Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 10

Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 10
10 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björgvin Guðmundsson og Björn Ingi Hrafnsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 MARKAÐURINN á www.visir alla daga Þ að er tilhneiging okkar að fara að stóla of mikið á hyggju- vit stjórnmálamanna og frumkvæði ríkisvaldsins þegar erfiðleikar blasa við í efnahagslífi þjóðarinnar. Þegar allt er í blóma er rík krafa um að einstaklingar fái frið fyrir löggjafarvaldinu til orða og athafna. Í þrengingum vilja hins vegar sífellt fleiri að hið opinbera beiti sér með markvissum hætti, jafnvel með íþyngjandi aðgerðum fyrir allan almenning, til að draga úr afleiðingum niðursveiflunnar. Þannig hefur það verið í gegnum hagsögu síðustu tveggja alda. Skattheimta, reglugerðagleði og vald ríkisins hefur aukist í kjölfar samdráttar í efnahagslífi þjóða og stríðsátaka. Einstaklingar virð- ast missa sjálfstraustið þegar erfiðleikar blasa við og eru frekar tilbúnir til að fórna frelsinu fyrir ímyndað öryggi. Tilhneiging í þá átt birtist í ræðu formanns bankaráðs Lands- bankans á miðvikudaginn. Björgólfur Guðmundsson sagði í ræðu sinni á aðalfundi bankans að Íslendingar ættu að koma sér upp þjóðarsjóði sem hefði tekjur af auðlindum lands og hugviti þjóð- arinnar. „Þjóðarsjóði sem myndi verja efnahagslífið og hagstjórn- ina fyrir svipuðum áföllum og þeim sem hafa dunið á okkur síð- ustu mánuði. Að mínum dómi ættu stjórnvöld að huga að stofnun slíks sjóðs jafnhliða því sem þau kanna með hvaða hætti öðrum má stuðla að stöðugleika í íslensku efnahags- og atvinnulífi,“ sagði Björgólfur. Það er vissulega virðingarvert að formaður bankastjórnar leggi fram hugmynd til að auka hér stöðugleika og horfi til framtíðar í þeim efnum. Hins vegar er hugmyndin ekki góð. Í fyrsta lagi leggur Björgólfur til að auknar byrðar í formi skatt- heimtu verði lagðar á einstaklinga í ákveðnum greinum. Sjávarút- vegur virðist alltaf vera ein þeirra atvinnugreina sem menn horfa til þegar það vantar fleiri krónur í opinber verkefni. Ef svona sjóð- ur á að hafa tekjur af hugviti þjóðarinna mega í raun allir aðrir eiga von á íþyngjandi gjaldtöku í þágu þjóðarsjóðs. Í öðru lagi er óljóst hvernig nota eigi svona þjóðarsjóð til að verja efnahagslífið. Eiga stjórnendur hans að vera með inngrip á gjaldeyrismarkað? Eiga þeir að dæla peningum í opinber verk- efni þegar hægist um í efnahagslífinu? Á sjóðurinn jafnvel að vera virkur þátttakandi á hlutabréfamarkaðnum? Í þriðja lagi byggist forsenda sjóðsins á því að opinberir aðilar hafi hér ríkara hlutverk í þróun efnahagsmála en að skapa almenn- ar leikreglur um efnahagsstjórnina. Menn verða að hafa mikla trú á getu stjórnmálamanna til að taka skynsamlegar ákvarðanir við erfiðar aðstæður til þess að það gangi upp. Einnig að þeir falli ekki í þá freistni að þjóna skammtímahagsmunum fyrir kjördag í stað langtímahagsmuna þjóðarinnar allrar. Það tók mörg ár að vinda ofan af því sjóðakerfi sem íslensk stjórnmál byggðust á í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Efna- hagsumgjörðin á Íslandi er í megindráttum í lagi þó mikið sé deilt um gagnsemi íslensku krónunnar. Stólum ekki aftur á hyggjuvit stjórnmálamanna og frumkvæði ríkisvaldsins til að leysa úr okkar málum. Frumkvæði einstaklinganna sjálfra er miklu líklegra til árangurs eins og Björgólfur Guðmundsson hefur sjálfur sannað. Stólum á okkur sjálf í staðinn fyrir stjórnmálamenn: Óþarfur þjóðarsjóður BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON SKRIFAR Verkin tala Bætt kjör aldraðra og öryrkja eru eitt af forgangs-málum núverandi ríkisstjórnar. Á fáeinum mán- uðum hafa verið teknar ákvarðanir sem munu skila öryrkjum og öldruðum umtalsverðum kjarabótum. Fyrstu stóru áfangarnir skiluðu sér til