Fréttablaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 2
MARKAÐURINN 5. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá ára mót um
Atorka 1,0% -18,3%
Bakkavör -8,6% -31,3%
Exista -3,3% -39,7%
FL Group -6,7% -36,2%
Glitnir -6,1% -23,5%
Eimskipafélagið 0,9% -15,9%
Icelandair -0,8% -9,9%
Kaupþing -1,8% -17,5%
Landsbankinn -6,4% -25,6%
Marel -2,7% -11,7%
SPRON -8,8% -42,1%
Straumur -6,1% -23,6%
Teymi -3,4% -13,6%
Össur -0,6% -6,1%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudag
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Eimskipafélagið ber ábyrgð á tæplega 19 milljarða
króna láni Excel Airways sem er á gjalddaga í dag.
Stjórn Eimskips og Landsbankinn, sem veitti lánið,
hafa gefið stjórnendum Excel tvo mánuði til að
greiða lánið og létta ábyrgðinni af Eimskip. Bæði
stjórnendur Eimskips og Excel eru bjartsýnir á að
það takist þrátt fyrir vondar aðstæður á lánamark-
aði. Kjörin munu hins vegar versna.
Eimskip seldi í október 2006 XL Leisure Group,
sem samanstóð af félögunum Excel Airways Group
í Bretlandi, Star Airlines í Frakklandi og Star Eur-
ope í Þýskalandi, fyrir um 450 milljónir dollara.
Þar af var 280 milljón dollara lán frá Landsbankan-
um sem Eimskip var ábyrgðaraðili að. Það jafngild-
ir um 18,8 milljörðum íslenskra króna. Stjórnend-
ur Landsbankans vildu ekki að ábyrgðin flyttist til
nýrra eigenda og því ber Eimskip enn ábyrgð á láni
félags sem það seldi frá sér. Kaupendur voru stjórn-
endur XL Leisure Group. Þeir höfðu frest þangað til
í dag til að greiða lánið í Landsbankanum.
„Lánið verður framlengt um tvo
mánuði með ábyrgð Eimskipa-
félagsins og það er væntanlega
sá tími sem tekur að klára þetta
mál. Við höfum litlar áhyggjur af
þessu. Excel Airways var dóttur-
félag Eimskips og því var félagið
abyrgðaraðili að láninu. Við höfum
góðar tryggingar á móti í hluta-
fé Excel. Það er eðlilegt að það
taki lengri tíma að ljúka endurfjármögnun en
var fyrirséð við núverandi aðstæður á lánamark-
aði,“ segir Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eim-
skipafélagsins.
„Við hjá Excel höfum verið að vinna að endur-
fjármögnun félagsins síðastliðna sex mánuði í nánu
samráði við stjórnendur Eimskips.
Augljóslega hefur þetta tekið
lengri tíma en til stóð vegna versn-
andi markaðsaðstæðna. En nú
sjáum við fyrir endan á þessu ferli
samkvæmt því tímaplani sem við
lögðum upp með,“ segir Magnús
Stephensen, framkvæmdastjóri
Excel Holdings, sem er móður félag
XL Leisure Group.
EXCEL AIRWAYS Magnús Stephensen segir rekstur XL Leisure
Group ganga vel og reksturinn betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
MAGNÚS
STEPHENSEN
SINDRI
SINDRASON
Greiningardeild bandaríska fjárfestingarbank-
ans Bear Stearns segir fjármálalíf í Kasakstan
standa á traustari fótum en fjármálalífið
hér á landi.
Bankinn segir margt sameininglegt
með íslenskum bönkum og kollegum
þeirra í Kasakstan. Miklar erlendar lán-
tökur liggi að baki vexti bankanna en
það hafi skilað sér út í hagkerfi landanna.
Er nefnt að fasteignaverð hafi rokið upp og
viðskiptahalli aukist mikið. Þessar aðstæð-
ur hafa valdið mikilli ofhitnun í hagkerfum
beggja landa, að sögn Bear Stearns.
