Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 6

Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 6
6 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR BANDARÍKIN, AP Tilraunir Baracks Obama til að beina athyglinni frá harðvítugum ummælum fyrrver- andi prests síns hafa borið tak- markaðan árangur. Á föstudaginn vakti presturinn sjálfur á ný athygli á þeim í viðtali þar sem hann sagði þau hafa verið slitin úr samhengi. Obama þarf nú að ná yfirburða- sigri í næstu prófkjörum Demó- krataflokksins, sem verða í Indi- ana og Norður-Karólínu þriðjudaginn 6. maí. Að öðrum kosti gætu ofurkjörmennirnir svo- nefndu misst trúna á honum. Hillary Clinton tókst að ná góðum sigri í Pennsylvaníu og tryggði sér þar með framhald sitt í prófkjörsbaráttunni eins lengi og hún sjálf telur sér stætt. Ummæli prestsins Jeremiahs Wright spila þar nokkra rullu. Repúblikanar í Norður-Karólínu eru farnir að sýna auglýsingar með þessum illræmdu ummælum til að draga úr trúverðugleika frambjóðenda Demókrataflokks- ins til ríkisstjóraembættis þar, en þeir hafa lýst yfir stuðningi við Obama sem forsetaefni flokksins. Í auglýsingunum er Obama sagður „of mikill öfgamaður fyrir Norður- Karólínu“. Wright segist sjálfur, í fyrsta viðtalinu sem hann gefur síðan málið komst í hámæli, vera vanur því að vera í andstöðu við kerfið, en nú hafi gömul ummæli úr stól- ræðum verið tekin úr samhengi og notuð gegn sér: „Það er nýtt fyrir mig.“ Obama er engu að síður spáð nokkuð öruggum sigri í Norður- Karólínu. Þar er kosið um 115 landsfundarfulltrúa. Honum er einnig spáð öruggum sigri í Indi- ana, þar sem kosið er um 72 full- trúa. Obama hefur nú þegar tryggt sér atkvæði 1.724 fulltrúa á lands- fundi Demókrataflokksins í lok ágúst, en Clinton hefur vísan stuðning 1.593 fulltrúa, samkvæmt talningu fréttastofunnar Associat- ed Press. Til þess að hljóta útnefningu flokksins þarf atkvæði 2025 full- trúa. Hvorugt þeirra getur tryggt sér nægan fjölda atkvæða í próf- kjörum og þarf því að treysta á stuðning ofurfulltrúanna svo- nefndu, nærri 800 þingmanna og forystumanna flokksins sem ganga óbundnir til atkvæða á landsfund- inum. gudsteinn@frettabladid.is Obama reynir að halda í atkvæðin Nú er það Barack Obama sem þarf að sanna sig með því að vinna með miklum mun í næstu prófkjörum til að detta ekki út úr baráttunni gegn Hillary Clinton. BLAÐAMANNAFUNDUR Á BENSÍNSTÖÐ Barack Obama er nú á fleygiferð um Indiana að safna atkvæðum. Á föstudaginn hélt hann blaðamannafund á bensínstöð í Indianapolis. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Einn eða fleiri skemmdarvargar brutu átta rúður á Ísafirði laust eftir miðnætti aðfaranótt laugardags. Lögregla leitar nú vitna að skemmdarverkunum. Fyrst voru tvær rúður brotnar í strætisvagnaskýli og því næst tvær rúður í verslunarmiðstöð- inni á Skeiði. Tvær rúður voru brotnar í sendiferðabifreið á bílastæði verslunarmiðstöðarinn- ar, hliðarspegill á bifreið sem stóð við Árholt og afturrúða á bifreið við Móholt. Vitni eru beðin um að hafa samband við lögregluembættið á Vestfjörðum. - sgj Lögregla leitar vitna: Glerbrjótur gengur laus HEILBRIGÐISMÁL „Það er í raun ekki tekin ákvörðun um höfnun eða útgáfu á starfsleyfi heldur er ákveðið að auglýsa að nýju til tólf ára,“ segir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðis- eftirlits