Tíminn - 14.01.1982, Blaðsíða 10
I Skiltíö i loftinu vlsar á nautasteikurnar og kjúklingana»en þvl miftur
fannst þá ekki arfta af þvi efta nokkru öftru I kæliborftinu þegar þessar
húsmæftur komu I hverfisbiiftina slna siftla dags. Þetta virtist étrúlega
algengt I verslunum I Sovét.
Ekki fór þaft svo aft Islenskir ferftamenn fyndu ekki kapftalismann I
Sovét. Bændur sætta sig ekki vift hift skráfta rlkisverft á afurftum þeim
er þeir framleifta á slnum elnkaskikum og hafa þvl komift upp bænda-
markafti í hverri borg þar sem hægt er aft kaupa úrval af ávöxtum,
grænmeti og ýmsu öftru sem ekki fyrirfinnst I almennum verslunum.
■ Þótt blokkir áþekkar þeim sem sjást fjærst á myndinni spretti vifta
upp I sovéskum borgum virðast þó ótriilega margir enn búa þar f
hreysum eins og sjá má framar á myndinni, en hún er tekin I miftborg
höfuftborgar Armeniu.
■ tslenskum ferftamönnum koma á óvart hinar miklu myndaraftír af
„fyrirmyndarverkamönnum”, sem prýfta innganginn aft flestum
sovéskum vinnustöftum. A þessari mynd var islenskum kollega þeirra
stillt framan vift þær sovésku.
■ Þarna hlýtur eitthvaft eftirsóknarvert að vera til sölu I tjaidinu.
itaunar voru þaft þó afteins nokkrir kálhausar og gúrkutittir scm aiit
þetta fólk var aft bifta eftir aft fá aft kaupa.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ eftir ferd til Sovétrlkjanna:
LÍFSVIÐHORF SOVÉSKRA YFIRVALDA ÞAU SÖMU
OG FRlALSHYGGIUMANNA A VESTURLðNDUM”
■ „Fleiri hafa nú rekift hross án þess aft hljóta nafn af”, var haft eftir
Trippa-Gisla i eina tlft og likt mátti segja um ferft Ásmundar Stefáns-
sonar, forseta ASt til Sovétrlkjanna á siftast liftnu sumri. En margir
munu sjálfsagt minnast þess fjaftrafoks er var I blöftum út af þeirri
ferft. A undanförnum árum hafa þó tugir verkalýftsforingja, úr öllum
stjórnmálaflokkum farift I álika heimsóknir til Sovétrikjanna án þess
aft þótt hafi tiltökumál.
Um viftræftur slnar vift sovéska ráöamenn átti Ásmundur vifttöl vift
fjölmiftla i sumar. En fréttamann Timans grunar aft fleiri leiki forvitni
á aft fræftast um ýmislegt frá þessari fjölmennu þjóft umfram þaö sem
fjölmiftlar færa okkur dags daglega, sem aftallega snýst um hin göfugu
orft Brésnjefs. forystugreinar Prövdu, afskipti af málum I Póllandi og
Afganistan og fjölskyldu Kortsnojs. Timinn fór þess þvl á leit vift As-
mund að hann svarafti nokkrum spurningum sem aft mestu afmarkast
vift kjör þau og aöra aftstöftu er hinn almenni Sovétborgari á vift aft búa
dags daglega varftandi vinnu fristundir og heimili. Og aö sjálfsögöu aft
nokkru um verkalýftshreyfinguna þar I landi.
Fyrst spurftum vift Ásmund aft þvi hvort eitthvaö hafi komið honum
öftru fremur á óvart af þvl er hann varft visari I Sovétrlkjunum?
Markmið eins
og jöfnuður
Sovétmönnum
fjarlægt
— 1 fyrsta lagi vil ég nefna aö
það kemur á óvart hve litið
maður i rauninni veit um daglegt
lif Sovétbúa. Þó mikið sé fjallað
um Sovétri"kini fréttumjtakmark-
ast umfjcSlunin við deilur stór-
veldanna, hernaðarstyrk og með-
ferð andófsmanna.
