Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 82

Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 82
26 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR KÖRFUBOLTI Það er talsvert óvissu- ástand í herbúðum Njarðvíkinga þessa dagana. Stjórn körfuknatt- leiksdeildar ákvað frekar óvænt á föstudagskvöldið að reka Teit Örlygsson úr starfi þjálfara eftir aðeins eins árs setu í stólnum heita. Teiti hafði áður fengið skila- boð um að hann fengi að þjálfa liðið áfram. Þess utan hefur Brenton Birm- ingham gert munnlegt samkomu- lag við Grindavík um að spila með þeim næsta vetur og heyrst hefur að Grindvíkingar vilji einnig fá Damon Bailey til sín, en hann lék með Njarðvík í vetur. „Það var hringt í mig á föstu- dagskvöldið. Stjórnin hélt víst ein- hvern neyðarfund eftir að Brent- on ákvað að fara til Grindavíkur og í kjölfarið var ég boðaður á fund þar sem mér var sagt upp,“ sagði Teitur við Fréttablaðið, en hvaða ástæður gaf stjórnin fyrir uppsögninni? „Ég fékk eiginlega enga alvöru ástæðu upp úr þeim. Þeir sögðu að það væri ekki árangurinn. Ég hef samt heyrt af því síðan að ég hafi ekki fullan stuðning einhverra leikmanna sem hafa ekki fulla trú á því að ég geti farið með liðið í hæstu hæðir. Svo held ég að fólk í stjórn sem og ráðgjafar þeirra hafi heldur ekki haft trú á mér. Ég held reynd- ar að sumir hafi ekki haft trú á mér frá byrjun og ég fann fyrir því. Það eru ekki allir að vinna af heilindum þarna. Það er sagt eitt við mig og annað við næsta mann,“ sagði Teitur en umræða um óheil- brigt vinnuumhverfi í Njarðvík kom einnig upp fyrir ári síðan þegar Einar Árni Jóhannsson fékk að fjúka. „Einar og fleiri voru búnir að vara mig við því að þetta væri dálítið skítugt umhverfi. Því miður eru menn að grafa undan hver öðrum þarna. Ég var mjög sár og svekktur í fyrstu og spurði af hverju ég hefði ekki fengið að sitja fundinn? Ég sé mikil tækifæri fyrir Njarðvík fyrst að Brenton er far- inn. Brotthvarf hans losaði um mikla peninga enda Brenton lang- dýrasti leikmaður liðsins. Ég hefði viljað nýta þessa peninga vel og taldi þarna hafa opnast sóknar- færi á meðan aðrir óttuðust brott- hvarf hans,“ sagði Teitur. Valur Ingimundarson er sterk- lega orðaður við starfið núna. Ásgeir Guðbjartsson, varaformað- ur körfuknattleiksdeildar, segir leitina að arftaka Teits nýhafna og sé ekki lengra komin en að nokkur nöfn séu á blaði. henry@frettabladid.is Teitur rekinn og Brenton farinn til Grindavíkur Það er hasar í Njarðvík þessa dagana. Það er búið að reka Teit Örlygsson sem þjálfara og Brenton Birmingham er á leið til Grindavíkur. Teitur segir að vinnu- umhverfið í Njarðvík sé skítugt þar sem grafið sé undan mönnum. TEITUR ÖRLYGSSON Var sár og svekktur í fyrstu yfir að vera rekinn frá Njarðvík. Hann gagnrýnir vinnuumhverfið í Njarðvík harkalega og segir að grafið sé undan mönnum í stað þess að styðja þá. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI Hinn 35 ára gamli körfuknattleiksmaður, Brenton Birmingham, hefur ákveðið að söðla um og yfirgefa Njarðvík og flytja sig yfir til Grindavíkur. „Grindavík gerði mér tilboð rétt eins og þeir hafa gert síðustu ár. Ég er góðvinur Friðriks þjálfara og eftir að hafa sofið á þessu ákvað ég að slá til og prófa eitthvað nýtt. Ég var til í nýja áskorun,“ sagði Brenton en Njarðvíkingar gerðu honum einnig tilboð. „Ég hef spilað með Grindavík áður og naut þess að spila þar. Það eru engin leiðindi út í Njarðvík sem er félag sem ég elska. Ákvörðunin var erfið en á endanum ákvað ég að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Brenton en hann segir laun ekki hafa skipt aðalmáli í ákvörð- un sinni. - hbg Brenton til Grindavíkur: Vildi prófa eitt- hvað nýtt KÖRFUBOLTI Það ríkir talsverð óvissa um framtíð Páls Kristins- sonar, leikmanns Grindavíkur. