Tíminn - 26.07.1981, Síða 10

Tíminn - 26.07.1981, Síða 10
I í 10 ■ llalldór Laxness, óbirtar rit- eeröir ■ Sigurður A. Magniísson, önnur Kalstjarna ■ Tómas Guöm undsson, verk I 10 bindum ■ Jökull Jakobsson, óbirt skáld- saga ■ Jakoblna Siguröardóttir, ný skáldsaga Almenna bókafélagið: Tómas í tíu bindum og Ólafur Thors ■ Almenna bókafélagið ræðst i mikið stórvirki i ár þar sem er heildarútgáfa á verkum Tómasar Guðmundssonar i tiu bindum. Ljóð hans eru i fyrstu þremur bindunum en óbundið mál i hinum sjö og kemur ef til vill ýmsum á óvart að svo mikið skuli liggja eftir Tómas i óbundnu máli. í fjórða bindinu verða, að sögn Eiriks Hreins Finnbogasonar hjá Almenna bókafélaginu, þættimir „Léttara hjal”, sem Tómas ritaði i timaritið Helgafell hér á árum áður og auk þess nokkrar fleiri greinar. Þættimir „Léttara hjal” voru mjög rómaðirá sinum tima en i þeim fjallaði Tómas i léttum dUr um hvaðeina sem á döfinni var og sagði Eirikur Hreinn að þessir þættir mættu gjarnan vera skyldulesning fyrir islenska blaðamenn, svo góð og vönduð blaðamennska væru þeir. 1 fimmta bindinu eru ævir tveggja málara. Annar er As- grímur Jónsson en ævisaga Tóm- asar um hann kom á sinum tima útá bók. Hinn er sá frægi franski málari Paul Gauguin. Tómas ritaði æviþátt um hann og birti framan við bókina Noa-Noa sem hann þýddi. 1 sjötta bindinu eru þættir um skáld, rithöfunda og sitthvað fleira en þeir komu út á bók árið 1976 og hét hún Að haustnóttum. Nokkrum greinum eða þáttum er aukinheldur bætt inn á milli þeirra sem komu í bókinni. 1 þeimfjórum bindum sem eftir eru, sjöunda til tiunda bindi, eru æviþættir og aldarfarslýsingar - sem Tóinas skrifaði i ritsafnið Is- lenskir örlagaþættir, sem þeir sáu um, Tómas og Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur, og komu Ut i' tiu bindum fyrir mörgum árum. Eru þættir þessir um hin margvislegustu efni. Eirikur tók fram að i fyrsta bindi ritsafnsins, framan við ljóð- in, væri birt löng og ýtarleg rit- gerð sem Kristján Karlsson hefur skrifað um ljóðagerð Tómasar Guðmundssonar. Þá þarf vart að taka það fram að til Utgáfunnar verður vandað eins og kostur er. Koma öll ti'u bindin Ut i einu nú i haust. Auk þessa mikla ritsafns gefur Almenna bókafélagið meðal annars út bók um Ólaf Thors, Ævi og störf, í tveimur bindum. Það er Matthi'as Johannessen, skáld og rilstjóri, sem skrifar bökina en hann hefur unnið að henni ákaf- lega lengi og hefur hennar verið beðið með nokkurri óþreyju. Þá kemur út bókin Skrifað i skýin, flugsaga eftir Jóhannes Snorrason, margreyndan flug- kappa, og er það fyrra bindi. I bókinni segir Jóhannes töluvert frá bernsku sinni en eftir að hann lærði að fljúga er bókin eingöngu helguð flugsögu hans og getur þvi ekki talist ævisaga i eiginlegum skilningi. Ekki vildi Eirikur Hreinn gefa upp fleiri Utgáfubækur Almenna bókafélagsins að svo stöddu, enda væri ýmislegt óráðið i þvi sam- bandi ennþá. Hann sagöi þó að búast mætti við nokkrum ljóða- bókum og skáldsögum en varðist allra frétta um höfunda þeirra. Aðspurður sagði hann að annað bindi af verki Þórs Whitehead, sagnfræðings, Island i siðari heimsstyrjöld, kæmiekki Ut nU i ár þar eð það væri enn ekki til- búið. Loks