Fréttablaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 5. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
S
kattahneykslið í Þýskalandi teygir
anga sína víða um lönd, nú síðast allt
frá Sviss til Cayman-eyja í Karíba-
hafi. Þýsk yfirvöld keyptu af upp-
ljóstrara upplýsingar um vel á annað
þúsund leynilega bankareikninga í smárík-
inu Liechtenstein, sem telst vera í hópi svo-
nefndra skattaparadísa.
Víst er að í Þýskalandi
einu hefur milljónum og
aftur milljónum evra verið
stungið undan skatti með því
að fela þær á leynireikning-
um. Ekki er útilokað að Ís-
lendingar eigi einhvern hlut
að máli, en skattyfirvöld
hér hafa óskað eftir upplýs-
ingum um hvort Íslending-
ar tengist leynireikningun-
um ytra. Bent hefur verið á
að ekkert sé ólöglegt við að
geyma fé á reikningum eða
í félögum ytra. Slíkra hluta
þurfi hins vegar að geta á
skattframtölum.
Upplýsingar um hvar
eignir liggja eru þó ekki
endilega alltaf á yfirborð-
inu.
Indriði H. Þorláksson,
hagfræðingur og fyrrver-
andi ríkisskattstjóri, hefur
á vefsíðu sinni birt grein-
ina „Eignarhald á íslenskum
fyrirtækjum og skattar“, þar
sem hann gerir grein fyrir
umfangsmikilli rannsókn
sinni á eignarhaldi skráðra
íslenskra fyrirtækja og
áhrifum þess á skattheimtu
að Íslendingar geymi hluta-
bréf sín í innlendum skráð-
um félögum í eignarhalds-
félögum sem skráð eru er-
lendis.
Samkvæmt rannsókninni
er tæplega þriðjungur eign-
arhaldsfélaga í Kauphöll-
inni í erlendri eigu. Þar af
eru tæp tíu prósent í Hol-
landi og ríflega tíu prósent
í Lúxemborg. Rúm fjögur
prósent eru geymd á lág-
skattasvæðum, eða skatta-
paradísum, eins og Bresku
Jómfrúa eyjum og eyjum á Ermarsundi. Sex
og hálft prósent eru geymd í öðrum löndum.
HRINGFJÁRFESTINGAR
Indriði vekur athygli á því að fjárfesting-
ar Íslendinga í tilteknum löndum hafi vaxið
mikið og bendir á að fjárfesting hér frá þess-
um sömu löndum hafi aukist til samræmis.
Hann birtir í grein sinni yfirlit yfir þessar
fjárfestingar. Samkvæmt tölum Seðlabank-
ans hafi bein fjármunaeign erlendra aðila hér
á landi í hittiðfyrra numið tæpum 540 millj-
örðum króna. Langstærstur hluti þessa komi
frá Lúxemborg, Hollandi og aflandssvæðum,
eða skattaparadísum. Hlutdeild Lúxemborg-
ar og Hollands, auk skattaskjóla, hafi aukist
frá því að vera tíu prósent fyrir fáum árum
og yfir 80 prósent í hitteðfyrra.
„Ólíklegt verður að teljast að fjármagn til
fjárfestinga hér á landi frá framangreind-
um löndum sé raunverulega upprunnið þar
og sé í eigu aðila sem þar eru heimilisfastir í
reynd,“ segir Indriði í greininni.
ÍSLENSKT ANNARS STAÐAR
„Í ljósi þessara upplýsinga úr skýrslu Seðla-
bankans má gera ráð fyrir að bein erlend
fjármunaeign hér á landi sé að stórum hluta
fjármunir í eigu íslenskra aðila sem flutt hafa
fé þangað og nota til að fjárfesta aftur á Ís-
landi,“ segir Indriði
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, benti á það ekki alls fyrir löngu að er-
lent eignarhald fyrirtækja í Kauphöllinni
hefði í september numið 41 prósenti og hefði
aukist mikið frá sama tíma í fyrra. Aukning-
in væri merki um aukna erlenda fjárfestingu
hérlendis þótt ljóst væri að mikið væri um að
Íslendingar geymdu eign sína í erlendum fé-
lögum.
ÞRIÐJUNGUR INNLENDRAR EIGNAR ERLENDIS
Athugun Markaðarins leiddi í ljós að í stærstu
fyrirtækjunum í Kauphöllinni væri að líkind-
um stór hluti erlendrar eignar í raun íslensk-
ur.
Svo nokkur dæmi séu tekin ætti Exista
B.V., félag sem skráð er í Hollandi, næstum
fjórðungshlut í Kaupþingi. Exista B.V. er að
öllu leyti í eigu Exista hér heima. Exista er
svo aftur í eigu Bakkabraedur Holding B.V.,
félags sem skráð er í Hollandi. Þá væri næst-
stærsti eigandi Kaupþings Egla Invest B.V.,
félag í eigu íslenskra aðila. sem einnig er
skráð í Hollandi.
