Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 66
Ferðalangar geta lent í því að task-
an týnist um stundarsakir eða sé
jafnvel send á rangan flugvöll.
Þeir sem eru með kreditkort eru
tryggðir að nokkru leyti fyrir
slíku. Bæði Visa og MasterCard
eru með góðar heimasíður þar
sem nálgast má allar upplýsingar
um hvers kyns ferðatryggingar.
Þær geta margborgað sig þegar
haldið er af stað út fyrir landstein-
ana.
Hjá VISA má nálgast nákvæm-
ar upplýsingar um hvers konar
tryggingar eru í boði á valitor.is.
Ferðalangar eru hvattir til að
kynna sér kosti og galla hvers
greiðslukorts.
Besta tryggingin er hjá Platin-
um-korti TM, en þar eru korthafar
tryggðir fyrir allt að áttatíu þús-
und krónum. Algeng-
ast er að tryggingin
sé 24 þúsund krónur,
en VISA-korthafar
geta haft samband við
SOS-International
sem er hluti af ferða-
tryggingu VISA-kred-
itkortsins.
Korthafar Master-
Card eiga einnig völ á
þjónustu SOS-Inter-
national sem er
alþjóðleg stofnun. Á
heimasíðu MasterCard, borgun.is,
má nálgast allar upplýsingar um
tryggingar á farangurstöf, en Plat-
inum-kortið býður bestu kjörin
eða 80 þúsund krónur. Ferðalang-
ar ættu þó að hafa það í huga að
sjálfsábyrgð er alltaf einhver.
38 FERÐALÖG
Farangurstrygging Þeir sem lenda í því að
tapa ferðatöskunni um stundarsakir ættu
að kynna sér vel hvort greiðslukortafyr-
irtæki þeirra bæti þeim stundartapið að
einhverju leyti.
Ó, Æ, AUMINGJA ÉG
ANDALÚSÍUFEGURÐ
Andalúsía hefur löngum þótt einn fegursti hluti Spánar, enda allt
sem talið er spænskt í dag, flamengódansinn og nautaatið,
upprunnið þaðan. Í dag bjóða Heimsferðir farþegum sínum
upp á alla vinsælustu staðina við strendur Andalúsíu á Costa
del Sol, svo sem Torremolinos, Fuengirola og Marbella.
Sumarferðir og Plúsferðir fljúga einnig til Costa del
Sol og stutt er frá þessum stöðum til höfuðborgar
Andalúsíu, Sevilla. Fullkomin ferð til að sameina sól
og falleg styttri ferðalög um héraðið.
Allt sem spænskt er Andalúsía státar af því og eignar sér flamengódansinn, nautaatið og hina klassísku spænsku matargerð.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!