kvað hann engar likur á að út kæmu þýddar bækur hjá Al- menna bókafélaginu að þessu sinni, enda einbeitti félagið sér að þvi að gefa þýddar bækur út i Bókaklúbbi AB sem gefur út bækur allt árið en aðeins fyrir félagsmenn. Skuggsjá: Skáldsaga Jökuls Jakobssonar SU bók Skuggsjár og BókabUðar ólíyers Steins i Hafnarfirði sem á sennilega eftir að vekja hvaö mesta athygli heit- ir Skilaboð til Söndru en hUn er eftir Jökul heitinn Jakobsson og er siðasta skáldsagan sem hann skrifaði. Lauk hann við hana aðeins nokkrum mánuðum áður en hann lést árið 1978. Segir bókin frá rithöfundi sem dregur sig Ut úr samfélaginu til að skrifa kvikmyndahandrit um Snorra Sturluson en gengur illa að finna frið. StUlkan Sandra kemur til sögunnar og raskar rækilega heimsmynd og lifsskoðurrjm rit- höfundarins. Bókin mun vera mjög létt, skemmtileg og fyndin, eins og Jökli var lagið. önnur skáldsaga i ekki óáþekk- um dUr sem Óliver Steinn gefur Ut að þessu sinni er Sólin og skugginn eftir Friðu A. Sigurðar- dóttur, en hUn vakti töluverða at- hygli fyrir smásagnasafn sem hUn gaf Ut i fyrra^ Bókin er sjUkrahUssaga, segir frá reynslu konu f veikindum hennar, en á mjög-skemmtilegan hátt, að þvi er óli'ver Steinn tjáði okkur. Blöndal-ættin heitir bók sem kemur Ut hjá Skuggsjá að þessu sinni, en hUn er eins og nafnið bendirtilættarsaga Blöndalanna, frá og með Birni Blöndal sýslu- manni, „yfirvaldinu”. Það var Lárus Blöndal Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, sem tók bókina saman en hann er nU lát inn. Þá kemur út Æviskrá samtiðarm anna i tvemur bindum, en það er nokkurs konar „Who’s who” yfir islenska samtiðarmenn. Torfi Jónsson, lögreglufulltrúi ritstýrði verkinu, en í þvi er getið á milli fimm og sex þúsund tslendinga sem á ein- hvern hátt hafa vakið athygli eða skarað fram úr. Þá heldur forlagiðáfram að gefa út verk Einars Benediktssonar og koma nú ritgerðir hans. Kristján Karlsson sá um útgáfuna. Áður hefur Skuggsjá gefið út ljóð Einars I fjórum bindum og i fyrra komu Ut smásögur hans. Skuggsjá gefur nU Ut verk tveggja valinkunnra presta þar sem eru þeir Jón Auðuns, sem er nýlátinn, en eftir hann er gefið Ut safn sunnudagspistla þeirra sem hann ritaði lengi i Morgunblaðið, og séra Jakob Jónsson, dr.theol, en þar er um að ræða minningar hans sem bera nafnið Frá sólar- upprás til sólarlags. Stiklar séra Jakob þar á helstu atburðum lífs sins og skýrir lifsviðhorf sitt. Frá ystu nesjum heita sagnþættir sem Gils Guðmundsson hefur safnað og koma Ut nú fyrir jólin en þar er reyndar um endurprentun að ræða. Þá kemu út annað bindi af endurminningum kvenna sem látið hafa að sér kveða i þjóðlífinu og er það Gfsli Knsljánsson sem hefur safnað þvi saman. 1 fyrra kom út f rá honum bókin 18 konur. Enn má nefna að Ævar Kvaran hefur safnað og skrifað bók sem hann nefnir Undur ófreskra og eru það ýmis furðufyrirbæri sem komið hafa fyrir hina svokölluðu „sjáendur”. Er um að ræða eriendar frásagniren Ævar mun jafnframt vera að safna i svipaða bók islenska. Ólafur Kvaran, Hafsteinn Guðmundsson og Óliver Steinn hafa unnið saman að listaverka- bók sem kemur Ut hjá Skuggsjá nú og er helguð Einari Jónssyni myndhöggvara. Veröur bókinhin