1 annan stað kemur á dvart hve
markmið eins og jöfnuður virðist
Sovétmönnum fjarlægt, bæði
félagslega og launalega. A
vesturlöndum gerum við, sem
teljum okkur sósialista, annars-
vegar kröfu um lýðræði og hins
vegar jöfnuð. Hvorugt virðist
þetta einu sinni á markmiða-
skránni i Sovétrikjunum. Að
þessu leyti sýnist m ér þvi sovéska
þjóðfélagið okkur enn fjarlægara
en við almennt gerum okkur
grein fyrir.
Kynni af ibúum Sovétrikjanna
takmarkast að sjálfsögðu af
tungumálaerfiðleikum, þar sem
fáirtala erlend mál. Þótt þeir séu
misjafnlega opnir fyrir nánum
viðræðum við Utlendinga fékk ég
þó m jög jákvæða mynd af fólkinu
i Sovétrikjunum. Það var sér-
staklega hlýlegt og kom það skýr-
ast fram gagnvart börnunum
okkar. Að ýmsu leyti virðist mun-
ur eftir landssvæðum, þannig að
mérfannst bæði léttara yfir fólki
og betri efnaleg afkoma suður við
Svartahaf og I Eistlandi, heldur
en i Moskvu. Efnahaginn miða ég
þá m.a. við vöruval i verslunum,
fatnað fólks og fleira i þeim dúr.
Hafa oftrú á
Vesturlöndum
— Ferftalangar I Sovétríkjunum
telja sig verfta vara vift nokkra
minnimáttarkennd gagnvart
Vesturlöndum og ýmsu þvi er
þaftan kemur? *
— Maður fékk þá tilfinningu að
þeirhafi oftrúá Vesturlöndum og
áli'ti flest þar miklu betra. 1 verk-
smiðjuheimsóknum kom t.d.
glöggt i ljós að helsta stoltið var
að geta sýnt vestrænan vélakost.
Það virtist sönnun þess að verk-
smiðjan væri vel búin.
— Vift heimkomuna frá Sovét
var eftir þér haft aft ferftin hafi
verift mjög gagnleg?
— Það sem ég tel fyrst og
fremst gagnlegt er að hafa sem
raunhæfasta mynd af þvi hvernig
málum er háttað hjá öðrum þjóð-
um. Sovétríkin eru stórveldi með
mikinn fjölda ibúa og þvi gagn-
legt að hafa einhverja hugmynd
um hvernig aðstæður þar eru. 1
ferðinni fékk ég upplýsingar um
ótalmargt, þó mikið vanti á að ég
hafi fengið svar við öllum mínum
spurningum, og ég kom þvi heim
fróðari en ég fdr.
Launajöf nuður
talinn trufla
uppbygginguna
— Fræddist þú um launa-
jöfnunarstefnu i' Sovét?
— Hún virðist alls ekki vera
fyrir hendi sem markmið í þjóð-
félaginu. Þvi má kannski skjóta
hér að, að forseti Alþýðusam-
bands Sovétrikjanna á 4. ára-
tugnum, Tomsky að nafni, var
settur af vegna þess að hann
sýndi ekki nægan skilning á þörf-
um þjóðfélagsins. Hannþótti gera
of miklar launakröfur og beitti
sér fyrir launajöfnun. Hvort-
tveggja var talið trufla iðnaðar-
uppbygginguna og siðan virðist
áhersla hafa verið lögð á að nýta
launamuninn til aukinna afkasta.
Allt er þarna unnið i sósialiskri
samkeppni, sem viröist felast i
þvf að vera sjálfur duglegri en
aðrir og vinna þar með að þvi að
viðkomandi verksmiðja skili
meiri afköstum en aðrar. Af-
kastahvetjandi launakerfi eru
alls ráðandi og launamunur tal-
inn æskilegur til aö ná fram aukn-
um afköstum. „Láta þá sem dug-
legir eru njóta sin”, eins og þeir
orða það gjarnan.