Ísland er sömuleiðis mun berskjaldaðra
gagnvart efnahagslegum samdrætti hjá
stærstu iðnríkjum heims en Kasakstan, að
mati Bear Stearns, sem vísar til þess að íslensk-
ir bankar hafi fjárfest mjög í smásöluverslun
og fasteignum á Norðurlöndunum og í Bret-
landi. Slíku sé ekki að til að dreifa hjá bönk-
um í Kasakstan sem séu mun opnari fyrir
aðkomu erlendra fjárfesta í hluthafahópinn.
Það sé fáheyrt hér og sýni skuldatrygginga-
álag íslensku bankanna að þeir séu mun lík-
legri til að verða gjaldþrota en kollegar þeirra í
Kasakstan. - jab
Kasakstan skárra en Ísland
Greinanda hjá Bear Stearns líst ekkert á Ísland samanborið við Kasakstan.
ÞEKKTASTI FULLTRÚI KASAKSTAN Persónan Borat opnaði
augu umheimsins fyrir Kasakstan. „Kasakstan er besta land í
heimi. Öll önnur lönd eru undir stjórn lítilla stúlkna,“ sagði Borat.
Kannski er eitthvert sannleikskorn í því samkvæmt Bear Stearns
þegar valið stendur á milli fjáfestinga á Íslandi og Kasakstan.
Alls námu kröfur í þrotabú Huga
hf., sem áður hét Fróði, tæpum
507 milljónum króna, að því er
fram kemur í tilkynningu um
skiptalok í Lögbirtingablaðinu.
Nafni félagsins var breytt þegar
Tímaritaútgáfan Fróði keypti
eignir og yfirtók rekstur gamla
félagsin í árslok 2004.
Upp í almennar kröfur, sem
námu rúmri 501 milljón króna,
fengust greiddar rúmlega 43,3
milljónir, eða sem nemur um 8,6
prósentum. Forgangskröfum að
upphæð tæplega 5,9 milljónum
króna var öllum hafnað. - óká
Kröfur námu
507 milljónum
Nýliðinn febrúarmánuður var
sá annar veltumesti frá upphafi
hvað viðskipti með skuldabréf
varðar í OMX Kauphöll Íslands.
Velta með hlutabréf hefur hins
vegar ekki verið minni síðan í
nóvember árið 2006, að því er
fram kemur í tilkynningu Kaup-
hallarinnar.
Velta með skuldabréf nam 372
milljörðum króna í mánuðinum,
en á fyrstu
tveimur mánuðum ársins er
heildarvelta með skuldabréf
orðin 1.055 milljarðar. Jafngildir
það um 43 prósentum af heildar-
veltu síðasta árs.
Velta með hlutabréf nam hins
vegar einungis 133 milljörðum
króna í febrúar. „Mest voru við-
skipti með bréf Kaupþings (58
milljarðar) og Glitnis (28 millj-
arðar),“ segir í frétt Kauphall-
arinnar. Úrvalsvísitalan lækk-
aði um 10,6 prósent í mánuðin-
um. Mest lækkun var með bréf
365 (21,8 prósent), SPRON (21,1
prósent) og Bakkavör Group
(18,4 prósent). Bréf Century Alu-
minum og Atlantic Petrolium
hækkuðu í mánuðinum, um 26,3
og 6,1 prósent. - óká
Lítil viðskipti með
hlutabréf í febrúar
Skuldabréfavelta engu að síður í methæðum.
Íbúðum hér á landi fjölgaði um
næstum sextán þúsund á árunum
2000 til 2006 samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Á sama tíma fjölg-
aði landsmönnum um ríflega 24
þúsund.
Fjöldi íbúa í hverju íbúðarhús-
næði hefur dregist töluvert saman
undanfarin ár. Samkvæmt tölum
Hagstofunnar voru 372 íbúðar-
húsnæði á hverja þúsund íbúa
árið 2001, en árið 2006 voru þau
403 á hverja þúsund íbúa.
Íbúðarhúsnæði getur verið íbúð
af ýmsum stærðum, raðhús eða
einbýli. Íbúðum sem slíkum fjölg-
aði um næstum sextán þúsund á
árunum 2000 til 2006.
