Tíminn - 29.09.1981, Page 13

Tíminn - 29.09.1981, Page 13
12__________________________________________ Ríkisútvarpið — nýbygging FORVAL TIL LOKAÐS ÚTBOÐS Rikisútvarpið mun viðhafa forval á bjóð- endum tii lokaðs útboðs i 3. byggingar- áfanga útvarpshúss, Hvassaleiti 60, Reykjavik. Verkið spannar uppsteypu hússins frá gólfplötu 1. hæðar og gefa eftirfarandi magntölur til kynna stærð þess: Mótafletir 40000 ferm Steinsteypa 7000 rúmm Binidistál 550 tonn Áætlaður byggingartimi er 18 mánuðir. Þeir verktakar, sem óska eftir þvi að bjóða i verkið, leggi fram skriflega um- sókn sina um það i siðasta lagi mánudag- inn 12. október n.k. til Karls Guðmunds- sonar, Almennu verkfræðistofunni h.f., Fellsmúla 26 (5. hæð), sem veitir nánari upplýsingar, ef óskað er. Með umsókninni skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar: A. Reynsla umsækjanda, svo sem skrá yf- ir stærri verk, sem hann hefur unnið s.l. 10 ár. B. Eigin tæki og búnaður til bygginga- framkvæmda. C. Starfslið og reynsla yfirmanna. Byggingarnefnd Rikisútvarpsins. VATNSRÖR Eigum á lager vatnsrör fyrir heitt og kalt vatn. Kynnið ykkur verðið. Plastmótun sf. Plastverksmiðja Lœk — ölfusi — Sími 99-4508 PÓST- OG SÍMA- MÁLASTOFNUNIN í tilefni þess að 29. september 1981 eru 75 ár iiðin frá opnun simaþjónustu hér á landi verður jarðstöðin Skyggnir við (Jlfarsfell til sýnis almenningi þann dag kl. 13:00 til 17:00. Einnig verður hún til sýnis 3. og 4. október n.k. á sama tima. Póst og simamálastofnunin. Kynning á starfsemi Vinnueftirlits rikisins: „STARFSEMIN KEMUR í VEG FYRIR FJÖLDA SLYSA OG SJÚKDÖMA” — segir Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins ■ Vinnueftirlit ríkisins hefur verið mikið ti! umfjöllunar i fjöl- miðlum á undauförnum mánuðum, áu þess að innri starf- semi þess og stefnumarkmiðum hafi verið gerð skil. Þvi þótti okk- ur hér á Tímanum ekki úr vegi, að skreppa til nágranna okkar hér i næsta húsi og fræðast örlitið um þá starfsemisem fram fer á vegum Vinnueftirlitsins. Við hitt- um Eyjólf Sæm undssou, for- stjóra stofnunariimar að máli. — Eyjólfur, þú vildir kannski byrja á almennri kynningu á Vinnueftirlitinu. „Vinnueftirlit rikisins tók til starfa um siðustu áramot og tók þá við allri aðstöðu öryggiseftir- litsins og rekur nú starfsemina sem áöur heyrði undir þá stofnun, auk annarra, nýrra verkefna, sem bættust viö, samkvæmt hin- um nýju lögum. Lögin sem þarna um ræðir eru lögin um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnu- stöðum, sem gildi tóku um sl. áramöt. Undir stofnunina heyrir allt sem snertir hollustuhætti, öryggi og aöbúnaö starfsmanna á vinnu- stöðum, en hluti af þeim verkefn- um var áður hjá heilbrigðiseftir- litinu. Hjá öryggiseftirlitinu störfuöu áöur 15 menn, en við höfum nú samtals 20 stöður. Samkvæmt lögunum, þá á að skipta landinu niöur i eftirlitsumdæmi, og stefn- irstjórn stofnunarinnar að þvi aö á næsta ári verði starfandi eftir- litsmenn i öllum umdæmum, en nú þegar eru slikir menn starf- andi á Norðurlandi, Austurlandi