Fréttablaðið - 27.04.2008, Blaðsíða 72
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2007
sigtryggur magnason og sonur
ÞEGAR ÉG FERÐAST... þá sakna ég alltaf
stinningskaldans.
PARADÍS FYRIR MÉR... er augnablikið sem
ég man hvar ég er en gleymi hvert ég ætla.
ÉG FERÐAST ALDREI ÁN... moleskin-stíla-
bókar, penna og tannbursta.
BESTI STAÐUR SEM ÉG HEF NOKKURN
TÍMA HEIMSÓTT... er líklega klaustrið í
Montserrat. Í smástund hélt ég að ég myndi
frelsast þarna efst í þessu katalónska fjalli.
Svo reddaðist það.
UPPÁHALDSHÓTELIÐ MITT ER... The Zetter
í London. Toppsmart.
MINNISSTÆÐASTA MÁLTÍÐ SEM ÉG HEF
SNÆTT Á FERÐALAGI... eru sniglarnir á
óvæntum veitingastað í litlu þorpi við landa-
mæri Spánar og Frakklands, mig minnir að
þorpið heiti Latour-de-Carol.
SÍÐASTA FERÐIN SEM ÉG FÓR Í... var til
London í framhaldsbrúðkaupsferð sem
endar aldrei.
ÞEIR MINJAGRIPIR SEM ÉG KEM MEÐ
ÚR FERÐUM... eru í formi ísskápssegla og
minninga.
FERÐIR MÍNAR
SIGTRYGGUR MAGNASON, RITHÖFUNDUR OG MARKAÐSSTJÓRI RIFF- ALÞJÓÐ LEGRAR
KVIKMYNDAHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK HÉLT Í SMÁSTUND AÐ HANN MYNDI FRELSAST Í
KATALÓNSKU KLAUSTRI ÞANGAÐ TIL ÞAÐ REDDAÐIST.
Ungfrú Ingveld-
ur er stödd í
leigubíl í Shibu-
ya-hverfinu í
Tókýó. Hún veif-
ar rauðlökkuð-
um nöglum að
bílstjóranum
sem virðist ekki
skilja eitt auka-
tekið orð. „Four
Seasons Hotel!
You know,
FOUR,“ segir hún hækkandi og
taugaveikluðum rómi á meðan hún
horfir á endalaus götuskilti skrif-
uð upp á kanji. Hvílík mannmergð
fyrir utan, og ekkert nema undar-
legt ungt fólk með bleikt hár og í
pönkaralegum fötum. Ingveldur
er að fara að hitta nýja kærastann
á hótelinu. Hann er ljósmyndari
og er að mynda einhvern risa tísku-
viðburð í borginni. „Ahhhhh! Fosí-
son hótel, Haj!“ jánkar allt í einu
bílstjórinn brosandi. Þegar hún
loks veltur inn um anddyrið með
nýja svarta ferðatöskusettið sér
hún hann í fjarska umkringdan
sex feta háum og mjóum fyrirsæt-
um. Ingveldur dæsir. Hún bjóst
líka alveg við því að þetta yrði eins
og kvikmyndin Lost in Translat-
ion. Hún er búin að horfa á hana
þrisvar í röð og finnst hún vita allt
um Tókýó. Auðvitað er bara spurn-
ing um að taka Scarlett Johansson
á þetta og lifa á hótelbarnum í
viku. Kærastinn kyssti hana á
ennið áður en hann þaut út en hún
er að reyna að botna í öllum þess-
um tökkum á klósettinu. Hún ýtir
á einn og heitur blástur geysist
upp úr skálinni. Sá næsti sendir
vatnsbunu beint upp í loftið og
eyðileggur hárið. Hún ákveður að
skella sér í heilsulind hótelsins og
gera sig sæta, enda stór veisla
fram undan í kvöld og um að gera
að slá í gegn. Japönsku konurnar
líta hana hornauga þegar hún
afklæðir sig. Eins og hún sé með
smitsjúkdóm. Það er æpt á hana
þegar hún ætlar að stinga sér til
sunds í ólýsanlega fallegri laug-
inni. Maður veifar hryllilega ljótri
sundhettu og bendir reiður á hárið
á henni. Voðalega er þetta fólk
nojað eiginlega. Tveimur tímum
síðar er Ingveldur stödd á gífur-
lega „trendí“ bar klædd í stuttan
kímonókjól frá Alexander
McQueen (hún kann sig meðal
framandi þjóða). Kæró hefur skil-
ið hana eftir aleina eina ferðina
enn og allir brosa afskaplega
mikið til hennar. Ingveldi finnst
ekki töff að brosa. Hún er með
frosinn stút á meðan hún skellir í
sig þriðja kampavínsglasinu. Glöt-
uð rokkhljómsveit byrjar að spila
og einhver maður er alltaf að
benda á gólfið fyrir neðan hana og
brosa. Hún pírir niður gegnum
kampavínsskýið og verður þess
vör að gólfið er... spegill. Lífsseigt
trend í Tókýó. Skelfingu lostin
horfir hún aftur upp. Hún hefði
betur ekki tekið Paris Hilton á
þetta í kvöld.
