Tíminn - 29.09.1981, Síða 14

Tíminn - 29.09.1981, Síða 14
Þriöjudagur 29. september 1981 14 heimilistíminir Hvad kostar slátrid? — sala hafin á slátri í mörgum verslunum ■ Nú þessa dagana er byrjaö aö selja slátur i mörgum verslunum. Slátriö er yfirleitt selt fryst, 5 slátur saman i kassa. 1 slikum kassa eru 5 sviðnir og sagaöir sviöahausar, 5 lifrar, 10 nýru, 5 þindar, vambir og hálsæðar. Hjá afurðasölu SIS kostar slátr- ið 220 kr. 5 slátur i kassa. Hver kassi er um 25 kiló aðþyngd. Það er selt í Afurðasölunni og einnig i verslunum. Hjá Sláturfélagi Suðurlands verður slátrið selt i verslunum i Glæsibæ og við Háleitisbraut, en þar verður aðalslátursalan hjá SS á Reykjavikursvæöinu. Þar verð- ur blóðið selt fryst, en annað sem tilheyrir slátrinu ófryst. Það er samt ekki hægt að fá minna en 5 slátur, sem kosta kr. 211. Sérstakt tilboðsverð er á rúgmjöli, sem kostarkr. 18.50 2 kg., Haframjöli, sem kostar kr. 23.551900 g og heil- hveiti, sem kostar kr. 18.95 2 kr. Ég hringdi i nokkrar verslanir til að spyrjast fyrir um slátursöl- una og annað henni tilheyrandi. t KRON Norðurfelli hófst slátur- sala i siðustu viku, en litil sala hefurenn verið islátrinu. Verðá 5 slátrum þar er 220 krónur. Rúg- mjöl 2 kg kostar 16.40, hveiti 10 lbs. 30.60, haframjöl 1900 grömm 25,10, rúsinur 500 g kr. 23.40, og sláturgarn kr. 19.00. t Vörumarkaðnum kostar slátr- ið kr. 235, 5 slátur. Rúgmjöl kost- ar þar kr. 18.15 2 kg, heilhveiti kr. 17.10 2 kg., haframjöl 2 kg., kr. 19.90. Einnig fást þar 6 kr á kr. 44,35. rúsinur 1 kg. kr. 39.50, og sláturgarn kr. 15.90. AKB. Sláturgerð ■ Það er gamall siður að gera slátur að hausti, enda nauðsyn hjá forfeðrum okkar að nýta allan mat og geyma yfir veturinn. Þá var slátrið sýrt og geymt þannig. Nú eru það frystikisturnar, sem geyma slátrið. t innyflum og blóði dýra er mik- ið af lifsnauðsynlegum steinefn- um og vitaminum auk eggja- hvituefna. 1 blóðinu er mikið járn og lifrin er lika járnrik, auk þess eru i henni nauðsynleg vitamin. Enda þótt eitthvað af næringar- efnunum tapist við langa suðu og mismunandi geymslu, er óhætt að segja, að fáar fæðutegundir hafa jafn mikið næringargildi. t 100 g af blóðmör eru 12 mg af járni og 30 ae af Bl vitamini. I lifrarpylsu eru um 5 mg af járni og 30 ae af B-vitamini. Einnig er i slátrinu kalk og fosfór. 1 100 g af blóðmör eru 318 hitaeiningar og i lifrarpylsu 100 g eru 265 hitaein- ingar. Slátrið er þvi mjög orku- rikur matur. Við blóðmörsgerð er rétt að hafa þetta i huga: Gætið að þvi að hræra vel i blóðinu og geyma það aldrei leng- ur en i 1-2 daga nema i frysti. Blandið vatni og salti saman við blóðið. Blandið mjöli og mör sið- an vel saman við blóðið. Sniðið 5 keppi úr hverri vömb og hálffyllið aðeins keppina. Frystið keppina strax og saumað hefur verið fyrir eða látið þá i sjóðandi vatn og sjóðið i 3 klukkustundir. Þá er öruggt að slátrið sé gegnsoðið og allur gerlagróður dauður. Blóð- mör má blanda á ýmsan hátt, t.d. rúgi og haframjöli, rúgi og hveiti eða rúgi og fjallagrösum. Við lifrarpylsugerð eru lifur og nýru þvegin, himnur og allt slim tekið af þeim, skorin i bita og hökkuð tvisvar til þrisvar i hakkavél. Salti og m jólk hrært saman við og mjöli ogmör bætt út i. Lifrarpyls- an þarf ekki að sjóða eins lengi og blóðmör. Auðveldasta og besta aðferðin til geymslu á slátri er án efa frysting. Hægt er að frysta slátur ósoðið eða hálfsoðið. Margir vega aldrei efnin i blóð- mör eða lifrarpylsu heldur láta tilfinningu ráða um þykkt slátur- hrærunnar. Flestir þeir, sem eru að byrja i sláturgerð, vilja þó hafa uppskrift við höndina. Blóðmör. 