Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 31
ATVINNA
SUNNUDAGUR 27. apríl 2008 157
Menntasvið
Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins með um
800 nemendur, 400 á hvoru skólastigi. Hann er staðsettur í
einstöku umhverfi Elliðaárdalsins, náttúruperlu höfuðborg-
arsvæðisins. Skólinn er safnskóli á unglingastigi þar sem til
náms í unglingadeild koma nemendur frá Ártúns-, Selás- og
Árbæjarskóla en skólastarf á yngra stigi er hefðbundið. Helsti
áhersluþáttur skólans er að nemendur og starfsfólk hans nái
hámarks árangri í starfi sínu og eru einkunnarorð skólans í há-
vegum höfð. Samvinna einstaklinga og starfsandi er góður.
Einkunnarorð Árbæjarskóla eru:
Ánægja - Áhugi - Ábyrgð - Árangur
Lausar eru eftirtaldar stöður við Árbæjarskóla skólaárið
2008 - 2009:
• Enskukennari, fullt starf
• Leiklistarkennari, fullt starf eða hlutastarf
• Kennari í samfélagsfræði og lífsleikni, fullt starf
• Bókasafnsfræðingur á skólasafn, fullt starf
• Íslenskukennari, full starf
Mikilvægt er að umsækjendur hafi skipulagshæfi leika, sam-
starfsvilja, jákvætt viðmót og ríka þjónustulund. Forsenda
er að umsækjendur hafi áhuga á að vinna með börnum og
fjölbreyttum hópi starfsmanna auk þess sem frumkvæði og
metnaður er nauðsynlegur.
Ráðið er í ofangreind störf frá 1. ágúst 2008.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2008. Umsóknum fylgi yfi rlit
yfi r nám og störf auk annarra gagna sem málið varðar. Um-
sækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um starfi ð á heima-
síðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is eða senda umsókn
til Árbæjarskóla, Rofabæ 34, 110 Reykjavík.
Upplýsingar gefur Þorsteinn Sæberg, skólastjóri, í síma 411
7700 eða netfang sberg@arbaejarskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Árbæjarskóli
Skólaárið 2008 - 2009
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.