Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 32
ATVINNA
27. apríl 2008 SUNNUDAGUR16
SKÓLASTEFNA
AKUREYRARBÆJAR
Skóladeild, Glerárgötu 26, Akureyri
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum, og hefur vilja til að leiða skóla-
starf, þar sem áhersla er lögð á vellíðan, árangur nemenda og, teymisvinnu starfsmanna.
Starfsemin einkennist af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, þar sem tekið er tillit til mismunandi
þarfa, áhuga og getu nemenda.
Naustaskóli er nýr grunnskóli í Naustahverfi á Akureyri. Skólinn verður byggður í tveimur
áföngum og verður sá fyrri tilbúinn haustið 2009, þegar skólinn
tekur til starfa. Gert er ráð fyrir því að í skólanum geti verið allt að
500 nemendur þegar hann er fullbyggður árið 2012. Að undirbún-
ingsvinnu við hönnun Naustaskóla kom stór hópur fólks með
mismunandi bakgrunn. Byggingin samanstendur af nokkrum sjálfstæðum einingum eða
klösum, með sveigjanlegu kennslurými, þar sem gert er ráð fyrir að samkennsla árganga
sé möguleg og æskileg. Skólinn á að vera miðstöð fyrir alla íbúa hverfi sins og mikil áhersla
lögð á samstarf við leikskóla og vinnu með umhverfi ð og náttúruna. Áhersla á samstarf við
foreldra og þátttöku þeirra er mikil og er gert ráð fyrir sérstakri aðstöðu fyrir þá í skólanum.
Nánari upplýsingar og teikningar af byggingunni má fi nna á vefslóðinni: http://skoladeild.akureyri.is/naustaskoli.htm
Starfssvið:
Skólastjóri ber faglega- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar
stefnu.
Menntunarkröfur:
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
Framhaldsmenntun í stjórnun.
Menntun á sviði reksturs æskileg.
Hæfniskröfur:
Frumkvæði og samstarfsvilji.
Góðir skipulagshæfi leikar.
Hæfni í mannlegum samskiptum
Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi .
Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf.
Reynsla af kennslu.
Reynsla af störfum á sviði stjórnunar og reksturs er æskileg.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun,
stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi
skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfi ð og hvernig hann sér
starfsemina í Naustaskóla þróast undir sinni stjórn.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Gíslason, fræðslustjóri, í síma 460 1456 og 892 1453.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfi ð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til 19. maí 2008
Skólastjóri Naustaskóla
Nýr skóli – nýir tímar - ögrandi og einstakt verkefni
óskar eftir að ráða aðstoðarfólk
í eldhús og nema í matreiðslu.
Upplýsingar gefur
Gunnar Örn í síma 8999250
Veitingahúsið
við Tjörnina
8