Tíminn - 26.07.1981, Qupperneq 27

Tíminn - 26.07.1981, Qupperneq 27
■ „Það verður klukkan tvö i dag. Hittumst i „Gafl- inum” i Hafnarfirði.” Það er Björgvin Halldórsson sem talar og er með þessu að boða undirritaðan til að vera til upptöku á auglýsingarkvikmynd, sem Brimkló er að gera i tilefni af nýútkominni plötu sinni „Glimt við þjóðveginn”. Ekki þaðað ykkar einlægur ætti að leika i nefndri kvikmynd, nei, ég held nú siður, heldur var þess óskað að ég hefði með mér sjön- varpsstjörnuna sjálfa, svartan Lincoln, tólf cylendra, módel 1947, sem undirritaður hefur um- ráð yfir (stundum). begar ég renni i hlaðið á Lin- colninum og er rétt nýstiginn út úr bilnum kemur askvaðandi út úr rykmekkinum svartur Chevro- let (ca. 1962) og þeysist framhjá mér á fleygiferð og er rétt búinn að merja á mér tærnar. Ég stend grafkyrr á meðan hjartað i mér er að fikra sig upp eftir lærleggn- um á mér á sinn rétta stað og geng siðan inn i „Gafl-inn”. Þar situr hljómsveitin og er rétt i þessu að hneykslast á aksturs- máta þessa unglings sem keyrði bilinn. „Sástu glannann á „íett- anum”?” Ég játti þvi. „Þessir unglingar nú til dags. Eilift vandamál. Jafnvel okkar eigin börn eru orðin að unglinga- vandamáli.” Já, flestir af meðlimum Brim- klóar eru búnir að vera i tónlist- arbransanum og eru orðnir virðu- legir feður. En af Brimklóar- mönnum eru mættir á staðinn: Björgvin Halldórsson, sem sér um gitar og söng, Arnar Sigurbjörnsson, gitar og söngur, Magnús Kjartansson, hljóm- borð, söng og ég veit ekki hvað, Kristinn Svavarsson, saxafón, söngur og appelsinur (ha?), Haraldur Þorsteinsson, bassi, og Ragnar Sigurjónsson, yfirleitt trommur og söngur þegar vel liggur á honum. A staðnum eru einnig Snorri og Simmi, sem ætlá að munda myndavélarnar. Þegar allir eru búnir með kaffið eða pilsnerinn er haldið af stað. „Upp i sveit” Fyrst er haldið upp i sveit að taka upp atriði þar sem hljóm- sveitin leikur hluta úr fyrsta lagi plötunnar „Upp i sveit”. Eftir að hafa klöngrast yfir móa og upp i hllð með græjur og myndavélar er hafist handa við að taka. Simmi og Snorri mæla og stilla i grið og erg á meðan hljómsveit- armeölimir gera að gamni sinu með það hve mikið er lagt á sig fyrir frægð og frama. Loks var allt tilbúið i töku. Búið að stilla hljómsveitinni upp, ryðja ýmiss- konar vafningsjurtum og fjar- lægja stærðar fiugur, svokallaðar „helikoptera”, burt. „Strákar, standið alveg graf- kyrrir. Við verðum að biða eftir þvi að ský dragi fyrir sólu. Hún er of björt.” Þungar stunur heyrast frá hljómsveitarmeðlimum og ein- hver segir: „Typiskt, við erum búnir að biða i tvær vikur eftir góðu veðri til þess að gera þessa mynd og loks þegar það kemur verðum við að biða þar til sólin er farin.” Loksins sér sólin sóma sinn i þvi að fara á bak við ský og við getum byrjaö. Skallapopp? Þegar þessu atriði er lokið er farið út á þjóðveginn og nú er komið að leikatriði Lincolnsins. Strákarnir setjast upp i bilinn og þeysa af stað. Snorri og Simmi elta þá hlaupandi, gangandi, ak- andi og áhangandi til þess að taka myndir af þeim þar sem þeir „glima við þjóðveginn”. Þar sem Snorri og Simmi liggja aftan á bilnum og taka mynd af hljómsveitarmeölimum i gegnum afturrúðuna verður einum þeirra að orði: „Jæja, nú er það skallapoppið. Hann er að taka mynd af skallan- um á okkur!”