Tíminn - 16.09.1981, Qupperneq 19

Tíminn - 16.09.1981, Qupperneq 19
Miövikudagur 16. september 1981 fréttirMs^S Bifreið hvolfdi ofan í skurð ■^Bifreið stórskemmdist er hún valt við bæinn Neðri Rauðalæk, Þelamörk, Eyjafjarðarsýslu. Þrir menn voru i bifreiðinni þegar óhappið átti sér stað, en engan sakaði. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri, vildi óhappið til með þeim hætti að ökumaðurinn missti stjórn á bifreiðinni i lausamöl, með þeim afleiðingum að henni hvolfdi ofan i skurð. Sem fyrr segir stórskemmdist bifreiðin, sem er nýleg. —Sjó. Tvö börn á slysa- deild • Tvö börn voru flutt á slysa deild eftir umferðaróhöpp, siö- degis i gær. Ekið var á hjólandi dreng i Sörlaskjóli og gangandi barn varðfyrir bil til móts við hús númer 16 við Austurberg. Lögreglan i Reykjavik vissi ekki hversu alvarlega börnin voru slösuð þegar Timinn talaði við hana um kvöldmatarleytið. —Sjó. 23 Vil selja eitt par af ársgöml- um, nær ónotuðum, gaddakeðjum 11x28 fyrir dráttarvélar. Verð kr. 4.000.- Að- eins staðgreiðsla kemur til greina. Upplýsingar gefur Arnór i sima 97-4312. Réttir haustið 1981 Réttir Auðkúlurétt iSvinadal, A.-Hún..... Arnarhólsrétt i Helgafellssveit, Snæf., Fellsendarétt i Miðdölum, Dalasýslu Fossvallarétt v/Lækjarbotna (Rvik/I Gillastaöarétt i Laxárdal, Dal.... Hafravatnsrétt i Mosfellssveit, Kjós . Dagsetningar föstud. 18- og 19. sept. 22. sept. mánudagur 21. »» > • ■ sunnudagur 20 20. ■ mánudagur 21. • ••• fimmtudagur 17. ** ■ •■• mánudagur 21. 99 •■•• fimmtudagur 17. .... mánudagur 21 * » .... sunnudagur 20 • • 20. * * þriðjudagur 22. Kirkjufellsrétt i Haukadal, Dal...... Kjósarrétt i Kjós, Kjósarsýslu....... Klausturhólarétt i Grimsnesi, Arn....... Kollafjarðarrétt i Kjalarneshr., Kjós... Landrétti Landmannahr., Rang............ Langholtsrétt i Miklaholtshreppi, Snæf.... Laugarvatnsrétt í Laugardal, Arn........ Mælifellsrétt i Lýtingsstaöahr., Skag... Nesjavallarétt i Grafningi, Arn......... Oddstaöarétt i Lundarreykjadal, Borg. ... Rauösgilsrétt I Hálsasveit, Borg........ Reyðarvatnsrétt, Rangárvallahr. Rang... Reynistaðarétt iStaöarhrepp, Skag....... Selflatarétt i Grafningi, Arn........... Selvogsrétt i Selvogi, Arn.............. Silfrastaöarétt i Akrahr., Skag......... Skaftártungurétt i Skaftártungu, V.-Skaft. Skaftholtsrétt i Gnúpverjahr., Arn...... Skeiðarétt á Skeiöum, Arn............... Skrapatungurétt i Vindhælishreppi, A-Hún Stafnsrétt iSvartárdal, A.-Hún..........- Svarthamarsrétt á Hvalfjaröarstr., Borg. Svignaskarösrétt i Borgarhreppi, Mýr. ... Tungnarétt i Biskupstungum, Arn......... Tungurétt I Svarfaöardal, Eyjaf......... Undirfellsrétt i Vatnsdal, A.-Hún......j_ laugard. 19. sept. Vatnsleysustrandarrétt, Vatnsleysustr., Gull. miðvikudagur 23. ” Viðidalstungurétti Víöidal, V.-Hún.........föstudagur 18. og laugard. 19. sept mánudagur 21. ” mánudagur 21. ” þriöjud. 15. og miðvikud. 