Suðurlands um afgreiðslu heilbrigðisnefndar Suðurlands á starfsleyfisskilyrðum Lýsis vegna fiskþurrkunar í Þorlákshöfn. Innsend erindi og starfsleyfi voru tekin fyrir í nefndinni síðast- liðinn þriðjudag. Í bókun nefndar- innar kemur fram að í ljósi þess að úrskurður umhverfisráðherra frá 10. desember 2007 er einungis til 12. júní næstkomandi samþykki nefndin að auglýsa starfsleyfið að nýju með gildistíma til 12 ára. Sé það í samræmi við samræmdan gildistíma starfsleyfa allra heil- brigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Bókunin tiltekur einnig að þær innsendu athugasemdir sem þegar hafa borist vegna starfs- leyfis Lýsis hf. muni nefndi fara yfir og meta eftir endurauglýs- ingu. Starfsleyfisskilyrðin þurfa að liggja frammi til auglýsingar í fjórar vikur. Ákvörðun um hvort Lýsi fái starfsleyfi eftir að núver- andi leyfi þeirra rennur út er því frestað um fjórar vikur. „Það var ákveðið að auglýsa starfsleyfið óbreytt en með gildistíma til tólf ára. Það var ákvörðunin.“ Í ákvörðun ráðherra segir að setja skuli upp þvottaturna enda fáist til þess leyfi þar til bærra yfirvalda. Í auglýstum starfsleyf- isskilyrðum er uppsetning turn- anna. Turnarnir eru mengunar- búnaðurinn sem deilt hefur verið um. „Þetta þýðir að ef leyfið fæst ekki hjá sveitarfélaginu dettur þetta ákvæði um sjálft sig þannig að fyrirtækið er ekki að brjóta á starfsleyfisskilyrðum.“ - ovd Heilbrigðisnefnd Suðurlands auglýsir starfsleyfi umdeildrar fiskþurrkunar til tólf ára: Ákvörðun frestað um mánuð HAUSAÞURRKUN MÓTMÆLT Fulltrúar íbúa í Þorlákshöfn afhenda Elsu Ingj- aldsdóttur undirskriftir 523 íbúa þar sem starfsleyfi Lýsis er mótmælt. MYND/GKS SAMTÖK „Hugsunin á bak við þetta framtak er að nýta mat sem er við það að renna út, og yrði annars hent, til að fæða þá sem á þurfa að halda,“ segir Snorri Páll Jónsson, einn aðstandenda samtakanna Matur ekki einkaþotur, sem í gær buðu gestum og gangandi upp á ókeypis mat á Lækjartorgi. Að sögn Snorra eru samtökin stofnuð að fyrirmynd bandarískrar hreyfingar sem kallar sig Food not bombs, eða Matur ekki sprengjur. Í samtökunum er fólk sem er orðið þreytt á aðgerðarleysi ríkisstjórn- arinnar í málefnum heimilislausra, og kýs að gera eitthvað í málunum. „Þetta eru beinar aðgerðir. Banda- ríkin eyða allt of miklu fé í stríðs- rekstur, og að sjálfsögðu er nafnið Matur ekki einkaþotur afar viðeig- andi hér á landi í ljósi atburða síð- ustu vikna,“ segir Snorri. Samtökin fengu gefins mat frá hinum ýmsu verslunum, sem með- limirnir elduðu síðan ofan í hvern þann sem vildi á Lækjartorgi. „Við fengum mun meiri mat en ég bjóst við og það er hreint til fyrirmyndar hjá verslunareigendum að taka þátt í þessu.“ Að sögn Snorra munu samtökin reyna að halda uppteknum hætti næstu laugardaga, svo framarlega sem verslanir halda áfram að útvega þeim fríar matvörur. - kg Samtökin „Matur ekki einkaþotur“ buðu almenningi upp á ókeypis mat í gær: Nýta mat sem ella yrði hent ÓKEYPIS Meðlimir samtakanna elduðu ofan í vegfarendur á Lækjartorgi. Finnst þér rétt hjá Láru Ómars- dóttur fréttamanni að segja upp starfi sínu? Já 51,3% Nei 48,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Þarf að efla mannréttindaskrif- stofu Reykjavíkur? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.