Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 70
42 FERÐALÖG
J
ames Bond hefur dvalið í
Chile síðustu vikur þar
sem verið er að taka upp
nýjustu myndina hans,
Quantum of Solace. Á hverjum
einasta degi mátti lesa í blöðunum
um það litla sem fréttist af Daniel
Craig og félögum á meðan tökur
stóðu yfir í Norður-Chile, og þótti
til dæmis tíðindum sæta hvað
Bond-leikarinn sjálfur var líf-
hræddur. Enginn vissi hvar hann
gisti og hann hafði her öryggis-
varða í kringum sig til að gæta sín
öllum stundum.
Hitt sem þótti þó öllu verra var
að eftir gífurlegan undirbúning af
hálfu norðanmanna, sem létu sig
dreyma um ómældan hróður á
heimsvísu og stöðugan straum
ferðamanna alls staðar frá til
hásléttu Norður-Chile, kom í ljós
að leikararnir frá Chile sem ráðn-
ir voru í myndina leika ekki Chile-
menn, heldur Bólivíumenn. Leik-
ararnir eru með tilheyrandi hatta
og ponsjóa og tökustaðnum
Antofagasta hefur verið breytt í
Bólivíu.
Það er lítill munur á hálendinu
Chile-megin og Bólivíumegin, og
Íslendingar hafa séð mun verri
landfræðilegar falsanir í öllum
þeim kvikmyndum sem hafa verið
teknar upp á íslenskri grund en í
raun átt að gerast í Danmörku,
Sovétríkjunum, Japan eða jafnvel
á tunglinu, en þetta fer mjög fyrir
brjóstið á Chile-mönnum. Alda-
löng barátta Bólivíumanna fyrir
aðgangi að sjó er viðkvæmt
ágreiningsmál enn í dag og eru
talsverð illindi og fordómar á báða
bóga. Biturð Bólivíumanna í garð
Chile og Perú er mikil og ár hvert
halda þeir upp á Dag hafsins með
þátttöku bólivíska sjóhersins sem
enn er til. Á Degi dagsins krefjast
þeir fyrrum aðgangs síns að hafi
sem þeir misstu yfir til Chile í
Kyrrahafsstríðinu fyrir 130 árum.
Það er því auðvelt að koma auga
á kaldhæðnina í því að Chile-
mönnum skuli líka illa við að Chile
sé líkt við Bólivíu, þar sem fátækt
og bágur efnahagur Bólivíu á að
miklu leyti rætur að rekja til þess
að Chile, sem hefur yfir meira en
fjögur þúsund kílómetra strand-
lengju að ráða, náði rétti Bólivíu
að hafi.
Stóra Bond-málið er Mogga-
blogg-mál ársins hér í Chile. Að
miklu leyti er þetta misskilið þjóð-
arstolt og illa dulbúinn rasismi,
þar sem fólki er mjög umhugað
um hvað vestrænum þjóðum þykir
um landið og vill ekki að þær haldi
að hér sé fátækt eða að hér búi
frumbyggjar, sem fólk tengir við
fátækt og liðna tíma. Mikill upp-
gangur er í Chile og hefur verið
síðustu ár, en þó hefur fátækt ekki
minnkað í sama hlutfalli, heldur
hefur bilið á milli ríkra og fátækra
breikkað. Raunar er þetta bil
hvergi meira í allri álfunni en í
Chile.
Vissulega er mun minna um
frumbyggja í Chile en í Bólivíu og
hinum löndunum í kring (þeir eru
í kringum sjö prósent íbúa) en
Chile-menn virðast lítið vilja af
frumbyggjunum vita og gera sem
minnst úr mikilvægi þeirra í land-
inu. Þess vegna eru margir sárir
yfir að af chileísku leikurunum
hafi aðeins verið valdir leikarar
sem eru dökkir á hörund og þeir
látnir leika ekki aðeins Bólivíu-
menn heldur bólivíska frum-
byggja – og það í Antofagasta-hér-
aði sem eitt sinn tilheyrði Bólivíu.
Bólivíumegin eru menn einnig
bitrir og kvarta yfir að land þeirra
hafi ekki verið valið fyrir tökurn-
ar, en þeim þykir einnig súrt í
broti að í myndinni sé Bólivía
tengd eiturlyfjasmygli, ímynd
sem þjóðin vill ólm losna við.
Talsvert hefur verið um mót-
mæli vegna þessa í norðurhluta
Chile undanfarið. Ferðamálafull-
trúar létu hafa eftir sér að þeir
hefðu ekki gefið leyfi fyrir tökun-
um hefðu þeir vitað af þessu, og
bæjarstjóri í litlum bæ í Ant-
ofagasta var handtekinn þegar
hann ók bíl sínum beint inn á töku-
stað og truflaði tökur til að mót-
mæla því að bæ hans væri breytt í
bólivískan bæ.
Kjarni málsins virðist þó vera
sá að það sem gamla kappanum
Bond hefur tekist er að bregða sér
í hlutverk Hróa hattar og færa
Bólivíumönnum aftur landið dýr-
mæta sem þeir misstu fyrir 130
árum – þó ekki sé nema í nokkrar
mínútur í Hollywoodmynd.
sli@hi.is
BOND TIL BJARGAR
BÓLIVÍUMÖNNUM
Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir skrifar frá Chile
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐ-
URINN? Dolores á Rosa Lux-
emburg Straße eru með mjög
góð burritos. Svo er Due Forni á
Schönhauser Allee kannski besti
pitsustaður í heimi.
HVAR ER BEST AÐ FÁ SER ÖL?
8mm Bar á Schönhauser Allee er
eflaust ein besta eins herbergis
reykfyllta skítahola í heimi. Góð
tónlist og hressir eigendur.
FLOTTASTI BARINN? Bassy
Cowboy Club. Hann er þægilega
staðsettur beint við hliðina á 8mm
Bar. Innréttingarnar eru svona
kúrekalegar með rifflum, hesta-
og nautahauskúpum, uppstopp-
uðum úlfi og stórri mynd af Lee
Hazlewood.
BESTU GÖTURNAR TIL AÐ
KAUPA FÖT? Svæðið í kringum
Hackescher Markt. Svo eru marg-
ar búðir á Kastanienallee, ásamt
Oranienstraße og Wienerstraße í
Kreuzberg.
BESTI STAÐURINN EFTIR
KLUKKAN TVÖ AÐ NÓTTU? Kaff-
ee Burger, sögufrægt og sóðalegt
Rússadiskó á Torstraße.
RÓMANTÍSKASTI GÖNGUTÚR-
INN ? LSD-lengjan í Prenzlauer-
berg. Þá gengur maður Raum-
erstraße framhjá Helmholzplatz
garðinum. Á þeirri göngu þverar
maður Lychenerstraße, Schlie-
mannstraße og Dunckerstraße.
Þannig er nafnið tilkomið. Þetta er
einn fallegasti hluti Austur-Berlín-
ar, og fór ekki jafn illa út úr stríð-
inu og meirihluti borgarinnar. Flest
húsin þar eru orðin yfir hundrað
ára gömul. Þar lítur borgin út eins
og hún eflaust gerði öll á fyrri
tímum.
HEIMAMAÐURINN
Berlín
BALDVIN PÁLSSON DUNGAL, BARÞJÓNN OG
RÓTARI
24.990
Alicante