Stærsti eigandi Alfesca er Kjalar Invest
B.V. sem er í eigu Íslendinga.
FL Group geymir þriðjungshlut sinn í Glitni
í hollenskum félögum.
Þetta staðfestist í athugun Indriða H. Þor-
lákssonar. Hann fór yfir hluthafalista skráðra
félaga en gekk skrefinu lengra. hann hafði
uppi á ársskýrslum félaga hjá Ársreikninga-
skrá. Í ársskýrslu á að geta um alla sem eiga
tíu prósenta hlut eða meira í félagi. Þannig
má komast lengra og komst hann þannig
til að mynda að því að félög sem skráð eru
til heimilis í skattaskjólum eigi hlutabréf í
skráðum íslenskum félögum.
Samkvæmt athugun hans eru um tíu pró-
sent hlutafjár í íslenskum félögum í eigu
aðila í Hollandi. Annað eins, og raunar lítil-
lega meira, í eigu aðila í Lúxemborg. En það
sem sjálfsagt vekur mesta athygli er að 4,1
prósent eignarhalds íslenskra skráðra fé-
laga er hjá félögum sem skráð eru á aflands-
svæðum, eða skattaparadísum.
A L F E S C A
Kjalar Invest B.V. 39,67%
Kaupþing banki hf. 19,10%
Glitnir banki hf. 7,31%
Straumur-Burðarás Fjárfest hf. 6,56%
Citibank 5,25%
Stafir lífeyrissjóður 5,12%
Gildi - lífeyrissjóður 4,40%
GLB Hedge 2,17%
Arion safnreikningur 1,29%
Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. 1,21%
B A K K A V Ö R G R O U P
Exista B.V 39,63%
Gildi - lífeyrissjóður 6,38%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 5,69%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 5,42%
Lauren & Alysia Investments (LU) 3,72%
Antonios Prodromou Yerolemou 3,45%
Stella Andreou 2,43%
Eleni Pishiris 2,43%
The Demos 2004 Settlement 2,43%
Panikos Joannou Katsouris 2,43%
E I M S K I P A F É L A G I Ð
Frontline Holding S.A. 33,18%
Fjárfestingarfélagið Grettir hf. 33,15%
Landsbanki Luxembourg S.A. 8,57%
Eyfirðingur ehf. 3,60%
GLB Hedge 2,71%
HF Eimskipafélag Ísl. (Eigin hlutir) 1,95%
Peter Gordon Osborne 1,48%
Stephen John Savage 1,48%
Stephen Geoffrey Dargavel 1,48%
Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. 1,47%
E X I S T A
Bakkabraedur Holding B.V. 45,21%
Kista-fjárfestingarfélag ehf. 8,94%
Gift fjárfestingarfélag ehf. 5,42%
Castel (Luxembourg) SARL 5,10%
Arion safnreikningur 5,08%
Sparisjóður Reykjavíkur/nágr. hf. 3,02%
Icebank hf. 2,47%
AB 47 ehf. 2,34%
Gildi -lífeyrissjóður 2,04%
Den Danske Bank A/S 2,03%
F L A G A G R O U P
Exista B.V 22,01%
Kaupþing banki hf. 19,23%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 11,33%
ResMed Inc. 6,62%
Eignarhaldsfélagið Stofn ehf. 5,04%
Kaupþing Ís-15 4,06%
BOP ehf. 3,54%
Helmke Ingrid Margret Priess 2,61%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,08%
Landsbanki Luxembourg S.A. 2,03%
G L I T N I R
FL Group Holding Netherlands B. 7,74%
FL GLB Holding B.V. 13,11%
Þáttur International ehf. 7,00%
Saxbygg Invest ehf. 5,00%
Jötunn Holding ehf. 4,85%
LI-Hedge 4,58%
Stím ehf. 4,30%
Glitnir banki hf. (Eigin hlutir) 3,61%
GLB Hedge 2,83%
Salt Investments ehf. 2,30%
K A U P Þ I N G
Exista B.V 23,02%
Arion verðbréfavarsla - Safnr/sænsk bréf 11,80%
Egla Invest B.V. 9,88%
Arion safnreikningur 5,02%
Gift fjárfestingarfélag ehf. 3,61%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 3,56%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 3,46%
Gildi - lífeyrissjóður 3,17%
Holt Investment Group Ltd. 2,30%
Kaupþing banki hf. (Eigin hlutir) 1,51%
L A N D S B A N K I Í S L A N D S
Samson eignarhaldsfélag ehf. 40,73%
Landsbanki Luxembourg S.A. 6,87%
Landsbanki Íslands hf.,aðalstöðv. (Eigin hlutir) 4,11%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,97%
LI-Hedge 2,88%
ÍslandsbankiFBA - safnreikningur 2,76%
LB Holding Ltd. 2,47%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 2,40%
