Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 77
SUNNUDAGUR 27. apríl 2008 21
Þegar Pete Doherty verð-
ur sleppt úr fangelsi eftir
nokkrar vikur mun hann
þurfa að finna sér nýtt
heimili og friða alla þá
sem hann skuldar háar
fjárhæðir.
Pete Doherty verður heimilislaus
þegar hann sleppur úr fangelsi
eftir nokkrar vikur. Leigusali
Dohertys ku hafa litið við í íbúð-
inni á dögunum til þess að athuga
ástandið og brugðið allverulega í
brún. Hann rifti því leigusamn-
ingnum samstundis. The Mirror
greinir frá því að veggir, gólf og
sumir gluggar í íbúð Dohertys
hafi verið þaktir blóði, en auk
þess hafi Doherty skilið eftir níu
ketti í íbúðinni, sem mikinn ódaun
lagði af þegar leigusalinn leit þar
inn.
„Pete er heimilislaus, blankur
og skuldar dópsölum þúsundir
punda. Hann eyðilagði staðinn
með því að krota á veggina, gólf-
ið, hvar sem hann langaði til. Fal-
legu, þungu gluggatjöldin voru
rifin niður og kettirnir hlaupa
bara um einir og yfirgefnir,“
segir heimildarmaður The
Mirror.
Doherty ku vera í miklum fjár-
hagsvandræðum, og samkvæmt
The Mirror hafa honum borist
hótanir frá ósáttum eiturlyfjasöl-
um þar sem hann situr í fangelsi.
Þeir eru þó ekki þeir einu sem
Doherty skuldar pening, því þeir
vinir hans sem hafa lánað honum
aur í gegnum tíðina eru ekki held-
ur sáttir. Samkvæmt heimildum
The Mirror hafa þeir látið greipar
sópa í íbúð Petes, í von um að fá
þannig eitthvað af þeim fjármun-
um sem hann skuldar þeim.
Það er þó ekki öll von úti fyrir
Doherty, því Stefano Passantino,
sérstakur velgjörðarmaður hans,
hefur sett á fót sjóð til styrktar
Pete Doherty, sem er ætlað að
hjálpa honum að koma fótunum
undir sig á nýjan leik þegar hann
losnar úr fangelsi í næsta mán-
uði. Fyrr á árinu bauð Stefano
Doherty fimm þúsund punda
greiðslu fyrir myndatöku fyrir
heimasíðu sína, þar sem Stefano
selur föt. Samningar náðust ekki,
þar sem umboðsmaður Dohertys
fór fram á 30 þúsund punda
greiðslu fyrir tökuna.
„Ég er mikill aðdáandi sem vill
sjá þennan hæfileikaríka strák fá
alla möguleika til að koma fótun-
um aftur undir sig,“ segir Stefano.
„Ég vil sjá Pete flytja og semja
nýtt efni í mörg ár enn. Ég geri
hvað ég get til að hjálpa Pete til
að geta sagt skilið við fortíðina.
Ég skal útvega honum vinnu,
fæða hann og klæða – en ég mun
ekki þvo honum, það er til of
mikils ætlast,“ segir Stefano.
Heimilislaus og skuldugur
ERFIÐIR TÍMAR FRAM UNDAN Pete Doherty mun vera heimilislaus og þurfa að sefa
fjöldann allan af fólki sem hann skuldar stórfé þegar hann losnar úr fangelsi í næsta
mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
folk@frettabladid.is
„Ég ólst upp við
að fylgjast með
Lindsay. Það
fékk mig til að
langa til að gera
það sem hún
gerir.“
ALIANA LOHAN
Ófarir Lindsay Lohan
virðast eitthvað hafa
farið fram hjá litlu systur
hennar.
„Lít ég út
fyrir að hafa
borðað tíu
ostborgara
eða hvað?“
ASHLEE
SIMPSON
Viðbrögð
söngkonunnar
við spurningu Ellenar DeGeneres
um hvort hún væri ólétt, en Simpson
hefur ekki enn neitað þeim þráláta
orðrómi.
„Ég hef persónulega farið
fram á að ég standi
ekki við hliðina á
Naomi af því að
Amanda myndi
ekki vilja sjást
með svona hávax-
anni, fallegri
manneskju.“
BECKI NEWTON ÚR
UGLY BETTY
Flestir hefðu óttast eitthvað
annað en óhagstæðan
samanburð ef þeir stæðu við
hlið ofurfyrirsætunnar upp-
stökku, Naomi Campbell,
sem verður gestaleikari í
Ugly Betty.
TÓNMENNTASKÓLI REYKJAVÍKUR
Innritun nýrra nemenda fyrir skólaárið 2008-2009
stendur yfi r frá 28. apríl – 9. maí.
Innritaðir eru:
1. Nemendur fæddir 2002 (6 ára) í Forskóla I
2. Nemendur fæddir 2001 (7 ára) í Forskóla II
3. Nemendur á aldrinum 8-10 ára sem eru teknir beint í
hljóðfæranám, án undangengins forskólanáms.
Hægt er að komast að á eftirfarandi hljóðfæri:
Málmblásturshljóðfæri, þ.e. trompet, básúnu, barytón, horn
og túbu.
Tréblásturshljóðfæri, þ.e. þverfl auta, klarinett, saxófón og fagott.
Strengjahljóðfæri, þ.e. fi ðlu, selló og gítar.
Einnig er til takmarkað pláss á píanó, harmóníku og ásláttar
hljóðfæri.
Einnig er innritað í fi ðluforskóla (5-6 ára born)
ATHUGIÐ AÐ FRAMBOÐ Á SKÓLAVIST
ER TAKMARKAÐ.
Skrifstofa skólans á Lindargötu 51 er opin frá kl. 12:30-16:30
virka daga. Síminn er 562-8477.
Það skal tekið fram að nauðsynlegt er fyrst að skrá nemendur í
skólann með því að hafa samband við skrifstofuna.
Til að tryggja endanlega að innritun sé frágengin er nauðsynlegt
að innrita nemandann einnig í Rafræna Reykjavík á heima-
síðunum www.reykjavik.is eða www.grunnskolar.is eftir 9. maí
eða biðja skrifstofu Tónmenntaskólans um aðstoð komi
erfi ðleikar í ljós.
Skólastjóri