Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
27. apríl 2008 — 114. tölublað — 8. árgangur
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
12
VEITINGAHÚS. „Já, staðurinn mun
hugsanlega heita Gleðibankinn,“
segir Geiri á Goldfinger. Gengið
hefur verið frá því að Geiri muni
leigja húsnæði í Austurstræti 5,
þar sem Kaupþing hefur verið
með aðalútibú sitt, undir veitinga-
stað. - jbg / sjá síðu 30
Geiri á Goldfinger:
Opnar banka
BARIST VIÐ ELDINN Það gekk á ýmsu á æfingu hjálparsveitanna í gær þegar þær sviðsettu flugslys á Vestmannaeyjaflugvelli. Um þrjú hundruð manns tóku þátt í æfing-
unni. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SLYSAVARNIR Um þrjúhundruð
manns í Vestmannaeyjum og
víðar tóku þátt í sviðsetningu
flugslyss á Vestmannaeyjaflug-
velli í gær. Hjálparsveitir æfðu
viðbrögð við því þegar fjörutíu
farþega flugvél hlekkist á í lend-
ingu með þeim afleiðingum að
eldar kvikna og fjöldi fólks er í
bráðri hættu.
„Þessi æfing nýtist ef hjálpa
þarf fólki eftir hópslys,“ segir
Hrafnhildur Brynja Stefánsdótt-
ir, upplýsingafulltrúi Flugstoða,
sem stóðu að æfingunni ásamt
Landhelgisgæslunni, Almanna-
vörnum, Neyðarlínunni, Rauða
krossinum, björgunarsveitum,
slökkviliðssveitum, heilbrigðis-
starfsfólki og fjölda annarra sem
starfa við neyðarhjálp.
Æfingin tók um þrjár klukku-
stundir og þótti takast vel til. „Við
verðum alltaf betur og betur
undir slys búin,“ segir Hrafnhild-
ur. „Krakkar sem voru leikarar í
síðustu æfingu sögðu að þessi
æfing hefði gengið miklu hraðar
en hin.“
Í dag fer fram rýnifundur þar
sem farið verður yfir hvernig til
tókst. - sgj
Hjálparsveitir æfðu viðbrögð í flugslysaæfingu á Vestmannaeyjaflugvelli:
Þrjúhundruð manns sviðsettu flugslys
Áframhaldandi norðanátt Það
er ekki vorlegt um að litast á norð-
anverðu landinu í dag, hiti ofan og
neðan við frostmarkið, slydda eða
éljagangur og norðanátt, sunnan-
lands kólnar líka en verður þurrt að
mestu.
VEÐUR 4
-2
4
4
0
1
16
BARIST UM FLUGVÖLL Í MIÐRI BORG
Tempelhof-flugvöllur var gerður árið 1923 og hefur
þjónað Zeppelin-förum, nasistum og bandamönnum.
Berlínarbúar kjósa í dag um þennan sögufræga völl.
STJÓRNSÝSLA Snurða er hlaupin á
þráðinn varðandi fyrirhugaða sölu
borgarinnar á lóð við hlið Íslenskr-
ar erfðagreiningar fyrir 260 millj-
ónir króna.
„Það er ágreiningur um túlkun
og við leggjum áherslu á að ná friði
um málið og sameiginlegri niður-
stöðu,“ segir Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri.
Sagt var frá því í Fréttablaðinu
14. apríl að Reykjavíkurborg væri
að semja við eiganda byggingar
Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE)
um sölu á sjö þúsund fermetra lóð
næst líftæknifyrirtækinu fyrir 260
milljónir. Starfsmenn fram-
kvæmda- og eignasviðs borgarinn-
ar höfðu þá gengið frá samkomu-
lagi um viðskiptin. Þau voru sögð
byggjast á samningi sem gerður
var árið 2000 þegar ÍE var úthlutað
lóð í Vatnsmýrinni á Sturlugötu 8.
ÍE seldi fasteign sína seinna til
félagsins S8 ehf. Sölunni á lóðinni
hefur verið frestað. Í Fréttablað-
inu á föstudag var greint frá því að
Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands, hefði gert alvar-
legar athugasemdir við sölu nýju
lóðarinnar í bréfi til formanns
borgarráðs, Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar. Sagði rektor skólann í þörf
fyrir rými og að óviðunandi væri
að úthluta umræddri lóð án sam-
þykkis háskólaráðs. Telur Háskól-
inn borgaryfirvöld hafa á sínum
tíma lofað skólanum lóð á þessum
stað. Þessu hafa embættismenn
borgarinnar ekki verið sammála.
Borgarstjóri segir það vera sér
mikið kappsmál að málið leysist í
góðri sátt við Háskóla Íslands. „Það
eru ágreiningsefni samkvæmt
lagatúlkun og fleiru sem þarf að
fara betur ofan í. Borgin ætlar að
vanda sig svo það sé alveg skýrt að
það sé ekki hægt að vefengja það
sem hún gerir,“ segir Ólafur F.
Magnússon.
Kaupandi lóðarinnar átti að vera
S10 ehf., sem er nýtt félag í eigu
sömu aðila og eiga S8. Í samkomu-
laginu sem unnið hefur verið
kemur fram að ætlunin sé annars
vegar að gera viðbyggingu við hús
ÍE og hins vegar að byggja nýtt
sjálfstætt hús. Samtals á bygging-
armagnið að vera 4.900 fermetrar
ofanjarðar. Ekki náðist í Jóhann
Halldórsson, forsvarsmann S8, í
gær. - gar
Fresta 260 milljóna
sölu í Vatnsmýrinni
Borgarstjóri segir að 260 milljóna króna sölu nýrrar lóðar við hlið Íslenskrar
erfðagreiningu sé frestað. Háskóli Íslands telur sig hafa rétt á lóðinni en emb-
ættismenn borgarinnar eru ósammála. Borgarstjóri vill sátt við Háskólann.
Borgin ætlar að vanda sig
svo það sé alveg skýrt að
það sé ekki hægt að vefengja það
sem hún gerir
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON
BORGARSTJÓRI
FY
LG
IR
Í
D
A
G
ÍÞRÓTTIR 24
BALLIÐ ER EKKI BÚIÐ
Chelsea vann drama-
tískan sigur á Man. Utd
í gær og er nú jafnt
United að stigum.
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MAÍ 2008
FRAMTÍÐARBO
DRAUMAHELGI Í BARCELONABORGIN MATREIDD AÐ HÆTTI AUÐAR JÓNSDÓTTUR
VEISLA FYRIRAUGUN Í KÖBENÞRÍR DAGAR TILEINKAÐIR ARKITEKTÚR OG HÖNNUN Í MAÍ
VEÐRIÐ Í DAG