og Vesturlandi. „Áhersla lögð á að stofnunin sé leiðbein- andi” — Á hvað leggið þið megin- áherslu i starfi ykkar? ,,Við leggjum mikla áherslu á það aö stofnunin sé leiöbeinandi gagnvart aðilum i atvinnulifinu og munum þvi ekki eingöngu ein- blina á eftirlit i fyrirtækjum, heldur leggja áherslu á upp- lýsinga- og fræðslustarfsemi. Við höfum deildaskipt stofnun- inni, þannig að við erum annars vegar með eftirlitsdeild, sem er fjölmennasta deild stofnunarinn- ar og hins vegar erum viö með serfræðideildir sem.eru leiðbein- andi fyrir eftirlitsmennina og þá aðila sem þess æskja. Þessar deildir eru: Almenn tæknideild, en hún fjallar um öryggismál vél- búnaðar og byggingartækni: At- vinnusjúkdóma- og heilsu- verndardeild, en hún á aö fjalla um heilsuverndarstarfsemi á vegum heilsugæslustöðvar og Hdlustuháttadeild, en þar fara fram mælingar á mengun i and- rúmslofti á vinnustöðum, hávaöa, titringi, lýsingu o.fl. Við höfum lagtmikla áherslu á uppbyggingu þessarar deildar og reynt að taka i notkun þar nýtiskulega tækni”. „Fengum allverulega aukna fjármuni á fyrsta starfsári okkar” — Við hvernig starfsaðstöðu búa svo starfsmenn Vinnueftir- litsins? „Við fengum á fyrsta starfsári okkar allverulega aukna fjár- muni til vinnuverndarstarfs, þannig að þvi leytinu hefur starfsaðstaða okkar veriö nokkuð góð. Hins vegar verður það að segjast eins og er að aðstaða starfsmanna stofnunarinnar er ekki nægjanlega góð, þar sem húsnæði Vinnueftirlitsins er allt of lítiö miðað við fjölda starfs- manna”. — Hvað finnst ykkur um þá gagnrýni og þá umfjöllun sem Vinnueftirlitiö hefur fengið I fjöl- miðlum upp á siðkastiö? „Þær umræöur sem upp á sið- kastið hafa verið i fjölmiðlum, gefa ákaflega ranga mynd af starfi og stefnumiðum Vinnu- eftirlitsins. Okkar meginstarf beinist aö hollustuháttum og öryggismálum vinnustaðanna, en ekki vinnutimareglum, þó slikt falli einnig undir okkur, en um þann lið hafa fjölmiðlarnirf jallað hvað mest. Við verðum að sjálf- sögðu einnig að hafa eftirlit með vinnutimaákvæðum, þvi slikt er liður i öryggiseftirliti. — Lætur Vinnueftirlitið það til sin taka, ef þvi berst vitneskja þess efnis að vinnuslysatiðni á einum ákveönum vinnustað sé langt fyrir ofan meðaltal? „Vinnueftirlitiö hefur til skamms tima ekki haft upp- lýsingar Slysavarðstofunnar og Tryggingastofnunar tilviðmiðun- ar isinu starfi. Núna erum við aö vinna i þvi að fá slikar upplýsing- ar frá öllum hlutaðeigandi aðil- um. Þá munum við betur geta gert okkur grein fyrir skiptingu slysa eftir vinnustöðum. Auk þessa fórum viðfram á að i fyrir- tækjunum sé haldin skrá yfir öll þau slys og óhöpp sem eiga sér stað á vinnustöðum. Með þetta fyrir augum höfum viö dreift i fyrirtækin eftirlitsbókum, með eyðublööum fyrir slika skrán- ingu. Hingaö til hafa afskipti Vinnu- eftirlitsins svo til eingöngu beinst að slysum sem tilkynnt hafa verið stofnuninni, en þaö eru yfirleitt meiri háttar slys. Með þessari skráningu ætti aö geta orðiö rót- tæk breyting þar á”. — Hvað finnst