla honum. Báðir eru
þeir alþjóðlegir meistarar. Ef viö
munum rétt hafa bæði Kristian-
sen og Höi unnið allsterk skákmót
á siðustu mánuðum og árum
þannig að þá má alls ekki van-
metaenda þótt þeir séu ekki með-
al stigahæstu manna á mótinu.
Það má alla vega fullyrða að vilj-
ann mun sist skorta.
■ Kristiansen
■ Margeir
Margeir
Pétursson
■ Margeir Pétursson er nú
stigahæstur islenskra skákmanna
á eftir Friðrik Ólafssyni, með 2460
stig og fjórði hæstur keppenda á
Noröurlandamótinu. Margeir er
aðeins 21 árs að aldri svo hann er
ákaflega efnilegur og ekki er
nokkur vafi á þvi að hann á eftir
að láta mjög að sér kveða á þessu
móti.
Margeir hefur traustan og ör-
uggan stil og hefur margoft sýnt
það að hann getur unnið næstum
hvern sem er á góðum degi og auk
þess er hann illsigranlegur, þó
hannhafi tapað fyrir Helga Ólafs-
syni i fyrstu umferð en Helgi
beitti Suetin-bragði sem Margeir
þekkti ekki. Það veldur okkur
nokkrum áhyggjum að hingað til
hefur Margeiri sjaldan tekist að
vinna mót þótt hann standi sig
jafnan með mikilli prýði. Viljum
við hvetja Margeir til að vinna
bráðan bug á þessu!
Hann er sem kunnugt er ný-
kominn frá keppnisferðalagi um
Danmörku og Þýskaland, tefldi
þar á tveimur opnum mótum og
var i bæði skiptin meðal efstu
manna. Hann er þvi til alls likleg-
ur á heimavelli.
■ Ornstein
Axel Ornstein
M Axel Ornstein hefur i bráðum
tiuárverið meðal sterkustu skák-
manna Svia en ferill hans hefur
verið dálitið upp og niður. Hann
kom fram um svipað leyti og Ulf
Andersson, er fæddur 1952, og i
mörg ár var hann sterkasti skák-
maður Svíþjóðar.
Hann tefldi mjög mikið og náði
oft á tfðum prýðilegum árangri og
að minnsta kosti einu sinni náði
hann áfanga að stórmeistaratitli.
Siðan dalaði hann nokkuð, um
svipað leyti og yngstu skákmenn-
irnir i landinu voru i stórstigri
framför, svo Ornstein var að
mestu afskrifaður þó áfram væri
hann sterkur skákmaður. Nú upp
á siðkastið hefur Ornstein aftur
skotið upp kollinum og sýnt og
sannað að hann er meðal allra
sterkustu skákmeistara á Norð-
urlöndunum. Hann er nú þriðji
hæsti skákmaður Svia og til alls
liklegur á Norðurlandamótinu.
Yrjö Rantanen
■ •Yrjö Rantanen er nýbakaður
stórmeistari og er hann annar
stórmeistari Finna, hinn er
Heikki Westerinen. Rantanen
hefur oft vakið á sér mikla athygli
þó ekki sé hann aldinn að árum og
til að mynda hefur Bent Larsen
mikið álit á honum.
Það er varla skrýtið i
ljósi þess að Rantanen hefur mjög
hvassan skákstil, „blóðugan” að
mati Larsens. Á ólympiumótinu i
Buenos Aires stóð Rantanen sig
mjög vel en hann tefldi þá á öðru
borði fyrir land sitt. Þá hefur
hann teflt nokkuð i Sovetrikjun-
um og oft staðið sig vel. Hins veg-
ar er hann brokkgengur með af-
brigöum — alveg eins og Larsen
— og nær stundum lélegum ár-
angri. Ef honum tekst vel upp hér
getur hann unnið mótið léttflega
en hann getur lika orðið neðar-
lega. Hann er þriðji hæstur að
stigum.