Lífsvidhorf sövéskra
yfirvalda þau sömu
ogfrjálshyggjumanna
á Vesturlöndum
Út af f yrir sig var það merkileg
reynsla að fá þá tilfinningu að
ráðandi straumar f lifsviðhorfum
yfirvalda i Sovétrikjunum hvað
þetta snertir virðast alveg þeir
sömu og fram koma í greinum og
viðtölum við frægustu forsprakka
frjálshyggjunnar á Vesturlönd-
um.
Sú umræða sem hér fer fram,
og kannski enn frekar á hinum
Norðurlöndunum, um slæm áhrif
launahvetjandi kerfa á velhðan
fólks og félagsanda á vinnustöð-
um, virðist alls ekki vera til
staðar i Sovétrikjunum. Þar
könnuðustmenn ekki við nein slik
vandamál. Einu vandamálin i
þessu sambandi voru sögð i til-
vikum eins og þegar hráefni vant-
ar til að vinna úr, þ.e. þegar eitt-
hvað gerist sem truflar akkorðið
eða bónusvinnuna.
Lágmarkskaupið um
700 kr. islenskar og
sfðan ræður bónusinn
— En hver eru þá launin?
— Lögbundið lágmarkskaup
yfir allt landið eru 70 rúblur á
mánuði (ca. 700 kr. islenskar).
Siðan ræður eðli starfsins og af-
köst þvi hvað bætist ofan á.
Meðallaun eru sögð um 170 rúbl-
ur. Einstaklingsmunur getur hins
vegar orðið mjög mikill, jafnvel
allt að tifaldur, eftir þvi hvaða
framleiðslugreinar er um að
ræða. Upplýsingar um launa-
dreifingu gátum við hins vegar
ekki fengið.
— Ferðamönnum koma líka
spánskt fyrir sjdnir myndaraöir
þær af fyrirmyndarverkamönn-
um sem prýfta marga sovéska
vinnustaði.
— Þessu fylgja greinilega
margvisleg forréttindi umfram
það að fá birta mynd af sér opin-
berlega og fá sig kynntan sem
fyrirmynd annarra. Hæsta stig
sem hægt er að ná, er titillinn
„Sovésk vinnuhetja”. Á einum
vinnustaðnum var okkur sagt að
þessu fylgdu m ,a. þau friðindi aö
fá að kaupa bilán þess að fara á
biðlista.komast endurgjaldslaust
i ferðalög og dvöl á vinsælum
sumardvalarstöðum og að sitja
fyrir um Uthlutun fbUða.
Að minu viti hlýtur þetta að
endurspegla þá mismunun og
þann ójöfnuð sem ástundaður er i
þjóðfélaginu. íraun verðurhanni
ýmsum atriðum miklu meiri en
hjá okkur, þar sem hann er ekki
aðeins launalegur heldur snertir
ekki siöur mörg félagsleg atriði.
Þessi mismunur snýr þó ekki
aðeins að þessum fyrirmyndar-
verkamönnum. Margs konar
félagsleg þjónusta er byggö upp
kringum vinnustaðina og verk-
smiðjumar og þá mjög mismun-
andi eftir afkomu þeirra. Þannig
virðist afkoma fyrirtækjanna
ráða bæði launagreiðslum og
hvað þau leggja til hinna félags-
legu þátta. Það á t.d. við um
byggingu ibúðarhúsnæðis, fri-
stunda og iþróttaaðstöðu, barna-
heimili/ kvikmyndahús, heilsu-
gæslu og jafnvel sjúkrahús,
ásamt verslunum sem geta þá
verið með mismunandi vöruvali.