ykkur hér hjá stofnuninni um þá gagnrýni sem heyrst hefur, þess efnis að þið sé- uð „kontoristar” i Reykjavik, sem séuðekki i nægum tengslum við atvinnulifið til þess að vera dómbærir á þaö sem þið eru að gera? „Ef einhver opinber stofnun hefurnáin tengsli viö atvinnulifið, þá er það Vinnueftirlitið. Þvi á vegum Vinnueftirlitsins eru framkvæmdar þúsundir heim- sókna á vinnustaði og okkar eftir- litsmönnum a- uppálagt að ræöa bæði við st jórnendur á vinnustöð- um og fulltrúa verkamanna. M.a. er krafa um þaö aö fulltrúi at- vinnurekanda og trúnaðarmaður verkamanna kvitti fyrir þvi aö eftirlitsmaðurinn hafi haft við hann samskipti. Allir okkar eftir- litsmenn eru þvi inni á vinnu- stöðunum að fjalla um raunveru- leg vandamál þeirra”. ■ Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits rlkisins. ■ Viða er pottur brotinn, hvaö varðar aðbúnað á vinnustöðum. Astandið mun vera einna verst i byggingariðnaðinum, enda munu þeir vart margir sem tengja bilflak þetta viö vistarverur manna en engu að siöur mun þetta þó vera einn vinnuskúrinn i byggingar- iönaöinum. „Höfum þvingunar- ákvæði” — Hvernig getið þið látið kné fylgja kviði, þegar þiö komist að raun um að pottur er brotinn á einhverjum vinnustað? „Við höfum margumrædd þvingunarákvæði i okkar lögum, þar sem okkur er gefið vald til þessaðstöðva tæki og vélar, jafn- vel heilu fyrirtækin, ef viö teljum yfirvofandi hættu á lifi og heilsu starfsmanna. Yfirleitt höfum við legið undir ásökunum fyrir að beita slikum stöðvunarákvæðum allt of litið. Auðvitað er svona stöðvun oftmikið álitamál. Eftir- litsmenn hafa staöið frammi fyrir þvi að þurfa að ákveða hvort þeir ættu að krefjast þess að tækið skyldi þegar i staö stöövað, eöa að úrbætur yröu gerðar svo fljótt sem auöið væri. Upp hafa komið tilvik þar sem þeir hafa valið seinni kostinn og af þvi hlotist al- varleg slys. Almennt tel ég að starfsemi sú sem við rekum, hafi þaö i för með sér, aö komið sé i veg fyrir fjölda slysa og sjúkdóma á ári hverju, þóerfittséaömeta árangur slikr- ar starfsemi I beinhörðum tölum. Auðvitað getum við gert enn betur, og þaö er einmitt að þvi sem við stefnum, þvi með tækni- legum og skipulagslegum aögerð- um er yfirleitt alltaf hægt að koma i veg fyrir þau vinnuslys sem eiga sér stað og einnig minnka lilcurnar á atvinnusjúk- dómum”. Öryggismál — Eyjólfur, þú vildir kannski fjalla svolitið nánar um þessa þrjá þætti sem þiö beinið sjönum ykkar að: öryggismálin, hollustu- hætti og aðbúnað. „Ef við byrjum á vinnuslysun- um, þá má greina frá þvi að þau slys sem við rannsökum á ári hverjueru á milli 100og 200. Þrátt fyrir þetta, vitum við að f jöldi al- varlegra slysa kemur ekki til um- fjöllunar hjá okk'ur, þvi viö fáum ekki vitneskju um slysin. Ef viö fengjum þessa vitneskju, þá gæt- um við notað hana i fyrirbyggj- andi tilgangi. Þaö getur einnig orðið mjög alvarlegt mál fyrir þann slasaða ef rannsókn fer ekki fram á slysi hans, sem átti sér stað á vinnustað, þvi það getur torveldað honum mjög að sækja eðlilegar