Fréttablaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 12
MARKAÐURINN 5. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR12
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Björgvin Guðmundsson
skrifar
„Helstu markaðir fyrir þessar loðnuafurðir eru í
Japan og Rússlandi. Eftirspurnin er til staðar en
verðið fer eftir markaðsaðstæðum hverju sinni,“
segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, sem flestir
þekkja sem Binna í Vinnslustöðinni.
Loðnukvótinn var aukinn um 50 þúsund tonn í
fyrradag og gladdi það mjög stjórnendur þeirra
útgerða sem gera út á loðnu. Er það viðbót við þau
100 þúsund tonn sem þegar var búið að heimila að
veiða af loðnunni.
Sigurgeir Brynjar segir að langmesti hluti kvót-
ans fari í loðnuhrognaframleiðslu hjá Vinnslustöð-
inni. Fyrir það fæst hærra verð en ef loðnan er
bara sett í bræðslu.
„Á einfaldan hátt má segja að hver loðna er
skorin í tætlur. Með sérstakri aðferð eru loðnu-
hrognin tekin úr henni. Þetta eykur verðmæt-
in sem við erum að skapa. Það er samt erfitt að
segja til um hversu mikið við fáum fyrir þetta,“
segir Brynjar.
Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá Grein-
ingu Glitnis, segir að í fyrra hafi veiðst 308 þús-
und tonn af loðnu. Útflutningsverðmæti þess afla
var um 9,5 milljarðar króna. Ef skipting á milli
manneldis- og mjölvinnslu verður lík og í fyrra,
og í ljósi þess að afurðaverð á heimsmörkuð-
um er hátt og gengi krónunnar orðið hagstæðara
fyrir útflytjendur, gæti verðmæti 50 þúsund tonna
loðnukvótaaukningar nálgast tvo milljarða króna
að mati Valdimars.
Sigurgeir segir að tveir gæðaeftirlitsmenn frá
japönskum fyrirtækjum hafi verið að bíða eftir
loðnunni í Vestmannaeyjum frá því í janúar. Nú
fylgist þeir vel með framleiðslunni og gæði afurða
sem send eru til Japan. Kröfurnar eru miklar enda
loðnuhrogn dýr og sérstök vara. Sáralítið sé veitt
af loðnu í heiminum nema við Íslandsstrendur.
Aukning loðnukvóta
skilar sex milljörðum
Hrognin í loðnunni sem veiðist nú við Íslandsstrendur eru
verðmæt afurð. Helstu kaupendur eru Rússar og Japanar.
Vinsældir sushis í heiminum hafa aukið eftirspurnina.
STRANGT GÆÐAEFTIRLIT VIÐ HROGNAVINNSLU Kawa
Morita frá Japan fylgist vel með framleiðslunni í Vinnslustöðinni
þar sem Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson ræður ríkjum. Samþykki
Morita að kaupa hrognin sem eru framleidd er gengið frá pökkun
og hrognin sett í frystigeymslur. Sigurgeir segir að þá fari af stað
samningaviðræður um verð. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SIGRÚN NANNA KARLSDÓTTIR hefur
verið ráðin verkefnis-
stjóri í efnis-, líftækni-
og orkudeild Nýsköp-
unarmiðstöðvar. Hún
hefur lokið doktorsnámi
í efnisverkfræði frá
University of Michigan
og er með B.Sc. gráðu í véla- og
iðnaðar verkfræði.
DÓRA HLÍN GÍSLADÓTTIR hefur verið
ráðin í sérverkefni í orkumálum hjá
Nýsköpunarmiðstöð með starfsstöð á
Ísafirði. Dóra Hlín var að ljúka meistara-
gráðu í efnaverkfræði frá Kungliga tekn-
iska högskolan og er með B.Sc. í efna-
verkfræði frá HÍ.
ARNHEIÐUR ELÍSA INGJALDSDÓTTIR hefur
verið ráðin verkefnis-
stjóri hjá Evrópu mið-
stöð Impru. Arnheiður
er með M.Sc. gráðu í
„European Business
and Law“ frá Handels-
højskolen Århus
Universitet og B.Sc. í viðskiptafræði.
SELMA DÖGG SIGURJÓNSDÓTTIR hefur
verið ráðin verkefnis-
stjóri Impru á
Nýsköpunarmiðstöð,
Akureyri. Selma er með
M.Sc. gráðu í „Inter-
national Management“
frá Oxford Brookes University í Englandi
og B.Sc. í viðskiptafræði.
RÓSA SIGNÝ GÍSLADÓTTIR hefur verið
ráðin kynningarfulltrúi
Nýsköpunarmiðstöðvar.
Rósa er með M.Sc. í
málvísindum frá King’s
College London og B.A. í
málvísindum frá
Macalester College í Bandaríkjunum.
Impra á Nýsköpunarmiðstöð opnaði
nýverið útibú á Ísafirði og munu Arna
Lára Jónsdóttir og Sigríður Ólöf
Kristjánsdóttir sjá um starfsemi Impru
þar. Arna Lára er stjórnmálafræðingur
frá HÍ og er að ljúka meistaranámi í við-
skiptafræði við sama skóla. Sigríður
Ólöf er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði
og iðnrekstrarfræði frá Háskólanum á
Bifröst.
F Ó L K Á F E R L I
LÁRA N. EGGERTSDÓTTIR hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs
365. Hún tekur við
starfinu af Viðari
Þorkelssyni sem hverf-
ur til starfa hjá FL
Group. Lára hefur
starfað hjá 365 í tæp 7
ár. Hún hóf störf sem
rekstrarstjóri sjónvarps
hjá Íslenska útvarps-
félaginu í mars 2001, varð síðan aðstoð-
arframkvæmdastjóri rekstrarsviðs 2004
og hefur verið framkvæmdastjóri sjón-
varps og útvarps frá haustinu 2006. Lára
er hagfræðingur frá Háskóla Íslands.
S J Á V A R Ú T V E G U R
Það eru aðeins tvær leiðir með vörur til og frá Íslandi.
Fraktflug með Icelandair Cargo býður þér hraðan og hagkvæman flutningsmáta
með fraktflugi oftar en 200 sinnum í viku á milli Íslands, annarra Evrópulanda og Bandaríkjanna.
HVOR LEIÐIN HENTAR ÞÉR?
VIÐ FLJÚGUM YFIR 200 SINNUM Í VIKU
TIL EVRÓPU OG BANDARÍKJANNA
– hagkvæmur flutningsmáti
www.icelandaircargo.is
Auglýsingasími