Þeir sem best hafa
launin, hafa einnig
forgang að
flestu öðru
Útkoman verður sú að þeirsem
hafa það best launalega, hafa
einnig forgang að allflestum þátt-
um hinnar félagslegu aðstöðu
sem hlýtur á hinn bóginn að lita
merkiiega Ut i augum t.d. okkar
Norðurlandabúa. Afkoma fyrir-
tækisins og tekjur starfsfólks eiga
að endurspegla afköst og álag
starfsfólksins, en tækjabúnaður-
inn sem þjóðfélagið lætur i té og
aðgangur að hráefnum ráða án
efa i mörgum tilvikum öllu
meira.
Staða lífeyrisþega
bágborin
— Jafnast aðstafta manna þá
ekki meira á eftirlaunaaldrinum?
—Lifeyrisgreiðslur eru ákveðið
hlutfall af launum, algengast
50%. Lágmarkslifeyrir er þó 45
rUblur á mán., sem er þá 64% af
lágmarkslaunum. Það virðist þvi
enn lægra hlutfall en hjá okkur,
en hér nema ellilaun, tekjutrygg-
ing og heimilisuppbót ein-
staklings nú 72% lámarkstekna
fyrir fulla dagvinnu og 81%
lægsta taxta. Við erum þarna að
tala um miklu fátækara þjóðfélag
en okkar, þannig að staða lif-
eyrisþega i Sovétrikjunum virðist
býsna bágborin.
Lifeyrisaldur er á hinn bóginn
verulega lægri en hjá okkur.
Karlar komast á lifeyri 60 ára og
konur 55 ára, og bæði aldurs-
mörkingeta lækkaðhjá þeimsem
eru i sérstaklega erfiðum störf-
um. Mismunur kynjanna er
viðurkenning þjóðfélagsins á þvi
að konur séu útslitnar fyrr en
karlar, m.a. af tvöföldu vinnu-
álagi og kannski eina formlega
viðurkenningin á þvi aö kynja-
misrétti sé til staðar.
Telja heimilið
hinn eðlilega
vettvang konunnar
— Má skilja þaö svo aft á skorti
um jafnrétti kynjanna í þessu
landi byltingarinnar?
® Óhætt mun aft fullyrfta aft fáar þjóftir taka höfftinglegar á móti
gestum sinum en Sovétmenn. Þessi mynd var tekin á nýju hóteli I
Moskvu i sumar, sem er I eigu Verkalýftssambands Sovétríkjanna.
Gestirnir eru Guftríftur Eliasdóttir úr Hafnarfirfti, Asmundur
Stefánsson, forseti A.S.Í. og Karvel Pálmason, alþm. Fremst til
vinstri er túlkurinn Valdimar, sem talar islensku nánast eins og fæddur
tslendingur, en á þann fremsta til hægri vantar okkur nafn.
— Mér virðist ljóst að sú
kvennabarátta sem við þekkjum
á Vesturlöndum siðustu 10-15 árin
hafi aldrei borist þarna austur
fyrir. Þau viðhorf komu greini-
lega i ljós hjá öllum er við töl-
uðum við,að heimilið sé hinn eðli-
legi vettvangur konunnar, enda
virðist verkaskiptingin á heimil-
unum áþekk því sem tiðkaðist
hérá landi fyrir kannski 30 árum.
Þetta viðhorf kemur þeim mun
meira á óvart þar sem nær allar
konur vinna útiog svo hefurverið
i Sovétrikjunum i áratugi. Þjóðin
er langt á eftir okkur efnahags-
lega og i skipulaginu hefur li'til
áhersla verið lögðá allskyns tæki
tilað létta heimilisstörfin. Konur
i Sovétrikjunum eru þvi bæði
vegna verkaskiptingarinnar og
verri aðstöðu á heimilunum,
undir mflriu meiri þunga tvöfalds
vinnuálags en hér.
Barnaheimilisþjónusta virðist
hins vegar stórum almennari en
hér hjá okkur og e.t.v. liða börn
þvi minna vegna útivinnu beggja
foreldra þar en hér.
— Ráftamenn i Sovét lfta stöftu
konunnar sennilega öftrum aug-
um?
— Eina svariö við spurningum
um þessi mál er að jafnrétti riki.