bætur vegna slyssins. Það ættu þvi að vera sameigin- legir hagsmunir vinnustaðanna, verkamannanna og okkar aö slysin væru tilkynnt okkur, en þvi miður skortir enn verulega á, aö svo sé gert. Eitt af þvi sem vekur athygli i rannsóknum okkar, er hversu miklu hærritiðni slysa er á meöal ungs fólks, en eldra fólks. Yfir- gnæfandi hluti þeirra sem deyja i vinnuslysum eða slasast alvar- lega er ungt fólk. Slysatiðni þeirra sem eru 16 til 20 ára er t.d. fjórum sinnum meiri en hjá þeim sem eru 30 til 40 ára. Hollustuhættir 1978 var gerð könnun á 158 fyrirtækjum, sem höfðu yfir 8000 starfsmenn. Það kom nokkuö á óvart aö i rúmlega 50% tilfella voru vandamál á vinnustað vegna hávaða eöa titrings vegna loft- ræstingar hitastigs, rakastigs eða mengunar. Við höfum verið að byggja upp hjá okkur öfluga deild til þess að mæla og meta þessa þætti á vinnustöðunum. Það er ljdst að þetta er og verður mikil- vægur þáttur i starfsemi okkar, þvi ég get t .d. nefnt þér að þaö er vitað mál að hávaöi á vinnustöð- um hefur nú þegar valdiö heyrnarskemmdum hjá miklum fjölda landsmanna, en best hefur þetta verið kannað i málm- iðnaðinum. Við höfum gert fyrstu mælingar varðandi lifræn leysi- efni á vinnustöðum, og hafa kom- ið upp tilvik, þar sem mælingar sýndu að mengunin var tiu sinn- um yfir hættumörkum. Við erum nú með frekari mælingar á þess- um þáttum i undirbúningi og ótt- astégaöþað komii ljós að fjöldi starfsmanna sem vinnur við heilsuspillandi skilyröi vegna slikrar mengunar sé miklu meiri en almennt hefur verið talið. Við eigum viö mörg stór vanda- mál að striöa, varöandi hollustu- hætti á vinnustööum, en auk þeirra dæma sem hér hafa verið nefnd, má nefna sálræna og félagslega þætti. Meö fræðslu- starfsemi og skipulagsbreyting- um á vinnustöðum, má draga verulega úr streitu og svo mætti lengi telja. Aðbúnaður á vinnu- stöðum Samkvæmt lögum og reglu- gerðum, þá eiga starfsmenn á vinnustöðum réttá ákveðnum að- búnaði bæöi isambandi við fram- kvæmd vinnunnar og i sambandi við svonefnda starfsmannaaö- stööu, en þar koma inn i þættir eins og salerni, snyrtiherbergi, þvotta- og baöklefar, matar- og kaffistofur og búnings- og fata- herbergi. Aöbúnaðursem þessi er nauðsynlegur vegna heilbrigðis starfsmanna en þarna er einnig um aö ræða félagslegan rétt starfsmanna á vinnustöðum, til þess að hafa snyrtilegt i kring um sig i vinnunni og góða aðstööu. t könnun þeirri sem gerð var 1978 á aðbúnaði á vinnustööum, komu i ljós mjög alvarlegir van- kantar í þessum málum og þá sérstaklega ivissum ertiðum iön- greinum. Það kom t.d. i ljós að það vantaði þvotta- og baöklefa i mjög stóran hluta þeirra fyrir- tækja sem slika aðstöðu eiga að hafa. Einnig voru búnings- og fataklefar i verulegum ólestri. I byggingariðnaði er t.d. gegnum- gangandi skortur á aðbúnaði af þessu tagi og er það mjög brýnt framtiðarverkefni fyrir Vinnu- eftirlitið að reyna að tryggja örar framfarir i aðbúnaðarmálum i þeirri grein. Leggjum mikla áherslu á samstarf innan fyrir- tækjamia Vinnueftirlitið vill leggja mikla áherslu á að vandamálin séu leyst i scimstarfi atvinnurekenda og starfsmanna á vinnustööunum sjálfum, en það er einmitt eitt af meginmarkmiðum hinna nýju laga. Slikt „innra” starf nær sér hinsvegar tæplega á strik nema meö aðstoð Vinnueftirlitsins. 