myndarlegasta að allri gerð og fjölmargar stórar myndir af verkum Einars. Loks nefndi Óliver Steinn aö hann myndi halda áfram að gefa út rit Hendriks Ottóssonar, en þegar eru komin Ut tvö bindi af verkum hans. Að þessu sinni verða gefnar Ut hinar svonefndu Gvendar Jónsbækur en það eru prakkarasögur Ur Vesturbænum, sem flestir sem komnir eru á fullorðnisárkannast mætavel við. Fjölvi: Byggingar lista - saga heimsins Þorsteinn Thorarensen, höfuð FjölvaUtgáfunnar, sagöi að hUn gæfi Ut bækur eftir hendinni, tæki ekki mikinn þátt i kapphlaupinu á jólamarkaðnum, heldur reyndi að dreifa Utgáfudögum á allt árið. Þorsteinn nefndi til bækur sem Fjölvi gefur Ut nU i haust og likast til allt fram yfir áramót. Útgáfa sumra bóka væri enn allsendis óljós, enda þessi árstimi viðkvæmt stig i Utgáfumálum. þegar skýrist hvaö skilar sér i gegn og hvað ekki. Sunnudagur 26. júli 1981 VETRAR- BÆKUR — bókaútgefendur spurðir frétta Fyrsta og veigamesta nefndi hann stóra byggingarlistasögu, sem hann vonaðist til að kæmi út á næstunni. Þetta verður stóreflis bók, 250—300 siður i stóru broti með uin 1000 myndum, sumum i lit. HUn er gefin út i samráði við Mitchell og Beazley i Bretlandi. Bókin spannar byggingarsöguna frá upphafi og fram á okkar daga, tima fúnkistils og alþjóðastils. Þorsteinn sagði að slik bók hefði ekki áður verið gefin Ut hér á landi, en það er Þorsteinn sem þýðirbókina og „færir hana yfirá áhugasvið tslendinga”, eins og hann segir sjálfur frá. Þetta er fasti punkturinn i útgáfustarfi Fjiiva þessa dagana. 7da bindi veraldarsögu Fjölva er á leiðinni og fjallar einkum um tvö keisaradæmi — Han-keisara- dæmið i' Kina og rómverska keisaradæmið á hinum enda hins byggða heims. Þorsteinn sagði að saga þessi byggði mikið á nýleg- um hugmyndum um samgang milli austurs og vesturs og sigl- ingar Rómverja frá Rauðahafi til Indlands. Þar kvað vera leittget- um að því að óhagstæður vöru- skiptajöfnuður Rómverja við Ind- land og gullstreymi þangað i skiptum fyrir framandlegar vör- ur hafi átt þátt i að grafa undan Róm varveldi. t flokki Fuglabókar Fjölva, blómabókar og mannþróunar- bókar er væntanleg Fiskabók Fjölva. Það er að mestu leyti búið að ganga frá handritinu að henni. Hún er gefin út i samvinnu við Artia í Tékkóslóvakiu og er eins og við má búast mikil að vöxtum — alls 500 siður meö um 1000 lit- myndum. Ritstjórar Fiskabókar- innar eru Þorsteinn Thorarensen og Gunnar Jónsson fiskifræðing- ur. Þorsteinn sagöi að Lennon- bókin „Lifað með Lennon” eftir Cynthiu fyrrum eiginkonu hans væri nú uppseld hjá forlaginu. Fyrirhugað er að endurprenta hana og halda siðan strikinu við útgáfu bóka um John Lennon. Það verður bók sem á islensku nefnist „Samlokurnar”, sem fjallar eins og nafnið gefur til kynna um árin með Yoko. Höfundur hennar er Ray Connolly, en þýðandinn er likt og i Cynthiu-bókinni Steinunn Þorvaldsdóttir. Fjölvi hyggst rækja heims- málin með útgáfu tveggja bóka um málefni sem eru ofarlega á baugi. önnur er um Afganistan — það er frásaga Indverja sem þar fór um. H in er viðtalsbók við Lech Walesa. Þýsk blaðakona, Jula Gatter, átti þvi láni að fagna að verða innlyksa i skipa- smiðastöðinni i Gdansk meðan verkföllin