Fréttablaðið - 27.04.2008, Blaðsíða 80
24 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin:
BIRMINGHAM CITY - LIVERPOOL 2-2
1-0 Mikael Forssell (34.), 2-0 Sebastian Larsson
(55.), 2-1 Peter Crouch (63.), 2-2 Yossi Benayoun
(76.).
CHELSEA - MANCHESTER UNITED 2-1
1-0 Michael Ballack (46.), 1-1 Wayne Rooney
(56.), 2-1 Michael Ballack (86.).
MANCHESTER CITY - FULHAM 2-3
1-0 Stephen Ireland (10.), 2-0 Benjamin
Mwaruwari (21.), 2-1 Diomansy Kamara (70.),
2-2 Danny Murphy (79.), 2-3 Diomansy Kamara
(92.).
SUNDERLAND - MIDDLESBROUGH 3-2
0-1 Tuncay Sanli (4.), 1-1 Danny Higginbotham
(6.), 2-1 Michael Chopra (45.), 2-2 Alfonso Alves
(73.).
TOTTENHAM - BOLTON WANDERERS 1-1
0-1 Stelios Giannakopoulos (46.), 1-1 Steed
Malbranque (52.).
WEST HAM UNITED - NEWCASTLE UNITED 2-2
1-0 Mark Noble (10.), 2-0 Dean Ashton (23.), 2-1
Obafemi Martins (42.), 2-2 Geremi (45.)
STAÐAN:
Man United 36 25 6 5 74-21 81
Chelsea 36 24 9 3 62-25 81
Arsenal 35 21 11 3 66-29 74
Liverpool 36 19 13 4 64-28 70
Everton 35 18 7 10 50-29 61
Aston Villa 35 16 10 9 67-45 58
Portsmouth 35 16 9 10 48-36 57
Man City 36 15 10 11 44-44 55
Blackburn 35 13 13 9 45-43 52
West Ham 36 13 9 14 39-44 48
Tottenham 36 10 13 13 65-59 43
Newcastle 36 11 10 15 44-60 43
Sunderland 36 11 6 19 36-56 39
Wigan Athletic 36 9 10 17 32-49 37
Middlesbro 36 8 12 16 33-52 36
Bolton 36 8 9 19 33-53 33
Reading 36 9 6 21 37-65 33
Birmingham 36 7 11 18 42-59 32
Fulham 36 6 12 18 35-60 30
Derby County 35 1 8 26 17-76 11
ÚRSLIT
Bandaríkjamaðurinn Geof Kotila mun ekki verða þjálfari Snæfells
næsta vetur. Þessi snjalli þjálfari hefur tekið þá ákvörðun að flytja
aftur til Danmerkur eftir tvö ár í Hólminum, þar sem Kotila náði mjög
eftirtektarverðum árangri með Snæfellsliðið.
„Fjölskyldan tók þessa ákvörðun saman. Við söknum fjölskyldu
okkar í Danmörku ef ég á að segja eins og er. Við hjónin erum með
tvö lítil börn sem sakna afa og ömmu sem og hundsins okkar. Við
erum bara með heimþrá,“ sagði Kotila en heyra mátti á honum að
ákvörðunin væri erfið, enda hefur fjölskyldunni liðið vel í Hólminum.
„Það er farið með okkur eins og konungborið fólk hér í Hólminum.
Þetta hefur verið frábær tími hérna. Þessi ákvörðun hefur ekkert að
gera með körfubolta, félagið eða bæjarfélagið. Konan mín er þess
utan að klára mastersnám og hún gat ekki gert það hér eins og til
stóð heldur þarf hún að fara til Danmerkur í það. Eftir að hafa skoðað
heildarpakkann tókum við þessa ákvörðun.“
Gengi Snæfells hefur verið frábært síðan Geof kom til liðsins og í ár
vann liðið báðar bikarkeppnirnar og komst þess utan í úrslitarimmu
deildarinnar, þar sem Snæfell tapaði fyrir Keflavík.
„Ég óttast ekkert um afdrif liðsins. Ástandið á félaginu er mjög gott
og betra, að mér finnst, en þegar ég kom
hingað fyrir tveimur árum. Það er kraftmik-
ið fólk að vinna fyrir félagið og sá sem
tekur við starfinu tekur við góðu búi,
innan sem utan vallar. Ég er mjög stoltur
af mínu starfi og tel mig skila góðu búi,“
sagði Kotila en hann sér ekki eftir því að
hafa tekið slaginn og flutt til Íslands.
„Ég sé svo sannarlega ekki eftir því
að hafa komið hingað. Alls ekki. Þetta er
fallegt land og körfuboltinn á þessu landi á
möguleika á því að blómstra enn meira. Ég á
samt ekki eftir að sakna vindsins,“ sagði Kotila
og hló dátt.
