Fréttablaðið - 27.04.2008, Qupperneq 34
ATVINNA
27. apríl 2008 SUNNUDAGUR180
Bleika
slaufan
ÁRVEKNISÁTAK UM
BRJÓSTAKRABBAMEIN
Skemmtilegt og gefandi verkefni fyrir hugmyndaríka!
Hefur þú áhuga á hönnun og vilt láta ljós þitt skína til styrktar góðu málefni?
NTC og Krabbameinsfélagið leita eftir hugmyndaríkum einstaklingi til þess að hanna myndir á boli, tileinkuðum
Bleiku slaufunni þar sem bleika slaufan er í fyrirrúmi. Hugmyndin er að vera með til sölu tvær mismunandi
útfærslur af bolum fyrir dömur og herra, annars vegar fyrir yngri kynslóðina og hins vegar þá eldri.
Allur ágóði af sölu bolanna rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins.
Áhugasamir vinsamlegast sendið tölvupóst á
netfangið inga@ntc.is fyrir föstudaginn 12. maí.
NTC laugavegi 91 s. 512-1700 www.ntc.is
Skólastjóri Gerðaskóla í Garði
Staða skólastjóra Gerðaskóla í Garði er laus til umsóknar. Nemendur Gerðaskóla
eru 245 í 1. – 10. bekk. Gott samstarf er við leikskóla og framhaldsskóla og
aðgangur greiður að góðri sérfræðiþjónustu.
Í skólastefnu Sveitarfélagsins Garðs eru eftirfarandi áherslur lagðar í skóla- og
æskulýðsstarfi bæjarins:
• Öll samskipti einkennist af gagnkvæmri virðingu.
• Fjölbreyttir hæfileikar barna séu viðurkenndir og sjálfsmynd þeirra styrkt.
• Aðstæður til náms séu góðar og hvetjandi.
• Samvinna heimila, skóla og æskulýðsstarfsemi sé góð og
samskiptaleiðir greiðar.
• Tengsl við umhverfi, fyrirtæki og stofnanir bæjarins séu virk.
• Gleði, metnaður og umhyggja einkenni allt starf með börnum og
ungmennum.
Leitað er að kraftmikilum og drífandi stjórnanda sem er tilbúinn til að starfa að
öflugri skólaþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennarapróf og kennslureynsla.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg og reynsla af skólastjórnun.
• Frumkvæði, samstarfsvilji og góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hafi áhuga á að leiða þróunarstarf í átt að einstaklingsmiðuðu námi.
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir menntun og störf umsækjanda og hver þau
verkefni sem varpað geta ljósi á færni til að sinna skólastjórastarfi. Við ráðningu
í starfið verður tekið tillit til menntunar, kennsluferils, stjórnunarreynslu og
umsagna um starfshæfni umsækjanda. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2008.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 9. maí og skal skila umsókn á bæjarskrifstofu Sveitar-
félagsins Garðs að Sunnubraut 4, 250 Garður.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Harðardóttir bæjarstjóri
í síma 4227150, netfang oddny@svgardur.is.
þar sem
ferskir
vindar
blása H
en
na
r h
át
ig
n
08
-0
06
2
www.svgardur.is
Menntasvið
Aðstoðarskjólastjórar
Skólaárið 2008 - 2009
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Lausar eru tvær stöður aðstoðarskólastjóra við Árbæjar-
skóla - annars vegar á yngra stigi og hinsvegar á unglinga-
stigi.
Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins með um
800 nemendur, 400 á hvoru skólastigi. Hann er staðsettur í
einstöku umhverfi Elliðaárdalsins, náttúruperlu höfuðborg-
arsvæðisins. Skólinn er safnskóli á unglingastigi þar sem til
náms í unglingadeild koma nemendur frá Ártúns-, Selás- og
Árbæjarskóla en skólastarf á yngra stigi er hefðbundið. Helsti
áhersluþáttur skólans er að nemendur og starfsfólk hans nái
hámarks árangri í starfi sínu og eru einkunnarorð skólans í há-
vegum höfð. Samvinna einstaklinga og starfsandi er góður.