þar stóðu sem hæst. Þar kynntist hún Walesa og reiðir þessa viötalsbók uppúr samtölum þeirra. Þá hefur Þorsteinn sjálfur tekið saman bók um árabátaútgerð á tslandi frá 1890 til 1910. Hann sagði að þetta væru eins konar svipmyndir frá árabátaútgerð yf- ir gervallt landið. Að teikn im yndasögum meðtöldum, Lukku-Láka og fleiri kræsingum fyrir augað, verður Fjölvi alls með um 40 titla á markaðnum i ár, segir Þorsteinn Thorarensen. Örn og Örlygur: Flugleiðir og Stóra bomban Steinar J. Lúðviksson hjá bókaútgafunni Erni og örlygi tók fram að hann treysti sér ekki til að nefna nema fáar einar af bók- um útgáfunnarað þessu sinni þar eð margar þeirra væru á frum- stigi i vinnslu og ómögulegt að segja um hvernig sú vinnsla eenai. Hann gat þó nefnt nokkrar sem komnar eru á góðan rekspöl. Fyrst skal telja nýtt bindi af Landinu þi'nu eftir Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum og Þorstein Jósepsson en það er annað bindi af endurútgáfu þeirri sem örn og örlygur hófu á siðastliðnu ári. Helgi Magnússon, cand. mag., hefur yfirfarið bækurnar og séð um útgáfuna að flestu leyti. Þá kemur út bók eftir Jón heit- inn Helgason, fyrrum ritstjóra Timans sem lést fyrirstuttusiðan. Heitir hún Stóra bomban og fjall- ar um uppistandið sern varð þeg- ar Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, lýsti þvi yfir að Jónas Jónsson frá Hriflu, sem þá var dómsmálaráðherra, væri geð- sjúkur og ekki ábyrgur gerða sinna, aðdraganda þessa máls og eftirköstum. Bók þessari lauk Jón siðari hluta ársins i fyrra en þá var hún of sein i vinnslu og þvi var ákveðið að biða með hana i eitt ár. Steinar vildi kalla hana blaðamennskusagnfræði og sagði að hún yrði í svipuðum dúr og tvær sllkar bækur sem örn og ör- lygurhafaáður gefið út, um átök- in sem urðu er Island gekk i At- lantshafsbandalagið og um Guttóslaginn fræga. Víkingarnir heitir bók eftir Magnús Magnússon, sjónvarps- mann i' Skotiandi, en hana skrif- aði hann á ensku i tengslum við mjög fræga sjónvarpsþætti sem hann gerði r.ýlega um vikinga og sögu þeirra og vöktu griðarlega at hygli á Rretlandi og ekki siður á Norðurlöndunum. Hefur bókin verið gefin út á öllum Norður- löndunum, auk Bretlands. Bókin verður prýdd f jölda mynda og er hún önnur bók Magnúsar sem örn og örlygur gefa út,en hin fyrri var Hamar Þórs sem kom út fyrir nokkrum árum. Sú bók Amar og örlygs sem lik- lega á eftir að vekja hvað mesta athygli er bók sem Guðni Þórðar- son, fyrrverandi forstjóri ferða- skrifstofunnar Sunnu, hefur tekið að sér að skrifa um Flugleiðir h.f. Rakinn er aðdragandi sameining- ar flugfélaganna Flugfélags ts- lands og Loftleiða og saga Flug- leiða eftirþað. Meginhluti bókar- innar verður, að sögn Steinars, helgaður þeim erfiðleikum sem Flugleiðir eiga nU i og baktjalda- makki því sem sögur hafa mjög gengið um að ætti sér þar stað. Kvað Steinar tvimælalaust að margt I þessari bók ætti eftir að koma mjög á óvart og sagði hann aðUtgáfan vænti sér góðs af þess- ari bók. Hvort tveggja kæmi þar til að Guðni væri vel heima i þvi sem hann væri að skrifa um og hitt að hann væri ágætur penni. Nafn þessarar bókar er enn ekki ákveðið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.