Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 68
40 FERÐALÖG
Í
Halifax, höfuðstað Nova Scotia
á austurströnd Kanada, bland-
ast saman evrópsk og amerísk
menning. Áhrifa Frakkanna
og síðar Bretanna sem þar bjuggu
á öldum áður gætir enn í rólegu og
yfirveguðu borgarlífinu. Fyrsta
flokks veitingastaður upp á
franska mátann og amerískur
„diner“ í húsinu á móti eru lítil
dæmi um hvernig íbúarnir hafa
valið það besta úr hvorum menn-
ingarheimi fyrir sig.
Halifax iðar af lífi, enda fjöl-
margir háskólar í borginni sem
fólk alls staðar að úr heiminum
sækir. Háskólasamfélagið er svo
skemmtileg andstæða við mikla
hafnsækna starfsemi, sem sést á
tíðri skipaumferð og stórum vöru-
skemmum við hafnirnar.
Borgin er fámenn á kanadískan
mælikvarða en nokkuð fjölmenn
samanborið við Ísland. Íbúar eru
um 400.000 en tæp milljón býr í
héraðinu.
Munið eftir varaboltunum
Á haustdögum bauðst nokkrum
íslenskum blaðamönnum að kynna
sér golfvelli á Nova Scotia og prófa
eldhúsið í leiðinni. Óhætt er að
mæla með hvoru tveggja.
Leikið var á nokkrum skemmti-
legum en ólíkum golfvöllum sem
ýmist lágu meðfram ströndinni
eða inni í stórum skógum.
Við Íslendingar þekkjum strand-
vellina mætavel frá Hafnarfirði,
Keflavík og Vestmannaeyjum, en
skógarvellirnir eru önnur Ella.
Fyrir þá sem ekki hafa þeim mun
meira vald yfir kylfu og kúlu er
betra að hafa fleiri en færri vara-
bolta í pokanum þegar skógar-
breiður umlykja hverja braut.
Nægt ætti plássið að vera því ekki
þarf að fylla öll hólf af drykkjum.
Um þá sjá vallarstarfsmenn sem
aka á milli brauta og svala þorsta
kylfinga. Vatn, gos, bjór, kaffi og
koníak, allt er á boðstólnum.
Eins og víðast hvar í útlöndum
er mælt með því á Nova Scotia að
kylfingar fari um velli á golfbíl-
um. Slíkur lúxus flýtir fyrir leikn-
um og gerir auk þess það að verk-
um að eftir hringinn eru menn
óþreyttir.
Flott föt - alls kyns sveiflur
Skammt utan við Halifax er einn
af bestu golfvöllum Kanada.
Fyrir aðeins tíu árum var Glen
Arbour búinn til í skógi vöxnu
landi með það að markmiði að
skapa glæsilegan og krefjandi völl.
Það tókst. Brautirnar eru hver
annarri skemmtilegri en eins og
gefur að skilja og áður var getið er
betra að vera beinn. Bolti í skógi
er tapaður bolti. Víti og vesen.
Völlinn sækja efnaðir íbúar
Halifax og nágrennis, þar klæðast
menn hátísku golffatnaði og eru
með græjur af dýrustu og bestu
sort, en þar sannast hið forn-
kveðna; merkin segja ekkert til
um hæfnina. Góðir jafnt sem síður
góðir kylfingar geta leikið á Glen
Arbour en munið bara að vera
sæmilega til fara og virða reglur
og siði.
Slappað af úti í sveit
Ekki er alveg sama fíneríið á golf-
vellinum í Digby Pines sem þó er
mjög fínn. Merkin eru ekki jafn
mikilvæg og á Glen Arbour, en
golfið er jafn mikilvægt. Þar
leggja menn sálu sína í að bjóða
gestum upp á bestu mögulegu
aðstæður til golfiðkunar og
afslöppunar af öðru tagi (fyrir þá
sem ekki vita er golf mjög afslapp-
andi). Kanadamenn og aðrir fara
til Digby Pines til að láta líða úr
sér. Þangað er um tveggja tíma
akstur frá Halifax og spa og fínerí
í boði. Golfvöllurinn er afskaplega
skemmtilegur og aðstæður og yfir-
bragð skemmtilegt.
Gott í munn og maga
Eldhúsinu á Nova Scotia má lýsa
með fáum orðum. Það er ferskt,
stuðst er við hráefni úr hafi og
haga, og hvort tveggja til fyrir-
myndar. Humar, hörpuskel og
kræklingar koma úr sjónum en
hefðbundin griparækt sér svöng-
um fyrir kjöti.
Sjávarfangið er aðall Nova
Scotia-manna; þeim er mikið í mun
að gestir bragði á ólíku konfekti
hafsins og bjóða upp á eigið vín
með, bæði hvítt og rautt. Vínrækt
hefur færst í aukana í héraðinu og
eru vínbændur á góðri leið með að
gera sig gildandi á heimsmarkaðs-
torginu.
GOLF OG MATUR Á
NOVA SCOTIA
Þegar fólk er að leita að stað í útlöndum til að spila golf við bestu aðstæður og
borða góðan mat er ekki víst að því detti í hug að fara til Kanada. Að fenginni
reynslu getur Björn Þór Sigbjörnsson blaðamaður fyllilega mælt með Halifax og
Nova Scotia. Þar eru frábærir golfvellir og kokkar sem kunna sitt fag.
Horft yfir eina af flottu holunum á Glen Arbour. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR/ÞORGILS JÓNSSON
Blanda evrópskrar og bandarískrar menningar Frábært sjávarfang og vín frá héraðinu eru
aðalsmark Nova Scotia.
SAGA OG
MENNING Í
FRANKFURT
VERÐ 61.900 KR.
Á MANN Í TVÍBÝLI.
13.–16. JÚNÍ
Fararstjóri:
Svala Arnardóttir.
Sjáðu stærstu skýjakljúfa Evrópu,
upplifðu forna sögu og borgarfegurð
í Römerberg og Sachsenhausen;
og kíktu í Zeil, stórglæsilega
verslunargötu.
+ Nánari upplýsingar
eru á www.icelandair.is
*Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting í 3 nætur á Inter Continental***, morgunverður, rútuferðir
til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn, skoðunarferðir um borgina með fararstjóra.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
21
49
4
/0
8
GLEN ARBOUR
www.glenarbour.com
DIGBY PINES
www.digbypines.ca
SEVEN
www.sevenwinebar.com
DOMAINE DE GRAND PRÉ
www.grandprewines.ns.ca
NOVA SCOTIA
www.destination-ns.com
HALIFAX
www.destinationhalifax.com