„Það var búið að segja mér frá veðurfarinu
áður en ég kom en ég hefði ekki trúað því að
óreyndu hvað það getur orðið hvasst hérna.
Ég meina - þök fjúka af húsum hérna. Þetta
er alveg lygilegt.“
GEOF KOTILA: KVEÐUR STYKKISHÓLM EFTIR TVÖ FARSÆL ÁR MEÐ KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ SNÆFELLS
Fjölskyldan er einfaldlega með heimþrá
FÓTBOLTI Birmingham varð af tveimur mikil-
vægum stigum gegn Liverpool í gær. Sveinar
Alex McLeish, stjóra Birmingham, komust
yfir 2-0 en Liverpool jafnaði og tók eitt stig.
Það má búast við grimmri baráttu í næstu
viku þegar Birmingham mætir Fulham, sem
er enn á lífi eftir góðan útisigur gegn Man.
City.
„Ég er gríðarlega vonsvikinn með þessa
niðurstöðu. Ég hefði tekið jafntefli fyrir leik
en úr því sem komið var er þetta grátlegt. Við
urðum aftur á móti bara bensínlausir á meðan
leikmenn Liverpool voru ferskir í síðari hálf-
leik. Stigið er samt vel þegið og hver veit
nema það bjargi okkur frá falli á endanum,“
sagði McLeish.
Liverpool gulltryggði fjórða sætið í úrvals-
deildinni með stiginu og stjóri þeirra, Rafa
Benitez, var nokkuð sáttur. „Ég var sáttur við
síðari hálfleikinn. Að skora tvö mörk og fá
færi til þess að vinna leikinn var mjög jákvætt.
Ég breytti liðinu mikið vegna Meistara-
deildarinnar og það var ánægjulegt að
sjá hversu vel þetta lið spilaði,“ sagði
Benitez.
Fulham vann svakalegan 2-3 úti-
sigur á Man. City. Fulham var undir
2-0 þegar 20 mínútur lifðu leiks en
lokakaflinn var svakalegur hjá
drengjum Roy Hodgson.
„Þetta leit út fyrir að vera
ómögulegt verkefni. Það var sagt
við mig að við værum fallnir á
ákveðnum tímapunkti en við grip-
um líflínu með þessum magnaða
sigri,“ sagði Hodgson glaðbeittur
eftir leik.
Bolton nældi í miklvægt stig gegn
Tottenham þar sem Grétar Rafn
Steinsson lagði upp mark Bolt-
on. Grétar og félagar mæta
Sunderland næst í leik sem
verður að vinnast, enda bíður
Chelsea þeirra í lokaumferð-
inni. - hbg
Það var hart barist í öðrum leikjum ensku úrvalsdeildarinnar í gær og botnbaráttan í algleymingi:
Birmingham glutraði niður unnum leik
SVEKKTUR Andriy Voronin,
framherji Liverpool, var ekki
alveg nógu sáttur við sjálfan sig
í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Það var mikil dramatík á
Stamford Bridge þegar toppliðin
Chelsea og Man. Utd mættust.
Með sigri eða jafntefli var United
svo gott sem orðið meistari og því
varð Chelsea að sigra til þess að
halda lífi í baráttunni. Það tókst
Lundúnaliðinu í dramatískum leik
svo ekki sé meira sagt.
Chelsea lék frábæran fótbolta í
fyrri hálfleik sem var algjörlega
eign þeirra. Markið lá lengi í loft-
inu en kom ekki fyrr en í uppbót-
artíma er Michael Ballack stang-
aði sendingu Didiers Drogba í
netið.
United mætti talsvert sterkara
til leiks í síðari hálfleik, og eftir
tíu mínútur komst meiddur Wayne
Rooney inn í sendingu Ricardos
Carvalho, hann hljóp að marki og
lagði boltann laglega í markið.
Hrikaleg mistök hjá Carvalho.
Rooney var svo þjáður eftir að
hafa skorað að hann afþakkaði
fögn félaga sinna.
Leikurinn var opinn í báða enda
eftir það en úrslitastundin kom
fimm mínútum fyrir leikslok,
þegar vítaspyrna var dæmd á
Michael Carrick er boltinn virtist
fara í hendi hans. Ballack tók vítið
og skoraði örugglega.
United sótti grimmt eftir
markið og Chelsea mátti
þakka fyrir að fá ekki á sig
jöfnunarmark, því í tví-
gang björguðu þeir á
línu. Nær komst United
ekki og fögnuður Chel-
sea í leikslok var
einlægur.
„Ég er mjög
bjartsýnn fyrir síð-
ustu tvo leikina. Við
þurfum að sjálfsögðu
að vinna þá og vonast
til þess að United tapi
einhverjum stigum. Ég
verð að vera bjartsýnn
því við eigum mjög góða
möguleika á að verða
meistarar,“ sagði Avram
Grant, stjóri Chelsea, eftir
leikinn. Grant er ekki
þekktur fyrir að sýna
mikil svipbrigði í leikjum en hann
gaf tilfinningunum lausan taum-
inn í gær.
