Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 74

Fréttablaðið - 27.04.2008, Side 74
18 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR SILJA BÁRA ÓMARSDÓTTIR STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR ...atvik þegar ég var átta ára gömul. Pabbi var úti á sjó og allir lágu í flensu nema ég. Ég ákvað að reyna að færa fólk- inu eitthvað að borða og eitt af því sem ég kunni að elda var spælt egg. Ég tek fram eggin og byrja að steikja, og úr einu þeirra vellur hálfmót- aður ungi. Ég þarf varla að taka það fram að mér varð mikið um og dró mömmu fárveika fram úr rúminu til að reyna að skafa ungann af pönnunni. Ég borða mikið af eggjum í dag og finnst þau mikill herramannsmatur en ég borðaði ekki egg lengi vel eftir þetta og það tók nokkur ár að venjast þeim aftur. HEIÐAR JÓNSSON SNYRTIR ...hellingur af kólesteróli. Ég var nefnilega mikill eggjamaður á yngri árum, en ég hef aðeins vanið mig af því. Ég er náttúru- lega alinn upp í sveit þar sem hænur verptu eggjum, ég þurfti að sækja eggin út í hænsnakofa og egg léku því stórt hlutverk í æsku minni. Ég uppgötvaði það hins vegar strax í æsku að ef þú setur strá fyrir framan hænu þá fer hún ekki yfir það, því hún veit ekki hvað er hinum megin. Og ef það er eitt- hvað sem hefur alltaf farið í taugarn- ar á mér þá er það þröngsýni og heimska hjá fólk. En hænan, já – hún toppar það allt. ÓMAR R. VALDIMARSSON UPPLÝSINGAFULLTRÚI …frjóvgað egg kon- unnar minnar. Í dag, laugardaginn 26. apríl, eru liðnar 40 vikur frá þessum örlagaríka hittingi erfðaefna okkar og lítið bólar á frumburðinum. Fram að þessum degi höfum við verið sannfærð um að ófædd dóttir okkar myndi koma í heim- inn á undan tímanum – að hún kæmi okkur svolítið á óvart – en allt kemur fyrir ekki. Svo nú bíðum við og bíðum. Biðin býður þó upp á margt skemmtilegt. Við erum til dæmis búin að fara ítrekað yfir þá hluti sem við ætlum að taka með okkur á fæðingardeildina og þá höfum við fundið upp 99 nýjar leiðir til þess að segja vinum og vandamönnum að „það sé ekkert að gerast“ og að þetta „sé allt að koma“. Ennþá erum við þó róleg. Við erum nefnilega bæði viss um að á endanum muni þetta egg klekjast. ÓLAFUR GUNNARSSON RITHÖFUNDUR ...risavaxin amerísk páskaegg. Þegar ég var tíu ára gamall giftist systir mín manni sem hafði búið um nokk- urt skeið í Bandaríkjunum. Hann gegndi síðar herþjónustu uppi á velli og var um tíma túlkur hjá bandaríska hernum. Hann hafði aðgang að þessum líka tröll- auknu páskaeggjum sem voru sextíu til sjötíu sentímetrar á hæð. Yfir eina páskahátíðina fékk frændi minn að gista hjá okkur, en þá var það ekki siður að leitað væri að páskaeggj- um heldur var þeim stillt upp fyrir framan rúmið þannig að þau voru það fyrsta sem maður sá þegar maður vaknaði. Þegar ég opnaði augun um morguninn beið mín tröllaukið, „monster“-egg við rúmstokkinn en frændi minn, sem var utan af landi, fékk sígilt íslenskt egg í minna lagi. Hann leit á sitt og sagði: „Helvítis skíta litla egg er þetta“. Hann leit síðan á mitt og stundi: „Þitt egg er rosa- legt.“ Og svo sofnuðum við báðir aftur, misjafnlega sáttir. VALDÍS GUNNARSDÓTTIR ÚTVARPSKONA ...Ella í húsinu á móti, en það er hún Elín María Björnsdóttir sem er verslunarstjóri hjá versluninni Egg. Þar fyrir utan dettur mér auðvitað í hug eggjakast vikunnar þar sem Lára Ómarsdóttir missti vinnuna sem mér finnst auðvitað skelfilegt, sá frábæri fréttamaður sem hún er. Sem fjölmiðlakona veit ég að á svona ögurstundum lætur maður eitthvað út úr sér sem maður meinar ekki eða getur lent í óheppilegri atburðarás. Get ég til dæmis nefnt það þegar ég var send niður í bæ á fyrsta degi bjórsins á Íslandi til að fara á milli kráa í beinni útsendingu og kanna stemninguna. Fyrir utan staðina var svo bíll með tæknimönnum og ég var með víra, míkrafón og allt það innan á mér. Hvert sem ég fór var mér auðvitað réttur bjór og þótt ég hafi ekki drukkið nema nokkra sopa á hverjum stað þurfti ég auðvitað að fara reglulega á klósettið. Og ég fór auðvitað inn á klósett með vírana og allt saman án þess að fatta neitt – strákunum í bílnum, Sigga tæknimanni og fleirum, til mikillar skemmtunar. Ég fattaði svo ekki neitt fyrr en í lok kvölds. ÚLFAR FINNBJÖRNSSON MATREIÐSLUMAÐUR ...alveg heill hellingur. Egg hafa fylgt mér alla tíð. Til dæmis var þetta það fyrsta sem ég eldaði í gamla daga þegar mamma fór að vinna úti og skildi mig, átta ára guttann, eftir heima, þá spældi ég þau, gerði ommelettur og alls kyns kúnstir. Svo er ég í dag með einar sex varpteg- undir í garðinum, þar á meðal lynghænur sem verpa einu kólesterólfríu eggjunum í heiminum, þannig að við fjölskyldan sitjum oft á kvöldin og borðum þau egg í bunkum, enda eru lynghænueggin mjög lítil. Þess vegna er svolítil vinna að borða þetta. Annars hef ég alltaf verið mikill eggja- og fuglamaður og í sveitinni í gamla daga var hreinlega allt tínt og borðað - jafnvel lóu- og mávsegg. Verslunarstjórar og heimskar hænur Matvæli vikunnar voru klárlega egg, þótt öllu jafna sé þjóðin frekar í því að steikja þau og sjóða en kasta uppi á Norðlingaholti. Af því tilefni hringdi Júlía Margrét Alexandersdóttir í nokkra góða menn og konur og fékk þau til að segja sér hvað þeim dytti í hug þegar þau heyrðu orðið egg. Þegar ég heyri orðið egg dettur mér í hug... Þegar ég heyri orðið egg dettur mér í hug... Þegar ég heyri orðið egg dettur mér í hug... Þegar ég heyri orðið egg dettur mér í hug... Þegar ég heyri orðið egg dettur mér í hug... Þegar ég heyri orðið egg dettur mér í hug...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.