Sjá má á meðfylgjandi töflu að
vöxturinn var heldur jafn áður en
bankarnir hófu að lána til íbúða-
kaupa, um mitt ár 2004. Eftir
það hefur vöxturinn verið held-
ur meiri milli ára, en árin þar á
undan. Á sama tíma hefur hlut-
fall þeirra sem búa einir einnig
vaxið í samanburði við önnur fjöl-
skylduform. - ikh
Færri um
hverja íbúð
FJÖLBÝLINU FJÖLGAR Í hitteðfyrra var
191 íbúð í fjölbýlishúsi á hverja þúsund
íbúa. Þær voru 164 árið 2000.
„Ég geri ráð fyrir að niðurstaðan
liggi fyrir í vikunni,“ segir Árni
M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Þá skýrist hvort Kaupþing fær að
skrá hlutafé sitt í evrum.
Ársreikningaskrá heimil-
aði Kaupþingi, með skilyrðum,
að skrá hlutaféð í evrum. Það
kærði Kaupþing til fjármálaráð-
herra. Málið hefur verið í hönd-
um ráðherrans frá því milli jóla
og nýárs.
Heimildir Markaðarins í fjár-
málaráðuneytinu herma að þar
á bæ vilji menn vanda sig mjög.
Meðal annars hefur verið kall-
að eftir gögnum víða erlendis frá
svo ráðherrann geti metið hvort
heimila eigi Kaupþingi skráning-
una.
Samkvæmt lögum þurfa fjár-
málafyrirtæki að sækja um það
sérstaklega að skrá hlutafé sitt í
evrum. Það á ekki við fyrirtæki í
öðrum rekstri. - ikh
Fengu gögn að utan
ÁRNI M. MATHIESEN Reiknar með því að
ákveða í vikunni hvort Kaupþing fái að skrá
hlutafé sitt í evrum. MARKAÐURINN/GVA
Enn er nokkur undirliggjandi
verðbólga, að því er fram kemur
í Hagvísum Seðlabankans.
Seðlabankinn segir ennfremur
að verðbólga hafi aukist í febrú-
ar. Tólf mánaða verðbólga hafi
verið 6,8 prósent.
Þá hafi eftirspurn vaxið í jan-
úar, en þó hægar en áður. Ný-
skráningum bifreiða hafi hins
vegar fjölgað töluvert mikið.
Þeim hafi fjölgað um 60 prósent
samanborið við janúar í fyrra.
Enn sé nokkur eftirspurn eftir
vinnandi fólki. Nýskráning-
ar starfsmanna hjá Vinnumála-
stofnun hafi verið heldur fleiri í
janúar en í desember. Launavísi-
tala á ársgrundvelli hafi hækk-
að um 6,2 prósent, en þrátt fyrir
að það sé minnsta árshækkun frá
árinu 2004, þurfi að hafa í huga
að meirihluti starfsmanna á al-
mennum vinnumarkaði fékk ekki
launahækkun um áramót, þar
sem ekki var skrifað undir samn-
inga fyrr en í síðasta mánuði.
Seðlabankinn bendir enn
fremur á að væntingavísitala
Gallups hafi lækkað í febrúar
eftir að hafa staðið í stað frá því
í nóvember.
Vöruskiptin hafi verið óhag-
stæð um níu og hálfan milljarð
í desember, og aukist um ríflega
fjórðung frá sama mánuði árið
áður. Þá hafi útflutningsverð-
mæti sjávarafurða aukist. Einnig
hafi útflutingur á áli verið tölu-
verður. - ikh
Verðbólga eykst enn
BÍLAR BÍÐA Á HAFNARBAKKANUM
Nýskráningum bíla fjölgaði um 60 prósent í
janúar, samanborið við sama mánuð í fyrra.
Seðlabankinn segir að enn sé undirliggj-
andi nokkur verðbólga. MARKAÐURINN/GVA
60 daga til að létta
ábyrgð af Eimskip
Lán upp á tæpa 19 milljarða króna sem Eimskip ábyrgist
á að greiðast í dag. Lánið fylgdi þegar Excel var selt en
ábyrgðin sat eftir. Fær tvo mánuði til að endurfjármagna.
F J Ö L G U N Í B Ú Ð A
Fjöldi íbúða á hverja þúsund íbúa, auk
vaxtar milli ára:
2001 372 1,8%
2002 376 1,8%
2003 383 2,4%
2004 388 2,5%
2005 390 2,6%
2006 403 3,4%