UNGFRÚ
INGVELDUR...
Fer til Tókýó
Það voru mikil gleðitíðindi að sjá Forseta Íslands handsala á Bessastöðum samkomulag við Mahmoud Abbas forseta palestínsku
þjóðstjórnarinnar um friðarfund á Íslandi. Reyndar kom frumkvæðið ekki frá Ólafi Ragnari Grímssyni sem hefur því miður hefur verið seinn til að
taka undir áskorun Friðar 2000 að Virkja Bessastaði til friðarmála og setið á forsetastóli í nær 12 ár aðgerðarlítill hvað friðarmálin varðar.
Árið 2004 í aðdraganda forsetakosninga birtist á www.forsetakosningar.is opið bréf frá Holy Land Trust í Betlehem með áskorun um að embætti
Forseta Íslands komi að friðarferlinu. Þetta var aðeins einn af þeim fjölmörgu sem ég ræddi við árið 2001 þegar ég dvaldi fimm vikur í Ísrael og
Palestínu til að kynna hugmyndafræði Friðar 2000 fyrir stjórnmálamönnum og félagasamtökum beggja þjóða. Hér varð til Alþingi Jerúsalem sem
ég skora á bæði almenning, þingmenn og stjórnvöld að kynna sér á vefnum www.althing.org en hugmyndin að Alþingi Jerúsalem hefur víða
fengið athygli og fjölda meðmæla bæði frá Palestínu og Ísrael.
Forseti Íslands gæti gegnt forystuhlutverki í friðarmálum á alþjóðavettvangi og lagt grunninn að nýjum og betri heimi fyrir komandi kynslóðir. Fái
hugmyndafræði Friðar 2000 aukinn meðbyr á næstu árum og áratugum gæti á Íslandi risið þróunarstofnun lýðræðis og stjórnstöð alþjóðlegs
friðargæsluliðs sem gerði þjóðum mögulegt að leggja niður heri sína og gera varnarsamninga við hið alþjóðlega friðargæslulið. Þótt margir hafi
verið til að fordæma mig og hugmyndir mínar um að Virkja Bessastaði til friðarmála hefur hugmyndafræðin byrjað að skila sér í þjóðarvitundina:
Stofnar samtökin Friður 2000. Flýgur með hjálpargögn og
jólapakka með kveðjum frá Íslenskum börnum fórnarlamba Chernobyl og
stríðhrjáðra barna í Sarajevo. Hugmyndin verður öðrum hvatning og og
bílalestir með hjálpargögn og slíka jólapakka berast næstu árin til
Chernobyl og á stríðshrjáð svæði með bílalestum frá ýmsum stöðum.
Gefur út bókina “Virkjum Bessastaði” dreift á öll heimili
landsins. Skorar á frambjóðendur að taka upp friðarmálin. Þegar enginn
þeirra bregst við áskoruninni lýsir Ástþór sjálfur yfir framboði og notar
síðan beinar sjónvarpsútsendingar til að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að
gefa kjósendum loforð um að beita embættinu í friðarmálum verði hann
kjörinn. Forsetinn sveik kosningaloforðið í 12 ár. Í aðdraganda kosninga
tók Ástþór við Gandhi mannúðarverðlaunum og afhenti Clinton bandaríkjaforseta eintak af Virkjum Bessastaði.
Skorar á heimsbyggðina frá Baghdad að mótmæla fyrirhugaðri árás á Írak. Ástþóri tókst að koma
skilaboðunum í gegnum CNN, ABC, CBS og nær alla heimspressuna í 5 daga samfleitt og margsinnis sem
aðalfrétt og forsíðufrétt í erlendum stórblöðum! 1998 er Ástþór sæmdur Heilögum Krossi Grísku
Réttrúnaðarkirkunnar að útnefningu UNESCO eftir að Clinton hætti við innrásina í kjölfar mikilla mótmæla.