16. sept. Ölfusrétt IÖlfusi, Arn.....................fimmtudagur 24. sept. Ölkeldurétt IStaöarsveit, Snæf.............fimmtudagur 24. ” miövikudagur 23. þriðjudagur 22. föstudagur 25. miövikudagur 23. þriðjudagur 22. miövikudagur 16. mánudagur 21. miövikudagur 16. föstudagur 18. föstudagur 25. mánudagur 21. miövikudagur 23. miövikudagur 23 mánudagur 21. miövikudagur 23. fimmtudagur 17. föstudagur 18. sunnudagur 20. fimmtudagur 17. miðvikudagur 23. miövikudagur 16. sunnudagur 20. miövikudagur 16. föstudagur 18. og Þingvallarétt I Þingvallasveit, Arn Þórkötlustaðarétt v/Grindavik.... Þverárrétt i Þverárhlíö, Mýr...... Stóðréttir Undirfellsrétt i Vatnsdal, A.-Hún. laugardagur 26. sept. Viðidalstunguiétt i Viðidal, V.-Hún.........laugardagur 26. ” Auðkúlurétt iSvinadal, A.-Hún...............sunnudagur 27. ” Laufskálarétt i Hjaltadal, Skag.............sunnudagur 4.okt. landbúnadarspjall flokksstarfið Austuriandskjördæmi Tómas Árnason, viöskiptaráöherra, og Halldór Asgrimsson, alþingismaöur halda almenna fundi á eftirtöldum stööum: Félagsheimilinu viö Kirkjuból. Fimmtudaginn 17. september kl. 20.30. Reyðarfiröi föstudaginn 18. september kl. 21.00. Allir velkomnir. Launþegar Vesturlandskjördæmi Launþegaráð framsóknarmanna Vesturlandskjördæmi heldur fund i Snorrabúð Borgarnesi sunnudaginn 20. sept. og hefst hann kl. 14. Áfundinum mætirSteingrimur Hermannsson ráðherra og formaður Framsóknarflokksins og mun hann ræða um efnahags- og atvinnumál. Allt stuðningsfólk Framsóknarflokksins i launþegahreyf- ingunni er velkomið á fundinn. Aðalfundur FUF i Reykjavik verður haldinn miðvikudaginn 30. sept. kl.20.30 að Hótel Heklu Rauðarárstig 18. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnarinnar 2. Lagabreytingar 3. Kosning stjórnar og fulltrúaráðs 4. önnur mál Ath. Tillögur um stjórn og fulltrúaráð skulu berast eigi siðar en viku fyrir aðalfund. Mætum öll stundvislega Stjórnin Aðalfundur Framsóknarfélags Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu veröurhaldinn 19.sept. nk. kl.l4iLionshúsinuStykkishólmi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Alþingismennirnir Alexander Stefánsson og Davið Aöalsteinsson mæta á fundinn. Trúnaðarmenn félaganna eru hvattir til að mæta. Stjórnin Verðbólga, hávaxtastefna og landbúnaður ■ I Vestur-Evrópu, Banda- rikjunum, Kanada og sumum löndum Suður Ameriku hafa bændur miklar áhyggjur af þeirri hávaxtastefnu, sem rikir i þessum löndum. Vextir af fjárfestinga- og rekstrar- lánum hafa aldrei i sögunni verið jafn háir og nú. Þetta hefur leitt til þess að bændur, sem fjárfest hafa eitthvað að ráði hafa komist i greiöslu- þrot. Enda hafa gjaldþrot meðal bænda iDanmörkuog Kanada aukist mjög á siöustu mánuð- um. Þessir erfiðleikar bænda stafa ekki af þvi, aö bændur séu að slaka á i framleiösl- unni. Það eru utanaðkomandi áhrif, sem þessu valda og þaö sem þeir ráða ekki við. Mikil fjármagnsþörf er i landbún- aði. Það er oft á tiltölulega stuttum tima, sem þörfin er mikil t.d. á vorin þegar keypt- ur er tilbúinn áburöur. Af- urðasölufélögin taka afuröa- lán til að geta greitt bændum hluta af verði fyrir innlagðar afurðir og starfsfólki kaup reglulega. Bændur þurfa á rekstrarlánum að halda, þeg- ar fjárþörfin er mest. Fjár- festingalán eru ekki tekin i há- vaxtalöndunum um þessar mundir, nema að mjög tak- mörkuðu leyti. Það er reynt að þrauka og halda I horfinu en gengur misjafnlega. Þaö