„Mínir menn vildu virki-
lega vinna þennan leik og
elska svona úrslitaleiki. Við
berjumst hatrammlega í
öllum leikjum. Við gerðum
það í dag sem og gegn Ars-
enal. Við töpuðum leiknum
gegn Arsenal á mistökum
og ég vil helst ekki rifja
upp leikinn á Old Trafford
sem dómarinn vann fyrir
Man. Utd. Ég vona hans
vegna að þau úrslit muni
ekki ráða úrslitum í þessu
móti,“ sagði Grant en hann
taldi sitt lið hafa átt sigur-
inn skilið.
Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, var fjúkandi
reiður yfir vítaspyrnunni í leiks-
lok. „Þetta var djöfulleg ákvörðun
og engin smá ákvörðun hjá dómar-
anum. Boltinn fór í höndina á
stráknum en hann var ekki að
teygja hana út eða setja hana yfir
höfuð sér. Boltinn var á leiðinni
beint til Rio Ferdinand og það
hefði dómarinn átt að sjá. Ef við
fáum svona ákvarðanir gegn
okkur verður pressan mikil,“ sagði
Ferguson heitur og bætti við:
„Það var svo í anda dagsins að
þegar Ronaldo kemur inn á þá er
hann rifinn niður af Ballack í
teignum en ekkert dæmt. Það var
klár vítaspyrna. Svo fór Drogba
með hnéð í andlitið á Vidic með
þeim afleiðingum að hann missti
tönn sem og það þurfti að sauma
hann. Það var heldur ekkert dæmt
þá,“ sagði Fergie. henry@frettabladid.is
Það verður barist allt til enda
Tvö mörk frá Þjóðverjanum Michael Ballack sáu til þess að baráttan um enska meistaratitilinn er hvergi
nærri búin. Chelsea vann leikinn 2-1 og er nú jafnt Man. Utd. að stigum. United heldur aftur á móti topp-
sætinu með betra markahlutfalli. Aðeins tvær umferðir eru eftir af ensku deildinni.
HETJAN
Michael
Ballack
fagnar
hér öðru
marka
sinna
í gær.
GETTY
IMAGES
HÆTTIÐI ÞESSU STRÁKAR Ricardo Car-
valho gengur hér á milli þeirra Drogba
og Ballacks sem rifust eins og smábörn.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
TILFINNINGUNUM SLEPPT LAUSUM Avram Grant fagnaði eins og enginn væri morgundagurinn þegar leikurinn var flautaður af.
Grant hefur ekki verið þekktur fyrir að sýna svipbrigði hingað til en hann réð ekki við tilfinningarnar í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Snæfell heldur stóru bitunum
Þó svo Geof Kotila sé horfinn á braut er engin upplausn í
Hólminum. Daði Heiðar Sigurþórsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar Snæfells, tjáði Fréttablaðinu í gær að
þeir Hlynur Bæringsson, Sigurður Þorvaldsson
og Magni Hafsteinsson yrðu allir áfram í
herbúðum liðsins næsta vetur. Hann sagði þá
Justin Shouse og Slobodan Subasic einnig
til í að vera áfram en það kæmi í hlut
næsta þjálfara að ákveða hvort hann vilji
halda þeim. Anders Katholm heldur aftur
á móti aftur heim til Danmerkur. Daði
sagði líklegt að Snæfell myndi horfa út
fyrir landsteinana með arftaka Geof. Ken
Webb, þjálfari Skallagríms, hefur verið
orðaður við starfið en Daði sagðist ekki
hafa talað við hann.
FÓTBOLTI Látunum á Stamford
Bridge lauk ekki fyrr en nokkru
eftir að áhorfendur yfirgáfu
svæðið. Það sló nefnilega í brýnu
á milli leikmanna Man. Utd og
vallarstarfsmanna Chelsea eftir
að leik lauk.
Leikmenn United voru að
hlaupa sig niður þegar eitthvað
gerðist og fjandinn varð laus.
Rio Ferdinand hefur aftur á
móti beðið kvenkynsstarfsmann
vallarsins afsökunar á að hafa
sparkað óvart í hana er Ballack
skoraði sigurmark leiksins. Hann
sparkaði þá í stein og fór aðeins
utan í konuna.
Nemanja Vidic meiddist
snemma í leiknum og fór
blóðugur af velli eftir að hafa
fengið hnéð á Drogba í andlitið.
Vidic missti tönn við höggið og
einnig þurfti að sauma undir
vörina á honum. - hbg
Leikmenn United í látum:
Slógust við vall-
arstarfsmenn
HASAR Evra og Park sjást hér í átökum
við vallarstarfsmenn. NORDIC PHOTOS/AFP