Einkunnarorð Árbæjarskóla eru:
Ánægja - Áhugi - Ábyrgð - Árangur
Mikilvægt er að umsækjendur hafi skipulagshæfi leika,
samstarfsvilja, jákvætt viðmót og ríka þjónustulund. Forsenda
er að umsækjendur hafi áhuga á að vinna með börnum og
fjölbreyttum hópi starfsmanna auk þess sem frumkvæði og
metnaður er nauðsynlegur.
Leitað er eftir einstaklingum með:
• Leiðtogahæfi leika
• Stjórnunarreynslu í skólastarfi eða framhaldsmenntun á
sviði stjórnunar
• Yfi rgripsmikla þekkingu á skólastarfi
• Metnað til að veita faglega forystu á sviði kennslu og
þróunar í skólastarfi
• Kennaramenntun
Ráðið er í ofangreindar stöður frá 1. ágúst 2008.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2008. Umsóknum fylgi
yfi rlit yfi r nám og störf auk annarra gagna sem málið varðar.
Umsækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um starfi ð á
heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is eða senda
umsókn til Árbæjarskóla, Rofabæ 34, 110 Reykjavík.
Upplýsingar gefur Þorsteinn Sæberg, skólastjóri,
í síma 411 7700 eða netfang sberg@arbaejarskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Skógarbær er hjúkrunarheimili
fyrir eldri og yngri einstaklinga
sem þarfnast umönnunar allan sólarhringinn.
Starfsmenn óskast til sumarafl eysinga við umönnun
Við leitum að traustu og hressu fólki til að vinna
með okkur í sumar. Um er að ræða fjölbreytt og
áhugaverð störf með skemmtilegu fólki.
Sveigjanlegur vinnutími.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Jónbjörg
Sigurjónsdóttir í síma 510-2101 jonbjorg@skogar.is
Einstakt tækifæri
TVÆR STÖÐUR VIÐ MENNTASKÓLA
BORGARFJARÐAR ERU LAUSAR TIL UMSÓKNAR
// UMSJÓN MEÐ SÉRDEILD 100% STAÐA
// UPPLÝSINGATÆKNI OG UMSJÓN MEÐ
DREIFNÁMI 100% STAÐA
Menntaskóli Borgarfjarðar er nýr framhaldsskóli sem
tók til starfa haustið 2007 í Borgarnesi. Skólinn er í
eigu einkahlutafélags sem er að mestu í eigu heima-
manna í Borgarfi rði. Öll aðstaða til náms og kennslu er
til fyrirmyndar. Skólinn er í samstarfi við Menntamála-
ráðuneytið og Sveitarfélagið Borgarbyggð um breytta
kennsluhætti og skipulag skólastarfs á grunn- og fram-
haldsskólastigi. Áhersla er m.a. lögð á notkun upplýs-
ingatækni í staðbundnu námi og dreifnámi, heildræns
námsmats og hópa- og verkefnavinnu.
Við erum að leita að öfl ugum einstaklingum, sem eru
tilbúnir til að taka þátt í að
móta nýjan framhaldsskóla og öfl ugu þróunarstarfi .
Viðkomandi þurfa að vera frjóir í hugsun, tilbúnir til
þátttöku í skapandi þróunarstarfi , hafa gaman af vinnu
með ungu fólki og vera liprir í samskiptum. Kennslu-
réttindi á framhaldsskólastigi eru nauðsynleg.
Ráðið verður í stöðurnar frá og með 1. ágúst 2008.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu
hafa borist Ársæli Guðmundssyni, skólameistara,
Borgarbraut 54, 310 Borgarnes,
eða á netfangið: arsaell@menntaborg.is fyrir
laugardaginn 11. maí 2008.
Nánari upplýsingar veitir Ársæll Guðmundsson,
skólameistari í síma 895 2256.