Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 22

Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 22
www.ultimathule.is Spennandi ferðir um allan heim 6 FERÐALÖG FÖSTUDAGUR Um ellefuleytið á virkum dögum dríf ég mig með manninum mínum yfir götuna í líkamsrækt. Á föstu- dögum er jóga en það er mjög vin- sælt í Barcelona svo á hverju horni í gamla verkamanna-innflytjenda- hverfinu Raval, þar sem ég bý, hanga auglýsingar um jógakúrsa og hugleiðslunámskeið. Í Efra-Raval er jafnframt mikið af náttúrubúðum og matsölustöð- um á þeirri línu og gaman að kaupa í matinn þar – en þaðan eru aðeins nokkur skref í fræga matarmark- aðinn Boqueria sem byrjar við Römbluna. Á föstudagseftirmiðdögum kaupum við stundum í matinn á Boqueria-markaðnum eða á öðrum minni útimörkuðum – og þykjumst þá vera miklir fagurkerar meðan við veljum kjöt og tómata. Á Boqu- eria er stórgaman að kaupa í mat- inn og tilvalið fyrir fólk að gera svo ef það hefur eldunaraðstöðu í borginni. Föstudagskvöld eru yfirleitt rólegheitakvöld hjá okkur, stund- um laumumst við jafnvel til að vinna eftir matinn, sérstaklega í sumarhitunum. LAUGARDAGUR Á laugardögum vöknum við snemma og förum í spinning hjá snarbrjáluðum Suður-Ameríku- manni sem pískar fólk áfram svo eftir tímann neyðist það hreinlega til að skjögra á ströndina og kæla sig í sjónum. Léttmeti í eftirrétt. Það er vinsæll siður hjá borgar- búum, ungum sem öldnum, að borða menú en bestu menú- staðirnir eru fyrir utan helstu ferðamannasvæðin. Til að ramba á þá borgar sig að yfirgefa hring- iðuna í miðbænum og kíkja frekar í útjaðra frægu, „trendí“-hverf- anna (Gotneska hverfisins og El Born) eða ráfa um í Raval, sem lumar ennþá á gamalgrónum alþýðustöðum. Verðið hríðlækkar um leið og stigið er út úr mesta ferðamannakraðakinu. Við borðum reyndar oft á menú- stað í ræktinni okkar og það er dæmigert fyrir andstæðurnar á Spáni að bæði þjónninn og kokkur- inn keðjureykja og hafa sennilega bara séð líkamsræktarsali í bíó. Eftir menúinn förum við inn að vinna í nokkra klukkutíma eða tökum ákvörðun um að gefa skít í allt, helst hætta við að skrifa bækur og fara í verkfræði. Til að jafna mig á þeirri hugmynd dreg ég manninn minn stundum með mér niður í Paralel-neðanjarðar- stöðina sem er úti á næsta horni. Á þessari stöð er hægt að taka toglest beint upp í fjall á nokkrum mínútum og stíga út beint fyrir framan Míró-safnið. Það er frá- bært safn og svo er líka rosalega gaman að ganga inn í garðinn við hliðina á því og krækja fyrir bak- hliðina, en þar eru miklir skrúð- garðar sem hafa einhvern veginn ratað út úr kastljósi ferðamanna. Skyndilega blasir við göngugörp- um mikil glæsihöll sem hýsir í dag þjóðlistasafn Katalana. Eitt það skemmtilegasta sem ég geri í Barcelona er einmitt að standa uppi á fjalli – annað hvort við Míró-safnið eða hinum megin við borgina í fjallshlíðinni, sem skartar Park Güell, og horfa á borg- ina glitra í sólinni og skipin mjak- ast áfram á tærbláum sjónum. Gott er að fá kaffisopa við höllina áður en við göngum niður tröpp- urnar að Plaza de España og ráfum svo í áttina heim, fyrst eftir breið- götum með litríkar verslanir en síðan taka við öngstræti gamla bæj- arins. Ef við erum í ham eða gestir í heimsókn er gjarnan farið út að borða á spænskum tíma á laugar- dagskvöldum, þ.e.a.s. eftir klukkan tíu á kvöldin. Úr æði mörgum stöð- um er að velja í Barcelona. Þegar margir fara saman út að borða hittist fólk fyrst á bar og fær sér tapas og drykk til að hita sig upp. Það gæti til dæmis verið á „Silfrinu” (La Plata) í Mercè-götu númer 28. Þar skolum við niður grilluðum sardínum með víni húss- ins, yfirleitt standandi úti á götu því staðurinn er oft troðfullur. En við gætum alveg eins farið á fótboltatapasstaðinn Ramon við hliðina á Sant Antoni-markaðnum þar sem ölið er kneifað úr bæversk- um krúsum og gömul amma býr til heimsins bestu kjötbollur. Guð má vita hvar við endum í mat. Stundum er þjarkað um það nokkra stund en ef rándýrseðlið kemur upp í fólki endar það á El Paraguayo í Carrer del Parc þar sem eru suður-amerískar stórsteik- ur á boðstólum. Svo má líka fara í Hús snigilsins (Can Cargolet) á Comte Urgel en þar er boðið upp á ekta katalónskan mat. Á vel heppn- uðu kvöldi er gjarnan fótboltaleik- ur í sjónvarpinu og drjúgur hluti gesta í Barca-bolum, tilbúinn að öskra í hvert skipti sem boltinn nálgast markið. SUNNUDAGUR Fullkominn sunnudagur hefst á bókamarkaðnum í kringum Sant Antoni-markaðinn. Það þýðir ekkert að sofa frameft- ir, mesta púðrið fer af bókamark- aðnum um tvöleytið. Hér er hægt að fá margt af því sem hefur verið skrifað á spænskri og katalónskri tungu síðastliðin hundrað ár eða svo. Hvort sem það er glæný skáldsaga eftir höfund Skugga vindanna eða klámmynda- sögur um tvítóla leðurmenn frá tímabilum rétt eftir dauða einræð- isherrans Franco. Ef við höfum ekki nennt að fara út að borða kvöldið áður og þykj- umst verðskulda dagamun, þá er tilvalið að borða spænskan dags- menú eftir hádegi niðri á Barcel- oneta, gamla strandhverfinu með sína sjóræningjalegu innviði. Nú nálgumst við hjarta ferðamanniðn- aðarins og verðum að fara varlega meðan skimað er eftir stað sem lætur lítið yfir sér. Borðum loks þríréttað fyrir sex- tán evrur samanlagt áður en við dröttumst niður á strönd og leggj- umst í sandinn. UPPSKRIFT RITHÖFUNDARINS AÐ BARCELONA-HELGI Borg full af möguleikum Barcelona er orðinn einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga og helgarferðirnar þá sérstaklega vinsælar. Spinning á laugardögum Á laugardagsmorgnum fara þau hjón, Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson, í spinning og láta snarbrjálaðan Suður-Ameríkumann þræla sér út. Markaðir á markaðir ofan í borginni er vart þverfótað fyrir skemmtilegum mörkuðum og á föstudögum fer fjölskyldan gjarnan á matarmarkaði og elda heima í rólegheitum. Auður Jónsdóttir rithöfundur hefur um nokkurra ára skeið búið og unnið í talsvert hlýrra loftslagi en við landar hennar eigum að venjast en í Barcelona hefur hún, ásamt fjölskyldu sinni, borðað Menú del Día, farið í jógatíma og keypt sér í matinn á dásamlegustu matarmörk- uðum Evrópu. Ferðablaðið fékk Auði til að gera uppskrift að helgi í borginni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.