Enginn ábyrgur aðili fæst til að
viðurkenna að nokkur munur sé á
afstöðu til kynjanna hvorki er
varðar þátttöku i stjómmálum né
að umlaunamun sé að ræða.Hins
vegar er munurirm augljós i
reynd. Starfaskiptingin er, eins
og hjá okkur, að konur fara I þau
störf sem minna gefa af sér. Þær
eru yfirgnæfandi i léttaiðnaðinum
og þjónustugreinunum þar sem
kaup er mflriu lægra en i þunga-
iðnaðinum.
E.t.v. kemur þetta ennþá skyr-
ar i ljós hjá háskólamönnum.
Konur eru i yfirgnæfandi meiri-
hluta i lækna- og kennarastétt,
sem jafnframt eru algjörar lág-
launastéttir i þjóðfélaginu. Við
spurningum um þessi mál eru
svörin á eina lund. „Hver og einn
fær það sem hann á að fá með
réttu, enginn mismunur liðst”.
Aðeins ein kona
ráðherra á 60 árum
Jafn ákveðið er þvi neitað að
konum sé erfiðara að komast
áfram í starfi eða stjórnmálum.
Þó hefur t.d. aðeins ein kona, hin
fræga Furtseva, komist i ráð-
herrastól i Sovétrikjunum siðustu
60 árin, að þvi er ég kemst næst,
og svipað er að segja um önnur
valdamikil embætti.
Ekki veit ég hvað Sovétmenn
tala i sinn hóp, en svo virðist sem
ekki sé almenn opinber umræða
um jafnréttismál i landinu. Um-
ræður eru forsenda breyttra við-
horfa, félagslegra breytinga og
þvi er það alvarlegt ef sú tilfinn-
ing min er rétt að ekki sé mikið
rætt um þessi mál. Það sýnist
raunar eiga við um flest vanda-
mál i sovésku þjóðfélagi að þau
séu feimnismál.
— Þú minntist áðan á barna-
heimilin. Eru þau til fyrirmynd-
ar?
Um þriðjungur barna
á barnaheimilum
— Okkur var sagt að öll börn
hafi aðgang aö bamaheimilum,
annað hvort á vegum fyrirtækj-
anna eða rikisins. Þá vaknaði sú
spurning, af hverju fyrirtæki séu
að verja sinu ráðstöfunarfé til
barnaheimila ef rikið gerir það að
öðrum kosti? Þvi var til svarað,
að fólk spyrjiekki aðeins um laun
heldureinnig um félagslega þjón-
ustu. En telji fólk það skipta
mflriu máli að fyrirtækið bjóði
upp á þessa þjónustu, gefur það
þá ekki til kynna að erfiðleikar
séu á að fá þá þjónustu annars-
staðar? Við þeirri spurningu fékk
ég ekki svar.
Mér skilt að raunverulega sé
ekki nema um þriðjungur bama i
Sovétrikjunum á barnaheimilum.
Þykir mér liklegt að ömmurnar
skipti þar miklu, þær komast
fljótt á lifeyri en tæplega nægi-
legan til þess að lifa af honum og
búa þvi oft hjá bömum si'num.
Það berlika aðhafaihuga að stór
hluti Sovétmanna býr enn i sveit-
um.
20-35 börn á hverja
fóstru og 35-40
um hvern kennara
— En hvaft um aðbunaðinn á
barnaheimilunum?
— Það er nokkuð erfitt að átta
sig á þvi. Okkur voru sýnd falleg
og vel búin barnaheimili. A hinn
bóginn var okkur tjáð af vara-
borgarstjóra Moskvu, að almennt
væm 20—35 börn um hverja
fóstru. Svipað er með skólana,
þar eru sögð 35—40 börn um
hvern kennara.
— Skattar skipta Hka miklu
máli um kjör fóiks. Eru beinir
skattar ekki mjög Iágir i Sovét-
rikjunum?