Ráðamenn vilja að Icelandair flytji vopn og hermenn fyrir Bush í Írakstríð. Ástþór sendir út viðvörun um hættulegt óðagot sem geti
dregið Íslensk flugfélög inní hryðjuverkastríð. Þá fangelsaður en sýknaður af Hæstarétti. Hætt við að nota Icelandair flugvélar til vopnaflutninga.
Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri stofnar Friðarstofnun Reykjavíkur. (Ástþór kynnti slíka hugmynd fyrir borgarstjóra árið 1995)
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirritar samning um stofnun alþjóðlegs háskóla á Keflavíkurflugvelli er starfi að
friðarmálum, kenni alþjóða- og öryggismál. (Ástþór kynnti hugmyndir að friðarháskóla á Íslandi árið 1997 eftir að fá stuðning við hugmyndina hjá
fjölda fræðimanna erlendis, síðan í forsetaframboði 2004 og 2006 sendi bæjarstjóranum tillögu að slíkri starfsemi á Keflavíkurflugvelli).
Yogo Ono kom frá New York með friðarsúlu til Viðey (Ástþór kynnti Ísland sem land friðar á fjölda fyrirlestra í New York, Tokyo og
víðar m.a. hjá Sameinuðu Þjóðunum í New York og í hjá friðarháskóla S.Þ. Costa Rica yfir 9 ára tímabil 1995-2004).
Stjórnvöld samþykkja beiðni Palestínumanna um friðarfund á Íslandi og Forseti Íslands handsalar samkomulagið á Bessastöðum.
Ástþór kynnti þessar hugmyndir í Palestínu og Ísrael árið 2001 og aftur fyrir nánum samstarfsmönnum Yasser Arafat árið 2004.
Þótt mikilvægur árangur hafi nú þegar náðst eigum við Íslendingar nokkuð í land með að laga til garðinn heima hjá okkur til að vera teknir
alvarlega á alþjóðavettvangi.
Harka stjórnvalda og lögreglu í garð mótmælenda er áhyggjuefni. Það olli t.d. almennri hneykslan víða um heim og meira en tíu þúsund
mótmælabréf bárust stjórnvöldum frá þingmönnum og félagasamtökum í meira en 30 löndum þegar ég var fangelsaður og átti að dæmast í 16
ára fangelsi að beiðni Ríkislögreglustjóra fyrir friðsamleg mótmæli með tölvupósti gegn því að Íslenskar flugvélar tæku þátt í vopnaflutningum til
ólögmæts stríðsreksturs í Írak. Slagsmál lögreglu við vörubílstjóra síðustu daga minna á að tvo þarf til að deila og að hugsanlega þurfi
dómsmálaráðherra, lögreglan og fleiri landsmenn að endurskoða vinnubrögðin. Ég hef t.d. aldrei á minni lífsævi lent í slagsmálum þrátt fyrir að
hafa oft notað ögrandi aðferðir við að koma málstaðnum á framfæri svo sumum þykir of um.
Þá hefur að undanförnu verið alvarlega vegið að lýðræði á Íslandi. Ummæli oddvita yfirkjörstjórnar
stærsta kjördæmis landsins um mitt framboð í fjölmiðlum eru enn til umfjöllunar hjá
Lögreglustjóranum í Reykjavík. Áður en tekið hefur verið á því máli af hálfu stjórnvalda í samræmi
við stjórnarskrá væru forsetakosningar í raun sviðsett lýðræði – sjá nánar á
www.forsetakosningar.is. Hagsmunagæsla einstakra fjölmiðla fyrir sitjandi forseta hefur verið
með þeim hætti í aðdraganda kosninga að hætt er við að framboð mitt á sama tíma og
undirbúningur er hafinn hjá Stjórnvöldum og Forsetaembættinu um friðarfund á Íslandi gæti skaðað
málstaðinn. Skemmst er að minnast aðför Stöðvar2 í byrjun árs gegn hugsanlegu mótframboði og
2004 þegar hingað komu heimsþekktir fræðimenn í friðarmálum. Þeir voru úthýstir frá Stöð2 og
aðrir klipptu úr viðtölum boðskapinn um mitt framboð til að Virkja Bessastaði til friðarmála. Önnur
fjölmiðlun var með svipuðum hætti undir bumbuslætti af endalausum lygaþvælum í DV og þannig
útilokað að koma boðskap forsetaframboðsins óskekktum til þjóðarinnar.
Við ofangreindar aðstæður tel ég heillavænlegast fyrir málstað Friðar 2000 að taka ekki þátt í forsetakosningum í sumar. Ég skora á Ólaf Ragnar
Grímsson að nota nú það einstaka tækifæri sem honum hefur borist á silfurfati frá Palestínu til að Virkja Bessastaði!
Ástþór Magnússon