. Á niunda ári Myndatakan gengur betur en nokkur þorði að vona og inn á milligefst tækifæri til að ræða við hljómsveitina og Björgvin hefur orðið. „Hvað er Brimkló búin að starfa lengi?” „Þétta er niunda árið og fimmta platan okkar.” „Nokkrar nýlegar manna- breytingar?” „Já og nei. Eftir H.L.H. túrinn héldu Kristinn og Ragga áfram með okkur. Siðan hætti Ragga og gerðist Grýla, en Kristinn er enn með okkur. Einu upprunalegu meðlimirnir eru ég, Arnar og Ragnar. ■ Brimkló flytur „Þorskbæn „Á hvaða tónlistarstefnu er Brimkló núna?” „Eins og þú hefur væntanlega heyrt þá höfum við fjarlægst kántrýið en erum komnir meira út i rokkið og þá meina ég ekta rokk.” „Nú eruð þið að leggja upp i hringferð i fimmta sinn. Eruð þið ekki þreyttir:” Nei, alls ekki. Við skemmtum okkur konunglega og fólkið tekur okkur mjög vel. Við eigum dygg- an aðdáéndahóp úti á landi sem við verðum að sinna. Við eigum mjög auvelt með að ná upp góðri stemningu úti á landi. Okkur hef- ur lika gengið mjög vel hér i Reykjavik og sjáðu t.d. ballið i Höllinni á 17. júni. Þar lékum við fyrir fullu húsi og allir á fullu.” „Hvað um nýbylgjuna?” „Ja, hún er ágæt. En mér virð- ist margar af þessum erlendu hlj- ó.msveitum vanta allan tónlistar- legan '„bakgrunn. Þaö er eins og þær seu nýkomnar af skrifstof- unni með engan bakgrunn. Allt fyrir augað. Sumar eru þó byggð- ar á góðum grunni, t.d. „Rock- pile”.” „En islenska nýbylgjan?” „Ég veit ekki hvað þú meinar með nýbylgja. Ef hægt er að kalla þessi fslensku bönd „new wawe”, þá er Brimkló „permanent wawe”.” „Nú hafið þið á undanförnum árum fengið á ykkur gagnrýni og mikla útreið hjá blaðamönnum.” „Já, það er alltaf svona þegar hljómsveitir verða „establisher- aðar”. Sjáðu bara hvernig fór fyrir Utangarðsmönnum. Þeim var hampað i byrjun en núna er gefið skit i þá. Við höfum engan áhuga á að gefa út plötu sem tutt- ugu manns i mesta lagi kaupa og rykfellur siðan. Við gefum út plötur sem allir geta hlustaö á og haft gaman af. Það er ekki grund- völlur fyrir annað.” „En svo við vindum okkur að plötunni. Hver samdi lögin?” „Ég samdi fjögur, Magnús Ei- riks tvö, Maggi Kjartans tvö, Arnar þrjú og Þorgeir Astvalds- son eitt. Það eru annars nokkrir athyglisveröir textahöfundar á plötunni. Fólk eins og Kristján frá Djúpalæk, Iðunn Steins og Jóna- tan Garðarsson.” „Þó ekki....?” „Jú einmitt.” Þorskar og kjuðar Meðan þessu fór fram hafði kvikmyndaliðiö og hljómsveitin fært sig niður að höfn i Hafnar- firði (nei i Hafnarfirði), þar sem átti að taka upp lagið „Þorsk- bæn”. Þetta var jafnframt sið- asta atriðið. Snorri bað menn um að vera hressa og sýna tilþrif. Ragnar trommari tók hann á orð- inu, trommaði sig i gegnum lagið af innlifun og þeytti siðan trommukjuðanum aftur fyrir sig og út I sjó. Þar með lauk kvikmyndatöku þann daginn. H Snorri og Bjöggi sýna tilþrif hvor á sinu sviði. ■ Haraldur, Arnar, Kristinn, Appelsina, og Maggi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.