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins stefndi hann á að snúa aftur til Njarðvíkur en í ljósi síðustu atburða hefur hann frestað þeirri ákvörðun sinni. „Það er allt óákveðið hjá mér. Ég get verið áfram í Grindavík, hef heyrt í Njarðvíkingum og svo kemur einnig til greina að hætta bara, enda er vinnan mín þess eðlis að ég á erfitt með að iðka körfuboltann af fullum krafti,“ sagði Páll við Fréttablaðið. - hbg Páll Kristinsson: Framtíðin óráðin FORMÚLA 1 Kimi Räikkönen átti rosalegan síðasta hring í tímatök- unni í Barcelona í gær og stal ráspólnum af heimamanninum Fernando Alonso. Felipe Massa ræsir þriðji á rásröð. Lewis Hamilton varð aftur á móti að sætta sig við fimmta besta tímann, en Robert Kubica náði örlítið betri tíma en hann. „Ég er hæstánægður enda er bílinn og liðið að taka miklum framförum. Annað sætið er talsvert betra en við áttum von á. Við munum halda áfram að bæta okkur,“ sagði Spánverjinn Alonso en Renault-bíllinn hefur virkað hálfkraftlaus í upphafi tímabils- ins. Räikkönen er efstur í keppni ökuþóra og hann var ánægður með ráspólinn í gær. „Ég hef verið að reyna að ná ráspól og það er góð tilfinning að það hafi loksins gengið,“ sagði Räikkönen en tölfræðin er með honum þar sem ökuþórinn á ráspól í Barcelona hefur unnið síðustu sjö árin. - hbg Formúlan í Barcelona: Räikkönen á ráspól KÁTUR Räikkönen fagnaði ráspólnum vel í Barcelona. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES HANDBOLTI Haukar fengu Íslands- meistarabikarinn afhentan eftir sigur liðsins á Aftureldingu, 32-29. Haukar kvöddu þá Jón Karl Björnsson og Halldór Ingólfsson sem leggja skóna á hilluna eftir farsælan og sigursælan feril. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, sagði undirbúning fyrir næsta tímabil hafinn. „Tryggi Haraldsson og Haf- steinn Ingason leysa Jón Karl og Halldór af hólmi og svo erum við að vinna í því að framlengja við okkar leikmenn. Við stoppum í þau göt sem við þurfum.“ Aron vildi ekki segja hvaða leik- menn væru til skoðunar en Birkir Ívar Guðmundsson landsliðsmark- vörður er líklega á heimleið og því ekki úr vegi að spyrja hvort Haukar hafi sett sig í samband við hann. „Ég frétti að Viggó væri allt- af að hringja í hann. Hann er Haukamaður og fór héðan út í góðu. Við höfum alltaf átt í góðu sambandi við hann og það hefur ekki breyst,“ sagði Aron sem segir Hauka ætla að reyna að halda Elíasi Má Halldórssyni. Það var ekki eins bjart yfir Bjarka Sigurðssyni, þjálfara Aft- ureldingar, í leikslok enda liðið fallið. „Ef stjórn HSÍ og liðin í deildinni vilja halda þessu fyrir- komulagi sem er, sem ég skil engan veginn, þá leikum við í 2. deild á næsta tímabili. - gmi Jón Karl Björnsson og Halldór Ingólfsson hættir: Kvöddu með góðum sigri ÞJÁLFARI ÁRSINS Aron Kristjánsson hefur unnið frábært starf á sínu fyrsta ári með Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KVEÐJA SEM MEISTARAR Þeir Jón Karl Björnsson og Halldór Ingólfsson eru hættir og fögnuðu bikarnum vel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.