1 1 blóð 2 dl vatn 1 1/2 matskeið salt 500 g rúgmjöl, 300 g haframjöl 500-700 g mör 12-15 vambakeppir. Lifrarpylsa 450 g lifur (1 lifur) 100 g nýru (2 nýru) 3 dl mjólk eða kjötsoð 1/2 matsk. salt 100 g haframjöl 100 g hveiti, 300 g rúgmjöl og/ eða heilhveiti 200-400 g mör. Sérstakir f rystipokar ■ Plastprent h.f. hefur nýverið hafið framleiðslu á frystipokum eftir tilraunir með sérstakt plastefni, sem ætlað er fyrir matvæli og springur ekki i frosti. Plastefnið, sem frysti- pokarnir eru framleiddir úr, stenst ýtrustu gæðakröfur, sem gerðar eru til efna, er komast i snertingu við matvæli. Það er samþykkt af bandariska mat- vælaeftirlitinu (FDA). Plastefni þetta hefur þann eiginleika að verða hvorki stökkt né springa við frystingu. Plastpokarnir eru framleiddir i tveimur stærðum. Sú minni er svokölluö fjölskyldustærð, snið- inmeð þaðihuga að passa fyrir fjölsky ldumáltiðina. Limmerkimiðar fylgja hverri frystipokarúllu og þolir limið frostið, svo framarlega sem miðarnir eru settir á fyrir fryst- ingu. Ekki er að efa að þessir nýju frystipokar koma sér vel við frystingu vetrarforðans. Innmatur er hollur — nokkrar uppskriftir með innmat ■ Héreru svo nokkrar uppskrift- ir aö réttum úr innmat. Lifrarbuff 500 g lifur 100 g fita 500 g kartöflur, 1 laukur salt, pipar engifer. 1/2 bolli mjólk 1 bolli heilhveiti Lifrin, kartöflurnar og laukur- inn saxað. Heilhveiti og krydd sett i og þynnt með mjólkinni. Brædd feitin sett i. Hrært saman og mótaðar þunnar kökur, steikt eins og lummur. Borið fram með steiktum lauk og hrásalati. Nýrnasmásteik 400 g nýru 6 matsk. hveiti. 1 tsk. salt, 4 gulrætur, 75 g smjörliki 3/4 1 soð eða vatn, pipar 1/4 tsk. Nýrun eru skorin i sundur og hvert nýra skorið i 4 hluta. Gul- ræturnar eru skornar i bita. Salti og pipar blandað i hveitið og nýr- unum velt upp úr þvi. Steikt á pönnu. Sett i pott ásamt gulrótun- um, soðinu hellt yfir og soðið i 2-3 stundarfjórðunga. Sósan jöfnuð með hveitinu. Borið fram með kartöflustöppu, og soðnum sveskjum. Fyllt hjörtu 5 hjörtu, 1 tsk. salt 1/4 tsk. pipar, 1 epli 10-15 sveskjur 5 sneiðar reykt flesk 75 g smjörliki 4 dl vatn, 1 1/2 dl. rjómi hveiti 3 matsk. sósulitur, berjahlaup Hjörtun eru þvegin vel og sinar og æðar klippt burtu. Eplið flysjað og skorið i bita. Flesk- sneiðarnar settar inn i hjörtun, þari2-3sveskjur (i hvert hjarta), sem steinarnir hafa verið teknir úr, einnig eplabiti. Saumað saman eða fest með kjötprjóni. Steikt vel og siðan soðið þar til hjörtun eru orðin meyr. Þá eru þau tekin upp úr og sósan jöfnuð. Soðin i 10 min. Þá er rjóminn og berjahlaupið sett i. Þegar hjörtun eru borin fram,eru þau skorin i sneiðar. sósunni helltyfir og borið fram með kartöflum og græn- metissalati.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.