lífeyrisþega um síðustu mánaðamót en þegar kjarabæturnar verða að fullu komnar til framkvæmda nemur andvirði þeirra 9 milljörðum króna á ári. Og þetta er bara byrj- unin. Framsóknaráratugur glataðra tækifæra Ríkisstjórnarseta Framsóknarflokksins 1995-2007 á mestu uppgangstímum í íslensku efnahagslífi einkenndist af stöðugri vanrækslu á þessu sviði. Samtök lífeyrisþega þurftu að standa í dómsmálum til að fá ráðherra Framsóknarflokksins til að virða grundvallarmannréttindi. Greiðslur frá Trygginga- stofnun ríkisins sem hlutfall af lágmarkslaunum verkafólks lækkuðu stöðugt framan af framsóknar- áratugnum. Þegar Framsókn hrökklaðist loks úr ríkisstjórn 2007 var þetta hlutfall ekki enn orðið jafnhátt og það var áður en Framsókn hóf ríkisstjórn- arþátttöku sína 1995. Með öðrum orðum: Framsóknar- flokkurinn náði ekki á uppgangstímum að verja hag aldraðra og öryrkja. Alþýðuflokknum tókst betur upp árið 1995 - eftir sjö samdráttarár. Fátt sýnir betur áhugaleysi Framsóknarflokksins í velferðarmálum. Hækkun lífeyris um 7,4% Um áramótin hækkaði lífeyrir aldraðra og öryrkja um 3,3 prósent. Í framhaldi af samningum Alþýðusam- bands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, þar sem lægstu laun voru hækkuð sérstaklega, var ákveðið að hækka bætur lífeyrisþega til samræmis við meðaltals- hækkun lægstu launa, sem áætluð var um það bil 7 prósent á árinu. Lífeyrisgreiðslur almannatrygginga hafa því hækkað um 7,4 prósent á þessu ári eða um 9.400 krónur til þeirra sem aðeins fá óskertar greiðslur úr almannatryggingum. Lágmarksframfærsluviðmiði flýtt Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem gefin var út í tengslum við samningana var einnig kveðið á um mótun lágmarksframfærsluviðmiðs vegna lífeyris- þega, sem á meðal annars að taka tillit til hækkunar lægstu launa í nýgerðum kjarasamningum. Félags- málaráðherra hefur kallað eftir að þetta viðmið liggi fyrir eigi síðar en 1. júlí nk. Hagsmunasamtök lífeyrisþega hafa lengi barist fyrir því að lágmarks- framfærsluviðmiðið verði viðurkennt. Fjölþættar kjarabætur Rétt er að minna á að 1. apríl komu einnig til fram- kvæmda fyrstu aðgerðirnar sem ríkisstjórnin tilkynnti um við síðustu áramót og hafa verið í undirbúningi síðan. Þær fela í sér margvíslegar kjarabætur til handa öldruðum og öryrkjum, meðal annars um algjört afnám tekjutenginga við maka, umtalsverðar hækkanir frítekjumarka vegna atvinnutekna, sérstök frítekjumörk vegna fjármagns- tekna og lífeyrissjóðstekna, beinar hækkanir bóta, hækkun vasapeninga á dvalar- og hjúkrunarheimilum og lækkun skerðingarhlutfalls ellilífeyris. Breytingar þessar öðlast gildi á árinu og afnám skerðingar vegna séreignarsparnaðar öðlast gildi um næstu áramót. Þá er unnið að útfærslu kjarabóta til öryrkja sem stefnt er að því að taki gildi 1. júlí nk. Það mun taka langan tíma að bæta fyrir vanrækslu- syndir Framsóknar úr síðustu ríkisstjórnum, en það verk er hafið. Svik við elli- og örorkulífeyrisþega Fyrrverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerði samkomulag árið 2006 við ASÍ, ÖBÍ og aldraða um viðmið almannatrygg- ingabóta. Þetta var gert eftir að svokölluð Ásmund- arnefnd skilaði af sér tillögum til ríkisstjórnarinn- ar. Í þeim var lagt upp með að hækka þá þrjá flokka tryggingabóta sem mynda lágmarksgrunnlífeyri og að setja viðmið við dagvinnutryggingu launafólks en ekki lægstu taxta, enda gefur það mun raunsannari mynd af raunverulegum launum á vinnumarkaði. Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefur breytt þessu viðmiði í það að miða við lægstu taxta sem finnast í launatöflum, sem veldur því að bætur almannatrygginga eru um 10 þúsund krónum lægri í dag en ef viðmiðið hefði verið óbreytt. Þar með er allur ávinningur af samkomulaginu síðan 2006 tekinn til baka og gott betur. Fjárframlög til lífeyrisþega skerðast þannig um 3,6 milljarða króna á ársgrundvelli. Ofan á kjaraskerðingu ríkisstjórn- arinnar mun svo vaxandi verðbólga éta snarlega upp þá hækkun sem þessum hópum var þó úthlutað, sem var 7,3 prósent. Ekki kemur á óvart að ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar er tekin án umræðu og samráðs við fulltrúa þessara hópa. Staðið verði við samkomulag fyrri ríkisstjórnar Þessu hafa ASÍ, aldraðir og öryrkjar harðlega mótmælt ásamt okkur framsóknarmönnum, en þingflokkurinn sendi frá sér harðorða fréttatilkynn- ingu miðvikudaginn 23. apríl þar sem skorað er á ríkisstjórnina að endurskoða afstöðu sína og ákvörðun. Það má velta fyrir sér forgangsröðun ríkisstjórn- arinnar því á sama tíma og þeir sem minnst hafa eru neyddir til að taka á sig þessa skerðingu, nýtir ríkisstjórnin svipaða fjármuni til að afnema tekjutengingar við atvinnutekjur og skerðingar vegna tekna maka. Vissulega eru það einnig þjóðþrifamál, en þeir sem hafa allra minnst og eru mest þurfandi eru skildir eftir. Teknir eru peningar úr þeim vasa sem minnst er í og þeir færðir yfir í vasa þar sem meira er að finna. Ríkisstjórn í afneitun Forsætisráðherra svaraði óundirbúinni fyrirspurn formanns Framsóknarflokksins í þinginu um þessi mál þannig að ekkert hefði breyst í viðmiðun varðandi útreikninga á kjarabótum elli- og örorkulíf- eyrisþega. Það er ekki rétt og auðvelt að sjá það svart á hvítu. Elli- og örorkulífeyrisþega vantar 10.000 krónur mánaðarlega til að staðið sé við rétta viðmiðun. Þetta hefur verið staðfest á aukafundi í félags- og tryggingamálanefnd sem Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, bað um til að yfirfara þessi mál. Hér er um að ræða stefnubreytingu sem ríkis- stjórnin þarf að svara fyrir og sem við framsóknar- menn hörmum. Við munum beita okkur fyrir því að staðið verði við samkomulagið. BITBEIN Valgerður Sverrisdóttir spyr: Ætlar ríkisstjórnin ekki að standa við niðurstöðu Ásmundarnefndarinnar? ÁRNI PÁLL ÁRNASON VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Bjarnargreiði Umburðarlyndi manna er misjafnt. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fékk tölvubréf í kjölfar aðgerða lög- reglunnar gegn mótmælendum við Rauðavatn þar sem hann var hvattur til að lina sársauka þjóðarinnar með því að skjóta sig. Einnig var honum óskað banvæns sjúkdóms sem hann mætti þjást lengi af. Björn birtir þetta á síðu sinni en lætur þar við sitja. Að honum vegið Árni Johnsen skrifaði grein í Morgunblaðið í gær um samgöngumál Eyjamanna og sagði þar meðal annars. „Aðaltengiliður fyrrverandi samgöngu- ráðherra af hálfu Vegagerðarinnar var Gunnar Gunnars- son, lögfræðingur og aðstoðarvega- málstjóri, sem Sturla hafði skipað í embætti svo furðu sætti, enda stílbrot. Hann reyndist þægur.“ Gunnar líður þetta ekki og ætlar að kæra Árna. Enda kannski starf aðstoð- arvegamálastjóra í eðli sínu þannig að þeim þyki oft að sér vegið. Anarkí á Ísalandi Birgir Ármannsson sagði í þættinum í Vikulokin á Rás eitt að mótmælendur hefðu ótal leiðir til að koma sjón- armiðum sínum á framfæri án þess að brjóta lög. Er það ekki sú aðferð sem hópar sem þykir að sér vegið í þjóðfélaginu er sífellt að beita? Árangurinn er iðulega sá að þeir sem hafa það skítt halda því áfram. Nú er kannski tími til að taka sér unga fólkið á Miklubraut sér til fyrirmyndar og Jónas Kristjánsson sem var ánægður með aðgerðir þeirra, og segir á bloggsíðu sinni: ... Unga fólkið lýsti inn í eymd og volæði venjulegra íslenzkra borgara. Sem láta hvað sem er yfir sig ganga og endurkjósa bófana þar á ofan. Nú er kominn tími til að auka stjórnleysi í samfélaginu með meiri borgaralegri óhlýðni. Fátt fer meira í taugar kerfisfas- ista en anarkí. Aðgerðir, sem raska ró manna, taka löggustjór- ana alveg á taugum. Hér vantar meira stjórnleysi. jse@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.