— Á fundi i Eistlandi var okkur
sagt, að af fyrstu 100 rúblunum
séu greiddar 8,7 rúblur og siðan
13% af þvi sem umfram er. Það
þýðir á hinn bóginn að almennt
láglaunafólk borgar þar sist
minna hlutfallslega i skatta en á
íslandi.
Fimmta hver
fjölskylda enn
í sambýli með öðrum
— Sovétmenn státa sig gjarnan
af þvi aft mikift sé byggt þar af
ibufta rhúsnæ fti. Aftrir segja
margt fólk búa j>ar i örgustu
hreysum vift mikil þrengsli?
— Sovétmenn viðurkenna að
húsnæðismálin séumjög erfið. En
þvimá heldur ekkigleyma —sem
ég held að við gerum okkur vart
nokkra grein fyrir — hve ógnar-
legar afleiðingar styrjöldinhafði i
þessu landi. Talið er að um 10.
hver Sovétmaður hafi farist, auk
óskaplegrar eyðileggingar á
mannvirkjum, þannig að nánast
hafi þurft að reisa allt úr rúst.
Markmiðin i byggingamálum
endurspeglast kannski nokkuð af
þvi er fram kom á fundi með
aðstoðarborgarstjóra Moskvu.
Hann sagði að stefnan fram yfir
1960 hafi fyrst og fremst verið sú,
að koma hverri fjölskyldu ieigið
herbergi. Þá loks var hægt aö
fara að rökræða umað koma fjöl-
skyldum i eigin Ibúöir. Hann
sagði að um fimmta hver
fjölskylda væri enn i sambýli, þ.e.
hefði eitt herbergi, en siðan
sameiginlegt eldhús og baðher-
bergi með annarri eða öðrum
fjölskyldum.
í Sovétrikjunum munu byggðar
rúmlega tvær milljónir ibúða á
ári, um 50 fermetrar að stærð að
meðaltali.Efviðumreiknum fjöl-
dann til islenskra aðstæðna sam-
svarar hann tæplega tvö þúsund
ibúðum á ári hér á landi. Undan-
farinárhöfum viðbyggtrúmlega
tvö þúsund ibúðir á ári og þær eru
að meðaltalitvöfaltstærrien þær
sovésku.
Nánast sorglegt
að koma í verslanir
í Sovét
— En hvaft þá meft hina al-
mennu dagiegu nauftsynjar?
— Það er nánast sorglegt að
komai verslanir iSovétrikjunum,
sérstaklega matvöruverslanir, og
sjá hve takmarkað vöruvalið er.
öllum virðistlika bera samanum
að skortur er á ýmsum sviðum.
Jafnvel segirsagan, að sjái menn
einhvers staðar biðröð þá skjóti
þeirséri'hana vegna þess að það
hljóti að vera eitthvað gott á hin-
um endanum. Ég fékk þá tilfinn-
ingu, að ástandið væri kannski
ekkiósvipaðþvisem maður hefur
heyrt að það hafi verið hér á
árunum eftir strið, þegar knappt
var um flesta hluti án þess að um
neyð væri að ræða. Einhæfnin i
mat og almennur skortur hefur þó
aldrei verið hér á siðari árum
svipaður og þar virðist vera.
Skipulaginu ábóta-
vant á
mörgum sviðum
— Þú talaðir áðan um Sovét-
rikin sem fátæka þjóft. A hinn
bóginn skilst manni aft þau séu
mjög rík af margskonar auftlind-
um. Vantar ekki eitthvað upp á aft
skipulagift sé nógu gott?
— Vist er algengasta ástæðan
fyrir fátækt þjóða, að þær nýta
ekki sitt fólk og þau gæði er þær
hafa til ráðstöfunar nógu vel. Og
varla er nokkur vafi á þvi að
Sovétmenn gætu nýtt vinnuafl sitt
betur. Nærtækasta dæmið fyrir
ferðamenn er kannski að sjá kon-
ur sitja á vakt allan sólarhringinn
á hverri einustu hæð hvers hótels,
einungis til að afhenda og taka á
móti lyklum. Eftir þvi sem lesa
má i þeirra eigin skýrslum, eru
afköst i sovéskum iðnaði miklu
minni en i tilsvarandi greinum á
Vesturlöndum. Liklega er
meginástæða þess hve langt þeir
eru á eftir Vestur Evrópuþjóðum
efnalega séðsú, hvað skipulaginu
virðist ábótavant á mörgum
sviðum.