Arion safnreikningur 2,39%
Smáey ehf. 2,21%
S T R A U M U R - B U R Ð A R Á S
Samson Global Holdings S.a.r.l. 32,89%
Landsbanki Luxembourg S.A. 23,80%
Straumur-Burðarás Fjárfest hf. (Eigin hlutir) 6,72%
Löngusker ehf. 3,75%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 1,81%
Kaupþing Ís-15 1,66%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 1,42%
Stafir lífeyrissjóður 1,01%
Straumur fj.fest.banki hf.-Safnreikningur 0,97%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 0,94%
Ö S S U R
William Demant Invest A/S 34,27%
Eyrir Invest ehf. 19,87%
Mallard Holding S.A. 8,87%
Vik Investment Holding S.a.r.l. 5,78%
ATP-Arbejdmarkedets Tillægspens 3,47%
Gildi - lífeyrissjóður 3,02%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 1,86%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 1,81%
Arion safnreikningur 1,81%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 1,52%
77 milljarðar króna geymdir í
Rannsókn Indriða H. Þorlákssonar, fyrrverandi ríkisskattstjóra, sýnir að stór hluti erlendrar hlutabréfaeignar í skráðum í
sem geymd eru í skattaskjólum nemur hátt í áttatíu milljarða íslenskra króna miðað við núverandi markaðsvirði. Ingima
að tæpir 400 milljarðar eru skráðir í Hollandi og Lúxemborg þaðan sem stutt er í skattaskjól.
INDRIÐI H. ÞORLÁKSSON Kannaði hvar eignarhlutir
í fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllina eiga upp-
runa sinn. Stór hluti er í eigu félaga með heimilsfesti
í Hollandi og Lúxemborg. Mikið er einnig geymt í
skattaparadísum.
T Í U S T Æ R S T U E I G E N D U R S K R Á Ð R A F É L A G A Í K A U P H Ö L L Í S L A N D S Þ A R S E M E R L E N T E I G N A R H A L D E R M E S T
H L U T F A L L E I G N A R A L L S
Hlutfallslegt eignarhald í félögum í
Kauphöll eftir uppruna:
Önnur Kauphallarfélög 10,3
Lífeyrissjóðir 6,3
Erlendir aðilar 31,5
- þar af í Hollandi 9,5
- þar af í Lúxemborg 11,5
- þar af á aflandssvæðum 4,1
- í öðrum útlöndum 6,5
Aðrir 51,9
S Á H E L M I N G U R F É L A G A
Þ A R S E M E R L E N D A
E I G N I N E R M E S T
Hlutfallslegt eignarhald í félögum í
Kauphöll eftir uppruna:
Önnur Kauphallarfélög 9,6
Lífeyrissjóðir 9,7
Erlendir aðilar 54,6
- þar af í Hollandi 19,9
- þar af í Lúxemborg 19,0
- þar af á aflandssvæðum 6,2
- í öðrum útlöndum 10,6
Aðrir 26,1
E R L E N D F J Á R M U N A E I G N
Bein fjármunaeign erlendra aðila á
Íslandi*
2004 2005 2006
Norðurlönd 13.059 15.405 18.506
Belgía/Lúx 53.756 70.657 178.016
Holland 379 117.127 211.767
Aflandssvæði 20.272 44.615 61.661
Annað í Evrópu 13.361 15.079 24.503
Utan Evrópu 26.619 33.668 43.955
Samtals 127.445 296.550 538.407
* Fjárhæðir í milljónum króna
Erlend félög í hópi
stærstu hluthafa
Rannsókn Indriða H. Þorlákssonar mið-
ast við tuttugu stærstu hluthafa í félög-
um sem skráð eru í Kauphöllinni. Hér er
birtur listi yfir tíu stærstu hluthafana í
þeim félögum þar sem erlent eignarhald
er mest. Samkvæmt grein Indriða er er-
lent eignarhald í þessum félögum, sem að
líkindum má rekja til íslenskra aðila, yfir
fimmtíu prósent. Um fimmtung má rekja
til Hollands, annað eins til Lúxemborg-
ar og yfir sex prósent til félaga sem eiga
heimilisfesti á aflandssvæðum. B.V. merk-
ir að félag sé skráð í Hollandi. S.a.r.l. tákn-
ar skráningu í Lúxemborg. Stundum þarf
að fara dýpra en í hluthafalistann sem
birtur er í Kauphöllinni til að finna hvar
félag er skráð. Indriði fór yfir ársreikn-
inga félaga sem eru skráðir eigendur fé-
laganna á hluthafalistunum.
Grein Indriða H. Þorlákssonar er að-
gengileg á vefslóðinni: http://web.
mac.com/inhauth/Indri%C3%B0i_H._
%C3%9Eorl%C3%A1ksson/Vefrit.html.