má geta þess aö i Sviþjóö eru vextir 15%, I Bandarikjunum 18% og i Kanada og i Dan- mörku 21-24%. Miklar verðhækkanir hafa oröiö á rekstrarvörum til landbúnaðarins, sérstaklega á tilbúnum áburði á undanförn- um tveim árum. Samtimis hefur verö á landbúnaðaraf- urðum til framleiðanda hækk- að litillega á Vesturlöndum. Sumsstaðar eru vext- ir greiddir niður Það er eðlilega rik tilhneig- ing i (31um löndum aö halda niðri verði á matvælum, það hefur viða bitnað á bændum. Litiö er til varnar. Þó geta bændur gripiö til sölustöðvun- ar og reynt þannig aö hafa á- hrif á stjórnvöld. Sölustöövun á búvörum er meira en venju- legt verkfall launþega. Það er að eyðileggja oft á tiöum verö- mæti, sem kostað hafa verú- lega fjármuni aö framleiöa. Þvi hefur sölustöðvun á landbúnaöarafurðum mjög sjaldan veriö beitt. Henni hefur veriö hótað nokkrum sinnum á Norðurlöndum og þá fengist einhverjar leiö- rettingar. Þar sem þrýstingur bænda hefur verið einna mest- ur á rikisstjórnir aö undan- fórnu vegna slæmrar lána- stefnu og hávaxtastefnu, þá hefur veriö gripið til þess ráös aö greiöa niöur vexti a f lánum til bænda hliöstætt og ull og gæruverð er greitt niöur handa vinnslustöðvunum hér á landi. Þetta á viö t.d. i Dan- mffl-ku. Ráðstefna um land- búnaðarkreppuna Forystumenn helstu bænda- samtaka á Vesturlöndum komu saman til fundar i Strassborg 11. september s.l. Þar voru ræddir fjárhagsörð- ugleikar bænda, sem stöfuöu fyrst og fremst af hávaxta- stefnunni, sem rikir i mörgum löndum nú. Samþykkt var að heröa róðurinn fyrir hærra verði á búvörum til framleið- anda eða þá að gjörbreyta vaxtastefnu i þessum löndum og þá fyrst og fremst aö vextir af lánum til landbúnaöarins yrðu lækkaðir verulega. Enn- fremur var ákveöið á þessum fundi að aðalmálefni næstu ráöstefnu sem haldin verður á vegum A lþjóöasamt aka bænda, IFAP veröi: „Leiðir út úr landbúnaðarkreppunni”. Þessi ráðstefna mun veröa haldin i júni' 1982 i London. Það hefur mistekist að lækka verð á mat- vælum Sú breyting, sem orðið hefur á landbúnaðarframleiöslunni hér á landi á siðastliðnum 40 árum, eða svo, hefur ein- kennst fyrst og fremst af þvi aö stöðugt minni hluti brúttó- tekna bænda fer til þess að greiöa laun. Það veröur sem sagt minni og minni hluti eftir til að framfleyta fjölskyldu bóndans. Tæknin, áburöurinn, fóöurbætir, afborganir af lán- um og vextir taka til sin stöð- ugt stærrihluta af þvi, sem inn kemur fyrir seldar afuröir. Ef við litum á verðlagsgrundvöll landbúnaðarafuröa, þá voru laun tæp 90% af gjöldunum fyrirum 40árum,eni dag eru þau um 44%. Aukin tækni I landbúnaði hefur aö sjálfsögöu leitt til aukinnar framleiöslu sem átti aðveröa til þess að neytendur fengju ódýrari matvæli og framleiöendur meiri tekjur. Vegna verðbólgunnar og há- vaxtastefnunnar hafa vonir framleiöenda brugðist. BU- vörur hafa hækkað jafnt og þétt hliöstætt og aðrar vörur og þjónusta. Framleiöendur hafa ekki náö þvi marki, sem stefnt var að, ódýrar búvörur handa neytendum og aö fram- leiðendur hefðu sömu tekjur og launþegar fyrir hliöstætt vinnuframlag. Agnar Guðnason, blaðafulltrúi, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.