Kerfid fengid endan-
lega gædastimpil
— Telur þú aft Sovétborgarar
ITti þann djöfnuð sem þú áðan
varst að lýsa öftrum augum en
vift, efta aft þeir fáiengu um ráðift
varftandi breytingar I jafnaftar-
átt?
— Það er augljóst að kerfið er
ekki tilumræðu i Sovétrikjunum.
Það hefur fengið endanlegan
gæðastimpil og annmarkar kerf-
isins eru afgreiddir sem fram-
kvæmdamistök, ef á annaö borð
er viöurkennt að eitthvað sé aö.
Venjulegur Sovétborgari hefur
tæplega möguleika á að koma
umkvörtunum um ágalla kerfis-
ins á framfæri. Þá óánægju
verður hann án efa að byrgja inni.
Og ég heid að fólk hljóti að búa við
þá tilfinningu að það séu litlir
gerendur um ástand þjóðfélags-
ins.
Innganga í flokkinn
lík því að ganga i
klaustur i eina tíð
— Ýmsir vilja meina aft flokks-
mönnum i' Kommúnistaflokknum
gangi betur aft koma sér áfram og
njóta ýmissa gæöa umfram aftra,
cn þó skilst manni aft aöeins um
15% borgaranna séu i flokknum?
— Til þess að komast i flokkinn
þarffólk að sýna sig verðugt þess
að ganga i' þann fyrirmyndahóp,
sem flokksmenn eiga að vera. A
vissan hátt sýnist manni inn-
ganga i' flokkin vera svolitið lik
þvi sem var að ganga i klaustur i
gamla daga. Það er sótt um
inngöngu og slðan tekur við heils
árs umþóttunar- eða reynslutimi,
þar sem fylgst er vel með fólki.
Þetta á ekki bara við um árangur
istarfi heldureinnig um hegðun i
einkalifi. Kommúnistaflokkurinn
er ráðandi afl þjóðfélagsins. Þeir
sem orðnir eru fullgildir fldcks-
menn hafa sýnt sig trausts verða
á ýmsan hátt, sem án efa er for-
senda frama á ýmsum sviðum.
Meginhlutverk
verkalýðssamtak-
anna ad auka afköst
og framleiðni
— Ef vift snúum okkur þá aft
verkalýftssamtökunum I Sovét-
rikjunum, aft hvafta lcyti þau eru
frábrugftin þvi sem viö þekkjum
og hvort vift höfum kannski eitt-
hvaft af þeim aft læra?
— Verkalýðssamtökin hafa
beina aðild að ýmsum félagsleg-
um þáttum, svo sem trygginga-
kerfinu, lifeyriskerfinu, eftirliti
með aðbúnaði á vinnustöðum og
heilsugæslu auk þes sem þau reka
orlofsbúðir og félagsheimili,
kvikmyndahús, bókasöfn o.fl. A
ýmsum þessum sviðum starfa
verkalýðssamtökin eiginlega sem
deildur úr stjórnarráðinu, sem
hluti framkvæmdavaídsins.