1 þessu skyni verðum viö aö beita öflugu fræðslu- og upplýsinga- starfi, m.a. meö þvi aö gefa út ^bæklinga og timarit um vinnu- verndarmál. Við munum halda námskeið fyrir öryggistrúnaðar- menn og aðra sem vinna að þess- um málum. Varöandi eftirlitsstarfið hjá okkur, þá skiptist það i fjóra þætti: Þaö er beint eftirlit með fyrirtækjum: Sameiginlegar kannanir á heilum iðngreinum: Eftirlit með innflytjendum og framleiðendum tækjabúnaðar og efna. t fjóröa lagi, þá eigum við að hafa eftirlit með teikningum og áætlunum varðandi ný og breytt fyrirtæki. Þetta eftirlit er tilkomið vegna þeirrar einföldu staðreyndar, að það er mflriu ódýrara að breyta striki á teikningu,heldur en færa hluti til, eftir aðþeireru einusinni komnir á staðinn. Vinnueftirlit með land- búnaðinum Það má geta þess hér, aö land- búnaðurinn kemur nú i fyrsta skipti inn undir Vinnueftirlitið, samkvæmt hinum nýju lögum. A þvi sviði hefur verið skipuð sér- stök stjom með aðild Stéttarsam- bands bænda og Búnaöarfélags tslands. Þetta er verulegt verk- svið vegna mikillar vélarnotkun- ar i landbúnaði, en þar er einnig um að ræða aðra þætti vinnu- verndar. Við ættum t.d. með upp- lýsinga- og fræðslustarfsemi að geta dregið verulega úr sjúkdóm- um sem tengjast landbúnaöinum sérstaklega eins og t.d. heymæöi. Þá vil ég sérstaklega nefna aö dráttarvélaslys virðast hlutfalls- lega mun tfðari hér á landi, en i löndumþarsem strangt eftirlit er með slikum vélum. Það má þvi segja aö það sem viöhérhjá Vinnueftirlitinu höfum að leiöarljósi i' starfi okkar sé að stunda sem öflugusta upplýsinga- og fræðslustarfsemi, ráðgjafar- starfsemi og heimsækja vinnu- staðina sem oftast en með þvi móti stuðlum við einnig að þvi að vinnustaðirnir geti leyst sin eigin vandamál sjálfir og þar með ná- um viö meiri árangri i starfi”. —AB ■ Hvernig skyldi það vera fyrir geðheilsu byggingarverkamanna að snæða nesti sitt f þessari glugga- lausu kytru? Aldursflokkar 0/0 i lý 15 20 25 15 ára og yngri 2,4 16—20 ára 25,6 i 21—25ára 15,1 26—30ára 11,2 31—35ára 5,5 36—40 ára 7,8 41—45 ára 5,2 1 46—50ára 7,2 51—55ára 5,2 56—60 ára 4,5 61 — 65 ára 5,1 66— 70ára 2,8 71 árs og eldri 2,4 L. ■ Linuritið sem sýnir skiptingu vinnuslysa I aldurshópa árin 1970 til 1977 sýnir hversu áberandi mörg slys eru I aldursflokknum 16-20 ára Svipaðar niðurstöður eru fyrir vinnuslys 1978-1980. Sennilegasta skýringin er sú aö ungt fólk kemur reynslulltiö I hættuleg störf á vorin en þá verða flest slysanna í þess- um aldurshópi. A hinum Norðurlöndunum er þetta óþekkt fyrirbrigöi, enda er mun minna um að þessi aldurshópur sé úti I atvinnulffinu, þar sem fólk á þessum aldri er mikið við nám allt áriö eða gegnir her- þjónustu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.