Að þvi marki sem ákvöröunar-
vald á þvi sem gerist innan fyrir-
tækjanna er hjá þeim sjálfum,
sem greinilega er ekki nema að
takmörkuðu leyti I svo miðstýrðu
þjóðféiagi, er verkalýðsfélagið
með I umræðunni en valdið þó að
mestu hjá forstjóranum. Starf-
semi verkalýðsfélaganna i fyrir-
tækjunum einkennist af þvlað eitt
meginhlutverk verkalýðssamtak-
anna er talið vera, aö vinna að
aukinni framleiðni og auknum af-
köstum, þ.e. aö vera aöili að upp-
bygginguhins sovéska þjóðfélags
og þeirra afkasta sem á aö vera
undirstaða þess. Þetta hlútverk
er tekið mjög alvarlega. Verka-
lýðsfélögin lita þannig á sig sem
skipuleggjendur hinnar sósial-
isku samkeppni, sem þeir kalla
svo.
... og þvf uppeldis-
hlutverki er Lenln
ætlaði samtökunum
Frá upphafi hefur það jafn-
framt verið hlutverk verkalýðs-
samtakanna að sinna þvl ákveðna
uppeidishlutverki sem Lenin á
sinum tima ætlaði samtökunum,
þ.e. að ala fólk upp i skilningi á
þörfum þjóðfélagsins. Þvi er
verkalýðshreyfingin mjög um-
svifamikil f útgáfustarfsemi,
skemmtanaiðnaðiog fleiru þar að
lútandi.
Torveldara er að fá yfirlit um
jiað hvernig hreyfingin stendur aö
kjaramálum eins og viö þekkjum
þau. Rammasamningar eru gerð
ír fyrir allt þjóðfélagið, þar sem
störf eru flokkuð og réttlætinu
fullnægt. Eftirleikurinn er siðan
að ganga frá bónuskerfinu i við-
komandifyrirtækjum. Agreining-
ur sem upp kemur á vinnustöðum
um launakjör fer til næsta þreps
fyrir ofan, þ.e. til svæðasam-
banda og ráðuneytisskrifstofa.
Til þess að fara i verkfall þarf
staðfestingu eða heimild frá yfir-
stjórn samtakanna. Verkalýðsfé-
lög eru miðstyrð og verkföll nán-
ast aðeins fræðilegur möguleiki.
Lenín greinilega
„hinn eini sanni”
— Ófært væri aft gleyma sjálf-
um Lenin I þessu spjalli. Hvaft
finnst þér t.d. um öll Lenin-stræt
in, Lenín-stofnanirnar, Lenin
stytturnar og sennilega þúsuhdir
af Lcnin-myndum er allstaðar
urftu á vegi þinum á götum úti
jafnt sem vinnustöftum, skólum
og jafnvel f hverri stofu á barna-
heimilunum?
— Ég freistast eiginlega til að
draga af þessu þá ályktun, að i
öllum þjóðfélögum sé viss trúar-
þörf og að i þróuðum þjóðfélögum
séerfittað viðhalda öðrum trúar-
brögöum en eingyöistrú. Þar
viröist ekki svigrúm nema fyrir
einn guð.
t Sovétrikjunum er Lenin
greinilega „hinn eini sanni”. Að
sjálfsögðu reikna ég ekki með að
menn krjúpi á kné og biðji til
hans. En hann er þessi allsherjar
fyrirmynd. Miðað við það sem ég
hef lesið mun alveg óþekkt aö
myndir af honum séu óvirtar t.d.
með þviað teiknað sé á hann ann-
arskonar skegg, sem alsiða er að
gert sé við plaköt og myndir er
hanga uppi á almannafæri, hvar
sem er i heiminum. Þetta virðist
benda til þess að trúarbrögðin séu
sterk. Að það sé ekki aðeins að
þarna eigi að hanga mynd af Len-
in, heldur að þessar myndir séu
virtar af almenningi.
Algengasta stelling Leni'ns á
þessum styttum og myndum er að
hann hefur aðra hönd fram rétta.
Einhversstaðar las ég að itölsk-
um blaöamanni hafi oröið það á
að skrifa, að öllum er þekktu til i
Moskvu væri augljóst hvaö Lenin
væri að gera. Hann væri að veifa
leigubil, en þá mun ákaflega erf-
itt að fá I Moskvu. Þetta mæitist
afar illa fyrir og viðkomandi var
fljótlega sendur heim til sin.
.